Morgunblaðið - 15.05.2021, Síða 23

Morgunblaðið - 15.05.2021, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Flutningar Hér siglir eitt af flutningaskipum Samskipa inn sundin blá og ber við Engey. Miklir vöruflutningar sjóðleiðina hafa verið til og frá landinu undanfarna mánuði. Árni Sæberg Landsréttur var stofnaður með lögum um dómstóla nr. 50/ 2016 og tók rétturinn til starfa 1. janúar 2018. Ákveðið var að Hæstiréttur skyldi starfa áfram og verða eins konar fordæm- isdómstóll sem tæki aðeins mál til með- ferðar samkvæmt eig- in áfrýjunarleyfum. Við þessar breytingar varð ljóst að verkefni Hæstaréttar drógust saman svo um munaði. Fastir dóm- arar við réttinn voru níu fyrir breytinguna, en urðu sjö sam- kvæmt hinum nýju lögum. Ábend- ingar komu fram um að þeir þyrftu ekki að vera nema fimm eins og þeir reyndar voru lengst af á síð- ustu öld. Rétturinn mun sjálfur hafa óskað eftir að dómarar yrðu sjö og var það látið eftir honum. Hér skal fullyrt að þetta er alger óþarfi. Miðað við umfang starfa réttarins nú ættu dómarar ekki að vera fleiri en fimm sem tækju þá allir þátt í meðferð og afgreiðslu allra mála sem rétt- urinn dæmir. Það er satt að segja fremur undarlegt að rétturinn skuli sjálfur hafa viljað að dóm- ararnir yrðu fleiri en þörf er á. Í ljós er komið að þeir eru farnir að gegna um- fangsmiklum störfum utan réttarins. Til dæmis eru fjórir þeirra sitjandi í föst- um kennarastöðum við lagadeild Háskóla Ís- lands, þrír sem prófessorar og einn dósent. Þetta er nýtt í sögu rétt- arins. Í fortíðinni hafa kennarar sem hlotið hafa skipun í Hæstarétt jafnan sagt kennslustöðum sínum lausum. Nefna má í dæmaskyni Ármann Snævarr, Þór Vilhjálms- son, Arnljót Björnsson, Markús Sigurbjörnsson, sjálfan mig og Við- ar Má Matthíasson. Fyrsta dæmið um þessa sérkennilegu nýbreytni er Benedikt Bogason, sem gegnir prófessorsstöðu við lagadeild HÍ. Það gera núna líka Björg Thor- arensen og Ása Ólafsdóttir. Karl Axelsson er dósent. Þannig sitja nú fjórir af sjö dómurum réttarins í föstum kennslustöðum við laga- deild HÍ. Óboðlegt bandalag Það er líka ekki boðlegt það bandalag sem myndast með þess- um hætti milli lagadeildar HÍ og réttarins. Deildin hefur því hlut- verki að gegna að fjalla með gagn- rýnum hætti um dómaframkvæmd í landinu. En þarna eru allir vinir. Þeir gefa út heiðursrit hinum til vegsemdar og sitja saman í nefnd- um, sem fara með veigamikil völd í dómskerfinu, t.d. við að meta hæfni dómaraefna. Augljós dæmi eru fyr- ir hendi um misnotkun á þessu síð- astnefnda valdi. Svo gegna dómararnir einnig öðrum aukastörfum sem hljóta að teljast umfangsmikil. Einn er for- seti endurupptökudóms. Tveir sitja í réttarfarsnefnd sem hefur að gegna umfangsmiklu starfi við samningu lagafrumvarpa o.fl. Hvernig geta dómarar við Hæsta- rétt tekið þátt í að semja laga- frumvörp með þessum hætti? Fleiri dæmi um slík aukastörf mætti telja en verður ekki gert hér. Þá læðist að manni grunur um að dómararnir í Hæstarétti hafi séð sér leik á borði við stofnun Landsréttar að tryggja sjálfum sér möguleika til aukastarfa sem greiddar eru vænar þóknanir fyrir. Þess vegna hafi þeir viljað vera sjö en ekki fimm eins og við blasti að væri nóg. Væri ekki rétt að Há- skóli Íslands upplýsti almenning um launagreiðslur sínar til þessara hæstaréttardómara? Gildir ekki lengur Í 61. gr. stjórnarskrárinnar er að finna ákvæði um dómsvaldið. Þar er gert ráð fyrir að í landinu starfi dómarar, „sem ekki hafa að auki umboðsstörf á hendi“. Í gegnum tíðina hefur verið litið svo á að dómarar Hæstaréttar hafi verið þeir einu sem þetta gat átt við um. Nú virðist það ekki gilda lengur. Að lokum skal þess getið að Hæstiréttur hefur því hlutverki að gegna að tilnefna fulltrúa í fjöl- margar stjórnir og nefndir í stjórn- sýslu. Það hefur vakið athygli manna að þar eru nær eingöngu tilnefndir lögfræðingar sem tengj- ast beint lagadeild HÍ en nær eng- ir frá Háskólanum í Reykjavík. Klíkuveldið er alls ráðandi. Alþingi ætti að taka á þessu og nema með öllu úr lögum heimildir Hæsta- réttar til þessara tilnefninga. Það er líka vandséð hvernig unnt er að tryggja hlutlausa stöðu dómstóls- ins til verka slíkra nefnda, sem hann sjálfur hefur átt þátt í að skipa, ef á slíkt reynir fyrir dóm- inum. Það er löngu kominn tími til að trúnaðarmenn almennings á Ís- landi átti sig á þeirri sjálfsþjónkun sem ríkir í starfi æðsta dómstóls þjóðarinnar og grípi til ráðstafana til að uppræta hana. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » „Það er satt að segja fremur undarlegt að rétturinn skuli sjálfur hafa viljað að dómararnir yrðu fleiri en þörf er á. Í ljós er komið að þeir eru farnir að gegna um- fangsmiklum störfum utan réttarins.“Jón SteinarGunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt Íslands. Sjálfsþjónkun þar sem síst skyldi Söguleg lagabreyt- ing var samþykkt á Alþingi í vikunni, þegar réttur iðn- menntaðra til náms í háskólum var stað- festur að minni til- lögu. Þessi grundvall- arbreyting er táknræn fyrir þá já- kvæðu viðhorfsbreyt- ingu sem orðið hefur gagnvart starfsmenntun á örfáum árum. Áhuginn á starfsnámi hefur snaraukist, verk- og tæknimennta- skólar eru meðal vinsælustu fram- haldsskóla landsins og laða í stór- auknum mæli til sín hæfileikafólk á öllum aldri. Tugþúsundir iðnmenntaðra fá aukin réttindi Bylting af þessum toga er ekki sjálfsprottin, heldur verður hún vegna skýrrar sýnar og mark- vissra aðgerða. Við upphaf kjör- tímabilsins einsetti ég mér að koma verkmenntun á þann stall sem hún á skilið. Auka veg og virðingu hennar með orðum mín- um og gjörðum. Með góðu sam- starfi við skólafólk, fagfólk og fyrirtæki í iðnaði er það að tak- ast og kerfisbreyt- ingar eru að raunger- ast. Aukin réttindi tugþúsunda iðn- aðarmanna eru stór liður í því, en auk þess munu háskól- arnir njóta góðs af fjölbreyttari bak- grunni þeirra sem sækja sér nám í æðstu menntastofn- unum landsins. Viðbrögðin við breytingunum hafa verið frábær og ljóst má vera að meginþorra þjóðarinnar þykir breytingin löngu tímabær. Viðbætur við öflugt verknámskerfi Önnur mikilvæg kerfisbreyting felst í auknum sveigjanleika í verklegum þætti starfsnámsins, sem verður að veruleika frá og með haustinu. Núverandi starfs- námskerfi hefur reynst vel, en með nýrri reglugerð um vinnu- staðanám er kerfið styrkt enn frekar. Hingað til hefur vinnustaðanám undir leiðsögn iðn- meistara verið forsenda þess að nemi geti lokið námi. Meistarar hafa staðið sig með sóma og tekið á sig skyldur sem menntakerfið í heild ætti að bera. Nýja reglugerðin talar inn í þann veruleika og gerir ráð fyrir sameiginlegri ábyrgð lykilaðila í starfsmenntakerfinu. Iðnmeistarar munu áfram geta boðið iðnnemum námssamning, en til viðbótar verð- ur ábyrgð skólanna aukin. Þeim verður falið að tryggja í samstarfi við atvinnulífið verklega þjálfun nema sem ekki eru á formlegum samningi, ýmist með þjálfun á ein- um vinnustað eða eftir atvikum nokkrum. Þjálfunin mun taka mið af hæfnikröfum, sem hafa í fyrsta sinn verið tilgreindar með skýrum hætti í nýju verknámskerfi – raf- rænni ferilbók sem tekin verður í notkun í haust. Sumar iðngreinar eru lengra komnar en aðrar í skil- greiningu hæfniþáttanna, en markvisst er unnið að upp- færslum og hafa faghópar í öllum greinum unnið frábært starf. Gott samstarf er lykilatriði Breytingarnar hafa í megin- atriðum mælst vel fyrir. Fagmenn í ólíkum iðngreinum, fyrirtæki og stéttarfélög hafa gefið góð ráð, bent á áskoranir og hættur sem ber að varast. Samstarf af þeim toga er ómetanlegt, enda vilja stjórnvöld ekki skapa ný vanda- mál með lausnum við eldri vanda- málum. Markmiðið með breyting- unum er að efla starfsnám í landinu, tryggja nýliðun í mikil- vægum atvinnugreinum og upp- fylla bæði þarfir nemenda og at- vinnulífsins. Ætlunin er jafnframt að samhæfa betur en áður nám í einstökum greinum og milli iðn- greina. Þannig mun náms- framvinda ekki lengur ráðast af námssamningstíma heldur skýr- um hæfniviðmiðum, sem starfandi iðnaðarmenn hafa skilgreint. Þeir þekkja best hvaða færni nemar þurfa að tileinka sér og með góðu samstarfi, skilvirkri skráningu á námsframvindu og sameiginlegri ábyrgð verða gæði námsins tryggð. Þá munum við sérstaklega horfa til þess, að ekki skapist hætta á félagslegum undirboðum á vinnumarkaði við innleiðingu á nýju reglugerðinni. Þar njótum við leiðsagnar þeirra sem best þekkja til, fag- og stéttarfélaga sem taka þátt í undirbúningnum. Þakklæti efst í huga Kerfisbreytingar taka tíma. All- ir hlutaðeigandi – stjórnkerfið, at- vinnulífið, nemendur og skólar – vita að hlutverk og verkaskipting getur breyst þegar nýjar leik- reglur eru innleiddar og ýmsar áskoranir geta skapast. Það er hins vegar mín sannfæring, að all- ir lykilaðilar muni leggjast saman á árarnar, tryggja farsæla innleið- ingu og leysa þau mál sem kunna að koma upp. Ég er stolt af breytingunum sem hafa orðið á minni vakt og þakklát þeim sem hafa breytt verknámskerfinu með okkur í ráðuneytinu; starfandi iðnaðar- mönnum, fyrirtækjum, fagfélögum og verknámsskólum. Saman mun- um við áfram skila frábæru fag- fólki út í samfélagið. Eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur »Ég er stolt af breytingunum sem hafa orðið á minni vakt og þakklát þeim sem hafa breytt verk- námskerfinu með okkur í ráðuneytinu. Lilja Alfreðsdóttir Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. Sögulegar breytingar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.