Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 20

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 20
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Útlit er fyrir að árið 2021 verði sögu- legt á íslenskum hlutabréfamarkaði að sögn Magnúsar Harðarsonar for- stjóra Kauphallarinnar. Hann segir að leita þurfi allt aftur til ársins 2000 til að finna sambærilegan áhuga fyr- irtækja á að skrá bréf sín á markað. „Við náðum ákveðnum toppi um aldamótin þegar 10 félög komu ný inn á markaðinn og markaðurinn taldi þá alls 75 félög. Að sumu leyti tel ég að árið í ár sé það mest spennandi á markaðnum frá aldamótum,“ segir Magnús. Fyrr í þessari viku lauk vel heppn- uðu útboði Síldarvinnslunnar þegar sex þúsund og fimm hundruð áskriftir bárust fyrir um 60 milljarða króna. Í júní nk. er von á hlutafjárútboði Ís- landsbanka þar sem bjóða á til sölu 25-35% hlut í bankanum. Eigið fé bankans er nú 185,5 milljarðar króna. Ef bankinn verður metinn á eina krónu á móti eigin fé yrði stærð út- boðsins á bilinu 60-70 milljarðar króna. Eins og Morgunblaðið greindi frá á dögunum stefnir tölvuleikja- fyrirtækið Solid Clouds einnig á hlutafjárútboð og skráningu á First North-markað kauphallarinnar. Enn fremur hefur flugfélagið Play lýst því yfir að það vilji safna 20 milljónum bandaríkjadala, eða um 2,5 milljörð- um króna, í hlutafjárútboði í júní og skrá hlutina á First North-markað- inn. Risaútboð Íslandsbanka „Útboð Íslandsbanka verður sann- kallað risaútboð og verður með þeim allra stærstu í sögu Kauphallarinn- ar,“ segir Magnús en önnur útboð af sambærilegri stærð á nýliðnum árum eru útboð á bréfum Marels og Arion banka. Magnús segir að auk framan- greindra fyrirtækja sem eru á leið í Kauphöllina sé ýmislegt kraumandi undir niðri. „Ég man ekki eftir jafn mörgum samtölum um skráningu síð- an ég byrjaði í Kauphöllinni fyrir nítján árum. Við eigum í uppbyggileg- um viðræðum við nokkur félög sem mögulega koma á markað á þessu ári eða því næsta.“ Spurður um ástæður fyrir þessum mikla áhuga segist Magnús skynja ákveðna vitundarvakningu. „Sterk innkoma almennings í hlutafjárútboði Icelandair síðasta haust breytti gang- inum töluvert og hefur held ég vakið forsvarsmenn margra fyrirtækja til umhugsunar um hlutabréfamark- aðinn sem fjáröflunarkost. Ég held að þeir hafi margir séð að þarna er fjár- festahópur sem bæði er hægt að höfða og leita til, til viðbótar við þessa hefðbundnu fagfjárfesta á markaðn- um.“ Aðstæður á markaði hagstæðar Einnig segir Magnús að aðstæður séu hagstæðar á markaðnum. Vextir séu sögulega lágir en á sama tíma eru bankainnstæður í sögulegum hæðum. Það sé því ekki skrýtið að almenn- ingur velti fyrir sér hvernig hann vilji ráðstafa fé sínu. Um útboð Síldarvinnslunnar segir Magnús að sér finnist mjög skemmti- legt að fá sjávarútveginn inn af meiri krafti í Kauphöllina. „Maður hefur tekið eftir því í samtölum við ýmsa að- ila í sjávarútvegi hvað þessi grein er um margt framsækin. Það eru ekki allir sem átta sig á því.“ Hann segir að góð þátttaka al- mennings í hlutafjárútboði Síldar- vinnslunnar sýni glöggt að fólk hafi mikinn áhuga á sjávarútveginum. „Svo má ekki gleyma því að með auk- inni þátttöku kemur aukið aðhald frá almenningi sem er gott á svo marga vegu. Markaðurinn verður dýpri og fleiri augu hvíla á fyrirtækjunum. Skoðanaskipti verða heilbrigðari.“ Vilja nýta markaðinn til vaxtar Um fyrirhugaða skráningu Play og Solid Clouds á markaðinn segir Magnús að þarna séu á ferð fyrirtæki sem starfa í geirum sem ekki hefur mikið sést til á íslenska markaðnum. „Þetta eru lítil fyrirtæki þannig séð sem vilja nýta markaðinn til vaxtar. Þetta er svipað og fyrirtæki sem eru að koma inn á fyrri stigum í sinni starfsemi á First North-markaðinn í Svíþjóð, og er mjög jákvæð þróun.“ Mest spennandi ár á hluta- bréfamarkaði frá aldamótum Morgunblaðið/Eggert Markaður Með aukinni þátttöku kemur meira aðhald og dýpt. - Vitundarvakning - Nokkur félög skoða skráningu á þessu ári og því næsta Nýleg og væntanleg hlutafjárútboð Selt hlutafé í útboði (ma.kr.) Fjöldi áskrifta Icelandair 30,3 * 9.000 Síldarvinnslan 60 6.500 Íslandsbanki 60-70 ** Solid Clouds Óvíst Play 2,5 ** *Nýjum hlutum fylgdu 25 prósent áskriftar- réttindi, eða sem nemur 5,75 milljörðum hluta. **Áætlað. Magnús Harðarson 20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum 15. maí 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 124.37 Sterlingspund 175.64 Kanadadalur 102.93 Dönsk króna 20.266 Norsk króna 15.026 Sænsk króna 14.914 Svissn. franki 137.44 Japanskt jen 1.1432 SDR 179.07 Evra 150.7 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.402 Hrávöruverð Gull 1814.3 ($/únsa) Ál 2422.5 ($/tonn) LME Hráolía 68.88 ($/fatið) Brent « Greining Ís- landsbanka gerir ráð fyrir að pen- ingastefnunefnd muni hækka meg- invexti Seðlabank- ans um 0,25 pró- sentur við vaxta- ákvörðun hinn 19. maí næstkomandi. Segir í rökstuðn- ingi með þeirri spá að mikil og þrálát verðbólga verði ásamt minnkandi óvissu um efnahags- bata. Verði af hækkun nú telur Íslands- banki að vextir muni haldast óbreyttir fram á lokafjórðung ársins en að hæg- fara vaxtahækkunarferli sé í pípunum í kjölfarið. Ólíkt Íslandsbanka telur Landsbank- inn að nefndin muni halda meginvöxt- unum óbreyttum í 0,75%. Þó sé farið að styttast í næstu hækkun. Viður- kennir hagfræðideild bankans að óviss- an um ákvörðun nefndarinnar sé tals- verð að þessu sinni. Bendir hún á að verðbólguþróunin ráði þar miklu en að hún hafi verið yfir efri vikmörkum verð- bólgumarkmiðs Seðlabankans allt þetta ár. Í febrúar hafi Seðlabankinn spáð því að verðbólga yrði 3,9% á fyrsta árs- fjórðungi en hún hafi hins vegar reynst 4,2%. Einn spáir hækkun stýrivaxta en annar ekki Vextir Ákvörðun tilkynnt 19. maí. STUTT innar okkar í Hveragerði, segir söl- una í mars og apríl hafa aukist um 20% frá fyrra ári og sölu á vissum vörum frá Kjörís enn meira. Meira á ferðinni en áður Spurð um ástæður aukinnar sölu nefnir Íris Tinna að Íslendingar séu meira á ferðinni en áður. Þ.m.t. sumarhúsaeigendur á Suðurlandi. „Bólusettar ömmur og afar eru farin að streyma í ísbúðina með Baldur Arnarson baldura@mbl.is Veitingamenn í Hveragerði og á Sel- fossi segja söluna í vor hafa aukist mikið frá fyrra ári og þakka þeir það meðal annars bólusetningu meðal eldra fólks gegn kórónuveirunni. Sú þróun rímar við aukna bíla- umferð um Hellisheiðina (sjá graf). Jakob Jakobsson, veitingamaður á Matkránni í Hveragerði, áætlar að salan í mars og apríl hafi aukist um 100% frá sömu mánuðum í fyrra. „Þetta er eins og að bera saman svart og hvítt. Fullorðna fólkið er til dæmis farið að leyfa sér meira. Við heyrum marga viðskiptavini lýsa yfir ánægju með að hafa verið bólusettir og geta loksins verið úti á meðal fólks,“ segir Jakob. Móttökurnar framar vonum Matkráin var opnuð 1. júní 2019 og segir Jakob móttökurnar hafa verið framar vonum. Orðspor hans sem veitingamaður á Jómfrúnni hafi fylgt honum til Hveragerðis. Meirihluti gesta sé innlendir ferðamenn en er- lendir ferðamenn kærkomin viðbót. „Hér var fullt hús sumarið 2019 eins og á svo mörgum stöðum úti á landi. Íslendingar voru þá mikið á ferðinni,“ segir Jakob sem reiknar aðspurður með að salan í sumar verði álíka góð og sumarið 2019. „Það búast allir við góðu ferða- sumri og að það komi erlendir ferða- menn. Því er ekki að neita að maður er farinn að þurfa að bregða fyrir sig enskunni líka,“ segir Jakob. Íris Tinna Margrétardóttir, eig- andi og framkvæmdastjóri Ísbúðar- barnabörnin. Við förum bjartsýn inn í sumarið. Sumarið í fyrra var tölu- vert betra en sumarið 2019 enda ferðuðust margir Íslendingar þá inn- anlands. Það má gera ráð fyrir að sumarið verði enn betra en í fyrra.“ Leigir skála vegna góðrar sölu Tómas Þóroddsson, veitingamað- ur hjá Kaffi Krús á Selfossi, segir söluna í apríl hafa aukist um 300% frá aprílmánuði í fyrra. Heilt yfir sé salan á árinu 20% minni en í fyrra. „Við vorum með 24 starfsmenn í apríl eða jafn marga og í júlí í fyrra- sumar sem er jafnan besti mánuður- inn í sölunni. Því er útlit fyrir að sal- an í sumar verði meiri en í fyrra,“ segir Tómas, sem hefur leigt Tryggvaskála af Árborg vegna væntinga um góða sölu. Skálinn rúmar 60 manns í sal en hann er við hringtorgið austan við brúna. Ingunn Guðmundsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Pylsuvagnsins á Selfossi, segir söluna hafa aukist. „Það hafa miklu fleiri verið á ferð- inni en í fyrra og fyrr á ferðinni. Það skilar sér í sölunni,“ segir Ingunn sem kveðst heyra það á fólki að það ætli að ferðast innanlands í sumar. Morgunblaðið/Baldur Ísbúðin Íris Tinna Margrétardóttir eigandi Ísbúðarinnar okkar. Veitingamenn austan fjalls ná vopnum sínum eftir erfiða tíð - Dæmi um 300% söluaukningu í apríl - Sumarhúsaeigendur eru komnir á kreik 6 .5 5 6 7 .4 9 2 7 .9 1 4 8 .4 0 8 1 0 .0 1 7 6 .0 1 1 7 .4 8 4 6 .0 2 2 5 .5 9 2 8 .8 6 2 Umferð um hring- veginn á Hellisheiði Fjöldi ökutækja 2020 2021 janúar febrúar mars apríl maí* *Til og með 13.maí 2020 og 2021 Heimild: Vegagerðin +9% +0,1% +31% +50% +13%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.