Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 76

Morgunblaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 76
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is laugardaga og sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 27.maí - 14. júní Svefnherbergisdagar 25% AF VIVA RÚMUM Góð meðalstíf dýna með áfastri yfirdýnu og öflugri kantstyrkingu. Dýnan er með 5 þægindasvæði. 256 pokagormar á hvern fermetra. Yfirdýnan samansett úr nokkrum lögum af hefðbundnum svampi, eggjabakkalöguðum svampi og latex. Botn með tauáklæði og fætur fylgja með. Höfuðgafl seldur sér. 120x200 cm.149.900 kr.NÚ 112.425 kr. 160x200 cm. 179.900 kr.NÚ 134.925 kr. 180x200 cm. 199.900 kr.NÚ 149.925 kr. 20% AF NÁTTBORÐUM, RÚMFÖTUM, LÖKUM, SÆNGUM OG KODDUM, SVEFNSÓFUM, KOMMÓÐUM OG BORÐLÖMPUM WRAP Náttborð. Mattlakkaður eikarspónn, svartir málmfætur. 44x36x60 cm. 34.900 kr. Nú 27.920 kr. MALY Kommóða með 5 skúffum. 80x48x120 cm. 99.900 kr. Nú 79.920 kr. MARBLE Rúmföt. 140x200/60x63 cm. 15.995 kr. Nú 12.796 kr. VENICE Borðlampi. Ø22 x H44 cm. 14.995 kr. Nú 11.996 kr. Sigrún Eðvaldsdóttir, konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar Íslands, leikur einleik í Fiðlukonsert eftir Ludwig van Beethoven á tónleikum sveitarinnar í Eld- borg Hörpu annað kvöld kl. 20. Konsertinn hefur verið nefndur drottning fiðlukonsertanna, en hann þykir tignarlegur, íhugull og syngjandi. Á tónleikunum hljóma einnig Dansar frá Galánta eftir Zoltán Kodály. Stjórnandi kvöldsins er gríski hljómsveitarstjórinn og píanistinn Kornilios Michailidis sem gegndi nýverið stöðu aðstoðarhljómsveitarstjóra við Philharmonique de Radio France. Sigrún spilar Beethoven í Eldborg FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Þórsarar frá Þorlákshöfn eru komnir í undanúrslitin á Íslandsmóti karla í körfuknattleik eftir sannfærandi útisigur gegn Þór á Akureyri í gærkvöld, 98:66. Ekki liggur ljóst fyrir enn þá hverjir andstæðingar þeirra verða í undanúrslitunum. »66 Þór frá Þorlákshöfn er kominn í undanúrslit Íslandsmótsins ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hagleiksmaðurinn og vélvirkinn Óskar Henning Áldal Valgarðsson hefur smíðað marga listmuni og úrval þeirra prýðir heimili þeirra Kolbrúnar Karlsdóttur í Reykja- vík, en hann segir að ekki sé von á mörgum hlutum frá sér til við- bótar. „Ég er að miklu leyti hætt- ur þessu enda eðlilegt að það dofni yfir smíðinni hjá mér, ég er að verða 86 ára; er samt helvíti hress en smíðin í rennibekknum er pínu hættuleg og því hefur þetta aðeins fjarað út.“ Sigurhans Hannesson, suðu- meistari, þekktur smiður og vinnufélagi Óskars í Vélsmiðjunni Héðni, kom honum á bragðið, en Óskar var úrvalsnemandi og hæst- ur á sveinsprófinu á sínum tíma. „Ég hreifst mjög af verkum hans; hann kenndi mér margt og nokkr- um árum eftir að við fluttum hing- að keypti ég rennibekkinn, útbjó þessa aðstöðu og hef dundað mér hérna í um 40 ár.“ Allt í föstum skorðum Óskar vann í álverinu í Straumsvík í um 30 ár, en hjónin hættu launaðri vinnu 2002, þá 67 ára. „Ég var lagermaður,“ út- skýrir meistarinn með stolti. „Hann kom heim með rútunni klukkan fimm, fékk sér kaffibolla og fór svo niður að smíða eitthvað fram að kvöldmat,“ segir Kolbrún um helsta áhugamál bóndans und- anfarna áratugi, en áður voru þau lengi saman í fimleikum í Ármanni og hann söng um árabil með Karlakórnum Stefni. „Blessaður vertu, nú get ég ekkert sungið lengur og er hættur öllum fim- leikaæfingum eftir að hafa haldið að ég yrði bestur í heimi,“ segir hann. „En við hjónin höfum samt lengi sungið í Gerðubergskórnum og það er gott að hafa eitthvað til að dunda sér við í ellinni.“ Sigurður Valgarðsson, bróðir Óskars og vélstjóri, var sem upp- spretta hugmynda fyrir bróður sinn. „Hann var gríðarlega hug- myndaríkur smiður en lét þar við sitja og þá tók ég við keflinu,“ segir Óskar og bendir meðal ann- ars á rokka úr messing og fána- stöng því til staðfestingar. „Hann kveikti í mér og ég bjó til eitt og annað sem hann stakk upp á.“ Steðji með hamar stingur í stúf við fljúgandi fuglana, traust verk, sem ber vott um seiglu hins vinn- andi manns. „Ég smíðaði marga svona, ekki síst fyrir Félag járn- iðnaðarmanna, sem gaf þá við ým- is tækifæri,“ segir Óskar. Fuglarnir eru samt mest áber- andi. „Ég hef smíðað nokkur hundruð kríur,“ útskýrir Óskar og handleikur rekavið með 10 fuglum á. „Eitt sinn var ég niðri í fjöru og sá þá þennan bút á floti í sjónum, hirti hann og fannst upplagt að festa nokkrar kríur á hann.“ Bæt- ir við að hann hafi haft óheftan aðgang að þorskhausum vestur á Granda og notað lítil bein úr þeim við kríugerðina, hitað, sveigt og beygt þau eftir kúnstarinnar reglum. „Stallurinn er ýmist úr messing, sem ég renni og skreyti svo gjarnan með kúlum, eða úr áli. Stytturnar með álstöllunum eru ekki síður huggulegar.“ »22-23 Hélt að hann yrði besti fimleikamaður heims - Allt leikur í höndunum á vélvirkjanum Óskari Valgarðssyni Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson Messing Óskar Valgarðsson heldur á steðja og aðrir listgripir í gripfæri. Hagur Krían er í miklu uppáhaldi hjá Óskari og hann hefur gert þær margar og mismunandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.