Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Sala á allt að 35% hlut í Ís-landsbanka stendur nú yfir og miðað við þær fréttir sem sagðar hafa verið af söluferlinu er áhuginn töluverður. Salan er jákvætt skref og dregur úr um- svifum ríkisins á fjármálamarkaði þó að talsvert sé í að hlutur þess verði hæfilegur. Það á enn Lands- bankann að fullu og drjúgan meiri- hluta í Íslands- banka þó að allt seljist nú. Umsvifin verða því meiri en þekkist í þeim löndum sem við berum okkur saman við, en, eins og fjármála- ráðherra hefur sagt um þetta, þá er útboðið „fyrsta skrefið í þá átt og færir okkur skrefi nær heil- brigðara umhverfi í betra sam- ræmi við það sem þekkist á Norð- urlöndunum og í öðrum nágrannaríkjum okkar“. - - - En það er víðar en á fjár-málamarkaði sem ástæða er til að draga úr hlut hins op- inbera. Nefna má menntakerfið sem dæmi, en þar er hlutur einkaaðila lítill og þeir hafa átt erfitt uppdráttar, ekki síst í höf- uðborginni þar sem áhugi stjórn- enda á að auka fjölbreytni er enginn. - - - Enn verra er ástandið í heil-brigðismálum, þar sem ráð- herra málaflokksins hefur lagt sig fram um að þvælast fyrir einkarekstri, því miður með mikl- um árangri. - - - Ríkið er umsvifamikið víðar ogþar eru tækifæri til að veita einkaaðilum aukið svigrúm og þar með að efla atvinnulíf, bæta lífskjör og auka svigrúm ein- staklingsins. Í þeim efnum mun fátt gerast á þessu þingi en þeim mun mikilvægara að hægt verði eftir komandi kosningar að snúa vörn í sókn í þessum efnum. Bjarni Benediktsson Skref í rétta átt STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Hernaðaruppbygging Rússlands, skilvirkir herflutningar á friðar- tímum, málefni Hvíta-Rússlands, ör- yggi 5G-fjarskiptakerfa og grænar varnir voru til umfjöllunar á fjar- fundi Norðurhópsins í gær en Guð- laugur Þór Þórðarson utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra var þar fulltrúi fyrir Íslands hönd. Norður- hópinn skipa tólf ríki, en þar eru Norðurlandaþjóðirnar fimm og Eystrasaltsríkin þrjú ásamt Bret- landi, Hollandi, Þýskalandi og Pól- landi. Ákveðið var á fundinum að festa í sessi áherslu Norðurhópsins á loft- lagsbreytingar og sjálfbærni hvað varnarmál áhrærir, en í frétta- tilkynningu utanríkisráðuneytisins segir Guðlaugur Þór að helstu vina- ríki Íslands séu að setja sér mark- mið um smækkun kolefnisfótspors hernaðarstarfsemi sinnar. „Áhrif loftslagsbreytinga á öryggi ríkjanna er síðan önnur birtingarmynd lofts- lagsvárinnar sem Atlantshafs- bandalagið mun setja í forgrunn á næstu árum,“ sagði Guðlaugur Þór. Á fundinum var einnig kynnt ný úttekt um öryggi 5G með tilliti til hernaðarstarfsemi og auk þess ákvað Eistland, sem fer með for- mennsku í hópnum, að setja skyldi netöryggismál á oddinn. Hvíta-Rússland og fjarskiptaöryggi til umræðu - Guðlaugur Þór sótti fjarfund Norðurhópsins fyrir Íslands hönd Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Guðlaugur Þór Utanríkisráðherra sat fjarfund Norðurhópsins í gær. Eldhúsinnréttingar Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is. Sumaropnun: Mán. – Föst. 10–17 Laugardaga LOKAÐ 2 0 0 0 — 2 0 2 0 Klukkan sex mínútur yfir níu fyrir hádegi í dag mun deildarmyrkvi á sólu sjást í Reykjavík ef veður leyf- ir. Tunglið mun skyggja á 69% af þvermáli sólar þegar myrkvinn verður mestur en það mun gerast klukkan 17 mínútur yfir tíu. Ekki gott skyggni Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir útlit fyrir að það verði skýjað á öllu landinu þegar deildarmyrkvinn verður. Skyggni verður því ekki gott og óvíst að deildarmyrkvinn verði sjá- anlegur. Teitur vill þó ítreka að það megi alls ekki horfa beint í sólina án við- eigandi hlífðarbúnaðar og að venju- leg sólgleraugu nægi ekki til að verja augun. Mælir hann með að nota sérhæfð sólmyrkvagleraugu en ef ekki er hægt að nálgast þau sé einungis hægt að nota þykkustu gerð logsuðugleraugna. Árið 2015 sást almyrkvi á sólu hér á landi en þá huldi tunglið 98% af sólinni séð frá Íslandi. hmr@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Sólmyrkvi Sólmyrkvinn í mars 2015 vakti mikla athygli en margir söfn- uðust saman fyrir framan Háskóla Íslands til að fylgjast með honum. Sólmyrkvi í dag - Tunglið mun skyggja á 69% af þvermáli sólar um tíuleytið í dag
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.