Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 28
28 MESSURá morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. Organisti er Krisztina K. Szklenár. ÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Séra Sigurður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syng- ur. Organisti Bjartur Logi Guðnason. Aðalsafnaðarfundur Ássóknar 2021 verður haldinn í Ási strax að guðs- þjónustu lokinni. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Kosningar. Önnur mál. Kaffiveitingar. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur er Magnús Björn Björnsson. Kór kirkjunnar syngur, organisti er Örn Magnússon. Lista- verkið Hendur Guðs eftir Willy Pet- ersen afhjúpað. Aðalsafnaðarfundur kl. 12.30, venjuleg aðalfundarstörf. Alþjóðlegi söfnuðurinn kl. 14. Prest- ur er Toshiki Toma. BÚSTAÐAKIRKJA | Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Sr. Eva Björk. sr. María og sr. Pálmi þjóna í messunni ásamt messuþjónum. Kantor Jónas Þórir ásamt félögum úr Kammerkór Bústaðakirkju leiða tónlistina. Mess- an er með óhefðbundnu messu- formi. Aðalsafnaðarfundur Bústaðasóknar verður haldinn fyrir messu kl. 19. DIGRANESKIRKJA | Aðalsafnaðar- fundur Digranessóknar verður hald- inn sunnudaginn 16. maí 2021 klukkan 11 í Digraneskirkju. Venjuleg aðalfundarstörf. Fundurinn hefst með ritningarlestri og bæn. DÓMKIRKJAN | Guðsþjónusta klukkan 11. Séra Sveinn Valgeirs- son, Dómkórinn og Kári Þormar dóm- organisti. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta kl. 11, sr. Guðmundur Karl Ágústsson þjónar og prédikar. Barna- kór Hólabrekkuskóla syngur undir stjórn Diljár Sigursveinsdóttur kór- stjóra og Arnhildar Valgarðsdóttur organista. Meðhjálpari Helga Björg Gunnarsdóttir. Kaffisopi og djús eftir stundina. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Ferming- armessa sunnudag 16. maí kl. 14. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson safn- aðarprestur þjónar fyrir altari. Hljóm- sveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunn- ari Gunnarssyni. GRENSÁSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng ásamt kantor kirkjunnar, Ástu Haraldsdóttur. Þórdís Emilía Arons- dóttir, nemandi Suzukitónlistarskól- ans í Reykjavík, leikur á fiðlu. Messu- hópur þjónar ásamt sr. Evu Björk, sr. Pálma og sr. Maríu sem prédikar. Að- alsafnaðarfundur að lokinni guðs- þjónustu. Þriðjudagur: Kyrrðarstund kl. 12. Fimmtudagur: Núvitundar- stund kl. 18.15-18.45, einnig á net- inu. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Guðsþjónusta sunnudag kl. 11. Sr. Leifur Ragnar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti er Hrönn Helgadóttir og kór Guðríðarkirkju syngur. Meðhjálpari er Guðný Ara- dóttir og kirkjuvörður Lovísa Guð- mundsdóttir HAFNARFJARÐARKIRKJA | Ferm- ingar kl. 11 og kl. 12. Vegna sam- komutakmarkana eru stundirnar ein- ungis fyrir fermingarbörnin og fjölskyldur þeirra. Sjá nánar á heima- síðu kirkjunnar. HALLGRÍMSKIRKJA | Guðsþjón- usta og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Hópur messuþjóna að- stoðar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Barnastarf í umsjá Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur. HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Börn úr Kór Ísaksskóla syngja undir stjórn Bjargar Þórsdóttur. Fermingarbörn lesa ritningarlestra. Undirleik í guðsþjónustunni annast Björk Sigurðardóttir. Prestur er Helga Soffía Konráðsdóttir. KEFLAVÍKURKIRKJA | Kvöldmessa 16. maí kl. 20. Félagar úr Kór Keflavík- urkirkju syngja undir stjórn Arnórs Vil- bergssonar organista. Sr. Erla Guð- mundsdóttir þjónar. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta í safnaðarheimilinu Borgum kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11, Guðbjörg Jóhannesdóttir sókn- arprestur þjónar, Graduale Futuri syng- ur við athöfnina undir stjórn Sunnu Kar- enar Einarsdóttur og undirleik Magnúsar Ragnarssonar organista. Sara og Pétur taka vel á móti börnun- um í sunnudagaskólanum. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Elísabet Þórðardóttir organisti og Ragnar Árni Sigurðarson annast tón- listarflutning. Sr. Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar. Mánudagur 17. maí. Kyrrðarkvöld kl. 20. Kirkjan opnuð kl. 19.30. Kristin íhugun. Fimmtudagur 20. maí. Vorferð eldri borgara. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Aðalsafnaðarfundur í safnaðarsal Lindakirkju kl. 17. Guðs- þjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Guðsþjónusta og barna- starf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Organisti er Stein- grímur Þórhallsson. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu og er gengið beint þangað inn. Umsjón Sóley Anna Benónýsdóttir, Hrafnhildur Guð- mundsdóttir og Ari Agnarsson. Athugið að þetta er síðasti sunnudagaskólinn nú í vor. Fyrir guðþjónustuna kl. 9.30 er aðalsafnaðarfundur Nessóknar á Torg- inu í safnaðarheimilinu. SELJAKIRKJA | Fermingarguðsþjón- usta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 13, Þorgils Hlynur Þorbergsson guðfræðingur prédikar og sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari. Kór Seljakirkju syngur, organisti er Tómas Guðni Eggertsson, messu- kaffi í lokin. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslu- morgunn kl. 10. Spænska veikin. Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur talar. Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Þorgils Hlynur Þorbergsson guðfræðingur prédikar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Salka Rún Sigurðardóttir syngur. Aðal- safnaðarfundur kl. 12.30 í safnaðar- heimilinu. Safnaðarferð í Skorradal á hvítasunnudag 23. maí kl. 11. Komið við á heimleiðinni í Saurbæ á Hvalfjarð- arströnd. Ferðin er ókeypis. Fólk skrái sig í síma 899-6979 fyrir 21. maí. VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Matthildur Bjarnadóttir leiðir stundina. Davíð Sigurgeirsson sér um tónlistina. Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón- usta 16. maí kl. 11. Sr. Baldur Rafn þjónar til altaris og félagar úr kirkju- kórnum leiða söng undir stjórn Stefáns H. Kristinssonar organista. Við minnum á fjöldatakmarkanir Al- mannavarna. Við munum streyma beint frá guðsþjón- ustunni á facebooksíðu okkar. https://www.facebook.com/njardvik- urprestkall Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Svalbarðskirkja ✝ Ólafur Gunn- arsson fæddist á Sauðárkróki 18. apríl 1950. Hann lést á líknardeild Landspítalans 29. apríl 2021. Foreldrar hans voru sr. Gunnar Gíslason, alþing- ismaður, prestur og bóndi í Glaum- bæ, f. 5.4. 1914, d. 31.3. 2008, og Ragnheiður Mar- grét Ólafsdóttir, safnvörður og húsmóðir í Glaumbæ, f. 13.4. 1915, d. 19.2. 1999. Systkini Ólafs eru Stefán, f. 28.2. 1945, d. 15.9. 1996, Gunn- Dagur Kári, f. 1999, Arna Katr- ín, f. 2003, og Dís, f. 2010. Ólafur ólst upp í Glaumbæ í Skagafirði en flutti til Reykja- víkur 1969 og hóf þá störf í Landsbankanum. Hann tók við stöðu útibússtjóra í Iðnaðar- bankanum 1979 og gegndi henni til 1990 en færði sig þá yfir til Skeljungs og starfaði þar á fjár- málasviði í rúm 20 ár. Síðustu ár starfaði hann við skrifstofustörf hjá verktakafyrirtækinu Köpp- um ehf. Útförin fer fram í Glaumbæj- arkirkju í dag, 15. maí 2021, klukkan 14. Vegna aðstæðna verða einungis nánustu aðstand- endur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni á slóðinni: https://tinyurl.com/2hzrz5e4 Streymisslóð má finna á: https://mbl.is/andlat ar, f. 27.6. 1946, Arnór, f. 19.7. 1951, Margrét, f. 17.7. 1952, og Gísli, f. 5.1. 1957. Ólafur var giftur Ásdísi Rafnsdóttur, f. 1953, en þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Ragnheiður Margrét, f. 4.1. 1972, maki Að- albjörn Páll Ósk- arsson, f. 31.1. 1982. Börn þeirra eru Davíð Már, f. 2009, og Thelma Lind, f. 2013. 2) Davíð Örn, f. 19.4. 1975, maki Hjördís Viðarsdóttir, f. 19.6. 1976. Börn þeirra eru Viðar Snær, f. 1995, Elsku pabbi. Mikið er erfitt að kveðja þig. Það kom okkur, jafn mikið og þér sjálfum, í opna skjöldu þegar þú greindist með erfitt krabbamein fyrir aðeins sex mánuðum, sem reyndist vera svo langt gengið sem raunin var. Þú varst okkur mikil fyrir- mynd, og það dýrmætasta sem þú kenndir okkur var að það eru ekki orð sem skipta máli, heldur gjörð- ir. Heiðarleiki, hógværð og nægjusemi eru allt orð sem lýsa þér vel. Engin vitleysa, ekkert rugl, ekkert drama. Þú kenndir okkur að taka með æðruleysi á móti öllu því sem að höndum ber í lífinu og leysa þau verkefni sem við fáum til okkar með ró og yf- irvegun. Þótt orðin hafi ekki oft verið sögð upphátt höfum við aldrei verið í neinum vafa um að við værum mikið elskuð og hvað þú varst stoltur af okkur. Þú sýndir það alltaf með allri þinni framkomu við okkur og hvernig þú sýndir öllu því sem við gerðum mikinn áhuga. Þú fylgdir okkur alla leið í öllu sem við tókum okk- ur fyrir hendur, fylgdist vel með öllum okkar verkefnum og hvattir okkur áfram. Þegar við eignuð- umst okkar fjölskyldur nutu barnabörnin alls þess sama. Miss- ir þeirra er mikill. Vonandi náum við að kenna þeim með sama hætti og þú kenndir okkur. Þótt það hafi verið erfitt að sætta sig við veikindi þín og gang þeirra erum við umfram allt þakk- lát, þakklát fyrir að hafa fengið að hafa þig hjá okkur þó svona lengi, þakklát fyrir að börnin okkar hafi fengið að kynnast þér og þakklát fyrir allt sem við höfum gert sam- an. Þakklát fyrir öll sumrin í sveitinni hjá ömmu og afa í Glaumbæ í Skagafirði þar sem þú naust þín alltaf best, þakklát fyrir öll ferðalögin innanlands, útileg- urnar og skíðaferðirnar, þakklát fyrir ferðir okkar erlendis, bæði þegar við vorum börn og líka þær sem þú komst með okkur í ásamt fjölskyldum okkar á síðustu ár- um. Þegar þér fór að hraka sem mest upp úr áramótum, var það einlæg ósk þín að komast norður í Skagafjörðinn þar sem þú ólst upp. Því miður náðist það ekki, framgangur meinsins og fylgi- kvilla þess var svo hraður, og er það eitt af því sem okkur finnst sárast, að hafa ekki getað uppfyllt þá ósk. Við höfum alltaf vitað að þar leið þér best og að þig hefði helst af öllu langað til að búa í Skagafirðinum, en tímdir ekki að fara svo langt frá okkur systkin- unum og barnabörnunum sem þú sinntir svo ótrúlega vel og hafðir svo gaman af að vera með. Þau sakna þín sárt. Við erum því afar sátt við að fylgja þér nú heim, í sveitina þína, og vitum að þú munt hvíla þar í friði. Elsku pabbi, takk fyrir allt. Þín Davíð og Ragnheiður (Heiða). Elsku afi Óli. Við söknum þín svo mikið. Við söknum þess að heyra bankað á garðhurðina þegar afi Óli var mættur í heimsókn á hjól- inu sínu, í gula hjólajakkanum með hjálminn á höfðinu. Við söknum þess að spila fót- bolta við þig í garðinum eða í ganginum. Við söknum þess að tefla skák við þig. Við söknum þess að fara með þér í göngutúra í sveitinni. Við söknum þess að fara með þér í ferðalög. Við söknum þess að hafa þig á íþróttamótunum okkar, en þú mættir alltaf að horfa á okk- ur. En við erum glöð yfir því að þú sért ekki lengur veikur og að þér líður betur. Og okkur þykir gott að vita að nú sértu með hinum englunum sem sitja yfir okkur eins og segir í bæninni sem við förum með á kvöldin og viljum kveðja þig með: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson) Takk fyrir allt, við elskum þig, Davíð Már og Thelma Lind. Fyrir rétt rúmu ári sátum við með Óla föðurbróður mínum og Davíð syni hans úti á Tenerife og ræddum um Corona-veiru og sandstorma á meðan skálað var í Corona. Eins og alltaf þegar þeir feðgar voru saman þá var léttleiki og grín í fyrirrúmi. Alvarleikinn fékk ekki mikið rými, þótt um- ræðurnar hefðu auðveldlega get- að kallað á það. Þannig man ég alltaf eftir Óla frænda. Lítil tilfinningasemi, eins og þeim bræðrum úr Glaumbæ er Ólafur Gunnarsson ✝ Guðjón Mar- teinn Kjart- ansson fæddist í Eyrardal í Álfta- firði 21. apríl 1954. Hann lést á sjúkra- húsinu á Ísafirði 6. maí 2021. Foreldrar hans voru Ingibjörg K. Guðmundsdóttir, húsfreyja og verka- kona, frá Rekavík bak Látur í Sléttu- hreppi, f. 17.6. 1928, d. 23.7. 2008 og Kjartan Aðalsteinn Jónsson, bóndi frá Galtarhrygg í Mjóa- firði í Ísafjarðardjúpi, f. 29.1. 1917, d. 27.3. 2006. Guðjón var sjötti í röðinni af tíu systkinum. Systkini Guðjóns eru: 1) Hrólfur, f. 1945, d. 2002. 2) Jóna Guðbjörg, f. 1947. 3) Bjarni Dýrfjörð, f. 1948. 4) Steinn Ingi, f. 1949. 5) Guð- mundur Svavar, f. 1952. 7) Krist- ín Lilja, f. 1957. 8) Bjarney an í Héraðsskólann í Reykja- nesi í Ísafjarðardjúpi. Hann fór snemma á sjó en vann þess á milli í Frosta hf. í Súðavík. Árið 1985-1986 dvaldi hann í Reykja- vík við nám í Sjómannaskól- anum þar sem hann varð sér úti um skipstjórnarréttindi. Síðan stundaði hann sjómennsku, lengst af við rækjuveiðar í Ísa- fjarðardjúpi og á úthafsrækju og síðan á fiskibátum. Um ára- bil rak hann ferðaþjónustufyr- irtækið Hornstrandir ehf. með vinum sínum, við siglingar með ferðafólk norður á Horn- strandir. Síðustu árin vann hann hjá Sjótækni ehf. og síðan við fiskeldi í Álftafirði hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvöru. Guðjón gegndi mörgum trún- aðarstörfum fyrir Súðavík- urhrepp, sat í sveitarstjórn og í ýmsum nefndum fyrir sveitar- félagið. Hann tók virkan þátt í félagslífi síns samfélags og var félagi í ungmennafélagi, slysa- varnafélagi, slökkviliði og rauðakrossdeild og var jafnvel í kvenfélaginu um árabil. Útför Guðjóns fer fram frá Súðavíkurkirkju 15. maí 2021 kl. 14. Stella, f. 1962. 9) Daði, f. 1963. 10) Stefán Haukur, f. 1968. Þann 10. desem- ber árið 1978 giftist hann Dagbjörtu Hjaltadóttur grunn- skólakennara. For- eldrar hennar voru Björg Magnúsdóttir frá Engjabæ í Laug- ardal í Reykjavík og Hjalti Auðunsson frá Byrgisvík á Ströndum, síðar Dvergasteini við Álftafjörð. Börn Guðjóns og Dagbjartar eru: 1) Ester Ösp, fædd 17. ágúst 1981. Hún var gift Ágústi Ön- undarsyni en hann lést árið 2018. Dóttir þeirra, Hrefna Ýr, er nú sjö ára, fædd 21.6. 2013. 2) Sölvi Mar, fæddur, 3. október 1984. Guðjón fæddist og ólst upp í Eyrardal í Álftafirði og gekk í Súðavíkurskóla sem barn og síð- Hann Gaui er dáinn. Í símanum varð nokkuð löng þögn. Ég var ekki tilbúinn að sætta mig við þessa staðreynd. Þessi andstyggi- legi sjúkdómur sem er svo erfiður hafði vinninginn í þetta sinn. Mig langar að fara nokkrum orðum um þennan ljúfa dreng sem hafði án alls efa hjarta úr gulli og ég svo heppinn að við vorum vinir. Þau voru erfið sporin þegar ég fékk að kíkja til hans og fá tæki- færi til að leggja mína hönd yfir hans og þakka honum fyrir allt. Gaui var hjálpsamur í meira lagi, ég hafði hafið breytingar á húsi mínu og minn mætti oft óbeð- inn og sagði, hvað ertu að basla þetta einn og hóf störf mér við hlið og kláraði daginn, svo mátti ég sætta mig við að segja bara takk fyrir hjálpina því aldrei mátti minnast á greiðslu fyrir. Við kom- um reglulega saman að spila pílu og alltaf þegar Gaui mætti ríkti ákveðin gleðistemning sem hann var svo laginn að búa til og við hin- ir nutum með hlátrasköllum, að maður minnist ekki á góðlegu stríðnina sem einkenndi hann, ef einhverjum okkar hinna gekk bet- ur í leiknum sagði hann og hló við, nú nenni ég þessu ekki lengur. Nokkuð marga leikþætti settum við vinir á svið á þorrablótum okk- ar Súðvíkinga og það get ég sagt af reynslu minni við slíkt að þegar Gaui var með var maður alveg slakur því ef eitthvað gleymdist eða breyttist í meðförum á sviðinu var því bara reddað, nýir hlutar fæddust í verkin okkar og gerðu þau bara betri. Nú má ég sætta mig við að hafa hann bara í minn- ingunni sem verður örugglega erf- itt á þeim stundum sem maður vanalega naut samveru hans. Elsku Dagga, Sölvi, Ester og Hrefna, Guð hjálpi ykkur í þessari þungbæru sorg, minningin lifir um góðan mann. Elsku vinur minn erfitt það er einstakan dreng nú að kveðja. Þú munt þó eilífur í hjarta mér þín minning mun verða mín lífsins sveðja. Jónas Ólafur Skúlason. Látinn er á besta aldri æsku- vinur minn Guðjón Kjartansson úr Súðavík. Við kynntumst sem unglingar í Héraðsskólanum í Reykjanesi. Héraðsskólarnir voru merkilegt fyrirbæri og störfuðu á seinni hluta seinustu aldar. Um var að ræða menntastofnanir landsbyggðarinnar. Þar komu saman unglingar úr nærliggjandi héruðum, lærðu og léku sér, áttu áhyggjulaus æskuár. Þetta fyrir- komulag gaf kost á að unglingar af stærri svæðum kynntust og mynduðu ævilöng tengsl. Þegar ég kem í Reykjanes núna sem fullorðin þá finnst mér tíminn stöðvast. Þarna hvíldum við okk- ur í tímanum. Haustið 1970 komu tveir piltar úr Súðavík og bættust í hópinn. Annar þeirra var Gaui. Stór og stæðilegur, skemmtilegur og sprækur íþróttamaður. Það var gleði í kringum Gauja, hann kom úr stórum systkinahópi og kunni að spauga og sprella. Lét ekki sitt eftir liggja í góðlegum hrekkjum. Vorið 1972 kvöddumst við og héldum út í lífið. Búin að njóta áhyggjuleysis æskuáranna og tilbúin að takast á við lífið. Bekk- urinn okkar hefur hist óreglulega, Gaui hefur oft komið og Dagga hefur komið með honum. Við höf- um fengið að kynnast því hvað Gaui valdi sér góða konu. Þau voru svo flott par. Geislandi af ást og hamingju. Veturinn 1995 varð snjóflóð í Súðavík og fjölskylda þeirra og þorpið varð fyrir ólýsanlegum hremmingum. Þar stóðu þau vaktina Gaui og Dagga ásamt fleirum og leituðu að fólki í ofsa- veðri, hlúðu að þeim sem fundust lifandi og bjuggu um lík. Við sem ekki vorum þarna skiljum ekki hvers lags áfall þetta var né hvernig var hægt að komast yfir þetta. Þennan vetur heyrði ég nokkrum sinnum í Gauja, vildi styðja minn góða vin. Það gaf mér innsýn í hörmungarnar. Hvernig getur fólk náð sér eftir svona hamfarir? Það gerist þegar gott fólk stendur saman og vinnur saman og það gerði fólkið í Súða- vík. Gaui og félagar. Við höfum nokkrum sinnum hist, alltaf hefur farið um mig hlýja og góðar til- finningar að hitta hann. Góðar minningar. Hann skilur eftir sig svo mikið þakklæti fyrir að hafa verið til. Farðu í friði, kæri vinur. Gömlu bekkjarfélagarnir minnast þín með hlýju. Sigríður María Játvarðardóttir. Guðjón M. Kjartansson Minningar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.