Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Ég fékk tölvupóst á dögunum frá fyrrverandi knattspyrnu- manni sem á leiki að baki í efstu deild. Sá ætlaði að bregða sér á völlinn og sjá leik í Pepsí Max-deild karla en þurfti frá að hverfa. Hafði hann mætt 35 mínútum áður en leikurinn átti að hefjast enda sagðist hann hafa verið fullur tilhlökkunar að fagna sumarkomunni og sjá leik í Ís- landsmótinu. „Engin miðasala var opin og gekk ég því að ung- um drengjum, sem voru greini- lega vakthafandi við inngang- inn.“ Þegar hann spurðist fyrir um hvernig hann greiddi aðgangs- eyri fékk hann þau svör að það væri einungis gert í gegnum appið. Pennavinur minn sagðist ekki kunna neitt á svoleiðis og var ekki kunnugt um þetta. Bauðst hann til að borga starfsmönnum miðann. Þegar því var hafnað bauðst hann til að borga inn á reikning knatt- spyrnudeildar félagsins. Var því einnig hafnað á staðnum. „Er að velta fyrir mér, í fram- haldi af þessum samskiptum, hvað íþróttafélögin ætla að gera við eldri áhangendur sem áhuga hafa á að fara á knatt- spyrnuleiki og kunna ekkert með „app“ að fara? Eftir þessi samskipti skammaðist ég mín, var bæði sár og reiður, vegna m.a. kunnáttuleysis míns á „appi“,“ skrifaði pennavinur minn einnig. Þótt glíman við veiruna sé leiðinleg þá hafa félögin hags- muni af því að stuðningsmenn til áratuga geti borgað sig inn þótt þeir hafi ekki gengið snjall- símavæðingunni á hönd. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍBV ........... L13 HS Orkuvöllur: Keflavík – Þróttur R ... L14 Origo-völlur: Valur – Fylkir .................. L14 Kópavogsvöllur: Breiðablik – Þór/KA.. L16 Jáverkvöllur: Selfoss – Stjarnan........... L16 Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Domusnovav.: Leiknir R. – Fylkir ... S19.15 Víkingsv.: Víkingur R. – Breiðablik . S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Eimskipsvöllur: Þróttur R. – Vestri ..... L13 HANDKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Olísdeildin: Hertz-höllin: Grótta – Þór ..................... L16 TM-höllin: Stjarnan – Valur .................. L18 Ásvellir: Haukar – FH ........................... L20 KA-heimilið: KA – ÍBV .......................... S14 Varmá: Afturelding – ÍR........................ S14 Hleðsluhöll: Selfoss – Fram................... S14 Úrslit kvenna, 1. umferð, annar leikur: TM-höllin: Stjarnan – ÍBV (0:1) ...... S13.30 Ásvellir: Haukar – Valur (0:1)................ S18 Umspil kvenna, undanúrslit, annar leikur: Dalhús: Fjölnir/Fylkir – HK (0:1)......... L15 Austurberg: ÍR – Grótta (0:1) ............... L18 KÖRFUKNATTLEIKUR 8-liða úrslit karla, fyrsti leikur: MG-höllin: Stjarnan – Grindavík ..... L18.15 Blue-höllin: Keflavík – Tindastóll .... L20.15 IG-höllin: Þór Þ. – Þór Ak ................. S19.15 Origo-höllin: Valur – KR ................... S20.15 Umspil kvenna, 8-liða úrslit, annar leikur: Ísafjörður: Vestri – Njarðvík (0:1) ........ S15 Sauðárkrókur: Tindastóll – ÍR (0:1)...... S16 Hverag.: Hamar/Þór – Ármann (0:1) .... S16 MG-höllin: Stjarnan – Grindavík (0:1) .. S19 BLAK Fyrsti úrslitaleikur kvenna: Fagrilundur: HK – Afturelding ............ L14 Undanúrslit karla, fyrsti leikur: Ísafjörður: Vestri – Hamar.................... S18 KA-heimilið: KA – HK ........................... S19 JÚDÓ Íslandsmótið fer fram í Digranesi í Kópa- vogi á morgun, sunnudag, frá kl. 10. Keppt er til úrslita kl. 13 til 16. UM HELGINA! Skagamenn urðu fyrir tvöföldu áfalli í fyrrakvöld þegar þeir töp- uðu fyrir FH í Pepsi Max-deild karla í fótbolta. Árni Snær Ólafsson markvörður og fyrirliði sleit hásin í fæti seint í leiknum og ljóst er að hann spilar ekki meira á þessu tímabili. Sindri Snær Magnússon er rifbeinsbrotinn og verður frá keppni næstu vikurnar. Það verður því væntanlega Króatinn Dino Hod- zic sem ver mark ÍA á næstunni en hann er varamarkvörður liðsins. Hodzic lék með Skagaliðinu Kára í 2. deildinni á síðasta tímabili. Árni Snær ekki meira með ÍA Ljósmynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson Slasaðist Árni Snær Ólafsson er með slitna hásin í fæti. Eyjamaðurinn Hlynur Andrésson setti enn einu sinni Íslandsmet í fyrradag þegar hann keppti í 3.000 metra hlaupi á móti í Hollandi. Hlyn- ur bætti eigið met þegar hann kom í mark á 8:01,37 mínútum en fyrra metið frá því í ágúst á síðasta ári var 8:02,60. Hlynur á sex gildandi Ís- landsmet í langhlaupum en hinar greinarnar eru 10 km hlaup, 10 km götuhlaup, hálft maraþon, maraþon og 3.000 metra hindrunarhlaup. Baldvin Þór Magnússon hefur tekið tvö met af honum á þessu ári, í 1.500 og 5.000 m hlaupum. Bætti eigið Íslandsmet Ljósmynd/Bjorn Parée Methafi Hlynur Andrésson hefur slegið hvert metið á fætur öðru. TÓKÝÓ 2021 Kristján Jónsson kris@mbl.is Ólympíuleikarnir eiga að hefjast í Tókýó í Japan hinn 23. júlí og standa til 8. ágúst. Sextán dögum eftir að þeim lýkur hefjast Paralympics. Áfram eru leikarnir kallaðir 2020 því þeir áttu að fara fram í fyrra en var frestað vegna heimsfaraldursins. Stjórnvöld í Japan tilkynntu í gær hertar takmarkanir á samkomum í landinu, þegar aðeins tíu vikur eru í að Ólympíuleikarnir hefjist. Um 350.000 undirskriftir hafa safnast þar sem þess er krafist að hætt verði við leikana. Höfuðborgin Tókýó og önnur svæði voru fyrir á sérstöku neyð- arstigi út maí, en þremur héruðum til viðbótar hefur nú verið bætt á slíkan lista, þar á meðal Hokkaido þar sem maraþonhlaup Ólympíu- leikanna á að fara fram. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Andra Stefánsson, sviðs- stjóra afreks- og ólympíusviðs ÍSÍ, og Jón Björn Ólafsson, íþróttafull- trúa ÍF. Hvernig meta þeir stöðuna á þessum tímapunkti? Verður hægt að halda leikana? Allt gert til að klára dæmið „Ég held að það verði allt gert til að láta dæmið ganga upp og leik- arnir fari fram. Miðað við það sem við heyrum frá alþjóðaólympíu- nefndinni þá er verið að reyna að út- vega bóluefni fyrir þátttakendur og reyna að finna lausnir til að draga úr áhættu. Þetta er það sem við heyr- um að utan en auðvitað hefur maður áhyggjur miðað við hvernig staðan er í Tókýó,“ sagði Andri sem hefur umfangsmikla reynslu af Ólympíu- leikum og verið fararstjóri íslenska hópsins á slíkum mótum. „Það er aldrei að vita. Stjórnmála- mennirnir taka ákvörðun að lokum. Ef það verður enn meira neyðar- ástand í Japan þegar nær líður leik- unum þá veit maður aldrei. Okkar undirbúningur miðast við að leik- arnir fari fram. Íþróttafólk úti um allan heim hefur stefnt að þessu í langan tíma og allir vilja láta draum sinn um að keppa verða að veruleika. Við sjáum sem dæmi að Ásdís Hjálmsdóttir hætti keppni í lok síð- asta árs og verður því ekki með en hefði væntanlega verið með ef þeir hefðu farið fram samkvæmt upp- haflegri áætlun sumarið 2020. Bara við það að fresta leikunum um eitt ár datt einn keppandi út hjá okkur sem átti möguleika á að ná lágmarki. Við viljum að íþróttafólkið fái tækifæri til að keppa, og okkar hlut- verk er að gera allt sem við getum til að hjálpa þeim, en á móti kemur að undirbúningur er erfiður út af allri þessari óvissu sem verið hefur. Við vonum það besta en getum alltaf átt von á að það verði einhverjar breyt- ingar,“ sagði Andri. Hefur trú á íþróttafólkinu Andri hefur trú á að íslensku íþróttafólki takist að ná lágmörkum fyrir leikana. Eins og sakir standa er sundmaðurinn Anton Sveinn McKee eini Íslendingurinn sem náð hefur lágmarki. Með því tryggir hann ís- lenskri konu einnig keppnisrétt í sundi á leikunum. Fleira íþróttafólk hefur burði til að ná lágmarki eða vera nógu ofarlega á heimslista í sinni grein til að komast á leikana. Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að fólk hefur ekki tök á að keppa á alþjóðlegum mótum. Hvað sér Andri fyrir sér að margir Íslend- ingar muni keppa á Ólympíu- leikunum í Tókýó? „Við vorum með átta keppendur í Ríó [árið 2016] og ég hafði vonast eftir að við myndum ná því. Mín von er að við náum alla vega sex kepp- endum úr því sem komið er. Eins og staðan er þá eru þrjú sæti örugg; tvö í sundi og eitt í frjálsum. Ef einhver nær lágmarki í frjálsum þá bætist annar við. Auk þess er ég vongóður um að frjálsíþróttatímabilið byrji vel og við náum fleiri keppendum inn þar. Einnig eru fleiri möguleikar í stöðunni, til dæmis í þríþrautinni, þar sem Guðlaug Edda Hannes- dóttir hefur staðið sig vel, og mögu- lega fleiri greinum,“ sagði Andri Stefánsson. EM fram undan hjá ÍF Jón Björn hjá Íþróttasambandi fatlaðra tekur í svipaðan streng og segir undirbúning á fullu þar til ann- að kemur í ljós. „Við höfum svo sem ekkert í hönd- unum annað en að leikarnir fari fram. Hér er verið undirbúa þátt- töku Íslands á leikunum. Sú lína er lögð af alþjóðahreyfingunni og tengilið okkar í undirbúningsnefnd leikanna. Allir eru að undirbúa sína framkvæmd og okkur hefur ekki verið uppálagt annað, en maður ger- ir sér fyllilega grein fyrir að svo gæti farið að ekki yrði af leikunum. Sá möguleiki er alla vega fyrir hendi,“ sagði Jón og benti á að fram undan væru EM bæði í sundi og frjálsum. „Í þessu umhverfi er ekki annað hægt en halda undirbúningi áfram á meðan stefnt er að því að halda leik- ana. Við erum til dæmis með tvo öfl- uga keppendur á EM í sundi og ann- ar hópur á leið á EM í frjálsum. Það er því allt í gangi samkvæmt áætlun. Vonandi verður hægt að halda þessa leika þótt það verði kannski með öðru sniði en maður á að venjast. Ein hættan fyrir Paralympics væri sú að það tækist að setja Ólympíu- leikana í gang og þar myndi eitthvað gerast sem yrði þess valdandi að ekki væri hægt að halda Paralymp- ics. Við höfum reynt að undirbúa okkur fyrir sem flestar sviðsmyndir þótt sumar þeirra vilji maður ekki horfa of mikið í. En maður þarf víst samt að gera það.“ Alla vega fjórir keppendur Hjá ÍF er alla vega hægt að gera ráð fyrir fjórum íslenskum kepp- endum núna og þeir gætu hæglega orðið fleiri. „Nokkuð er síðan Ísland fékk keppnisrétt fyrir karl og konu í sundi á Paralympics. Íþróttafólkið býr til kvóta fyrir þjóðlöndin en svo keppir íþróttafólkið um þessi sæti. Við erum einnig með sæti fyrir karl og konu í frjálsum á leikunum. Einn- ig er sérstakt umsóknarferli þar sem við sækjum um fleiri sæti. Í sundinu eru til dæmis tveir öflugir karlar að bítast um eitt sæti eins og staðan er núna: Már Gunnarsson og Róbert Ísak Jónsson. Við leggjum því inn beiðni um annað sæti fyrir karl í sundinu vegna þess að báðir þessir íþróttamenn eiga tíma í sínum grein- um sem myndu skila þeim inn í úrslit á stórmótum. Ísland mun eiga fjóra keppendur og vonandi fleiri. Þorsteinn Hall- dórsson á til dæmis eftir að keppa í síðasta mótinu í bogfimi og við vitum því ekki fyrr en mánuði fyrir brott- för hvort hann skýtur sig inn eða ekki. Dæmi eru um að Þorsteinn skjóti sig inn á stórmót á síðustu ör,“ sagði Jón Björn Ólafsson. Fólk heldur sínu striki í Laugardalnum - Óvissa enn fyrir hendi varðandi leikana í Tókýó en undirbúningsvinna á fullu AFP Tókýó Ólympíuleikarnir fara fram í Tókýó í sumar, þrátt fyrir mörg smit kórónuveirunnar í Japan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.