Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRTækni MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2020 náðu að lækka flughæð sína um 80.000 fet á nokkrum sekúndum. Þeir eltu eitt þeirra, en Alex Diet- rich, annar flugmannanna og flug- foringi í flotanum, sagði í viðtali við 60 Minutes-fréttaskýringaþáttinn, sem birtist í síðustu viku, að hún hefði aldrei séð nokkuð þvíumlíkt á löngum ferli sínum. Lýsti hún ásamt David Fravor, vængmanni sínum, flugfarinu sem þau sáu eins og risastórri hvítri Tic- tac-myntu og sagði að það hefði get- að ferðast á ófyrirsjáanlegan hátt. Flugfarið sást á ratsjám flugmóð- urskipsins USS Nimitz og þriðja flugvélin náði ljósmynd af því. Myndband af atvikinu frá 2004 var eitt af þremur myndböndum sem varnarmálaráðuneytið sendi frá sér í fyrra, en þau þóttu ekki óyggj- andi sannanir á einn veg né annan um það hvaða ástæður gætu legið að baki hinum óþekktu loftförum, eða hvort þau væru þessa heims eða annars. Vitnisburðir vekja athygli Í fréttaskýringu breska blaðsins Daily Telegraph um hina vænt- anlegu skýrslu er m.a. rætt við Nick Pope, sem rannsakaði FFH fyrir breska varnarmálaráðuneytið undir lok 20. aldarinnar. Pope segir að það sem hafi ýtt undir hinn nýfengna áhuga Bandaríkjamanna sé hinn mikli fjöldi flugmanna á vegum hersins sem hafi séð þessa hluti. „Þegar „flugásar“, sem blekkjast ekki auðveldlega, verða æstir yfir fluggetu þessara hluta, hraða, hreyf- anleika og ferðum í gegnum vatn og loft, þá vekur það athygli mína,“ segir Pope. Ekki sé hægt að afskrifa þá vitnisburði sem hugaróra eina. Því til viðbótar sé vitað um mikið af öðrum gögnum, úr ratsjám, myndböndum, ljósmyndum og fleira, sem mögulega verði kynnt op- inberlega til sögunnar í skýrslunni í fyrsta sinn í næsta mánuði. Á dögum kalda stríðsins var hins vegar óttast að lýsingar á fljúgandi furðuhlutum gætu hleypt ótta í bandarískan almenning og tók þá CIA höndum saman við bandaríska flugherinn um „Blábókina“, verkefni þar sem slíkir vitnisburðir flug- manna voru kannaðir, og reynt eftir fremsta megni að afsanna þá. Hlé í hálfa öld Árið 1968 gáfu aðstandendur verkefnisins út skýrslu þar sem lagt var til að öllum slíkum rannsóknum yrði hætt. Það var ekki fyrr en árið 2007 að Harry Reid, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, náði að tryggja fjárveitingu til sérstaks rannsóknarverkefnis, að aftur var farið að kanna FFH á vegum herafla Bandaríkjanna. Eins og gefur að skilja var ákveð- ið „tabú“ að skoða þessa hluti og fékk verkefnið sérstakt nafn til að fela hvað verið væri að kanna. Luis Elizondo, yfirmaður verkefnisins, sagði við Telegraph að hann hefði á endanum sagt upp árið 2017, því enginn vildi taka niðurstöður þess alvarlega. Elizondo taldi sig þó hafa greint að líklegra væri að sjá slíka hluti á vissum stöðum, oft við kjarnorkuver. Þá bæri mörgum af flugmönnunum saman um það hvernig hlutirnir hefðu hreyft sig. „Ótrúlegur hreyf- anleiki, flug yfir hljóðhraða án þess að höggbylgja fylgdi, ferð á nærri 13.000 km/klst. Mikið af þessu var stutt ratsjárgögnum, myndböndum úr flugvélunum og vitnisburðum,“ sagði Elizondo, sem sagðist viss um að slíkar vélar tilheyrðu engum jarð- neskum mætti. „Ég tel það augljóst að þetta erum ekki við. Þannig að þá þarf að spyrja, hvaðan koma þeir?“ Hvort þeirri spurningu verði svar- að í skýrslu varnarmálaráðuneyt- isins á eftir að koma í ljós. Pope tel- ur hins vegar líklegra að framþróun í drónaflugi verði nefnd sem mögu- legur sökudólgur þar. „Ef það er eitthvað um [heimsóknir frá öðrum hnöttum] þá verður það eflaust í við- auka lokuðum almenningi,“ sagði Pope. Fæst skýring á fljúgandi furðuhlutum? - Pentagon hyggst gefa út skýrslu í næsta mánuði um ókunn loftför sem bandarískir herflugmenn hafa komist í kast við - FFH-fræði lengi litin hornauga - Skipt um skammstöfun vegna „óorðs“ AFP Fljúgandi furðuhlutur? Þessi ljósmynd af loftfarinu sem Dietrich og Fravor eltu í nóvember 2004 er á meðal þeirra gagna sem varnarmálaráðuneytið hefur gefið út um „óútskýrð loftför“, en von er á skýrslu í næsta mánuði um FFH. SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Áhugamenn um fljúgandi furðuhluti, líf á öðrum hnöttum og önnur dul- arfull leyndarmál alheimsins bíða nú spenntir eftir því að skýrsla starfs- hóps á vegum bandaríska varn- armálaráðuneytisins, bandarísku al- ríkislögreglunnar FBI og leyniþjónustu flotans verði kynnt Bandaríkjaþingi í næsta mánuði, en skýrslan verður opin öllum almenn- ingi. Þar verður fjallað um öll þau gögn sem til eru um fljúgandi furðuhluti, en varnarmálaráðuneytið sagði síð- asta sumar að tilgangur starfshóps- ins væri að taka saman þau gögn sem til væru um svonefnd „óþekkt loftför“, skrásetja þau og greina hvort í þeim felist ógn við þjóðarör- yggi Bandaríkjanna. Yfirlýsing ráðuneytisins í fyrra þótti til marks um nokkra hug- arfarsbreytingu þar á bæ, þar sem áður fyrr þótti það mikið feimnismál að nefna „fljúgandi furðuhluti“ eða FFH (e. UFO) á nafn, og gat það jafnvel varðað embættismissi. Og eflaust er það enn þá litið ein- hverju hornauga, því varn- armálaráðuneytið ákvað á svipuðum tíma að taka upp skammstöfunina UAP (Unexplained Aerial Pheno- mena) í stað UFO þegar fjallað væri um þessi fyrirbæri, þar sem hin þótti hafa of sterkar tengingar við samsæriskenningasmiði með ál- hatta. Ferðuðust á óskiljanlegan hátt Rætur þessarar hugarfarsbreyt- ingar má rekja til þess að á síðustu árum hafa flugmenn á vegum Bandaríkjahers, flughers og flota, í síauknum mæli komist í kast við „óþekktu loftförin“ og hafa þau sýnt af sér flughæfni og getu sem ekki hefur verið hægt að útskýra með rökréttum hætti. Hinn 14. nóvember 2004 komust flugmenn bandaríska flotans til dæmis í kast við nokkur loftför, sem Segja má að upphaf „FFH-fræða“ í Bandaríkjunum megi rekja til árs- ins 1947, en í júnímánuði þess árs sá flugmaðurinn Kenneth Arnold níu óútskýrð loftför nálægt Rainier- fjalli í Washington-ríki. Frásögn Arnolds náði athygli heimspress- unnar en dagblöð þess tíma gripu lýsingu hans á lofti um að loftförin hefðu einna helst líkst „fljúgandi diskum“. Mánuði síðar fann bóndi einn brak flugfars við býli sitt rétt hjá bænum Roswell í Nýju-Mexíkó. Bandaríkjaher sagði í fyrstu frétta- tilkynningu sinni að svo virtist sem að um „fljúgandi disk“ hefði verið að ræða, en breytti svo sögu sinni, þar sem í ljós hefði komið að um veðurloftbelg væri að ræða. Sú útskýring, hvort sem hún var sönn eða ekki, kom hins vegar of seint og síðan þá hefur Roswell og „Svæði 51“, hin háleynilega bæki- stöð bandaríska flughersins, verið sveipuð ljóma samsæriskenninga. Hefur því m.a. verið fleygt fram að við Roswell hafi fundist lík geim- vera og vakti athygli árið 1995 þeg- ar út kom myndband, sem átti að sýna krufningu þeirra. Aðstand- endur þess játuðu raunar síðar að hafa sviðsett krufninguna, en þeir hefðu byggt sviðsetninguna á ekta myndbandi sem þeir hefðu séð nokkrum árum fyrr. AFP Geimverukaffi Nágrannar „Svæðis 51“ hafa nýtt sér geimverutenginguna óspart til þess að laða til sín gesti, sem líklega eru flestir jarðneskir. Fljúgandi diskar og geimverukrufning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.