Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 31

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 sagnirnar af lífi hennar og fleiri bæjarbúa, eins og Láru í Lárubúð og annarra þess tíma áhrifavalda. Og síðast en ekki síst endurminn- ingarnar um Hallveigu systur hennar, sem lést fyrir aldur fram og hún saknaði mikið og sárt alla tíð. Björg var í alla staði einstök kona sem geislaði af umhyggju og streymdi jákvæðri orku með kær- leikann sem leiðarstef hvar sem hún gekk. Enginn sem hana hitti og kynntist fór varhluta af hlýju hennar og náungakærleik. Hún hafði ótrúlegt lag á að koma auga á og fanga gleðina í hinu smáa, hallmælti engum og sá aðeins hið góða í hverjum þeim sem á vegi hennar varð. Sonum mínum tveim hefur hún sýnt einstakan kærleik frá fyrstu tíð og hefur Marteinn eldri sonur minn, barnabarn hennar, einkum notið góðs af, enda lét hún sér afar annt um hans hag. Ég þakka henni fyrir hennar þátt í mótun hans sem einstaklings og alla þá hlýju sem hún veitti honum. Samband þeirra Didda eigin- manns hennar var einstakt og eru þau tvö búin að haldast hönd í hönd frá unglingsaldri. Fallegri fyrirmyndir í hjónum eru vand- fundnar. Hans missir er mikill og sendi ég honum sem og allri stór- fjölskyldu þeirra hjóna mínar innilegustu samúðarkveðjur. Umvefjandi kærleikur Bjargar Láru Jónsdóttur mun halda áfram að fylgja fólkinu hennar um ókomna tíð þó nú skilji leiðir um stund. Ég bið elsku Björgu blessunar í nýjum heimkynnum og þakka henni fyrir kærleiksríka sam- fylgd, hlýjuna, ástríkið og ein- staka vináttu alla tíð. Ruth Gylfadóttir. Elsku Björg frænka hefur lokið sinni lífsgöngu. Hún var með ein- dæmum góð manneskja, alltaf svo ánægð og jákvæð. Pabbi og Björg voru bræðrabörn hvort á sínu árinu sem bæði misstu feður sína mjög ung. Það var svo fallegt sam- band milli þeirra og gagnkvæm virðing. Ég man eftir Björgu sem kenn- ara, hún stjórnaði nemendum ekki með harðri hendi eða hávaða, heldur með sinni rólegu rödd og blíðu. Hún hafði mjög fallega rit- hönd. Svo afgreiddi Björg lengi í Hannabúð sem var fyrst á Grund- arbraut 10 þar sem maður kom með tossamiða og fékk afgreitt yf- ir borðið. Það var gott að fá af- greiðslu hjá Björg, hún tók svo vel á móti manni og heilsaði „sæl vin- an mín“. Seinna fór Björg að afgreiða í búðinni hjá mömmu og vann þar í mörg ár. Það var alltaf jafn nota- legt að hitta hana, hún vildi fá fréttir af okkar fjölskyldu og sagði fréttir af sinni. Hún var svo ánægð með manninn sinn og sagði „hann Diddi minn“ þegar hún talaði um hann. Þannig talaði hún einnig um börnin sín og barnabörn, svo stolt af afkomendum sínum. Það er dýrmætt fyrir lítil bæj- arfélög þegar íbúarnir taka þátt og starfa í hinum ýmsu góðgerð- arfélögum og það gerði Björg frænka af heilum hug. Hún var öflugur félagsmaður í Kvenfélag- inu, Slysavarnafélaginu og Lions. Þá var hún mjög virkur stuðn- ingsmaður fótboltafélagsins Vík- ings. Björg var aldrei kölluð annað en Björg frænka af okkur fjöl- skyldunni og synir mínir fengu líka að kynnast góðmennsku hennar. Það er svo gott að um- gangast svona jákvæða mann- eskju, hún smitar út frá sér. Elsku Diddi, Helgi, Jóhannes, Lára og Olga, ég sendi ykkur og fjölskyldum ykkar innilegar sam- úðarkveðjur. Þórdís Bergmundsdóttir. Nú ert þú farin Björg frænka mín. Þú varst einhvers staðar mitt á milli þess að vera mér önnur mamma og önnur amma. Við nut- um þess að þú og þín fjölskylda bundust okkur nánum fjölskyldu- böndum í Ólafsvíkinni okkar. Margar voru samverustundirnar og af ýmsum tilefnum. Um jól voru boð hjá þér og vel var tekið á móti öllum, af hjartans hlýju og gest- risnin einstök. Borðin svignuðu undan kræsingum, glaðværðin fyllti húsið og fólkið spjallaði sam- an. Gripið var í ýmis spil eins og fé- lagsvist og kana. Þá kom fjölskyld- an saman vegna kinda sem afi var með, t.d. í heyskap, þegar réttað var og við sláturgerð. Alltaf var kátt á hjalla og nærvera þín ein- kenndist af gleði og kærleika. Þau voru nokkur skiptin sem við systkinin fengum að gista hjá þér ef mamma og pabbi þurftu að bregða sér til Reykjavíkur eða annað langt frá Ólafsvík. Það vakti alltaf eftirvæntingu þegar í það stefndi því gaman var að vera hjá ykkur Didda. Ekki skemmdi fyrir kátínan í Helga, Jóhannesi, Láru og Olgu og allt dótið sem þau áttu og ævintýraherbergin þar sem hann Diddi hafði málað Línu Langsokk í góðri yfirstærð á vegg eins þeirra og Mikka Mús, Andrés Önd og fleiri á veggi þess næsta. Svona mætti alltaf gleðin og hlýj- an manni heima hjá þér frænka. Þú varst skólakona og mikill fróðleiksbrunnur. Það átti reynd- ar við ykkur systur allar, Helgu ömmu, Höllu og þig. Þið voruð fróðar og menntaðar konur. Þú starfaðir við kennslu og Halla ljós- móðir. Þið voruð okkur yngra fólk- inu sannar fyrirmyndir. Þú sinntir þeim sem stóðu höll- um fæti í námi. Sem fyrr var öll nálgun kærleiksrík en jafnframt af fagmennsku og nemendur fóru sterkari frá þér og til í að takast á við önnur verkefni. Alltaf sást þú það jákvæða í fari fólks og virtist lunkin að draga það fram í því. Þið voruð alltaf dugleg að ferðast og njóta lífsins og jafnvel eftir að þið hjónin eltust og heilsan farin að gefa eftir. Aldrei var kvartað heldur horft á björtu hlið- arnar, gert gott úr öllum aðstæð- um og lífsins notið. Það hefur verið gaman og gott að eiga þig sem frænku og það er verðugt verkefni fyrir okkur sem eftir erum að líkj- ast þér meira og tileinka okkur þitt lífsviðhorf. Heimurinn var miklu betri með þér og sár er missirinn. En minningarnar um þig munu verma. Vífill. Geturðu sofið um sumarnætur? senn kemur brosandi dagur.– Hitnar þér ekki um hjartarætur, hve heimur vor er fagur? Áttu ekki þessar unaðsnætur, erindi við þig forðum? Margt gerist fagurt, er moldin og döggin mælast við töfraorðum. Finnurðu hvað það er broslegt að bogna og barnalegt að hræðast, er ljósmóður hendur himins og jarðar hjálpa lífinu að fæðast. Er ekki gaman að eiga þess kost að orka þar nokkru í haginn, og mega svo rólegur kveðja að kvöldi með kærri þökk fyrir daginn? (Sigurður Einarsson) Jón var alltaf svolítið uppáhald hjá frænku sinni Björgu og honum þótti ofurvænt um hana. Mín fyrstu kynni af Björgu voru þegar ég kom í Verslunina Hvamm í Ólafsvík. Ég var með frumburð okkar Jóns í fanginu og þegar hún sá barnið þá ljómaði hún upp og sagði: „Ertu komin með stelpuna hans Jóns? Þú verð- ur endilega að koma í heimsókn og leyfa okkur að kynnast henni.“ Fallegur blíður tónninn í röddinni og kærleikurinn sem streymdi frá henni var áþreifanlegur og þannig hafa samskipti okkar verið síðan. Nærveran við Björg og Didda hefur verið stór þáttur í lífi okkar fjölskyldu og alltaf hefur okkur þótt gott að koma til þeirra, sitja og spjalla, fá fréttir af fólkinu okk- ar og segja sögur af samferðafólki. Í gleði og sorg hafa þau verið okk- ur skjól sem alltaf var hægt að leita í. Björg fékk blóðtappa fyrir mörgum árum og var um tíma á Grensás eftir legu á Landspítalan- um, eitt sinn er við komum þangað og hún var öll að hressast sagði hún við okkur að hún ætlaði að lifa hvern einasta dag sem henni væri gefinn í gleði og hún ætlaði að njóta hverrar stundar og þannig hefur hún lifað lífinu þrátt fyrir veikindi sem trufluðu um stund. Jákvæðnin, gleðin, þakklætið og æðruleysið; það var það sem kom henni áfram. Björg var mikil félagsmálakona við vorum saman í LIONS, Kven- félaginu og Slysavarnafélaginu Sumargjöf og alls staðar var hún alltaf tilbúin að leggja hönd á plóg og leiðbeina. Það var gott að leita til hennar og fá ráðleggingar í leik og starfi. Leikfélag Ólafsvíkur studdi hún líka með því að mæta á allar sýningar og koma með kaffi- meðlæti til okkar á æfingatímabil- um. Hún og Diddi voru dyggir stuðningsmenn fótboltaliðs Vík- ings Ólafsvík og aðdáunarvert var að heyra sögur af þeim hjónum á leikjum félagsins um allt land komin á níræðisaldur. Björg passaði um tíma dóttur okkar Guðbjörgu Birnu og sam- bandið á milli þeirra var einstakt eins og hún væri þeirra eigið barnabarn enda kallaði hún þau alltaf ömmu Björgu og afa Didda. Hún var uppátektarsöm og strok- gjörn stelpan og þegar hún hafði eitt sinn stungið af á inniskónum hans Didda niður alla Grundar- brautina var hún svo uppgefin þegar hann fann hana að hann varð að bera hana alla leið til baka í Brúarholtið. Sambandið við hin- ar stelpurnar var líka alltaf fallegt og hún fylgdist vel með sínu fólki og átti auðvelt með að láta okkur öll finna að við vorum henni dýr- mæt eins og hún var okkur. Okkur langar að þakka ein- staka vináttu og hlýhug og send- um fjölskyldunni hugheilar sam- úðarkveðjur og þökkum fyrir samveruna. Kolbrún Þóra Björnsdóttir og Jón Þorbergur Oliversson. Það var ljúfsárt að fá að halda í hönd þína síðast þegar við hitt- umst og finna að þú varst tilbúin að fara. Lífslokin voru að nálgast og þú vissir það. Við ræddum það að nú væri komið að kveðjustund en að þú myndir áfram fylgjast með okkur, fólkinu þínu, þaðan sem þú færir. Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að eiga við þig þetta samtal sem var svo fullt af innihaldi og skilaboðum til okkar sem eftir sitjum um að vera við sjálf. Það var ljúft að fá að halda í mjúka hönd þína og segja þér í síðasta sinn hversu vænt mér hef- ur alltaf þótt um þig. Það var auðvelt að segja þér um þig fallega hluti af því að þú varst ein fallegasta mannvera sem ég hef kynnst. Það er auðvelt að segja svona góðu fólki eins og þú varst hvað það er gott og mikilvægt. Mjúka, hlýja höndin sem minnti mig á mýktina sem var ein- kennandi fyrir þig. Mjúk og mild samskipti full af kærleika voru þitt aðalsmerki. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér, elsku Björg. Takk fyrir að segja okkur alltaf fallega til í lífinu. Takk fyrir að dæma engan. Takk fyrir heiðarleikann. Mjúka og milda frænka mín og vinkona. Þegar ég hugsa um lífið og fólk- ið sem við fáum að vera samferða sé ég alltaf fyrir mér hvernig sam- ferðafólkið mitt er perlur í langri festi. Þú varst demantur þar. Dem- antur af því að þú varst dýrmæt, einstök og skínandi falleg að innan sem utan. Nú á ég demant minninga sem ég mun bera í perlufestinni minni þangað til við hittumst hinum megin. Farðu í friði, friður Guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Mínar innilegustu samúðar- kveðjur sendi ég Didda og allri fjölskyldunni sem nú sakna og syrgja góða eiginkonu, mömmu, tengdamömmu, ömmu og lang- ömmu. Guð gefi að minningarnar verði okkur öllum ljós í sorginni. Helga Björk Jónsdóttir. Hlutverk Lionsklúbba er að leggja lið og láta gott af sér leiða fyrir einstaklinga og samfélagið. Í þeim félagsskap sem þessir klúbb- ar mynda verður til dýrmæt vin- átta. Slíkur félagsskapur er þó ekkert án góðra félaga og Björg Lára Jónsdóttir var einn af þeim. Björg Lára var stofnfélagi í Lionsklúbbnum Rán Ólafsvík og tók virkan þátt í starfi klúbbsins. Á sínum starfsferli gegndi hún mörgum embættum í klúbbnum og sat í fjölda nefnda. Öllum sínum störfum sinnti hún af dugnaði og ósérhlífni, sönn lionskona. Björg Lára var útnefndur Melvin Jones- félagi af klúbbnum og var vel að þeirri æðstu viðurkenningu Lions- hreyfingarinnar komin. Við Ránarkonur vorum stoltar af því að hafa svona glæsilega konu í klúbbnum okkar. Björg Lára var gleðigjafi og hafði dásamlega nærveru. Hún var samviskusöm, ljúf og einlæg í framkomu. Gott var að leita til hennar varðandi ýmis mál, miðlaði hún af reynslu sinni og visku til okkar hinna. Að leiðarlokum kveðjum við Ránarkonur kæra vinkonu með sorg í hjarta. Þökkum fyrir allar samverustundirnar, öll störf Bjargar Láru í þágu Lionsklúbbs- ins Ránar og verkefna hans. Við hefðum gjarnan viljað njóta krafta hennar og vináttu lengur. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Kæri Diddi, við vottum þér og þinni fjölskyldu innilega samúð. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Ránar, Bjarney Jörgensen. Ein af mæðrum Ólafsvíkur hef- ur lokið sínu lífshlaupi, skipt tíma- bundið um lið. Björg Lára Jóns- dóttir var „ótrúlegur leikmaður“ eins og við félagarnir segjum yf- irleitt um þá sem skara fram úr, eru einstakir. Hún var engri lík. Fljótlega eftir að ég flutti til Ólafs- víkur árið 1970, og varð vinur Helga Bjargar og Jóhannesar, opnaði hún faðminn. Hann stóð öllum til boða, að nóttu sem degi; hlýr og innilegur. Þegar ég frétti af andláti Bjarg- ar flugu nokkrar ljóðlínur Ómars Ragnarssonar, í laginu um Ís- lensku konuna, í gegnum hugann: Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. Við Helgi Bjargar og Jóhannes brölluðum margt saman, eins og mörgum er kunnugt um, enda sög- ur Helga hver annarri betri og fyndnari. Við spörkuðum bolta saman, fórum saman í ferðalög, örkuðum upp á Enni, lékum okkur í vinnunni hjá Gylfa Magg á Bakka og veltum bíl saman. Á kantinum stóð Björg eins og klettur, ekki bara okkar klettur heldur alls vinahópsins. Ólafsvíkurmamman! Eftir að við vinirnir skóluðumst til í höfuðborginni og bjuggum til okkar eigið hreiður fyrir sunnan lá leiðin samt alltaf heim til Ólafs- víkur, eins oft og kostur var. Jafn- vel þegar ég var einn á ferð kíkti ég til Bjargar og Didda. Það var eins og að koma heim. Ég var varla kominn úr skónum þegar eldhúsborðið var orðið fullt af góð- meti. Og svo var rætt um fótbolta, Víking Ólafsvík, sem hjónin fylgdu hvert á land sem var, af hjartans einlægni, með Víkings- trefilinn um hálsinn. Þau voru tólfti og þrettándi leikmaðurinn, elskuð af öllum. Svo spurðu þau frétta af mínu fólki og gömlu vin- unum. Umhyggjan ævinlega allt- umlykjandi. Að ferðalaginu loknu þakka ég Björgu, fyrir hönd okkar vinanna, fyrir stuðninginn og umhyggju- semina. Við vottum Didda, stór- fjölskyldunni og vinum okkar dýpstu samúð. Minningin um ein- staka konu mun lifa! Þorgrímur Þráinsson. Við systkinin eigum margar ljúfar minningar um hana Björgu en hún flutti með sér gleði, hlýju, notalegheit og var frábær heim að sækja. Þá tók hún á móti okkur, brosandi og hláturmild, eins og sólargeisli, og fyllti allt umhverfið af einstakri hlýju og vellíðan. Hún hafði einstakt jafnaðargeð og var jafnframt tilbúin að leysa hver manns vanda. Þessar ljóðlínur finnst okkur eiga vel við Björgu: Þú sólargeisli sem gæist inn og glaður skýst inn um gluggann minn. Mig langar svo til að líkjast þér og ljósi varpa á hvern sem er. (Höf. óþekktur) Móðir okkar Kristjana og Lára móðir Bjargar voru systur. Móðir okkar fór oft með okkur systkinin til Ólafsvíkur á sumrin til ömmu að Svalbarða og síðar í Barmahlíð eða til Helgu og Olla að Lækjarbakka. Þetta voru mjög skemmtilegar ferðir þar sem við lentum oft í heyskap á Klifinu og fórum stundum í ferðir með Olla fyrir Jökul. Í kjölfarið mynduðust tengsl sem hafa ekki rofnað síðan. Alltaf var gaman að heimsækja ættingja okkar í Ólafsvík og fá þá í heimsókn. Björg fór síðan í fram- haldsskóla í Reykjavík og gisti þá hjá foreldrum okkar á Freyju- götu. Sváfu þær þá saman í 6 m2 herbergi Guðný, Bubba og Björg í sátt og samlyndi og mikilli gleði. Það voru önnur tengsl milli okkar, Valur og Víkingur Ólafs- vík. Hittu bræðurnir, Mummi og Palli, Björg og Didda Helga, Láru og Þorstein á Valsvellinum og þá var kátt í höllinni. Minnisstætt er að þegar Mummi var orðinn mjög lasinn þá bauð Jónas þeim bræðr- um á leik Víkings og Vals í Ólafs- vík. Þegar komið var inn í Ólafsvík þá hringdi Jónas í Björgu og spurði hvort við mættum koma í heimsókn. „Þið komið eins og kall- aðir, Þorsteinn er nýbúinn að grilla og við bíðum spennt eftir ykkur.“ Síðan voru bræðurnir og Jónas trakteraðir á steik og bjór og öðru meðlæti. Þeir bræður voru einstaklega þakklátir fyrir þá dýrðarstund sem þeir áttu með Björgu og Didda og Láru og Þor- steini. Síðan fóru allir á völlinn. Þeir bræður luku svo saman vall- arferðum sínum með því að horfa á Val og Víking í Ólafsvík á Vals- vellinum og þar voru þá einnig bræðurnir, Helgi og Jóhannes, og félagar þeirra úr Víkingi í Ólafsvík Kæru Diddi, Helgi, Jóhannes, Lára, Olga og fjölskyldur. Allt virðist nú svart og enga ljósglætu að sjá í myrkrinu. En eftir lifir minning um góða og vandaða konu sem gaf okkur svo margt. Skáldið Tómas Guðmundsson segir: Nú veit ég að sumarið sefur í sál hvers einasta manns. Eitt einasta augnablik getur brætt ísinn frá brjósti hans, svo fjötrar af huganum hrökkva, sem hismi feykt á bál, unz sérhver sorg öðlast vængi sérhver gleði fær mál. Guð blessi ykkur. Systkinin á Freyjugötu 10A og fjölskyldur Páll V. Sigurðsson. Elskuleg vinkona mín Björg Lára hefur kvatt okkur. Hún var með fyrstu konunum sem ég kynntist þegar ég flutti til Ólafs- víkur. Jón Bergmundur eiginmað- ur minn og Björg voru bræðra- börn og hann var skírður yfir kistu Jóns Thorbergs pabba Bjargar og bar nafn hans. Miklir kærleikar voru alla tíð milli Begga og Láru móður Bjargar. Svo var Kristján Helga, maðurinn hennar Bjargar, frá Siglufirði eins og ég, það voru því miklar tengingar milli okkar. Ég var bara búin að búa í Ólafsvík í mánuð þegar mér var boðið að vera með í sauma- klúbbi sem Björg var í. Kynni okkar hafa því staðið lengi. Björg starfaði í mörg ár í versl- un minni, Þóru, og var ekki hægt að hugsa sér betri starfskraft, allt- af svo blíð og jákvæð. Við áttum margar gæðastundir og vorum miklir trúnaðarvinir. Björg var mikil félagsmálakona og var dug- leg að vinna fyrir hin ýmsu félög eins og Kvenfélag Ólafsvíkur, Slysavarnafélagið Sumargjöf og Lionsklúbbinn Rán. Við fórum nokkrar ferðir saman til útlanda með Lions og Kvenfélaginu, einn- ig fórum við í orlofsferðir kvenna. Alltaf var Björg með sama góða skapið og lagði gott til málanna. Björg starfaði sem kennari í nokkur ár og þekkti því vel aldur flestra barna í bænum, því var gott að horfa til hennar til að fá staðfestingu á hvort viðkomandi viðskiptavinur væri búinn að ná 20 ára aldri til að geta verslað í „blautu deildinni“ í verslun minni, hún sýndi þá með svipbrigðum hvort viðkomandi hefði náð aldri. Þótt Björg væri mikil bindindis- manneskja þá fannst henni gaman að afgreiða í þeirri deild. Við ræddum saman í síma þeg- ar Björg lá inni á Akranessjúkra- húsinu og vitað var í hvað stefndi. Hún vildi bara komast heim til Ólafsvíkur og fá að kveðja þetta líf þar. Það var svo gott að heyra hvað hún var jákvæð og sátt við hlutskipti sitt, sagðist vera búin að eiga svo gott líf og yndislega fjöl- skyldu og hafa bara kynnst góðu fólki. Þannig var Björg. Ég votta Didda, börnum og öðrum fjölskyldumeðlimum mína innilegustu samúð. Guð blessi minningu Bjargar. Sigríður Þóra Eggertsdóttir. Okkar elskulega vinkona, Björg Jónsdóttir frá Ólafsvík, kvaddi lífdaga sína að morgni dags 29. apríl sl. Hún var einstök manneskja í alla staði. Góð, heiðarleg, dugleg, félagslynd, skemmtileg og ein- staklega tryggur vinur sem við vorum svo lánsöm að njóta og er- um innilega þakklát fyrir. Við hjónin kynntumst henni og eiginmanni hennar, Kristjáni Helgasyni, 1970 þegar við gerðum tilraun til að reka útgerð saman í stuttan tíma. En þá myndaðist okkar dýr- mæta vinátta við þau og alla fjöl- skylduna sem hefur haldist allar götur síðan. Við höfum átt margar góðar og ánægjulegar stundir saman í gegnum leik og starf, sem gott er að eiga í minningunni og þar er blessunin hún Björg, brosandi, upplífgandi, gefandi, huggandi og réttandi út faðminn, hún var besta eintak af manneskju sem hægt er að hugsa sér! Blessuð sé minning hennar með þakklæti og söknuði. Við sendum Didda, börnum þeirra og allri fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur. Ester og Gunnar (Gunni).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.