Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 69

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 69
MENNING 69 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 vonast eftir því besta. Liðsmenn sjarmerandi og vel klæddir en það er því miður ekki nóg. Áðurnefndur Eli Frost lamdi húðir í Ballados sem lék vírað indírokk. Fyrra lagið heldur ódýrt en seinna lagið innihélt nokk- urs konar kúrekaflipp og það mátti alveg heyra sniðugar hugmyndir krauma þar undir. Að öðru leyti virt- ist sveitin vera nokkuð skammt á veg komin. Dóra og döðlurnar lokuðu kvöldinu, dásamlegt band skipað 15 ára stúlkum að mestu. Það var augnablik kvöldsins er Bára Katrín, söngvari og gítarleikari, hvíslaði eit- ursvöl: „Let‘s rock this shit …“ Bandið var að koma fram í þriðja sinn og stóð sig frábærlega. Tónlistin fremur hefðbundið dramapopp en þetta var vel æft, samsöngurinn flottur og lögunum tveimur skilað með miklum bravúr. Salur léði síðan Eilífri sjálfsfróun flest sín atkvæði á meðan dómnefnd lagði blessun sína yfir Ólaf Kram. 4. kvöld Indísveitin Kisimja opnaði þetta lokakvöld með býsna sannfærandi hætti. Meðlimir samstilltir í fatavali og söngvarinn minnti nokkuð á Brian Molko úr Placebo. Nokk svalir bara. Það var ýmislegt með bandinu, söng- ur flottur að mestu (sleppa öskr- unum samt) og pælinga vart í laga- smíðum. Alls ekki vitlaust að slípa þennan stein aðeins áfram. Laug- vetnska sveitin El Royalé lék nokk- urs konar Suðurlandsþungarokk sem var því miður ekki upp á marga fiska. Lögin hálfköruð, hljómur vondur og þéttleika ábótavant. Bak- raddasöngkonur fengu að skína síð- ustu tvær mínúturnar eða svo en hefðu mátt kom mun fyrr inn, þó ekki væri nema til að brjóta aðeins upp stirðbusalegt flæðið. Ólafur kom einn fram með gítar og lék fremur hefð- bundna söngvaskáldatónlist. Fyrra lagið hresst, hið síðara ballaða og Ólafur gat vel mundað gítarinn. Lítið var um sérkenni í smíðunum en gef- um Ólafi tíma, þetta var frumraun hans á sviði. Jengah átti nokkuð merkilegt innslag. Í raun eitt langt lag, „ambient“ smíð með vísunum í síð- og súrkálsrokk. Naumhyggju- legt, eintóna flæði og dálítið hug- leiðslu- og kvikmyndalegt eins og meðlimir lýstu sjálfir. Ýmis hljóðfæri brúkuð, m.a. „Hang“. Þetta var vel útfært að langmestu leyti og bara giska vel heppnað. Það kemur ým- islegt upp á í Músíktilraunum og þannig mætti eingöngu Sindri úr dú- ettinum Sindri & Andri. Hann lét það ekki slá sig út af laginu, gekk brattur inn á svið og lék á gítar og hljómborð auk þess að syngja en Andri, sá er lét ekki sjá sig, er aðalsöngvarinn! Tón- listin miðja vegu á milli Mac De- Marco og Prins Póló og alveg ágæt sem slík. Þrautseigjuverðlaun Mús- íktilrauna, væru þau til, fara skuld- laust til Sindra. Æsa er skipuð fimm stúlkum úr FÍH og MÍT og stofnað var til sveitarinnar í kófinu. Stúlk- urnar komu vel fyrir, voru öruggar en lögin sem slík voru ekki beinlínis að gera sig, voru sérkennilega tóm- leg eitthvað. Mér sýnist mannskap- urinn vera til staðar en það þyrfti að- eins að líta betur til með þessum þætti. Sé miðað við nafnið hélt ég að Skullcrusher myndi rífa þakið af hús- inu með grimmdarlegu dauðarokki og geitaslátrun á sviði. Tónlistin var hins vegar meira út í hreint pönk, hrátt bæði og skítugt. Ekkert að því og sú áferð kostur ef eitthvað er en sjálf spilamennskan var í óþéttara lagi og lagasmíðarnar lítt sannfær- andi. Fjórir sveitastrákar fengu mann hreinlega til að standa á gati. Lögin voru svo gott sem fullkomlega stefnulaus og eiginlega ósamin, ef ég má orða það sem svo. Jú, ég heyrði smá djass, smá indí, gott og vel. En þetta var svo ómótað að það er í raun lítið um þessa einstöku framfærslu að segja. Ingo is an artist er efn- isstúlka, hvar hún söng og lék á gítar. Ætli það hafi ekki verið stress sem flatti fyrsta lagið dálítið út en seinna lagið var hins vegar framúrskarandi, í raun besta lag kvöldsins, og einkar fallega sungið. Það vantaði tilfinn- anlegan hnykk í þetta tiltekna gigg Ingo is an artist en um leið greindi maður að það verður vel þess virði að fylgjast með henni í framtíðinni. Mersier kom ágætlega fyrir, lék mel- ódískt þungarokk með vísanir í þrass og NWOBHM. Söngur ágætur, minnti dálítið á Stefán Hilmarsson á yngri árum (!) en spilamennska bæði losaraleg og gruggug sem var ekki til hagsbóta. Benedikt færði okkur tandurhreint popp. Var með und- irspil á símanum sínum (er söngvari og upptökustjórnandi) og tónlistin skammlaust og haganlega samið ep- ískt popp, á köflum í hálfgerðum Eurovision-gír. Benedikt bar sig vel á sviðinu og fylgdi sínu eftir kinn- roðalaust, með ástríðu og sannfær- ingu í fullum botni. Vel af hendi leyst og hressandi. Merkúr frá Vest- mannaeyjum endaði kvöldið og þar með undanúrslitin í heild sinni. Merkúr er skemmtileg hljómsveit, tónlist vel þungt þungarokk með riffakássu og öskurbrjálæði í hár- réttum skömmtum. Fyrra lagið var einkar þétt og öflugt en seinna lagið var hins vegar heldur þunglamalegt og langdregið. Fóru leikar svo þann- ig að Æsa fór áfram á sal en dóm- nefnd stillti fram Jengah. Auk þess þótti dómnefnd fernt frá fyrri kvöld- um eiga erindi í úrslit. Grafnár, Piparkorn, Dóra og döðlurnar og Benjamín. Sigurvegari Músíktil- rauna verður síðan valinn nú á laug- ardaginn. Krownest Firnaþétt þungarokkssveit og keyrði af eftirtektaverðu afli í gegnum fyrsta lagið í undankeppni. Ólafur Kram Risaeðlan, Grýlurnar og Slits svifu yfir vötnum. Piparkorn Samspil var með miklum ágætum og fyrsta lagið vel hugsað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.