Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021
+ +
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Áætlað er að í Garðabæ verði á
næstu árum byggðar yfir 2.300 íbúð-
ir af öllum stærðum og gerðum.
Framkvæmdir hefjast í nýjum
hverfum á þessu ári og önnur svæði
bætast síðan við eftir því sem vinnu
við deiliskipulag, gatnagerð og ann-
an undirbúning vindur fram. Gunnar
Einarsson, bæjarstjóri í Garðabæ,
segir að þarna verði fjölbreyttar
íbúðir af ýmsum stærðum í fjölbýlis-
húsum, einbýli, rað- og parhúsum og
byggingasvæðin er að finna frá Urr-
iðaholti í suðaustri og út á Álftanes í
norðvestri.
Gunnar segir að mikið hafi verið
byggt í Urriðaholti á undanförnum
árum, en uppbygging þar sé langt
komin. Þar er áætlað að verði um
1.700 íbúðir og er um 600 þeirra
ólokið. Samhliða og í framhaldi af
Urriðaholtinu séu framkvæmdir að
hefjast við Eskiás/Lyngás í Ása-
hverfinu miðsvæðis í Garðabæ þar
sem verða 276 íbúðir í fyrsta áfanga.
Einnig eru framkvæmdir að hefjast
á miðsvæði Álftanes þar sem verða
252 íbúðir í fjölbýli. Þá verða lóðir
fyrir parhús í Kumlamýri á Álftanesi
auglýstar á næstunni, að sögn Gunn-
ars. Gatnagerð er lokið við Lyngás
og að hluta á Álftanesi. Stöðuna á
einstökum svæðum má sjá á með-
fylgjandi korti, en byggingasvæði
eru ýmist í eigu bæjarins eða einka-
aðila.
Unnið er að skipulagsmálum og
hönnun gatna í Vetrarmýri og
Hnoðraholti norður og reiknað með
að lóðir fari í útboð seinna á árinu og
á næsta ári. Í Vetrarmýri er fjölnota
íþróttahús risið og er á áætlun að
það verði tilbúið til notkunar í des-
ember. Þá má nefna að unnið er að
búsetukjörnum með 14-16 íbúðar-
einingum fyrir fatlað fólk.
Fyrir utan íbúðahúsnæði hafa
verið skilgreind svæði fyrir atvinnu-
starfsemi í aðalskipulagi Garða-
bæjar.
Verkefni verða að veruleika
„Mikið af þeim verkefnum sem
unnið hefur verið að síðustu ár verða
að veruleika á þessu ári og fram til
ársins 2026,“ segir Gunnar. „Við höf-
um getað mætt eftirspurn með upp-
byggingu í Urriðaholti á sama tíma
og skortur hefur verið á lóðum og
íbúðahúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu í heild. Við ætlum að gera enn
betur á næstu árum, sem sést á því
að í Garðabæ eru áform um yfir
2.300 íbúðaeiningar á næstu fimm
árum.
Til framtíðar er mikið af bygg-
ingalandi í Garðabæ, ég nefni Garða-
holtið, Hnoðraholt suður, svæði í
kringum Hafnarfjarðarveginn og á
Álftanesi þannig að við kvíðum því
ekki að geta ekki annað spurn eftir
lóðum. Þróun síðustu ára hefur verið
ánægjuleg, en það er þó ekki endi-
lega stefnan að verða sem fjölmenn-
ust, miklu frekar að gera hlutina
vel.“
Á Norðurnesi og í Víðiholti á
Álftanesi er gert ráð fyrir 150-160
íbúðum í fjölbýli, einbýli og rað-
húsum og er unnið að deiliskipulagi.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um
hvenær framkvæmdir gætu hafist.
Land í Setbergi og Svínholti er
ódeiliskipulagt.
Tæplega 18 þúsund íbúar
Íbúar í Garðabæ eru nú rétt tæp-
lega 18 þúsund og fjölgaði um rúm-
lega eitt þúsund frá 1. desember
2019 til síðustu mánaðamóta. Á síð-
asta ári var fjölgunin hlutfallslega
mest í Garðabæ í sveitarfélögum á
höfuðborgarsvæðinu eða um 4,5%
frá 1. desember 2019 til 1. janúar
2021. Á sama tíma var hún 4,3% í
Mosfellsbæ, 1,5% í Reykjavík, 1,6% í
Kópavogi, 1,2% í Kjósarhreppi, en
fækkun varð um 1% í Hafnarfirði og
0,2% á Seltjarnarnesi.
Í heildina fjölgaði íbúum á höfuð-
borgarsvæðinu um 1,5% á tímabilinu
eða 3.495 íbúa. Í Reykjavík fjölgaði
um 2.133 íbúa, en Garðabær var í
öðru sæti sveitarfélaga á landsvísu
hvað varðar fjölgun einstaklinga, en
þar fjölgaði íbúum um 768 frá 1. des-
ember 2019 til 1. janúar 2021.
Gunnar segir að margir hafi sam-
band við skrifstofur bæjarins og
spyrjist fyrir um stöðu einstakra
verkefna hvað varðar skipulag og
annan undirbúning. Brugðist verði
við því á næstunni með því að birta
kort á heimasíðu Garðabæjar sem
sýni staðsetningu byggingarsvæða,
hvar viðkomandi hverfi sé statt í
ferlinu og hvenær lóðir komi til út-
hlutunar.
Mikil upp-
bygging er
fram undan
- Áform um að yfir 2.300 íbúðir verði
byggðar í Garðabæ á næstu fimm árum
1
2
3
47
5
6
9
10
11
8
Uppbygging íbúðarhúsnæðis í Garðabæ
Samtals einingar Uppbygging frá
1 Breiðamýri, Álftanesi 252 íbúðir 2021
2 Kumlamýri, Álftanesi 40 parhús 2021
3 Eskiás 276 íbúðir 2021
4
Hnoðraholt norður
(án Þorraholts)
219 einingar, einbýlis-
hús, raðhús og fjölbýli 2021/2022
5 Vetrarmýri 664 íbúðir 2021/2022
6 Urriðaholt 600 einingar, einbýli,parhús og fjölbýli
Lokið
2023/24
Samtals einingar Uppbygging frá
7 Hnoðraholt-Þorraholt 200 íbúðir 2021/2022
8 Garðahraun (Prýði) 19 einbýlishús 2021
9 Garðahverfi 30 einbýli/smábýli 2021
10 Krókur, Álftanesi 51 raðhús Óákveðið
11 Helguvík, Álftanesi 23 einbýli Óákveðið
Yfir 2.300 íbúðareiningar í uppbyggingu frá 2021
Teikning/Batteríið/Sigurður Einarsson
Vetrarmýri Reiknað er með yfir 600 íbúðum í Vetrarmýri, íþróttasvæðið er til vinstri á myndinni og verður íþrótta-
húsið tilbúið í vetur, fyrirhuguð skólabygging er þar fyrir ofan. Vífilsstaðir til hægri.
Ásahverfi Gunnar Einarsson bæjarstjóri við Eskiás þar sem samnefnt félag
er að byggja fjölbýlishús með 276 íbúðum sem fara í sölu á næsta ári.