Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 46
„Sólarhegðun
Íslendinga er
til skammar“
Ragna Hlín Þorleifsdóttir húðlæknir hefur sérstakan
áhuga á heilbrigði húðarinnar og sólarvörnum. Hún
ræddi sólarhegðun Íslendinga í morgunþættinum Ís-
land vaknar sem hún segir vera til skammar.
Húðlæknir Ragna
Hlín: „Það er ekkert
til sem heitir heil-
brigð sólbrúnka.“
„Ég er með sérstakan áhuga á því
að viðhalda heilbrigði húðarinnar og
sólarvörnum og er mikið að agitera
fyrir því að fólk noti sólarvarnir,“
segir Ragna Hlín Þorleifsdóttir húð-
læknir sem kom í morgunþáttinn Ís-
land vaknar og ræddi við þau um
hegðun Íslendinga í sól og sumaryl.
Ragna segir það algengan mis-
skilning að sólin á Íslandi sé ekki
jafn sterk og í heitum löndum og
segir sólarhegðun Íslendinga til
skammar.
„Málið er það að á sumrin á Ís-
landi og sérstaklega í júní og júlí er-
um við að fá á okkur ótrúlega mikla
geislun, miklu meiri en við gerum
okkur grein fyrir. Málið er bara það
að við finnum ekki jafn mikið fyrir
þessu af því að það er kaldara og
það er vindur. Eins og ef maður er í
Flórída eða á Tene eða eitthvað þá
finnurðu fyrir hitanum sem við finn-
um ekki jafn mikið fyrir á Íslandi,“
segir hún.
„Sólin er náttúrlega, eins yndisleg
og hún er, skaðleg. En við þurfum á
henni að halda. Jörðin þarf á henni
að halda og við þurfum hana til þess
að búa til D-vítamín,“ segir hún.
Sjálf segist Ragna ekki vera mik-
ið í sólinni. Hún stundi útivist en
beri alltaf á sig sólarvörn. Hún segir
Íslendinga þurfa að læra að njóta
sólarinnar á skynsamlegan hátt.
„Sólarhegðun Íslendinga er til
skammar. Við förum til útlanda og
steikjum okkur á ströndinni og
skaðbrennum og margir vilja
brenna til þess að fá meiri lit, það er
bara stórhættulegt. Þetta snýst um
skynsamlega hegðun. Við hvetjum
til þess að fólk sé úti. Við þurfum
hreyfingu, við þurfum ferskt loft,
það er gaman að ganga á fjöll og
vera úti en þú þarft ekki að ber-
skjalda þig á þann hátt að þú skaðir
húðina. Við erum svona upp til hópa
á Íslandi með mjög ljósa húð, við
brennum mjög létt þannig að við
þurfum að vernda okkur,“ segir
Ragna og bætir því við að fólk ætti
að byrja alla daga á því að bera á sig
sólarvörn.
Viðtalið við Rögnu er hægt að
hluta á í heild sinni á K100.is.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021
Skiltagerð og merkingar
Inni og úti merkingar, spjöld og skilti. Kíktu á
heimasíðuna okkar og skoðaðu þjónustuna
sem er í boði.
Xprentehf. | Sundaborg3 |104Reykjavík |7772700|xprent@xprent.is
SANDBLÁSTURSFILMUR
BÍLAMERKINGAR
SKILTAGERÐ
KYNNINGARSVÆÐI
www.xprent.is
„Við birtum þessa mynd bæði á Instagram- og Facebook-síðu Húð-
læknastöðvarinnar til þess að sýna fólki svona svart á hvítu hvað út-
fjólublá geislun gerir húðinni. Auðvitað er mikilvægast að huga að for-
vörn gegn húðkrabbameinum, það er númer eitt, tvö og þrjú. En sólin
eldir okkur ótrúlega mikið. 80-90% af því sem við höldum að sé eðlileg
öldrun í húð er eingöngu út af sólinni, eingöngu,“ segir hún.
Ragna segist fá margt fólk til sín sem segist alltaf nota sólarvörn þeg-
ar það sé erlendis en ekki á Íslandi en hún segir mikilvægt að fólk hér-
lendis noti alltaf sólarvörn. Hún segir alla húðlækna og húðlækna-
samtök mæla með því að fólk noti sólarvarnir með yfir 30 í vörn.
„Það er ekkert til sem heitir heilbrigð sólbrúnka,“ segir hún.
Ragna, ásamt þremur öðrum konum, hefur undanfarið verið með
hlaðvarpið Húðkastið þar sem þær fræða fólk um ýmsa húðsjúkdóma og
gefa góð ráð.
„Við erum búnar að vera með hlaðvarpið Húðkastið í sex mánuði og
það er hægt að nálgast það á öllum helstu streymisveitum eins og Spo-
tify. Við erum svona að reyna að taka fyrir mismunandi „topic“. Við tök-
um fyrir öldrun húðarinnar, það sem við getum gert til þess að sporna
við henni og líka bara almenna húðsjúkdóma. Rósroða, bólur, exem. Í
næstu eða þarnæstu viku ætlum við að koma með þátt um blettaskoð-
anir og húðkrabbamein og svona almennt meira um sólarvarnir. Þetta
eru svona almennar og fræðandi upplýsingar,“ segir hún.
Ekkert til sem heitir eðlileg sólbrúnka