Morgunblaðið - 15.05.2021, Síða 48

Morgunblaðið - 15.05.2021, Síða 48
• Sérferð fyrir eldri borgara og flogið með Icelandair • Mjög áhugaverðar skoðunarferðir alla daga þ.m.t. til Brattahlíðar • Allur matur og gisting innifalin í verði • Íslensk fararstjórn og mikil upplifun Stórkostlegt land að heimsækja! Grænland Verð 269.900 mann í tvíbýli* *aukagjald fyrir einbýli kr. 24.900 Narsarsuaq 25.-28. september 4 dagar/3 nætur Allar nánari upplýsingar á www.ferdaskrifstofaeldriborgar.is Bókanir í gegnum netfangið hotel@hotelbokanir.is eða í símum 783-9300/01 Sópransöngkonan Álf- heiður Erla Guðmunds- dóttir er komin í 16 manna úrslit hinnar frægu söngvarakeppni BBC Cardiff Singer of the World en í henni hafa sumar frægustu óperustjörnur samtím- ans, eins og Dmitri Hvorostovsky, Bryn Ter- fel og Jamie Barton, fyrst vakið athygli. Keppendurnir 16, sem eru frá 15 löndum, hafa komist gegnum þrjú stig í forkeppni sem fleiri söngvarar tóku nú þátt í en nokkru sinni áður. Keppnin mun fara fram um miðjan júní og verður fyrstu stigum hennar útvarpað og í lokin keppa fimm stigahæstu keppendurnir í beinni sjónvarps- útsendingu 19. júní. Álfheiður Erla, sem er 27 ára gömul, stundar nú meist- aranám í söng í Berlín en hún var nýverið valin besta klassíska söngkonan á Íslensku tónlistarverðlaununum. Álfheiður Erla komin í 16 manna úrslit Cardiff-söngvarakeppninnar toppinn hafi fylgt með en þeir hafi þurft að raða öllu saman og ryð- bæta skúffuna. „Bíllinn var í mjög góðu standi og við vorum innan við mánuð að gera jeppann sem nýjan.“ Upprunalegt hús jeppans var frá Agli Vilhjálmssyni, þar sem bræð- urnir lærðu til verka og fengu rétt- indin upp úr miðri síðustu öld. Því voru hæg heimatökin. „Ég vissi ná- kvæmlega hvað þurfti að gera og hvernig, hef byggt yfir 32 bíla,“ segir Benni. Manni tekur í sama streng. „Handtökin gleymast aldrei,“ segir hann. Segir að viðgerðirnar og smíðarnar hafi alla tíð verið skemmtilegar og sérstaklega hafi verið gaman að fást við þennan Willys-jeppa því hann hafi verið upprunalegur. „Það var ekki búið að gera skrímsli úr honum.“ Manni segist annars taka því ró- lega, dyttar nú við sumarbústaðinn sinn en taki að sér verk þegar þau bjóðast. „Ég er í ágætis standi og er alltaf til taks í hvað sem er.“ Bílaviðgerðirnar hjá Benna hafa legið niðri í sauðburðinum. Honum lýkur um helgina og í gær tóku þau geiturnar út úr húsi. „Við konan, sem er bara ári yngri en ég, erum með 50 kindur í burði og höfum þurft að vakna á klukkutíma fresti til að fylgjast með,“ segir hann. „Því bíður einn bíll með skemmda hlið og á annan vantar sílsa. Ég fer í þá eftir burð.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Skagfirsku bræðurnir Benedikt Valberg, bóndi og bifvélavirki í Djúpadal í Rangárþingi eystra, og Guðmann J. Valberg, bifreiðasmið- ur í Kópavogi, luku nýlega við að smíða og setja saman nýtt hús á Willys-jeppa árgerð 1963. Það er svo sem ekki í frásögur færandi nema vegna þess að þeir eru í fullu fjöri þrátt fyrir háan aldur, Bene- dikt verður níræður á næsta ári og Guðmann er 85 ára. Benedikt hefur verið með bíla- verkstæði í Djúpadal síðan 1966. Maður sem hann kannast við hafði samband og spurði hvort hann vildi taka að sér að setja saman hús á Willys-jeppa árgerð 1963. „Hann sagðist hafa átt bílinn í 30 ár og þau hjónin hefðu ferðast mik- ið á honum um hálendið, en fyrir sex árum hefði jeppinn verið rifinn í sundur og enginn viljað setja hann saman aftur. Ég sagði honum að ef bróðir minn vildi gera þetta með mér gæti ég tekið verkið að mér. Síðan talaði ég við Manna og við gengum í málið. Við þurftum að endursmíða húsið, það var allt ónýtt, og skúffan var líka meira og minna ryðguð í sundur, en við þurftum ekkert að fara í gangverk- ið. Það var í fínu lagi.“ Hann bætir við að hann hafi fengið Kristján Jósefsson, vin sinn á Hvolsvelli, til þess að sprauta jeppann. „Hann er mun yngri en við og mjög flinkur bílamálari.“ Reynslan mikilvæg Manni er líka með tól og tæki í bílskúrnum sínum, en hefur nánast ekkert sinnt bílasmíðum síðan 1963, í um 58 ár. Hann vann hjá Agli Vil- hjálmssyni þangað til, stofnaði þá viðgerðarfyrirtæki með bróður sín- um en vann síðan mest á gröfum, einkum fyrir bændur og í vegalagn- ingu víða um land frá um 1970 þar til hann fór á eftirlaun sjötugur. „Ég átti nú ekki von á því að fara aftur í svona jeppasmíði þegar Benni hringdi, en ég smíðaði mörg svona hús á árum áður og það var eins og ég hefði aldrei hætt, vissi nákvæmlega hvað þurfti að gera og hikaði aldrei,“ segir hann um vinn- una við jeppann. Hliðarnar og efni í Nýtt líf hjá bræðrum - Ekkert vefst fyrir þeim þrátt fyrir að vera 85 og 89 ára Jeppinn sem nýr Benedikt og Guðmann Valberg stoltir að loknu verki. LAUGARDAGUR 15. MAÍ 135. DAGUR ÁRSINS 2021 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.268 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Valur vann ótrúlega sannfærandi 90:49-sigur á Fjölni er undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta hófust í gærkvöldi. Eftir jafnræði í upphafi leiks tóku Valskonur yfir leikinn í öðrum og þriðja leikhluta og átti Fjölnir, sem var nýliði í Dominos-deildinni í vetur, enga mögu- leika gegn deildarmeisturunum. Í Hafnarfirði unnu Haukar sterkan 77:63-sigur á Keflavík. Haukar voru yfir allan tímann og var sigurinn sanngjarn og að lokum öruggur, en Haukar svöruðu öllum áhlaupum Keflvík- inga af krafti. »40 Ótrúlegir yfirburðir Valskvenna í fyrsta leik undanúrslitanna ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.