Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 26

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 26
26 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 PORSCHE MACAN – RN. 340332 Nýskráður 12/2016, ekinn 50 þ.km., bensín, ljósgrár sjálfskipting, 7 gíra, bakkmyndavél, hiti í framrúðu, fjarlægðarskynjarar, litað gler, bluetooth Verð 7.990.000 kr. SUBARU OUTBACK – RN. 331079 Nýskráður 1/2018, ekinn 106 þ.km., dísel, hvítur, sjálfskipting, stöðugleikakerfi, nálægðarskynjarar, hraðastillir, litað gler, bluetooth. TILBOÐSVERÐ 3.590.000 KR. - ásett 3.790.000 TOYOTA PROACE CITY VERSO – RN. 153567 Nýskráður 8/2020, ekinn 15 þ.km., dísel, dökk- grár, sjálfskipting, bluetooth, bakkmyndavél, GPS, fjalægðarskynjarar að framan, hraðastillir. Verð 5.890.000 kr. MERCEDES-BENZ C300 DE AMG PLUG IN HYBRID RN. 153592. Nýskráður 11/2019, ekinn 27 þ.km., dísel/rafmagn, svartur, sjálfskipting, 9 gíra, GPS, bluetooth, bakkmyndavél, litað gler, túrbína. TILBOÐSVERÐ 6.990.000 KR. - ásett 7.790.000 OKKUR VANTAR ALLAR GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is TI LB OÐ TI LB OÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Í einhverjum mæli er aftur farið að líta á selinn sem auðlind. Eftir að sett var selveiðibann árið 2019, er í flest- um tilvikum liðin tíð að bændur veiði sel, verki og selji skinnin, þótt enn sé hægt að sækja um undanþágu til að stunda hefðbundnar veiðar. Hins vegar hafa ferðabændur getað haft nokkrar tekjur af selaskoðun á síð- ustu árum og verið er að byggja upp selaskoðun á allmörgum stöðum, að sögn Söndru M. Granquist, deildar- stjóra selarannsóknardeildar Sela- seturs Íslands og selasérfræðings hjá Hafrannsóknastofnun. Selurinn er þannig orðinn segull fyrir ferðamenn, en vísindamenn hafa fylgst með breytingum á hegðun dýr- anna í og við selalátur samfara aukn- um mannaferðum. Ljóst þykir að selaskoðun getur haft truflun í för með sér fyrir dýrin ef ekki er farið rétt að. Húnaþing vestra hefur verið mark- aðssett sem selaskoðunarstaður frá 2005 þegar Selasetur Íslands var stofnað á Hvammstanga og segir Sandra að með vaxandi fjölda ferða- manna til landsins hafi áhugi fyrir selaskoðun aukist. Eftir hlé í rúmt ár vegna kórónufaraldursins má fast- lega gera ráð fyrir auknum fjölda ferðamanna á næstunni á þeim slóð- um þar sem helst er hægt að sjá sel. Hafrannsóknastofnun og Selasetur Íslands hafa stað- ið fyrir stórri rannsókn á sam- spili ferðamanna og selastofna frá 2008. Sandra er verkefnisstjóri, en hún er með doktorsgráðu í vistfræði sela. Verkefnið er sam- starf á milli vís- indastofnana og háskóla hérlendis og erlendis, meðal samstarfsaðila eru Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands og náttúrustofur. Vísindagreinar hafa nú þegar verið birtar úr rannsóknum verkefnis Söndru og samstarfsaðila og verið er að undirbúa fleiri greinar. Þá hafa niðurstöður verkefnisins ver- ið efniviður í meistara- og doktors- ritgerðir. Selastofnar á válista Sandra segir að um þessar mundir sé vettvangsvinna ársins að hefjast, samhliða því að ferðamannastraum- urinn til landsins fari að aukast. Rannsóknin fer fram í mörgum ólík- um selalátrum um land allt þar sem selaskoðun hefur verið byggð upp og nær yfir vísindasvið eins og líffræði, mannfræði og ferðamálafræði. Hún styðst einnig við þekkingu úr sam- félaginu svo sem frá heimamönnum og ferðaþjónustu. „Þar sem selaskoðun getur haft neikvæð áhrif á seli, t.d. á atferli þeirra og útbreiðslu, er mikilvægt að rannsaka slík áhrif og koma í veg fyr- ir þau þegar byggja á upp selaskoð- un. Viðkvæm staða íslenskra sela- stofna undirstrikar mikilvægi þess að fara varlega,“ segir Sandra. Á válista íslenskra spendýrastofna er landselur talinn vera í bráðri út- rýmingarhættu og útselur í nokkurri hættu. Samkvæmt talningu 2018 var talið að 9.400 landselir væru þá við strendur landsins. Þetta er fækkun um 72% frá 1980 er landselir voru taldir vera 33 þúsund. Miklar selveið- ar voru stundaðar á níunda áratugn- um, meðal annars með atbeina svo- kallaðrar hringormanefndar, og var stofninn kominn niður í 15 þúsund dýr 1989. Í fyrra var landselur talinn í látrum miðsumars og er niðurstaðna stofnmats að vænta í sumar. Ráðgert er að telja útsel um kæpingartímann í haust og birta nýtt mat haustið 2022. Sandra segir að truflun manna geti í sumum tilvikum haft mjög neikvæð áhrif á selastofna, geti m.a. leitt til lík- amlegrar streitu meðal dýranna. Streita geti líka valdið því að urtur nái ekki að verja nægilega miklum tíma með kópnum sínum, sem geti haft þau áhrif að hann þyngist ekki nógu hratt. Slíkt sé afgerandi þáttur um hvort kópurinn lifi af fyrsta vet- urinn. „Markmið rannsóknarinnar er meðal annars að rannsaka áhrif ferðamanna á atferli og útbreiðslu sela,“ segir Sandra. „Jafnframt að lágmarka slík áhrif á sama tíma sem upplifun ferðamanna við selaskoðun verði sem allra best. Það er mikil- vægt að vakta hvaða áhrif selaskoðun hefur bæði við ríkjandi aðstæður, en einnig hvað gerist ef þrýstingur frá ferðamönnum eykst með auknum fjölda heimsókna. Niðurstöður úr verkefninu hafa nú þegar sýnt að selir eru árvökulli ef þeir verða fyrir truflun og breyta um útbreiðslu á tímabilum þegar margir ferðamenn eru á svæðinu. Þetta eru mikilvægar frumniðurstöður, því áð- ur en þær voru birtar í vísindagrein 2014 skorti algjörlega þekkingu á áhrif selaskoðunar frá landi á velferð landsela á heimsvísu.“ Sandra bætir því við að margt sé enn þá óljóst í þessum efnum og því haldi rann- sóknin áfram. Margar leiðir færar Í öðrum þáttum verkefnisins er einnig rannsakað hvernig farsælast sé að stýra selaskoðun. Sandra segir að margar leiðir sé hægt að fara til að lágmarka áhrif, svo sem að stýra fjar- lægð og atferli manna, eða að loka viðkvæmum svæðum. Hún segir að stjórnun á villtri náttúruferða- mennsku sé mjög takmörkuð og skortur sé á lagalegri stöðu þessara mála á Íslandi. Með því að rannsaka atferli ferða- manna hafi verið hægt að sýna fram á að ferðamenn sem eru rólegir og lág- værir hafi minna áhrif á selina. Það þýði að mikilvægt sé að leiðbeina ferðamönnum og aðilum í ferðaþjón- ustunni um hvernig best sé að bera sig að í kringum selina. Ljósmynd/Sandra M. Granquist Selaskoðun Ferðamenn fylgjast með selum í látri á Vatnsnesi. Þeim stöðum hefur fjölgað þar sem skipulögð þjónusta er tengd selaskoðun. Reynt er kortleggja áhrif aukinna mannaferða á dýrin. Selurinn viðkvæmur segull - Selaskoðun byggð upp og selurinn auðlind á ný - Rannsókn á samspili ferðamanna og sela - Truflun getur valdið streitu - Vilja lágmarka neikvæð áhrif og tryggja jákvæða upplifun Þekking úr verkefninu hefur verið notuð til að móta hegð- unarreglur um hvernig best sé að koma í veg fyrir neikvæð áhrif af selaskoðun. Þær eru m.a. notaðar af ferðaþjónustu- aðilum við Ytri-Tungu á Snæ- fellsnesi, á Illugastöðum á Vatnsnesi, við Jökulsárlón og af selaskoðunarbátum. Í upphafi reglnanna segir: „Verum varkár því þetta er griðastaður selanna og við er- um gestir.“ Fólk er beðið að virða fjarlægðartakmarkanir og miða við 100 metra og aldrei að snerta seli. Fóllk hreyfi sig var- lega, hafi ekki hátt og kasti aldrei hlutum í kringum selina. Fólk er beðið um að nálgast aldrei kópa sem virðist vera ein- ir, því urtan sé yfirleitt nálægt þó hún sjáist ekki. Þá kemur fram í reglunum að selirnir hræðist dróna og er fólk beðið um að nota þá ekki. Griðastaður HEGÐUNARREGLUR Sandra M. Granquist

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.