Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 38
38 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 90 ÁRA Karl Jóhann Ormsson rafvirkja- meistari fæddist 15. maí 2021 á Baldurs- götu í Reykjavík en fluttist á fyrsta ári vestur á Snæfellsnes. Foreldrar hans, Ormur Ormsson rafvirkja- meistari og Helga Kristmundardóttir húsmóðir, áttu heima á Hofgörðum í Staðar- sveit árin 1931-1936 en fluttu þá að Laxár- bakka í Miklaholtshreppi og bjuggu þar til ársins 1946 er þau fluttu í Borgar- nes. Karl Jóhann var í rafvirkjanámi hjá föður sínum, Ormi Ormssyni, og lauk sveinsprófi í rafvirkjun árið 1959. Karl Jóhann var nokkuð til sjós á árunum 1947 til 1956, en á þeim var at- vinna í Borgarnesi nokkuð stopul og því oft þörf á að leita sér vinnu annars staðar. Hann var fyrst á gamla Laxfossi og einnig á ýmsum skipum Eim- skipafélagsins í flutningum og jafnframt á fiskiskipum og togurum. Karl Jó- hann var í lok þessa tímabils á Akraborginni, sem kom ný til landsins 1956. Hann vann fyrst við rafvirkjun í Borgarnesi en eftir árið 1956 í Reykjavík, m.a. hjá Bræðrunum Ormsson hf. á Vesturgötu 3. Hann varð síðan raftækja- vörður á Borgarspítalanum árið 1965 og starfaði þar þangað til hann fór á eftirlaun. Karl Jóhann var áhugasamur um félagsmál starfsmanna Borgarspítalans og einnig virkur í safnaðarstarfi Bústaðakirkju. Hann ritaði fjölda greina í Morgunblaðið bæði um stjórnmál og önnur áhugamál sín, s.s. umhverfis- vernd og dýravernd. Karl Jóhann hefur ætíð verið mikill fuglavinur og mjög áhugasamur um verndun þeirra og viðgang. Karl Jóhann dvelur nú á Hrafn- istu í Laugarási og hefur gert síðan 2015. FJÖLSKYLDA Karl Jóhann kvæntist 2. júlí 1955 Ástu Björgu Ólafsdóttur leikskólastjóra, f. 21.1. 1936, d. 9.10. 2018. Börn þeirra eru Sigrún lyfjafræð- ingur, f. 1955, Eyþór Ólafur, augnlæknir, f. 1960, og Ormur, skrifstofumaður, f. 1975. Barnabörnin eru sex og langafabörnin eru einnig orðin sex. Karl Jóhann Ormsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Ekki afskrifa neina hugmynd nema þú sért fullviss um tilgangsleysi hennar. Hafðu hugfast að aldrei er hægt að gera svo öllum líki. 20. apríl - 20. maí + Naut Dagurinn er kjörinn til að bregða á leik. Fólk er mjög móttækilegt fyrir því að styðja við bakið á þér. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Prófaðu langa göngutúra í fersku lofti til að losa um streituna sem hrjáir þig núna. Ef þú fæst ekki við það sem þú hefur áhuga á getur lífið orðið leiðinlegt. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú þarft á mikilli tilbreytingu og örvun að halda. Þér finnst aðrir hafa það betra en þú en þú veist ekki alla söguna á bak við líf annarra. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Ekki fara yfir strikið í dag, dóm- greind þín er ekki upp á sitt besta. Horfðu fyrst og fremst fram á veginn, fortíðin er grafin og gleymd. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Rómantíkin ræður ríkjum þessa dagana og þú ert í sjöunda himni því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. Jafn- vægi er lykillinn að því að komast áleiðis. 23. sept. - 22. okt. k Vog Yfirleitt er fólk að deila einhverju með þér þegar það talar en stundum er það hreinlega að halda þér í gíslingu með orðagjálfrinu. Gættu að ungviðinu, haltu aganum hvað sem það kostar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú ert sérstaklega sannfær- andi í dag og færð alla á þitt band. Góður fundur með vini verður seinnipart dags. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú ert hæfileikarík/ur og fólk dáist að hugmyndum þínum. Leyndarmál verður afhjúpað og þú munt verða hissa á viðbrögðum annarra. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Nýtt samband virðist byggt á vináttu en ýmislegt bendir til að ástríðan kraumi undir niðri. Gefðu þér tíma til að rækta sjálfa/n þig. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þú veltir peningamálunum mikið fyrir þér. Þú ert í betri málum en þú þorðir að vona. Ekki svíkja loforð. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú átt í innri baráttu og veist varla í hvorn fótinn þú átt að stíga. Njóttu þess að hitta vini þína í kvöld. S turla Þorsteinsson fæddist 15. maí 1951 í Reykjavík. Hann ólst upp í Smá- íbúðahverfinu, nánar til- tekið á Sogavegi, fyrst nr. 154 og síðar nr. 160. Hann gekk í Breiðagerðisskóla og Réttarholts- skóla áður en leið hans lá í Kenn- araskólann. „Við höldum enn þá hóp- inn vinirnir úr Sogamýrinni og reynum að hittast mánaðarlega í morgunkaffi.“ Sturla útskrifaðist með kennara- próf árið 1972 og stúdentspróf árið 1973. Hann hóf störf sem kennari við Réttarholtsskólann árið 1972 og kenndi þar þangað til 1987 þegar hann hóf störf í Garðaskóla í Garða- bæ. Sturla hefur frá árinu 2012 starf- að sem kennari í Barnaskóla Hjalla- stefnunnar í Garðabæ. „Ég kenndi börnum á unglingastigi frá 1972 til 2012 en rúmlega sextugur ákvað ég að venda kvæði mínu í kross og byrjaði að kenna börnum í yngri bekkjum grunnskóla. Ég er því núna farinn að geta sagt við nemendur mína að ég hafi kennt öfum þeirra og ömmum. Þá er gaman að segja frá því að allt frá því að ég hóf að kenna þá hef ég haldið til haga úrklippum úr dagblöðum og tímaritum af því sem nemendur mínir hafa verið að fást við. Það er ótrúlega gaman að fletta í gegnum úrklippurnar í dag sem eru nokkur hundruð talsins og fylla nokkrar möppur. Starfið hefur veitt mér mikla ánægju og ég ætla að halda áfram að vinna meðan ég fæ og get.“ Sturla var stjórnarmaður, varafor- maður og formaður í Kennarafélagi Reykjaness á árunum 1997-2009. Hann var varaformaður knatt- spyrnudeildar Stjörnunnar 2008- 2014. Hann hefur setið í sóknarnefnd Garðasóknar frá árinu 2008. Sturla var bæjarfulltrúi fyrir Sjálfstæðis- flokkinn í Garðabæ frá 2010 til 2018. Þar sinnti hann m.a. formennsku í fjölskylduráði bæjarins og sat í stjórn Tónlistarskóla Garðabæjar. Þá sat hann jafnframt sem fulltrúi bæjarins í stjórn Strætó bs. og Sorpu. Sturla á í dag sæti í skólanefnd Garðabæjar. Sturla sat sem varaþingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn haustið 1999. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á um- hverfi mínu og alla tíð verið virkur í hvers kyns félagsstörfum. Það er bara mjög erfitt að hætta að sinna þeim.“ Sturla hefur mikinn áhuga á íþrótt- um og hreyfingu hvers konar. Hann hefur stundað útihlaup síðastliðna Sturla Þorsteinsson, kennari við Barnaskóla Hjallastefnunnar í Garðabæ – 70 ára Á Tenerife Sturla, Ingibjörg, börn, tengdabörn og barnabörn í febrúar 2020. „Vinn meðan ég fæ og get“ Við Veróna Sturla og Ingibjörg á ferðalagi um Ítalíu ásamt Guðjóni æskufélaga Sturlu og eiginkonu hans, Sigríði. Hjónin Sturla og Ingibjörg. Við Hraunfossa Sturla ásamt nafna sínum, Sturlu Hrafni, og föður hans, Skapta Erni. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.