Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 48
• Sérferð fyrir eldri borgara
og flogið með Icelandair
• Mjög áhugaverðar skoðunarferðir
alla daga þ.m.t. til Brattahlíðar
• Allur matur og gisting innifalin í verði
• Íslensk fararstjórn og mikil upplifun
Stórkostlegt land
að heimsækja!
Grænland
Verð
269.900
mann í tvíbýli*
*aukagjald fyrir einbýli
kr. 24.900
Narsarsuaq
25.-28. september
4 dagar/3 nætur
Allar nánari upplýsingar á
www.ferdaskrifstofaeldriborgar.is
Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is
eða í símum 783-9300/01
Sópransöngkonan Álf-
heiður Erla Guðmunds-
dóttir er komin í 16
manna úrslit hinnar
frægu söngvarakeppni
BBC Cardiff Singer of
the World en í henni
hafa sumar frægustu
óperustjörnur samtím-
ans, eins og Dmitri
Hvorostovsky, Bryn Ter-
fel og Jamie Barton, fyrst vakið athygli. Keppendurnir 16,
sem eru frá 15 löndum, hafa komist gegnum þrjú stig í
forkeppni sem fleiri söngvarar tóku nú þátt í en nokkru
sinni áður. Keppnin mun fara fram um miðjan júní og
verður fyrstu stigum hennar útvarpað og í lokin keppa
fimm stigahæstu keppendurnir í beinni sjónvarps-
útsendingu 19. júní.
Álfheiður Erla, sem er 27 ára gömul, stundar nú meist-
aranám í söng í Berlín en hún var nýverið valin besta
klassíska söngkonan á Íslensku tónlistarverðlaununum.
Álfheiður Erla komin í 16 manna
úrslit Cardiff-söngvarakeppninnar
toppinn hafi fylgt með en þeir hafi
þurft að raða öllu saman og ryð-
bæta skúffuna. „Bíllinn var í mjög
góðu standi og við vorum innan við
mánuð að gera jeppann sem nýjan.“
Upprunalegt hús jeppans var frá
Agli Vilhjálmssyni, þar sem bræð-
urnir lærðu til verka og fengu rétt-
indin upp úr miðri síðustu öld. Því
voru hæg heimatökin. „Ég vissi ná-
kvæmlega hvað þurfti að gera og
hvernig, hef byggt yfir 32 bíla,“
segir Benni.
Manni tekur í sama streng.
„Handtökin gleymast aldrei,“ segir
hann. Segir að viðgerðirnar og
smíðarnar hafi alla tíð verið
skemmtilegar og sérstaklega hafi
verið gaman að fást við þennan
Willys-jeppa því hann hafi verið
upprunalegur. „Það var ekki búið
að gera skrímsli úr honum.“
Manni segist annars taka því ró-
lega, dyttar nú við sumarbústaðinn
sinn en taki að sér verk þegar þau
bjóðast. „Ég er í ágætis standi og
er alltaf til taks í hvað sem er.“
Bílaviðgerðirnar hjá Benna hafa
legið niðri í sauðburðinum. Honum
lýkur um helgina og í gær tóku þau
geiturnar út úr húsi. „Við konan,
sem er bara ári yngri en ég, erum
með 50 kindur í burði og höfum
þurft að vakna á klukkutíma fresti
til að fylgjast með,“ segir hann.
„Því bíður einn bíll með skemmda
hlið og á annan vantar sílsa. Ég fer
í þá eftir burð.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Skagfirsku bræðurnir Benedikt
Valberg, bóndi og bifvélavirki í
Djúpadal í Rangárþingi eystra, og
Guðmann J. Valberg, bifreiðasmið-
ur í Kópavogi, luku nýlega við að
smíða og setja saman nýtt hús á
Willys-jeppa árgerð 1963. Það er
svo sem ekki í frásögur færandi
nema vegna þess að þeir eru í fullu
fjöri þrátt fyrir háan aldur, Bene-
dikt verður níræður á næsta ári og
Guðmann er 85 ára.
Benedikt hefur verið með bíla-
verkstæði í Djúpadal síðan 1966.
Maður sem hann kannast við hafði
samband og spurði hvort hann vildi
taka að sér að setja saman hús á
Willys-jeppa árgerð 1963.
„Hann sagðist hafa átt bílinn í 30
ár og þau hjónin hefðu ferðast mik-
ið á honum um hálendið, en fyrir
sex árum hefði jeppinn verið rifinn í
sundur og enginn viljað setja hann
saman aftur. Ég sagði honum að ef
bróðir minn vildi gera þetta með
mér gæti ég tekið verkið að mér.
Síðan talaði ég við Manna og við
gengum í málið. Við þurftum að
endursmíða húsið, það var allt
ónýtt, og skúffan var líka meira og
minna ryðguð í sundur, en við
þurftum ekkert að fara í gangverk-
ið. Það var í fínu lagi.“ Hann bætir
við að hann hafi fengið Kristján
Jósefsson, vin sinn á Hvolsvelli, til
þess að sprauta jeppann. „Hann er
mun yngri en við og mjög flinkur
bílamálari.“
Reynslan mikilvæg
Manni er líka með tól og tæki í
bílskúrnum sínum, en hefur nánast
ekkert sinnt bílasmíðum síðan 1963,
í um 58 ár. Hann vann hjá Agli Vil-
hjálmssyni þangað til, stofnaði þá
viðgerðarfyrirtæki með bróður sín-
um en vann síðan mest á gröfum,
einkum fyrir bændur og í vegalagn-
ingu víða um land frá um 1970 þar
til hann fór á eftirlaun sjötugur.
„Ég átti nú ekki von á því að fara
aftur í svona jeppasmíði þegar
Benni hringdi, en ég smíðaði mörg
svona hús á árum áður og það var
eins og ég hefði aldrei hætt, vissi
nákvæmlega hvað þurfti að gera og
hikaði aldrei,“ segir hann um vinn-
una við jeppann. Hliðarnar og efni í
Nýtt líf hjá bræðrum
- Ekkert vefst fyrir þeim þrátt fyrir að vera 85 og 89 ára
Jeppinn sem nýr Benedikt og Guðmann Valberg stoltir að loknu verki.
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Valur vann ótrúlega sannfærandi 90:49-sigur á Fjölni
er undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta hófust í
gærkvöldi. Eftir jafnræði í upphafi leiks tóku Valskonur
yfir leikinn í öðrum og þriðja leikhluta og átti Fjölnir,
sem var nýliði í Dominos-deildinni í vetur, enga mögu-
leika gegn deildarmeisturunum. Í Hafnarfirði unnu
Haukar sterkan 77:63-sigur á Keflavík. Haukar voru yfir
allan tímann og var sigurinn sanngjarn og að lokum
öruggur, en Haukar svöruðu öllum áhlaupum Keflvík-
inga af krafti. »40
Ótrúlegir yfirburðir Valskvenna
í fyrsta leik undanúrslitanna
ÍÞRÓTTIR MENNING