Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 33
MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 ✝ Filippía Helga- dóttir fæddist á Ísafirði 7. október 1932. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi 24. apríl 2021. Foreldrar hennar voru Helgi Hólm Halldórsson, múrari á Ísafirði, f. 12.6. 1897, d. 22.5. 1987, og Helga Ragnheiður Hjálmarsdóttir, húsmóðir á Ísafirði, f. 24.8. 1904, d. 27.4. 1985. Systkini Filippíu eru: Svan- dís, f. 8.6. 1931, Geira, f. 21.1. 1934, d. 29.1. 1999, Ásgeir, f. 6.3. 1935, d. 3.2. 2011 og Arndís María, f. 26.8. 1936. Filippía giftist 22. nóvember 1952 Magnúsi Daníelssyni, bónda á Syðri-Ey, f. 28.6. 1909, d. 1.6. 1993. Foreldrar hans voru Daníel Davíðsson, ljós- myndari og bóndi, f. 4.5. 1872, d. 26.3. 1967 og Magnea Aðalbjörg Árnadóttir húsfreyja, f. 29.9. 1883, d. 18.12. 1968. Börn Filippíu og Magnúsar eru: 1) Helga Magnea, f. 20.6. 1953. Fyrrverandi maki Sturla Snorrason. Börn: a) Olga, f. 1979, maki Patrick O‘Halloran, þau eiga tvær dætur, b) Erla, f. 1983, maki Ásgeir Sig- maki Valgerður K. Sverr- isdóttir. Börn: a) Filippía Huld, f. 2001, b) Sverrir Már, f. 2005. Filippía sem ávallt var kölluð Bíbí ólst upp í foreldrahúsum á Ísafirði ásamt þremur systk- inum en ein systirin ólst upp á Flateyri hjá móðursystir þeirra systkinanna. Fyrstu árin bjuggu þau í Króki 1 en síðar á Hlíð- arvegi 28. Sumarið eftir gagn- fræðaskólann vann hún á Klepp- járnsreykjum í Borgarfirði. Eftir sumarið á Kleppjárns- reykjum lá leiðin aftur til Ísa- fjarðar þar sem hún hóf störf í kaupfélaginu við afgreiðslu þar sem hún starfaði þangað til hún fór alfarin frá Ísafirði í sum- arbyrjun 1952. Magnús og Bíbí giftu sig á Ísafirði 1952 og bjuggu öll sín búskaparár á Syðri-Ey í Vind- hælishreppi í Austur- Húnavatnssýslu allt þar til Magnús lést árið 1993. Eftir það bjó Bíbí í nokkur ár ásamt syni sínum Daníel á Syðri-Ey en árið 1999 flutti hún í íbúð fyrir eldri borgara að Flúðabakka 3 á Blönduósi. Þar bjó hún til ársins 2019 er hún flutti á Heilbrigð- isstofnunina á Blönduósi þar sem hún lést. Bíbí var mikil hannyrðakona og hafði mikinn áhuga á ýmiss konar handverki. Garðyrkja var einnig mikið áhugamál hjá henni. Hún hafði gaman af ferðalögum og ferðaðist talsvert bæði innanlands og utan. Útför hennar fór fram í kyrr- þey frá Höskuldsstaðakirkju 8. maí 2021. urgeirsson, þau eiga einn son, c) Tinna, f. 1989, maki Bart Bauhuis, d) Davíð, f. 1991. 2) Daníel Hall- dór, f. 11.11. 1954, maki Guðbjörg Gestsdóttir. Börn: a) Íris, f. 1988, hún á einn son, b) Írena Ösp, f. 1993, maki Sindri Grímsson, þau eiga eina dóttur, c) Ágúst Gestur, f. 1995, maki Klara Sveinbjörnsdóttir. 3) Ingibjörg, f. 7.2. 1956, maki Tómas Gíslason. Börn: a) Elín María, f. 1983, hún á tvær dæt- ur, b) Guðný, f. 1987, maki Axel Heimir Þórleifsson, þau eiga tvö börn. Fyrir á Axel tvær dætur. 4) Ragnheiður, f. 16.7. 1959, maki Sævar R. Hallgrímsson. Börn: a) Magnús Filip, f. 1983, maki Ingunn Bjarnadóttir, þau eiga einn son. Fyrir á Magnús eina dóttur, b) Alma Eik, f. 1990, maki Guðmundur Kristinn Vil- bergsson, þau eiga tvo syni. Fyr- ir á Sævar soninn Þórarin Arn- ar, f. 1969. 5) Árni Geir, f. 28.5.1971, maki Ragnar Ólason. Synir Ragnars eru: a) Róbert, f. 1987, b) Bjarki Þór, f. 1990. 6) Helgi Hólm, f. 27. 4. 1973, Mig langar að minnast mömmu minnar í örfáum orð- um. Hún var fædd og uppalin á Ísafirði og leit alltaf á sig sem Ísfirðing og bar sterkar taugar þangað vestur. Tvítug réð hún sig sem kaupakonu á sveitabæ norður í Húnavatnssýslu. Kaup- staðarstúlkan sjálf sem aldrei hafði snert á neinum sveita- störfum. Hún hafði enda aldrei haft uppi neinar ráðagerðir um að setjast að í sveit og gerast bóndakona. Nei, hugur hennar stefndi annað. Hún hafði hugsað sér að fara til Danmerkur að loknu þessu sveitasumri, kannski í lýðskóla en þó var ekkert fullráðið. En margt fer öðruvísi en ætlað er. Það var í rauninni hreinasta tilviljun að hún skyldi fara norður í land. Frænka pabba var búin að út- vega honum kaupakonu en af einhverjum ástæðum forfallaðist hún. Mamma þekkti þessa stúlku og bauðst til þess að fara í hennar stað þótt hún þekkti ekkert til sveitastarfa. Í bréfi sem frænkan sendi pabba grein- ir hún frá þessum tíðindum og tiltekur að mamma sé af „harð- duglegu fólki komin“ en í lokin skrifar hún eitthvað á þessa leið: „Ég gleymdi að segja að stúlkan heitir Filippía. Það er ókristilegt nafn finnst mér en hún getur víst ekki úr því bætt.“ Því fór það svo að stúlk- an með „ókristilega nafnið“ mætti á bæjarhlaðið á Syðri-Ey. Mágkona pabba var þá stödd á Syðri-Ey og sagði hún mér síð- ar að hún hefði veitt athygli fal- legu brosi stúlkunnar. Hún sagði mér líka að hún hefði fljótlega veitt því eftirtekt að bóndinn á bænum væri farinn að raka sig nær daglega þótt hann ætti ekkert erindi af bæ. Hún þóttist sjá í hvað stefndi. Enda fór það svo að í nóvember sama ár voru þau orðin hjón. Mamma gerðist því húsfreyja í sveit þrátt fyrir áform um ann- að. Starfsvettvangur hennar var fyrst og fremst heimilið. Þó sinnti hún útiverkum ef á þurfti að halda. Hún mjólkaði kýrnar og tók oft þátt í heyskapnum og keyrði þá oftast vélarnar, en hún fór sjaldan í fjárhúsin. Helst var það þegar þurfti að hjálpa einhverri ánni að bera. Ég hafði alltaf dálítið gaman af kindunum og þekkti sumar ærn- ar sem krakki einkum þær sem skáru sig úr að einhverju leyti. Slíku var ekki að heilsa hjá mömmu. Einhverju sinni, þegar ég var strákur, hafði mamma verið kölluð til í fjárhúsin að hjálpa kind að bera og þegar hún kom heim aftur spurði ég hvernig kindin hefði verið á lit- inn. „Á litinn?“ sagði hún, „ég tók nú ekkert eftir því.“ „Þú hlýtur nú að hafa séð hvort hún var hvít eða svört,“ sagði ég svolítið hneykslaður á eftirtekt- arleysi móður minnar. „Hvað heldurðu að ég hafi tekið eftir því?“ svaraði hún. Skepnur og skepnuhald var utan hennar áhugasviðs en það var garðyrkj- an aftur á móti ekki. Hún rækt- aði matjurtir, blóm og tré. Í blómagarðinum eyddi hún mörgum stundum og garðurinn var sannkallað blómahaf. Í dag er þessi garður kominn í mína umsjá og því veltur það á mér að hann dafni áfram. Við ferða- lok sækja að margar kærar minningar. Þær eru dýrmætur fjársjóður. Æskuheimilið mótar mann fyrir lífstíð og þar hlýtur maður það veganesti sem haldið er með út í lífið. Fyrir það vil ég þakka. Árni Geir. Amma Bíbí. Enginn sem ég þekkti sem barn hafði heyrt nafnið Bíbí áður. „Er amma þín fugl?“ Nei amma mín var ekki fugl, en í mínum huga var hún alltaf amma Bíbí. Ég lærði mjög seint að skrifa nafnið Filippía rétt. En amma kenndi mér það á endanum. Í mínum huga var amma Bíbí eins og ömmurnar í sögubók- unum. Hún var húsfreyja á sveitabæ, það var alltaf lykt af mat eða einhverju nýbökuðu. Ef hún var ekki að baka eða elda var hún að prjóna á okkur sokka eða vettlinga. Hún var alltaf svo blíð og góð og tók manni fagnandi í hvert sinn sem maður kom í heimsókn. Mínar bestu minningar sem barn eru einmitt úr sveitinni og þar lék amma stórt hlutverk. Þegar ég varð eldri og amma flutt úr sveitinni spjölluðum við meira og ég fékk að heyra um lífið á Ísafirði áður en hún kom í sveitina. Hvað hún átti erfitt með að venjast kvöldsólinni í sveitinni. Hvaða tilviljun réð því að hún kom norður í sveit- ina, kynntist afa og sneri ekki aftur. Ástarsaga sem ég hef sagt öllum sem vilja og vilja ekki heyra. Síðustu ár voru samskipti okkar mest í gegnum tölvuna, enda amma ótrúlega vel að sér í tækninni miðað við aldur. Við Lóa reyndum líka að senda kort frá Svíþjóð á nokkurra vikna fresti. Tómas verður sennilega með prjónuðu teppin frá langömmu Bíbí í fanginu fram að ferm- ingu, þau eru það dýrmætasta sem hann á. Hann hefur sofnað með þau í fanginu alla daga nánast frá fæðingu. Góða ferð amma – ég veit að afi tekur fagnandi á móti þér, enda fengið að bíða lengi. Takk fyrir allt, þín er svo ótrúlega sárt saknað. Guðný. Elskulega amma okkar er látin. Við eigum endalausar minningar úr sveitinni hjá Bíbí ömmu og ekkert betra en að fá að vera á Syðri-Ey yfir sum- arið. Það var alltaf skemmtilegt að hjálpa til við heyskapinn eða heimalningana og ávallt var eitthvert góðgæti í boði hjá ömmu, hvort sem það voru kanilsnúðarnir hennar eða kleinur. Amma var mikil hann- yrðakona og erum við einstak- lega heppin að eiga alls konar muni eftir hana, hvort sem það var prjónað, heklað eða föndr- að. Amma ólst upp á Ísafirði og var alltaf mikill Ísfirðingur í sér þó svo að hún hafi búið mestallt sitt líf fyrir norðan og var síðustu árin á Blönduósi. Henni fannst ákaflega gaman að heimsækja Vestfirðina þeg- ar hún gat og þá varð að stoppa í bakaríinu á Ísafirði og kaupa napóleonsköku. Amma var líka mikil blómakona og fannst yndislegt að njóta blómagarðsins síns sem var af- skaplega fallegur í fullum blóma. Við minnumst ömmu okkar með tár á hvörmum en erum ákaflega þakklát fyrir all- ar þær góðu minningar sem við eigum. Hvíl í friði, elsku Bíbí amma. Þú munt lifa áfram í hjörtum okkar. Olga, Erla, Tinna og Davíð. Filippía Helgadóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HELGI SIGURÐSSON véltæknifræðingur, Skógarseli 43, lést miðvikudaginn 5. maí á krabbameins- deild Landspítalans. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 19. maí klukkan 13. Einnig verður streymt frá athöfninni á www.seljakirkja.is. Árný Kristjánsdóttir Gunnur Helgadóttir Baldvin Þ. Kristjánsson Sigrún Helgadóttir Jón Bragi Bergmann barnabörn og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR, Árskógum 3a, Reykjavík, lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar laugardaginn 8. maí. Útförin fer fram í Garðakirkju þriðjudaginn 18. maí klukkan 15. Í ljósi aðstæðna verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir athöfnina. Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks Heru fyrir ómetanlega umönnun. Streymt verður frá athöfninni, hlekk má finna á www.mbl.is/andlat Guðrún Gísladóttir Bragi Guðmundsson Vilmundur Gíslason Sigrún Oddsdóttir Hafliði Gíslason Kristina Olofsdotter Guðný Gísladóttir Þorri Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞORBJÖRG J. ÓLAFSDÓTTIR ljósmóðir, Urriðakvísl 16, Reykjavík, lést á krabbameinsdeild Landspítalans þriðjudaginn 11. maí. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón M. Benediktsson Þórólfur Jónsson Nanna Viðarsdóttir Ragnheiður Jónsdóttir Erlend Nicolaisen Þórhildur Jónsdóttir Jón Hákon Hjaltalín og barnabörn Elsku maðurinn minn, pabbi okkar, tengdapabbi og afi, HRAFNKELL GUNNARSSON, Haukdælabraut 38, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu þriðjudaginn 11. maí. Útför verður auglýst síðar. Kristín Þorbjörg Jónsdóttir Sigríður Hrefna Hrafnkelsd. Eyjólfur Eyjólfsson Kristján Páll Hrafnkelsson Heiðdís Helga Antonsdóttir Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir Jón Eiríkur Jóhannsson Hrafnkell Óli Hrafnkelsson Berglind Sunna Bragadóttir og barnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUNNHILDUR BIRNA BJÖRNSDÓTTIR, Sævargörðum 3, Seltjarnarnesi, lést þriðjudaginn 11. maí. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 25. maí klukkan 13 innan þeirra takmarkana sem í gildi eru. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: sonik.is/birna Hörður Reynir Jónsson Sverrir Tynes Ása Kolka Salome Tynes Pálmi Kristinsson Jón Reynir Harðarson Bjarni Birkir Harðarson Rakel Guðmundsdóttir og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BOGI G. HALLGRÍMSSON kennari, Víðigerði 11, Grindavík, lést sunndaginn 9. maí í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 19. maí klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á exton.is/streymi Snorri G. Bogason Agnes Ásgeirsdóttir Alda Bogadóttir Þórhildur Rut Einarsdóttir Guðfinna Bogadóttir Helgi Bogason Ella Björk Einarsdóttir Kristrún Bogadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, PÁLL JÓNSSON, Tröllagili 14, Akureyri, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri fimmtudaginn 13. maí. Útför hans mun fara fram frá Glerárkirkju þriðjudaginn 25. maí klukkan 13. Allir velkomnir. Jón Pálsson Björk Axelsdóttir Rannveig Jónsdóttir Þorlákur Axel Jónsson Gunnhildur H. Gunnlaugsd. Sigurður Pétur Jónsson Inga S. Guðbjartsdóttir Þorsteinn Styrmir Jónsson systkinabörn og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.