Morgunblaðið - 10.06.2021, Page 12

Morgunblaðið - 10.06.2021, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGARMIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava St. Pétursborg, Vínarborg, Róm ogBrugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO. Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Á gúst Halldórsson, 36 ára gamall Vestmanna- eyingur, hefur vakið mikla athygli á samfélags- miðlum fyrir fuglabjörgunar- aðgerðir sínar. Hann lýsir sjálfum sér sem blíðum villingi með ímynd- unarafl út fyrir endimörk alheims- ins. Sem ungur Eyjapeyi fór Ágúst reglulega á lundaveiðar en hefur nú lagt lundaháfinn á hilluna. Í dag er hann þriggja barna faðir, hættur að veiða fugla og stundar það frekar að bjarga þeim. Það var svo átta ára gamall sonur Ágústs, Sveinn Jör- undur, sem hvatti hann til að sýna frá björgunaraðgerðunum á hinum vinsæla samfélagsmiðli TikTok og nú fylgjast rúmlega 1.600 manns með ævintýrum Ágústs á miðlinum. „Það var eiginlega syni mínum að þakka. Hann bað mig að gera þetta TikTok. Sagði það vera eina vitið,“ segir Ágúst. Gæfur Grænlandsfálki Fram að þessu hefur Ágúst bjargað fjórum fuglum. Tveir þeirra voru fálkar, þar af einn Grænlands- fálki. „Grænlandsfálkann fann ég þegar ég var við vinnu úti á sjó, á Álsey VE, vestan við Snæfellsnes. Sá hafði örmagnast og sat á stefni bátsins. Hann var alveg ógeðslega flottur en alveg við það að drepast þannig að ég veiddi hann með því að læðast aftan að honum og kasta yfir hann neti. Síðan náði ég að koma of- an í hann nautakjöti og lunda og hann braggaðist svona hrikalega vel. Hann var byrjaður að setjast á öxl- ina á mér og fór með mér í göngu- túra í garðinum hér heima. Við nefndum hann í höfuðið á Árna Johnsen og enduðum svo á að fara heim til Árna þar sem fálkanum var sleppt við hátíðlega athöfn. Það mættu um 50 manns að horfa á. Síðan fann pabbi minn, sem er lögreglumaður hér í Eyjum, annan fálka niðri á bryggju og kom með hann til mín. Sá hafði verið að reyna að veiða fýl sem hefur svo ælt á hann. Flughæfni fálkans var orðin mjög skert eftir lýsisógeðið sem lagðist yfir allt fiðrið á honum. Við þurftum að þrífa hann nokkrum sinnum til að ná öllu lýsinu af honum en með hjálp starfsmanna SeaLife varð hann mjög flottur eins og for- veri hans,“ segir Ágúst og vísar þar til góðgerðarsamtakanna Sealife Trust sem stóðu að flutningi á tveim- ur mjöldrum til Vestmannaeyja. Að sögn Ágústs braggaðist sá fálki vel og var á endanum sleppt líkt og þeim fyrri. Bragi og Þór Hinir tveir fuglarnir voru lund- ar. Annan þeirra fann Ágúst þegar hann var að sækja egg í Hellisey. Sá fékk nafnið Bragi en hann lifði því miður ekki lengi vegna þess hve laskaður hann var. Þegar blaðamað- ur innti eftir því hvað gæti mögulega hafa komið fyrir hann nefnir Ágúst tvær mögulegar ástæður. „Þeir geta bara skollið á hlutum þegar þeir eru á flugi og bólgnað svo mikið að þeir verða bjargarlausir. Hitt er svo þegar þeir rífast um hol- una sína þegar þeir koma til baka af veiðum; bíta hvor annan í gogginn, veltast um og detta stundum niður 50 metra há björg og lenda síðan bara á jörðinni og meiðast. Þannig var með lundann Braga. Hann var lamaður og gat ekki staðið.“ Nýlega var svo bankað á dyrnar heima hjá Ágústi. Þar voru tveir ungir herramenn, Hafþór og Sæþór, komnir til að færa honum annan lunda. Sá var í aðeins skárra ásig- komulagi en Bragi. Lundinn var nefndur Þór í höfuðið á drengjunum tveimur sem fundu hann. „Ég sprautaði lýsi upp í hann og gaf hon- um loðnu. Hann var fljótur að átta sig á því hvernig átti að éta þetta og það sást mikill munur á honum eftir aðeins fjóra daga. Hann var bara orðinn rosalega flottur þegar við slepptum honum.“ Stundum þarf að sleppa Þegar Ágúst er inntur eftir því hvort ekki sé erfitt að sleppa fugl- unum er hann tvístígandi í svari. „Já og nei. Stundum þarf bara að sleppa takinu. Það er þeim fyrir bestu. Þeir mega ekki vera of lengi hjá okkur því þá byrja vöðvarnir að rýrna og þeir ná ekki almennilegu flugi. Þetta er bara eins og með krakkana; það er fínt að sleppa þeim að heiman þegar þau eru á milli 18 og 22 ára. Ég nenni ekki að hafa þau heima til 38 ára, ennþá spyrjandi mig hvað verði í matinn.“ Blíður villingur bjargar fuglum Fjölskyldufaðir í Vest- mannaeyjum er hættur að veiða fugla og bjargar þeim í staðinn. Margir fylgjast með því á sam- félagsmiðlum hvernig honum gengur að koma þessum fiðruðu vinum sínum í flughæft ástand. Félagar Ágúst Halldórsson með fálkann sem hann hjúkraði til heilsu. Lýsisgjöf Lundinn Þór mataður á lýsi og fuglinn var fljótur að braggast. Sumarhátíðin Varmalandsdagar fara fram á Varmalandi í Borgarfirði um helgina. Hátíð sem þessi hefur ekki verið haldin áður. Dagskráin er mjög fjölbreytt en hana er m.a. hægt að nálgast á facebooksíðunni Varma- landsdagar. Þar má sjá að íslenskri tónlist verður streymt um sali félagsheim- ilisins Þinghamars báða dagana, alls 12 tímar, með klukkutíma á hvern ís- lenskan listamann. Er þetta sagt gert í samstarfi við streymisveituna Spotify. Kaffisala kvenfélagsins verð- ur í Þinghamri, myndlistarsýningar sem og markaður með handverki og matvörum úr heimabyggð. Stefnir Þór Kristinsson verður með bílskúrs- sölu að Furuhlíð 2, ratleikur og grill verða í skóginum á milli skólans og hótelsins, vínkynninmg verður á Hót- el Varmalandi og kokkar veitinga- staðar hótelsins, Galor, verða með góðmeti á grilli við innganginn báða dagana frá kl. 13 til 15. Björgunarsveitin Heiðar sýnir tæk- in sín við Þinghamar. Þá munu fé- lagar í Fornbílafélagi Borgarfjarðar mæta á sunnudeginum kl. 14 með fáka sína. Rakel Dögg Sigurgeirs- dóttir verður svo með samflot í sund- lauginni bæði kvöldin. Varmalandsdagar haldnir í fyrsta sinn um helgina Tónlist, myndlist, grill, kaffi, markaður, samflot og ratleikir Ljósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson Varmaland Sumarhátíðin Varmalandsdagar fara fram um helgina. Handverkshátíðin í Eyjafirði og Matarstígur Helga magra hafa tekið höndum saman fyrir sumarið og standa reglulega fyrir bændamark- aði, þar sem áhersla verður lögð á að kynna mat og handverk úr Eyja- fjarðarsveit. Fyrsti markaðurinn verður í Hrafnagilsskóla um helgina. Þessir aðilar tóku sig saman þeg- ar ljóst varð að Handverkshátíðin yrði haldin með breyttu sniði í ár vegna kórónuveirufaraldursins. Félagasamtökum, handverksfólki, matvælaframleiðendum og öðrum þjónustuaðilum í sveitarfélaginu hefur verið boðið að taka þátt í þessum markaði. Fyrsti markaður sumarsins verð- ur opinn á laugardaginn, 12. júní, frá kl. 12-16 í Hrafnagilsskóla. Eyjafjarðarsveit Bændamark- aðir í sumar Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eyjafjörður Handverk og matvörur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.