Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 24

Morgunblaðið - 27.05.2021, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 2021 BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Sementsturnarnir á Sævarhöfða standa áfram, fá nýtt líf og verða tákn sjálfbærni. Þetta kom fram þegar nið- urstöður í alþjóðlegu hönnunarsam- keppninni Reinventing Cities voru kynntar í síðustu viku. Tvær tillögur bárust í seinni fasa samkeppninnar fyrir Sævarhöfða. Vinningstillagan gerir ráð fyrir borgarbúskap, veitingastað og lifandi samfélagsmiðju í ört stækkandi Bryggjuhverfi, segir í kynningu. Auk veitingastarfsemi verður margvísleg starfsemi önnur í sement- sturnunum og áföstum byggingum. Hönnunarteymið sem bar sigur úr býtum kallar tillögu sína Vaxtarhús og hefur hringrásarhagkerfið að leið- arljósi. Í forsendum samkeppninnar voru þátttakendur hvattir til að sýna fram á skapandi hugsun og bjarta framtíðarsýn með grænt og vistvænt borgarumhverfi í huga. Maríus Þór Jónasson og Sigríður Ósk Bjarnadóttir hjá VSÓ ráðgjöf; Kristbjörg María Guðmundsdóttir hjá MStudio og Björn Gunnlaugsson hjá Íslenskum fasteignum tóku við við- urkenningu úr hendi Dags B. Egg- ertssonar borgarstjóra. Í kynningu sinni sögðu verðlauna- hafarnir að hugmyndirnar gerðu ráð fyrir að draga verulega úr kolefn- islosun miðað við hefðbundna hönnun. Endurnota á byggingar og bygging- arefni; byggingareiningar verða hann- aðar til að taka í sundur; notuð verða umhverfisvæn efni, s.s. „græn steypa“ og orkunotkun verður lágmörkuð. „Svæðið hefur ríka steypusögu og það eru mikil tækifæri að vinna með þenn- an efnivið. Þarna er mikil steypa og frábært ef hægt er að nota hana áfram,“ segir Sigríður Ósk Bjarna- dóttir. „Það er til mikils að vinna ef við getum gert steypu umhverfisvænni og sýnt fram á að það sé hægt.“ Hugmyndirnar sem unnið hefur verið með tengjast sjálfbærri þróun, „kaupmanninum á horninu“, lóð- réttum landbúnaði í þéttbýli, sam- félagsgörðum, Bokashi-jarðgerð- arþjónustu, endurnýtingu á affallsvatni og að svæðið verði eft- irsóknarverð miðstöð hverfisins. Það var niðurstaða dómnefndar að vinningstillagan væri í háum gæða- flokki. Viðskiptamódelið væri sann- færandi og umhverfismarkmið metn- aðarfull. Gæði arkitektúrs væru framúrskarandi. Sementsturnarnir tveir á Sæv- arhöfða, stundum nefndir sements- tankar, eru 45 metra háir. Það var Sementsverksmiðja ríkisins sáluga sem reisti tankana árið 1967 eftir hönnun Harðar Björnsonar bygginga- fræðings. Þetta var mikil framkvæmd og voru turnarnir steyptir með skrið- mótum sem lyft var með svokölluðum glussatjökkum. Voru steyptir á 11 dögum Unnið var á tveimur vöktum, 8 tíma vinna og síðan 8 tíma hvíld, og aldrei var stoppað. Það voru aðallega starfs- menn Sementsverksmiðjunnar á Akranesi og Reykjavík sem komu að verkinu. Það tók 11 daga að steypa hvorn turn og voru menn að vonum orðnir talsvert slæptir í verklok. Þegar turnarnir/tankarnir voru til- búnir var laust sement flutt með skip- um frá Akranesi og því dælt upp í tankana. Sementinu var síðan dreift á höfuðborgarsvæðinu með sérútbúnum bílum. Þessi starfsemi lagðist síðan af og hafa tankarnir ekki verið í notkun í áraraðir. Nú stefnir í að tankarnir fyll- ist af lífi. Það verður væntanlega mikið verk og kostnaðarsamt að breyta þeim því steypan er þykk og járnabinding öflug, sérstaklega neðst. Reykjavíkurborg tilkynnti í febrúar 2020 að tvö uppbyggingarsvæði í Reykjavík verði hluti af alþjóðlegri hugmyndasamkeppni, „Reinventing Cities“, en það eru grænar þróun- arlóðir í Gufunesi og við Sævarhöfða. Niðurstaðan vegna Gufuness verður kynnt í haust. Reykjavík tilheyrir hópi svokallaðra C40-borga um heim allan, sem leggja áherslu á bætta lýðheilsu og sjálfbærni. Þróunarlóðin við Sæv- arhöfða 31 er nærri 3 þúsund fermetr- ar að stærð. Á lóðinni var einnig at- hafnasvæði Björgunar um árabil, þar sem sjávarefni var dælt á land, það unnið og geymt. Björgun hætti starf- semi þarna árið 2019. Morgunblaðið/sisi Sementsturnarnir 45 metra háir, byggðir árið 1967. Þar var geymt sement framleitt á Akranesi og fór í framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu. Mynd/MStudio Nýtt útlit Samkvæmt hugmyndum arkitektanna verða söguð göt á steypuna og komið fyrir gluggum. Innréttað verður rými á átta hæðum og á þeirri níundu og efstu verður glergarður með stórbrotnu útsýni yfir sundin blá. Líf færist í sementsturnana tvo - Turnarnir á Sævarhöfða tákn sjálfbærni í Bryggjuhverfi - Grænt og vistvænt borgarumhverfi Mikill meirihluti landsmanna er and- vígur auknum einkarekstri í heil- brigðiskerfinu samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem unnin var fyrir BSRB og Rúnar Vilhjálmsson, pró- fessor í félagsfræði við Háskóla Ís- lands, og kynnt var í gær. Alls sögðust 81,3% þátttakenda í könnuninni vilja að rekstur sjúkra- húsa væri fyrst og fremst á hendi hins opinbera, það er ríkis og sveitarfélaga. 1,6% svarenda vilja að sjúkrahús verði fyrst og fremst rek- in af einkaaðilum. Um 67,6% svarenda vilja að starf- semi heilsugæslustöðva sé fyrst og fremst rekin af hinu opinbera en 3,3% vilja að heilsugæslustöðvarnar verði aðallega eða eingöngu starf- ræktar af einkaaðilum. Þá vilja 58,4% að hjúkrunarheimili verði rek- in af hinu opinbera en 3,8 prósent vilja rekstur þeirra aðallega eða ein- göngu í höndum einkaaðila. Könnunin var gerð í mars sl. Alls svöruðu 842 úr netpallborði Fé- lagsvísindastofnunar könnuninni, um 43% þeirra sem hana fengu. Afstaða til einkarekstrar í heilbrigðiskerfinu Hvort finnst þér að eftirtalin starfsemi eigi að vera rekin af hinu opinbera eða einkaaðilum? Fyrst og fremst af hinu opinbera Jafnt af einkaaðilum og hinu opinbera Fyrst og fremst af einkaaðilum Sjúkrahús Heilsugæslustöðvar Hjúkrunarheimili 81% 17% 68% 29% 58% 38% 2% 3% 4% H ei m ild :k ö n n u n fy ri r B S R B Meirihluti andvígur auknum einkarekstri - Sjúkrahús verði á hendi hins opinbera

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.