Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Ó, Jesús bróðir besti og barnavinur mesti, æ breið þú blessun þína á barnæskuna mína. Mér gott barn gef að vera og góðan ávöxt bera, en forðast allt hið illa, svo ei mér nái’ að spilla. Það ætíð sé mín iðja að elska þig og biðja, þín lífsins orð að læra og lofgjörð þér að færa. Þín umsjón æ mér hlífi í öllu mínu lífi, þín líknarhönd mig leiði og lífsins veginn greiði. Mig styrk í stríði nauða, æ styrk þú mig í dauða. Þitt lífsins ljósið bjarta þá ljómi’ í mínu hjarta. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: Þitt gott barn gef ég veri og góðan ávöxt beri. (Páll Jónsson) Hvíldu í friði og takk fyrir allt og allt. Þinn sonur, Sigurður. Fyrir átta árum var mér boðið í kjöt með karrísósu hjá heið- urshjónunum Pétri og Láru í Mosgerði. Hlýja, kærleikur og gestrisni eru þar alltaf í háveg- um höfð. Í matarboðinu kom til tals að bíllinn minn, sem kominn var til ára sinna, þyrfti að fara í skoðun. Pétur spenntist allur upp og vildi ólmur fara með hann í skoðun. Ég tók boðinu Pétur Jónsson ✝ Pétur Jónsson fæddist 13. nóvember 1937. Hann lést 25. apríl 2021. Útförin fór fram 10. maí 2021. fegins hendi því að ég hef nú aldrei haft mikið vit á bílum en hann var sannkall- aður snillingur á því sviði. Í skoðuninni kom í ljós að bíllinn bremsaði af gömlum vana frekar en getu. Pétur hafði svo miklar áhyggjur af nýju kærustunni hans Guðjóns á bremsulausa bílnum að hann hringdi oft í mig til þess að klára málið. Þegar ég fékk bílinn til baka frá Pétri var ég skömmuð fyrir mikla kókneyslu því aftur- sætið var fullt af tómum kók- flöskum. Þrátt fyrir þennan galla á mér urðum við fljótt góðir vin- ir. Þetta var ekki í síðasta skipti sem Pétur var til taks fyrir okk- ur Guðjón. Hann var ávallt reiðubúinn að rétta hjálparhönd og kann ég honum miklar þakkir fyrir. Í daglegu tali er heimili Pét- urs og Láru í Mosgerði kallað ættarsetrið og það stendur sko undir nafni. Þau nutu sín í botn þegar öll fjölskyldan var sam- ankomin undir einu þaki. Það gat orðið ansi þröngt í stofunni en öllum var sama. Eldhúsborðið var drekkhlaðið af veitingum að hætti Láru. Pétur í stofunni að segja sögur sem mikið var hlegið að. Pétur var hreykinn af sínum ættarhópi og þreyttist ekki á að segja sögur af afkomendum sín- um og barnæsku sinni á Rauða- sandi. Lára og Pétur voru miklir félagar og þau kunnu sannarlega að njóta lífsins saman. Á síðustu árum var farið í tvær ef ekki fleiri utanlandsferðir á ári og mikið ferðast innanlands á ferða- bílnum á sumrin. Oftast var sólin elt því að Pétur naut sín best ber að ofan sitjandi á sólstól. Í sumar fórum við með þeim í æðislega ferð til Vestmannaeyja. Við skemmtum okkur svo konung- lega í návist hvert annars að við tókum ekki eftir því að veðrið var ekkert sérstakt. Fyrir fimm árum kom eldri dóttir okkar Guðjóns í heiminn. Lára og Pétur voru mjög spennt að verða aftur amma og afi. Eft- irvæntingin var engu minni þeg- ar önnur bættist við 18 mán- uðum seinna. Pétur kallaði Helgu Margréti og Önnu Vigdísi prinsessurnar sínar. Það kom glampi í augun á honum þegar hann talaði um þær og ekki leiddist honum að segja öllum sem hann hitti hversu frábærar stelpur hann ætti. Aðdáunin var gagnkvæm. Prinsessurnar dýrk- uðu afa sinn og hann komst í guðatölu hjá þeim þegar þær sáu mynd af honum í vinnugallanum að vinna við strætó. Afi Pétur kunni sko að laga strætó og það eru ekki allir afar sem geta það. Pétur er farinn af stað í nýtt ferðalag og skilur eftir sig stórt skarð sem erfitt er að fylla. Minning um góðan og skemmti- legan mann mun lifa áfram. Með hugann fullan af þakklæti kveð ég í dag Pétur tengdaföður minn. Hulda Katrín Stefánsdóttir. Mig langar að setja penna á blað til að minnast manns sem mér þótti afskaplega vænt um og er nú fallinn frá. Ég hitti Pét- ur fyrst fyrir um 45 árum þegar ég fyrst heimsótti einn af fimm sonum hans, hann Þorleif, sem átti eftir að verða (og er) minn besti vinur, í hús þeirra í Mos- gerðinu. Foreldrar Leifs, þau Lára og Pétur, tóku mér af svo ótrúlega mikilli gæsku og góðum hug að það var sem ég væri einn af fjöl- skyldunni frá fyrsta degi. Pétur var þar í fararbroddi, sem kóng- ur í ríki sínu, fullur af glensi og óhræddur að gera góðlátlegt grín að viðstöddum. Hann lék hlutverk hins allsráðandi hús- bónda af leikni, sem Lára brosti yfir út í annað, en svaraði svo vel fyrir sig annað slagið með þaul- æfðri þolinmæði og ást á manni sínum um leið og hún markaði þær línur sem Pétur skyldi virða. Það gekk enginn þess dul- inn að þar voru jafningjar, vinir og lífsförunautar á ferð, þrátt fyrir að glens og gaman gæti ýj- að að öðru. Pétur virtist alltaf hafa áhuga á hvað um væri að vera í mínu lífi og oft á tíðum bauð hann mér að setjast niður í eldhúsinu til spjalls. Var ekki óvanalegt að Lára væri búin að malla í pönnu- kökur, og þurfti svo að fylla hverja rjómaskálina á fætur annarri til að hafa í við Pétur og mig við átið. Hvergi annars stað- ar hafði ég fengið þvílíkt tæki- færi að háma í mig án nokkurra áminninga, undir allskonar sam- ræðum, skemmtilegum sögum og góðlátlegri stríðni. Í mörg ár vandi ég komur mínar reglulega í Mosgerðið og stoppaði jafnvel í spjall við þau hjúin meira að segja ef Leifur var ekki heima við. Mér þótti mikið til Péturs koma strax á unga aldri, þar sem hann var ávallt eitthvað að dunda í skúrn- um, þar sem hann gerði við eða bjó til hluti til að selja. Man ég sérstaklega eftir hestakambi sem hann hannaði, framleiddi og seldi. Síðar á ævinni minnkaði ekki virðing mín fyrir Pétri þegar ég fór að skilja hversu vel hann hafði gert á verkamannalaunum að eiga einbýlishús í Smáíbúða- hverfinu, alandi upp fimm drengi og svo á síðari árum að ferðast til Kanaríeyja í janúar ár hvert. Pétur var auðvitað ekki full- kominn frekar en nokkur annar. Á tímum sá ég glitta í þreyttari og strangari Pétur, sem kannski var ekki búinn öllum þeim tólum sem hann þurfti á að halda þegar kom að því að ala upp fimm mjög ólíka drengi. Svo hann gerði það sem hann kunni sem var að veita þak og fæði, með miklu vinnu- þreki, staðfestu og ást. Já og með góðu glensi í bland. Líf mitt var ríkara af því að þekkja Pétur og hans verður sárt saknað. Samúðarkveðjur til allra í fjölskyldunni og næst þeg- ar ég kem til Íslands mun ég heimsækja Láru og gefa henni gott faðmlag og spjalla um liðna tíma. Hver veit nema við fáum okkur pönnukökur með rjóma yfir spjallinu. Sam Ragnarsson (Svavar). Kær faðir okkar varð bráðkvaddur 29. apríl. Hann skilur eftir sig stórt skarð sem erfitt verður að fylla. Hann var ótrúlega sterkur per- sónuleiki sem litaði líf okkar sem voru náin honum. Hann var mikið náttúrubarn og fannst ekkert betra en að vera uppi á hálendinu eða við fallega veiðiá. Hann sagði að stundum fyndist sér hann geta fundið tengingu við náttúruna beint í æð. Reynir Gunnar Hjálmtýsson ✝ Reynir Gunnar Hjálmtýsson fæddist 21. sept- ember 1946. Hann lést 29. apríl 2021. Útför hans fór fram 14. maí 2021. Þrautseigjan var honum í blóð borin og hann gafst aldrei upp þegar hann var búinn að taka ákvörðun. Eitt er víst að hann var alltaf trúr sjálfum sér og fór aldrei leynt með skoðanir sínar þótt þær væru ekki fyrir alla. Það er ekki alltaf einfalt að vaða á móti straumnum en það gerði hann alla tíð. Þótt hann hafi alla tíð unnið mik- ið og oft verið að heiman þegar við systkinin vorum að alast upp þá tókst honum sannarlega að móta líf okkar. Faðir okkar mun lifa áfram í okkur og börnum okkar. Arna og Aron. Ólafur Örn var kvæntur Kristínu Sólveigu, Lillu, móð- ursystur minni. Með honum er genginn sá síðasti úr hópi þeirra systkina og maka þeirra, börn og tengdabörn sýslumannshjónanna í Borgar- nesi, Karítasar og Jóns Stein- grímssonar. Samheldinn hópur og Ólafur Örn Arnarson ✝ Ólafur Örn Arnarson fæddist 27. júlí 1933. Hann lést 1. maí 2021. Útför Ólafs fór fram 12. maí 2021. góðar fyrirmyndir okkur börnum þeirra og barna- börnum. Í hugann koma nú margar minningar frá heimsóknum til Lillu og Ólafs Arnar og barna þeirra, ým- ist að Bugðulæk, í Kjalarland eða á Sól- eyjargötuna. Til dæmis skíðaferðir á Wagoneer jeppanum og heim- sóknir til gistingar hjá þeim, en við Sverrir erum jafnaldrar og vorum talsvert saman á unglings- árum. Ólafur Örn var hæglátur mað- ur, glaðlegur að eðlisfari og nota- legur í samskiptum. Þau hjón og foreldrar mínir héldu vel saman, fóru í ferðalög saman og skiptust á heimsóknum og matarboðum, og var þá gjarnan gripið í spil og spil- að bridge. Minnist ég margra heimsókna þeirra hjóna í Sörla- skjól til okkar. Ólafur hafði mjög gott lag á samræðum, jafnt við eldri sem yngri, enda þaulæfður í því hlut- verki sem læknir. Fannst mér allt- af auðvelt að spjalla við hann um hin ýmsu mál og hann tilbúinn bæði að hlusta og gefa álit. Hann hafði frá mörgu að segja og bjó að mikilli reynslu úr starfi sínu. Hann hafði ákveðnar skoðanir á fyrirkomulagi heilbrigðismála og studdi þær skoðanir sínar sterk- um rökum. Hann naut mikillar virðingar sem læknir og margir sem nutu færni hans og þekkingar á löngum starfsferli. Þegar eitthvað bjátaði á í heilsufari í minni fjölskyldu þá var ávallt fyrsta viðkvæðið að hringja í Ólaf Örn og leita ráða. Naut ég sjálfur sérþekkingar hans og er honum ævinlega þakk- látur fyrir. Ekki verður skilið við minningu Ólafs Arnar án þess að minnast á laufabrauðskökurnar. Þessi árlegi siður fjölskyldunnar var tilhlökk- unarefni því nákvæmni og hæfi- leikar Ólafs Arnar með skurðhníf- inn birtust okkur fjölskyldunni í þeim listaverkum sem hann skar út í laufabrauðin hverju sinni. Og færði svo systrunum í Landakoti. Við Hanna vottum Guðrúnu, Sverri, Katrínu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð og minnumst Ólafs Arnar með þakk- læti og virðingu. Blessuð sé minn- ing hans og þeirra hjóna. Gunnlaugur Briem. Innilegar þakkir fyrir samúð, stuðning og hlýhug vegna veikinda, andláts og útfarar elskulegrar eiginkonu, dóttur, móður, tengdamóður og ömmu, SIGRÍÐAR VALSDÓTTUR, Skrúðási 6. Sérstakar þakkir til Jakobs Jóhannssonar krabbameinslæknis og HERU heimaþjónustu. Innilegustu þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítala, sem annaðist hana af einstakri alúð, nærgætni og vandvirkni. Guðmundur Jón Elíasson Guðríður Júlíusdóttir Elías Freyr Guðmundsson Kristbjörg M. Kristinsdóttir Valur Árni Guðmundsson Lára Hrönn Hlynsdóttir Eva María Guðmundsdóttir Guðmundur F. Aðalsteinsson Elvar Jón Guðmundsson Þórgunnur Þórðardóttir og barnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÚLÍUS GUNNAR GEIRMUNDSSON, Gullsmára 9, lést á líknardeild Landspítalans mánudaginn 3. maí. Útför hans fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 19. maí klukkan 13 og verður einnig streymt. Hlekk á streymi má nálgast á www.mbl.is/andlat Ingunn Jóna Gunnarsdóttir Hreinn Jónasson Geir Gunnarsson Sigrún M. Arnardóttir Auður Ingrún Gunnarsdóttir Magnús Gunnarsson Solveig Kristjánsdóttir Jónas Gunnarsson Alma Hlíðberg barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGI ÁRSÆLSSON múrari, Rauðhömrum 10, Reykjavík, lést mánudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 26. maí klukkan 13. Aðalbjörg Ingadóttir Bolli Árnason Pétur Ingason Magna Jónmundsdóttir Soffía Ingadóttir Ásæll Ingi Ingason Vilborg Andrésdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri, INGI ÞÓR BJARNASON, áður til heimilis á Suðurgötu 124, Akranesi, lést mánudaginn 10. maí á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða, Akranesi. Útför hans fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 20. maí klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verður athöfnin með nánustu aðstandendum og vinum, þeim sem vilja koma er bent á að hafa samband í síma 862-2031, Ása. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Systur hins látna og aðrir aðstandendur Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RAGNAR ÓLAFSSON, áður til heimilis í Stekkjarhvammi 2, Búðardal, lést á dvalarheimilinu Brákarhlíð laugardaginn 1. maí í faðmi fjölskyldunnar. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir fær starfsfólk Brákarhlíðar fyrir frábæra umönnun. Ólafur G. Ragnarsson Hulda B. Guðjónsdóttir G. Ragna Ragnarsdóttir Margrét J. Ragnarsdóttir Ólafur K. Kristjánsson Ragnar Hrafn, Brynjar Rafn, Elín Fanney, Halldóra Aðalheiður, Stella María, Hrafnhildur Tinna, Sigurður Ragnar, tengdabörn og langafabörn Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birt- ingar í öðrum miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi lið- ur, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugg- anum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðju- degi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila- frestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.