Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 25

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Í slandsmóti skákfélaga fyrir tímabilið 2019-2020 hefði átt að ljúka fyrir rösklega ári en var slegið á frest í byrjun Covid-faraldursins. Stjórn Skáksam- bands Íslands tók þá ákvörðun að ljúka seinni hluta keppninnar um þessa helgi; sjötta umferðin hófst í gær en sú níunda og síðasta fer fram á morgun í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur og Skáksambandsins í Faxafeni. Tvær umferðir verða tefld- ar í dag. Keppnin fer einungis fram í fyrstu og annarri deild en í keppni í þriðju og fjórðu deild hefur verið af- lýst og staðan eftir fyrri hluta látin gilda. Í raun og veru var engin góð lausn til varðandi framhaldið en vonandi verður þessi fremur skrykkjótta byrjun ávísun á kröftuga viðspyrnu í skáklífinu og sjást þess þegar ýmis merki. Það var ýmislegt undir hjá keppendum, t.d. getur Vignir Vatnar Stefánsson náð lokaáfanga sínum að alþjóðlegum meistaratitli. Staðan í 1. deild eftir fyrri hlutann var þessi: 1. Víkingaklúbburinn 32 v. (af 40) 2. SSON 30 v. 3. Huginn 25½ v. 4. Taflfélag Garðabæjar 22 v. 5.-6. Fjölnir og TR (a-sveit) 20 v. 7. Breiðablik, Borgarnes og Reykjanes 18 v. 8. SA 17½ v. 9.-10. Víkinga- klúbbur (b-sveit) og TR b-sveit) 7½ v. Í 2. deild var skákdeild KR í efsta sæti með 18 vinninga af 24 mögu- legum en í 2.-3. sæti komu Taflfélag Vestmannaeyja og b-sveit SA með 16 vinninga, Huginn, b-sveit, er svo í 4. sæti með 12 vinninga. Fjögur efstu liðin færast í 1. deild. Sú grundvallarbreyting verður nú gerð á Íslandsmóti skákfélaga eftir þetta tímabil að við tekur nýstofnuð efsta deild sex skákfélaga sem tefla munu tvöfalda umferð eða samtals tíu umferðir. Ekki slæmt fyrir- komulag að margra mati en hins veg- ar hefur ekki verið tekið á því fyr- irkomulagi að leyfa tvö lið frá sama félagi í efstu deild. Norðanmenn minnast Gylfa Um hvítasunnuhelgina, dagana 21.-24. maí nk., standa Skákfélag Ak- ureyrar og velunnarar ýmsir fyrir minningarmóti um Gylfa Þórhalls- son. Á Íslandsmóti skákfélaga settu fáir einstaklingar meiri svip á þá keppni. Hann var meðal liðsmanna SA í fyrstu viðureign SA gegn TR haustið 1974 og missti ekki úr viður- eign með sínu félagi áratugum sam- an. Áskell Örn Kárason, Halldór Brynjar Halldórsson, Rúnar Sigur- pálsson og Smári Ólafsson hafa skrif- að skemmtilegar greinar um Gylfa í rit sem gefið verður út í tengslum við mótið. Ég fann nokkur dæmi úr skákum Gylfa frá „deildarkeppninni“ eins og Íslandsmótið var lengi kallað: Íslandsmót skákfélaga 1994: Gylfi Þórhallsson – Jón G. Viðars- son Gylfi hafði fórnað skiptamun og lék nú: 23 c4! Kc8 24. cxd5 a5 Það virðist nokkurt hald í þessum leik en nú kom. … 25. Bg4! Hhd8 Eða 25. … axb4 26. dxc6 og vinnur. 26. dxc6 - og svartur gafst upp. Íslandsmót skákfélaga 2001: Gylfi Þórhallsson – Hrafn Lofts- son 26. Hxe5! dxe5 27. Df7+ Kh8 28. Dxe7! - og svartur gafst upp, 28. … Hxe7 er svarað með 29. Hf8 mát. Íslandsmót skákfélaga 2013: Gylfi Þórhallsson – Daði Ómars- son 23. f6! Rgxf6 24. Rd4! Stefnir á f5-reitinn. 24. … He5 25. Rf5 Hxf5 26. Dxf5 Re5 27. Rd5! Bxd5 28. cxd5 He8 29. Be4 He7 30. h4! De8 31. Dh7+ - og svartur gafst upp því að eftir 31. … Kf8 32. hxg5 er staðan von- laus. Íslandsmót skák- félaga hafið að nýju Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Aftur til framtíðar Hjörvar Steinn, Hannes Hlífar, Vignir Vatnar, Halldór Grétar og Hlíðar Þór við taflið á Íslandsmóti skákfélaga 2019-2020. Skipulag 1. áfanga íbúðabyggðar, þétt við norður/suður-flug- brautina á Reykjavík- urflugvelli, gerir ráð fyrir byggingu um 700 íbúða á því svæði. Á þessu svæði er að mestu gert ráð fyrir fjölbýli auk nokkurra raðhúsa. Hæð húsa í fjölbýli verði 3-5 hæðir. 90% íbúða skulu vera 2-4 herbergja. Ekki eru heimilaðir opnanlegir gluggar á þeirri hlið húsa sem snýr að flugbrautinni og eru næst henni. Í skipulaginu er kveðið á um rúm- lega hálft bílastæði á íbúð og nánast öll bílastæði, 400-450, verði í sér- stöku bílageymsluhúsi í miðju hverf- isins, sem á „að leysa bílastæðaþörf íbúa og annarra, sem sækja hverfið“, eins og segir í skilmálum með skipu- laginu. Engin bílastæði fylgja ein- stökum íbúðarlóðum. Varðandi hugsanlega gististarf- semi á svæðinu segir m.a. í skilmál- um að eitt stæði verði fyrir hver 10 herbergi fyrir gesti, auk fjögurra stæða fyrir hverja 10 starfsmenn. Hjóli eða gangi úr bílastæðahúsi Gert er ráð fyrir að íbúar hjóli eða gangi úr bílageymsluhúsi til sinnar íbúðar í hverfinu. Ekki beint fýsi- legur kostur þegar illa viðrar. Skipu- lagið gerir greinilega ráð fyrir því að á þessu borgarsvæði verði ekki hvassviðri, snjóþyngsli eða hálar göt- ur og stígar. Í greinargerð með skipulaginu segir m.a.: „Staðsetning í vest- urhluta Reykjavíkur er líkleg til að draga úr notkun einkabílsins, sér- staklega þar sem bílastæði eru leyst í miðlægu bílageymsluhúsi.“ Nýstár- leg þvingunaraðferð meirihlutans í Reykjavík. Háhýsabyggð í forgangi Ljóst er að núverandi meirihluti hefur gert ráð fyrir því að ofangreind uppbygging sé einungis 1. áfangi í byggingu íbúðar- og atvinnu- húsnæðis á öllu núverandi flugvall- arsvæði í Reykjavík. Nú hafa mátt- arvöldin gripið í taumana. Eldgos á Reykjanesskaga hefur gert draum meirihlut- ans um flugvöll í Hvassahrauni og frek- ari uppbyggingu á flug- vallarsvæðinu að engu. Síðastliðin þrjú ár hefur meirihlutinn í Reykjavík beitt sér fyr- ir þéttri háhýsabyggð, fyrst og fremst á mið- borgarsvæðinu og í vesturhluta borg- arinnar. Nánast engum lóðum hefur á þessum árum verið úthlutað fyrir einbýli, rað- hús eða parhús. Meirihlutinn hatast við einkabílinn Ekki aðeins hefur núverandi meiri- hluti almenna fyrirlitningu á upp- byggingu sérbýlishúsa, heldur hatast við einkabílinn og telur hann nánast mestu ógnun við mannkynið. Stjórn- lyndi meirihlutans ríður ekki við ein- teyming. Fólkið skal ferðast með 100 milljarða borgarlínu hvað sem tautar og raular. Á fundi borgarstjórnar þegar um- rætt deiliskipulag var samþykkt í borgarstjórn flutti Marta Guðjóns- dóttir borgarfulltrúi afar greinargóða ræðu um þetta mál, þar sem hún m.a. sagði: „Fjölmargir aðilar gerðu alvar- legar athugasemdir við skipulag þessa svæðis, m.a. Íbúasamtök Skerjafjarðar, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðin og Samgöngustofa.“ Á þær var ekki hlustað og þeim meira og minna stungið undir stól eins og fram kom í ræðu Mörtu þegar málið kom til afgreiðslu í borgarstjórn. Þar á meðal athugasemdir Vegagerð- arinnar vegna áhrifa aukinnar um- ferðar á nærliggjandi stofnvegum, s.s. Suðurgötu, Hringbraut og Njarð- argötu, þar sem umferðarþunginn er þegar orðin mjög mikill. Óvild meirihlutans gagnvart flug- vellinum í Reykjavík verður vart meiri. Eftir Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson » „Nýstárleg þving- unaraðferð meiri- hlutans í Reykjavík“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Höfundur er fv. borgarstjóri. Fráleit áform JÓN Guðmundsson fæddist 15. maí 1929 í Hvammi í Land- sveit. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Jónsson, f. 1899, d. 1982, bóndi og Stein- unn Gissurardóttir, f. 1906, d. 2000. Jón lærði trésmíði og hlaut síðan meistararéttindi í þeirri grein. Hann starfaði við húsa- smíði í Reykjavík en vegna slysa þurfti hann að skipta um starf og hóf akstur bifreiða. Hann var einn af stofnendum Sendibílastöðvarinnar í Reykjavík. Árið 1963 keypti Jón bátinn Sjóla, ásamt tengdaföður sín- um, Haraldi Kristjánssyni skipstjóra. Þeir stofnuðu enn fremur fiskvinnslu í Reykjavík sem þeir fluttu síðar til Hafnar- fjarðar. Skipakosturinn stækk- aði ört og varð fyrirtæki þeirra, Sjólaskip, eitt af umsvifamestu atvinnufyrirtækjum Hafnar- fjarðar. Jón kom einnig að rekstri ýmissa annarra fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi og tók hann þátt í stjórnun þeirra. Þá var hann félagi í Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar. Eiginkona Jóns er Marinella Ragnheiður Haraldsdóttir, f. 14.9. 1933, búsett í Garðabæ. Þau eignuðust fjögur börn. Jón lést 1. júlí 2002. Merkir Íslendingar Jón Guð- mundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.