Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 10

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Traust Fagmennska Árangur YFIR 30 ÁRA REYNSLA Bæjarlind 4 / 201 Kópavogur / www.FASTLIND.is ELÍAS HARALDSSON Löggiltur fasteignasali S: 777 5454 elias@fastlind.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Það á mjög vel við mig að vinna undir álagi. Eldgosin eru alltaf mjög vinsælt fréttaefni sem þarf að fylgj- ast náið með. Ég nefni t.d. Eyja- fjallajökul, Holuhraun og nú Reykjanesskagann,“ segir Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á mbl.is. Í gær vann hún síðustu vakt- ina sína eftir aldarfjórðungs starf á Morgunblaðinu og mbl.is. Frétta- málin eru mörg eftirminnileg. „Þegar hryðjuverkaárásin var gerð í París haustið 2015 var mað- urinn minn staddur þar. Hann hringdi í mig seint á föstudagskvöldi og spurði hvort ég vissi hvað væri að gerast í borginni. Ég var heima með son okkar og vini hans sem ætl- uðu að gista. Maðurinn minn hafði setið á veitingastað og þar hafist skothríð. Hann vissi ekki hvort þetta væri hryðjuverk eða annað. Ég henti öllu frá mér og fór í tölv- una. Fljótlega sá ég hvað var um að vera og gat látið stoppa prentun blaðsins. Ég fór strax að skrifa fréttir á mbl.is og skrifaði fram á nótt. Einkalífið varð þarna að víkja fyrir vinnunni eins og svo oft þegar stórviðburðir gerast. Maður er ann- aðhvort í þessu starfi eða ekki. Morgunblaðið kom svo út daginn eftir með hryðjuverkaárás í París á forsíðu, eina íslenska blaðið sem náði því.“ Hrunið 2008 er einnig eftir- minnilegt. „Þá voru miklar upp- sagnir og við Guðmundur Sv. Her- mannsson, þá fréttastjóri á mbl.is, unnum eins og skepnur til að halda fréttaflæðinu gangandi. Ég var að- stoðarfréttastjóri og annað hvort okkar var á vakt allan sólarhring- inn,“ Guðrún segir að sér hafi þótt skemmtilegast í vinnunni þegar atið var sem mest og halda þurfti mörg- um boltum á lofti í einu. Hún hóf störf á viðskiptablaði Morgunblaðsins 3. júní 1996 og var þar fram á haust 1997. Þá fór hún ásamt fleirum að vinna að því að búa til fréttavef. Mbl.is fór svo í loftið 2. febrúar 1998. Fyrsti blaðamaðurinn á mbl.is „Ég var fyrsti blaðamaðurinn á vefnum. Þar skrifaði ég fram á haustið að ég tók við fréttastjórn viðskipta á Morgunblaðinu. Snemma árs 2004 hætti ég í blaða- mennsku í hálft ár. Svo kom ég aft- ur og varð þá aðstoðarfréttastjóri á mbl.is með Guðmundi. Við Sunna Ósk Logadóttir tókum svo við fréttastjórn á mbl.is og gegndum því starfi í nokkur ár. Eftir það varð ég almennur blaðamaður á mbl.is.“ Fullyrða má að Guðrún hafi skrifað hartnær 100.000 fréttir á mbl.is á ferli sínum. Frá 4. október 2004 skrifaði hún tæplega 86 þús- und fréttir. Þær birtust 3.560 mis- munandi daga eða að meðaltali 24,1 frétt á dag. Ekki eru til tölur um fréttaskrif hennar frá 1998-2002. Ítarlegir greinaflokkar Guð- rúnar um skólamál, geðheilbrigð- ismál og börn hafa vakið mikla at- hygli. Þeirra skrifa hefur hún notið mest á ferlinum. Gríðarlega mikil vinna var að baki hverjum greina- flokki. Guðrún notaði oft sumarfríin í að lesa sér til og taka viðtöl. Svo þurfti að vinna efnið eins hratt og mögulegt var til að það bitnaði ekki á daglegum fréttaskrifum. „Mér þótti vænt um það þegar Guðrún heitin Ögmundsdóttir, þá formaður UNICEF, hringdi í mig. Hún sagði: „Guðrún, mig dreymdi þig í nótt. Ég ætla að athuga hvort þú ert til í að koma í stjórn UNI- CEF því þér þykir svo vænt um börn!“ Börn hafa ef til vill verið meginþráðurinn í mínum greina- flokkum og eins fólk í geðheilbrigð- iskerfinu. Það er málaflokkur sem mér finnst ákaflega mikilvægur og mikil þörf á að útrýma fordómum gegn. Eins hafa málefni flóttafólks verið mér hugleikin. Mér þykir mjög vænt um fólk,“ sagði Guðrún. En hvað tekur við? Góðkunningi lögreglunnar „Ég ætla að byrja á að fara í gott frí og njóta þess að ferðast innan- lands í sumar og vera með fjölskyld- unni. Ég ætla líka að leyfa mér að sofa út,“ sagði Guðrún. Hún hefur lengi staðið morgunvaktina á mbl.is frá klukkan sex á morgnana og aldr- ei sofið yfir sig. „Ég er fyrir löngu orðin góðkunningi lögreglunnar hringinn um landið og eins þeirra á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, hjá Neyðarlínunni og slökkviliðinu!“ Skemmtilegast þegar atið var mest - Guðrún Hálfdánardóttir vann sína síðustu vakt á mbl.is í gær - Var fyrsti blaðamaðurinn á mbl.is 1998 - Hefur skrifað hartnær 100.000 fréttir á mbl.is á ferlinum - Viðbrigði að geta loksins sofið út Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir Blaðamaður „Mér þykir mjög vænt um fólk,“ sagði Guðrún Hálfdánardóttir sem er að ljúka 25 ára ferli á mbl.is og Morgunblaðinu. Ítarlegir greinaflokkar hennar um börn, geðheilbrigðismál og flóttafólk vöktu mikla athygli. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Undirbúningur nýrrar þaraverk- smiðju Íslandsþara á Húsavík er langt kominn og er áformað að hefja uppbyggingu hennar næsta vor. „Við höfum unnið í verkefninu undanfarna mánuði og málin eru að þokast í rétta átt. Við erum að ljúka rannsóknum, markaðsmálum og öðr- um lykilþáttum í undirbúningi. Það má segja að við séum farnir að sjá til lands,“ segir Snæbjörn Sigurð- arson, verkefna- stjóri Íslands- þara. Snæbjörn kveðst aðspurður bjartsýnn á að framleiðslan geti hafist á næsta ári. „Þegar allt verður komið af stað geta skapast 90 til 100 stöðugildi með öllu saman; út- gerðinni, landvinnslunni og full- vinnslunni,“ segir Snæbjörn. Skörun milli vinnslunnar Átta til tíu störf verði tengd út- gerðinni en 80-90 störf í landvinnslu og fullvinnslu á tröllaþara. Skörun verði milli starfa í landvinnslu og fullvinnslu. Við útgerðina mun bátur draga kamba, eða slæður, í gegnum þara- skóg. „Slæðan tekur elstu og þykk- ustu plönturnar úr slóðinni og skilur þær yngri eftir óhreyfðar. Þessu má líkja við að nota berjatínu,“ segir Snæbjörn um þessa aðferð. Starfsemin verður sem áður segir á Húsavík, sem ræðst m.a. af því að þar er gott aðgengi að jarðhita. Verður hann notaður til að þurrka þara við fullvinnslu afurðanna. „Við höfum vilyrði fyrir lóð á Húsavík og erum í viðræðum við Orkuveitu Húsavíkur um aðgengi að jarðhita og annarri veituþjónustu. Framkvæmdir eru ekki hafnar en við höfum lokið rannsóknum á þrem- ur hafsvæðum við Norðurland, í samstarfi við Hafrannsóknastofnun, og teljum okkur vera komin með nokkuð skýra mynd af stöðunni og erum sannfærð um að þetta getur gengið upp,“ segir Snæbjörn. Vel tengdir víða um heim Varðandi söluhliðina segir Snæ- björn að fulltrúar Íslandsþara séu í samstarfi við erlenda aðila sem hafi góðar tengingar á markaði í Evrópu, Bandaríkjunum og Asíu. Úr þaranum verði unnið algín sem mestmegnis verði selt sem fullunnin vara. Þó verði hún í einhverjum til- vikum seld til lokablöndunar á við- komandi markaði. Algínið megi nota í matvælaframleiðslu, heilsuvörur og lyf. „Til lengri tíma erum við þó mest að horfa á heilsuvörur og lyfjamark- aðinn,“ segir Snæbjörn. Ljósmynd/Erlendur Bogason Verðmæti Áformað er að sækja þara í þaraskóg við Húsavík. Viðræður við fjár- festa langt komnar - Íslandsþari áformar uppbyggingu Snæbjörn Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.