Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 22
LIPRIR SUMARSKÓR
MEÐ INNLEGGJUM SEM GLEYMA ÞÉR ALDREI!
Go Walk
Verð: 13.995.-
Stærðir: 41 - 47/ 3 litir
Crowder Light
Verð: 14.995.-
Stærðir: 41 - 47/ 2 litir
Delson
Verð: 14.995.-
Stærðir: 41 - 47,5/ 2 litir
Delson
Verð: 14.995.-
Stærðir: 41 - 47/ 2 litir
SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS
SKECHERS
withArchFit
withMemory
FoamwithMemory
Foam
withMemory
Foam
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
VIÐTAL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Mynd af kríu á svalavegg húss Ósk-
ars Hennings Áldals Valgarðssonar
og Kolbrúnar Karlsdóttur er áber-
andi, þegar komið er að heimili
þeirra í Breiðholtinu. „Ég hef lengi
verið að eltast við kríurnar og því
fannst Fanneyju, systur minni, við
hæfi að mála þessa stóru kríu á
vegginn, sem og hún gerði,“ segir
Óskar, sem hefur búið til fleiri kríur
en hann hefur tölu á og smíðað ótrú-
legustu hluti í frístundum und-
anfarna áratugi.
Jón Björnsson, móðurbróðir Ósk-
ars, var mikill hugvitsmaður, þús-
undþjalasmiður sem vann einkum
við húsa- og húsgagnasmíði, en nán-
ast allt, sérstaklega kopar, silfur og
annar efnisviður, varð að listaverki í
höndum hans. „Sköpunarþörfin virð-
ist hafa verið í ættinni og þessi frægi
maður á Dalvík smíðaði allan skratt-
ann; meðal annars veiðihjól, stangir,
koparrokka, laufabrauðsjárn og
byssur,“ segir Óskar og tekur fram
forláta riffil. „Ég hef aldrei skotið af
byssu, en Jón smíðaði margar „dríf-
ur“, eins og hann kallaði þær, og
þetta er ein þeirra. Asskoti stór
drífa, þetta.“ Hann horfir á hana um
stund áður en hann lítur upp. „Það
er með ólíkindum að ómenntaður
maðurinn hafi gert allt sem hann
gerði. Hann var snillingur. Það er
það sem hann var. Snillingur.“
Rauða torgið
Óskar er ættaður úr Svarfaðardal
en ólst upp á Bergstaðastræti í
Reykjavík.
„Faðir minn
keypti húsið,
þegar ég var
smápolli, og
þar var gott
að vera,“
rifjar hann
upp. Minnist
sérstaklega á
Bernhöftsbakarí í
kjallaranum og
bræðurna Jónas og
Jón Múla Árnasyni
uppi á lofti. „Árni
frá Múla leigði
efstu hæðina
og bræð-
urnir Jónas
og Jón Múli
Árnasynir voru
mjög góðir við okk-
ur krakkana. Svo var
gaman að eiga heima í
húsinu þar sem fræg-
asta bakarí landsins
var.“
Valgarður Þorkelsson, faðir
Óskars, var lengi skipstjóri á Kefl-
víkingi GK og því kemur ekki á
óvart að sjá líkan af skipinu innan
um fuglana og önnur handgerð
djásn á heimilinu, en Óskar virðist
lesa hugsanir og kemur í veg fyrir
misskilning. „Skipið er ekki eftir mig
heldur Grím Karlsson, sem smíðaði
mörg skipslíkön,“ leggur hann
áherslu á. Segir þau Kolbrúnu hafa
keypt það á sýningu í Keflavík fyrir
nokkrum árum. „Pabbi var lengi
skipstjóri á bátnum og var maðurinn
sem fyrstur manna fann síldina á
Rauða torginu svonefnda. Lét flot-
ann vita af henni eftir að hafa fyllt
þar Keflvíking þrisvar, var á heim-
leið úr þriðja túrnum.“ Ekki sést í
dekkið fyrir síld og þegar nánar er
að gætt má sjá að torfan er sérstakt
listaverk. „Fanney systir fyllti hann
af síld, eins og sjá má, og bjó til
þessa fígúru, glettilega líka eft-
irmynd af pabba okkar þar sem hann
spáir í spilin.“
Ungur og efnilegur
Íslendingar hafa átt marga góða
fimleikamenn og Óskar sá himininn í
hillingum, þegar hann æfði íþróttina,
fyrst í KR og síðan í Ármanni þar til
hann var um þrítugt. Hann hlær dátt
þegar hann er spurður hvað hafi leitt
hann út í fimleika á fermingaraldri.
„Ég get svarað þessu á þúsund vegu
og grobbvegurinn er ekki vitlausari
en hver annar. Ég var efnilegur lík-
amlega, menn sáu það og leiðin lá
fyrst til Benedikts Jakobssonar í
KR. Síðan var ég aðallega hjá Vig-
fúsi Guðbrandssyni í Ármanni, en
hann hafði æft með finnsku heims-
meisturunum. Ég var svo vitlaus,
hélt að ég yrði bestur í heiminum, en
það varð auðvitað ekki svo. Samt var
ég asskoti góður, þó ég segi sjálfur
frá, og við sýndum víða, meðal ann-
ars í Danmörku og Noregi.“
Fuglar um allt
Kríur úr þorskhausbeinum, ýmist
einar og sér eða á fæti úr grjóti með
traustum messing- eða álbotni, eru
áberandi um allt hús hjónanna og
víða má sjá hettumáva úr þunn-
ildabeinum. „Eins og þú sérð eru
þeir fljúgandi hér um allt og eru
glettilega góðir, þó ég segi sjálfur
frá.“ Svo eru þarna misjafnlega litlir
messingrokkar, steðji og hamar,
kertastjakar af ýmsum stærðum og
gerðum, messingflaggstöng að
ógleymdum stórum hægindastólum,
sem minna á Sindrastóla í nokkurri
yfirstærð. Eftirlíking af húsi
hjónanna er líka á sínum stað auk
ýmissa merkisgripa eftir aðra lista-
menn. Stór, uppstoppaður fálki er
ofan á glerskápi fullum af kríum, um
Skemmtilega undarlegur
- Óskar Valgarðsson sannkallaður þúsundþjalasmiður - Allt verður að djásni í höndum syngjandi
fimleikamannsins - Heimili hjónanna eins og safn ólíkra listmuna þar sem kríur eru alltumlykjandi
Við rennibekkinn Öllu er haganlega fyrir komið á vinnustofu Óskars.
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Húsið í húsinu Óskar Valgarðsson smíðaði eftirmynd af húsi þeirra hjóna og Kolbrún Karlsdóttir, eiginkona hans, saumaði gardínurnar.