Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 11
Skipholti 29b • S. 551 4422
TRAUST
Í 80 ÁR
Gæðabuxur
frá Gardeur og Gerry Weber
einnig mikið úrval í hvítu
Skoðið
laxdal.is
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | VersluninBelladonna
Netverslun á www.belladonna.is
Fæst í
netverslun
belladonna.is
Flottar yfirhafnir, fyrir flottar konur
Cherry berry
buxurnar komnar
Kr. 5.900
Str. 2-9 (38/40-52)
7 litir
síðar og kvart
Bæjarlind 6 | Sími 554 7030 | Við erum á facebook
Þrjár tillögur fengu verðlaun og ein
tillaga fékk viðurkenningu með inn-
kaupum í samkeppni sem Garðabær
efndi til í samstarfi við Arkitekta-
félag Íslands um hönnun nýs leik-
skóla í Urriðaholti. Voru verðlauna-
tillögurnar kynntar við hátíðlega
athöfn í Sveinatungu á Garðatorgi á
þriðjudaginn.
Alls bárust tíu tillögur í keppnina,
en tillaga HuldaJóns Arkitektúr,
sastudio og exa nordic varð hlut-
skörpust að þessu sinni. Tillaga
N7a-nikolova/aarsø, TEARK, ein-
rúm arkitektar/einrum-ffw og IKT-
LEDERNE ApS lenti í öðru sæti. Í
þriðja sæti var tillaga Sei Studio,
Landmótun og Ríkharður Krist-
jánsson / RK Design. Þá var tillögu
KRADS / Andrew Burgess veitt við-
urkenning með innkaupum til sér-
stakrar skoðunar.
Íbúðabyggð í örum vexti
Í fréttatilkynningu frá Garðabæ
kemur fram að Urriðaholt sé eitt
nýjasta hverfi bæjarins þar sem
íbúðabyggð er í örum vexti. Hátt í
2.500 manns búa nú í hverfinu og er
gert ráð fyrir allt að 4.500 íbúum í
Urriðaholti þegar það verður full-
byggt.
Í fréttatilkynningunni kemur
fram að nýi leikskólinn í Urriðaholti
verði sex deilda leikskóli fyrir allt að
120 börn frá eins árs aldri. Bygging-
arframkvæmdir við leikskólann
hefjast á þessu ári og gert ráð fyrir
að leikskólinn taki til starfa árið
2022. Í umsögn dómnefndar um sig-
urtillöguna, Urriðaból, segir meðal
annars að hún sé heildstæð bygging
með „skemmtilegu uppbroti í formi
sem skapar minni kvarða“. Þá sé
heildarmynd hússins í takt við deili-
skipulag hverfisins, og sýni útlits-
myndir að byggingin falli vel að um-
hverfi og byggingum í næsta
nágrenni. Tillögurnar verða til sýnis
næstu vikur á innitorginu á Garða-
torgi 7, fyrir utan Sveinatungu rétt
hjá Bókasafni Garðabæjar. Jafn-
framt er hægt að skoða allar tillög-
urnar á vef Garðabæjar, gardabaer-
.is.
Verðlaunatillögur kynntar
- Nýr leikskóli í
Urriðaholti verði
reistur 2022
Ljósmynd/Garðabær
Samkeppni Verðlaunatillögurnar voru kynntar við hátíðlega athöfn í
Sveinatungu á Garðatorgi á þriðjudaginn, og voru verðlaunahafar kátir.
ÁTVR tilkynnti í vikunni sýslumann-
inum á höfuðborgarsvæðinu og sýslu-
manninum á Vesturlandi meint brot
Bjórlands ehf., Brugghúss Steðja ehf.
og Sante ehf. á skyldum sem á þeim
hvíla samkvæmt áfengisheildsölu-,
áfengisframleiðslu- og áfengis-
innflutningsleyfum sem sýslumenn-
irnir hafa gefið út.
Segir ÁTVR að fyrir liggi óyggj-
andi sönnun fyrir brotum leyfishaf-
anna sem felist í smásölu áfengis í
vefverslunum í trássi við gildandi lög.
Með tilkynningunum var farið
fram á að sýslumennirnir hæfu þegar
í stað áminningarferli gagnvart þess-
um aðilum. Lög kveða á um að leyf-
ishafi sem verður uppvís að frekari
brotum á meðan áminning er í gildi
skuli sviptur leyfinu um stundarsakir
eða fyrir fullt og allt.
Tilkynningarnar eru einn liður í
áformum ÁTVR um að fá niðurstöðu í
þann ágreining sem uppi er um túlk-
un gildandi laga um heimildir til smá-
sölu áfengis. ÁTVR útilokar ekki að
leita síðar til dómstóla vegna hinna
meintu brota og krefjast eftir atvik-
um lögbanns á vefverslanir Bjór-
lands, Brugghúss Steðja og Sante.
„Ótvírætt ásetningsbrot“
„Það er mat ÁTVR að starfræksla
vefverslananna feli í sér ótvírætt
ásetningsbrot gegn einkaleyfinu og
grunnstoðum áfengisstefnu stjórn-
valda, þar sem skýrt er kveðið á um
hlutverk ÁTVR. Fram kom tillaga á
Alþingi sem fól í sér að hægt yrði að
selja áfengi beint til íslenskra neyt-
enda úr innlendum vefverslunum.
Þessi tillaga fékk ekki framgang og
áfengisstefnunni hefur ekki verið
breytt. Mismunandi skoðanir kunna
að vera varðandi þá niðurstöðu en
engum er þó frjálst að hunsa gildandi
lög að eigin geðþótta,“ segir á heima-
síðu ÁTVR.
Þá segir að ÁTVR telji mikilvægt
að leiðrétta þann misskilning að mis-
munandi reglur gildi um innlenda að-
ila og erlenda hvað viðkemur heimild
til þess að reka vefverslun með áfengi
til einstaklinga hér á landi. Öll vef-
verslun með áfengi beint af inn-
lendum lager samsvari smásölu og
brjóti í bága við einkarétt ÁTVR,
óháð þjóðerni þess sem stendur fyrir
vefversluninni.
Tilkynntu
meint brot
vefsalanna
- Segja söluna brjóta í
bága við einkarétt ÁTVR