Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
VIÐ LEITUM AÐ
LISTAVERKUM
Áhugasamir geta haft samband í
síma 551-0400
ERUM AÐ TAKA Á MÓTI VERKUM Á NÆSTA LISTMUNAUPPBOÐ
10. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 120.59
Sterlingspund 170.62
Kanadadalur 99.87
Dönsk króna 19.754
Norsk króna 14.619
Sænsk króna 14.58
Svissn. franki 134.59
Japanskt jen 1.1022
SDR 174.01
Evra 146.9
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.7681
Hrávöruverð
Gull 1892.05 ($/únsa)
Ál 2417.5 ($/tonn) LME
Hráolía 71.42 ($/fatið) Brent
« Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn,
AGS, spáir því í nýj-
ustu skýrslu sinni
um Ísland, sem birt
er á heimasíðu
Seðlabankans, að
hagvöxtur hér á
landi verði 3,7% á
þessu ári. Það er
umtalsverður bati
því landsfram-
leiðsla dróst saman á síðasta ári um
6,6%.
Sjóðurin spáir því að útflutningur auk-
ist um 16,3% frá fyrra ári og innflutn-
ingur um 11,8%. Á síðasta ári dróst út-
flutningur saman um 30,5% og
innflutningur um 22%, en ástæðan er
heimsfaraldur kórónuveiru.
Í áliti sendinefndar sjóðsins segir að
örvunaraðgerðir stjórnvalda hafi stuðlað
að hagfelldari þróun íslensks þjóðar-
búskapar en búist var við í upphafi far-
aldursins. Þrátt fyrir það séu áskoranir
fram undan. „Búist er við hóflegum efna-
hagsbata á þessu ári en óvissa er mikil.
Horfur um ferðaþjónustu og efnahags-
batann velta á því hvernig faraldurinn
þróast og framvindu bólusetningar inn-
anlands og á heimsvísu. Efnahags-
stefnan þarf áfram að styðja við efna-
hagsbatann og takast á við áhættu sem
kann að myndast,“ segir í áliti AGS.
AGS spáir 3,7%
hagvexti á þessu ári
Sjóður AGS er
bjartsýnn.
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Fagfjárfestasjóðurinn 105 Mið-
borg slhf., sem sér um uppbygg-
ingu á Kirkjusandsreitnum í
Reykjavík, hefur lagt fram kyrr-
setningarbeiðni á allar eignir
verktakafyrirtækisins ÍAV.
Eins og fram kom í Viðskipta-
Mogganum í gær hafði ÍAV áður
óskað eftir kyrrsetningu á eignum
105 Miðborgar slhf., sem er í stýr-
ingu hjá Íslandssjóðum, dóttur-
félagi Íslandsbanka, vegna upp-
byggingar félagsins á
Kirkjusandi.
Í málinu er deilt um frágang á
annað hundrað íbúða á Kirkju-
sandi, en ÍAV sá um uppbygg-
inguna þar til 105 Miðborg rifti
samningum við fyrirtækið í febr-
úar sl.
Sorglegt útspil
Jónas Þór Jónasson fram-
kvæmdastjóri 105 Miðborgar seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að
kyrrsetningarbeiðni ÍAV sé sorg-
legt útspil í málinu og fráleit
krafa. „Kyrrsetning er íþyngjandi
úrræði sem óskað er eftir þegar
kröfur eru réttmætar og hætta er
á að fjármagni verði komið undan.
Staðreyndin er hins vegar sú að
105 Miðborg er vel fjármagnaður
sjóður með eignir umfram skuldir
upp á fjóra milljarða króna,“ segir
Jónas.
Hann bendir að auki á að sjóð-
urinn starfi samkvæmt skýrum
lögum og reglum og lúti opinberu
eftirliti. Þá er sjóðurinn í eigu
sterkra fagfjárfesta, banka og líf-
eyrissjóða. „Þetta er lokaður sjóð-
ur sem aldrei hefur verið greitt út
úr, nema til framkvæmdaaðila.
Þeir hafa fengið alla sína reikn-
inga greidda.“
Krefjast milljarða
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu krefst ÍAV 3,8
milljarða króna í aukagreiðslur frá
105 Miðborg og Íslandssjóðum, og
105 Miðborg hefur gagnstefnt ÍAV
fyrir 3,9 milljörðum króna. Skorið
verður úr kröfunum fyrir dómi.
„Við treystum því að málið fari í
hefðbundið ferli innan dómskerf-
isins og fái þar sanngjarna með-
ferð,“ segir Jónas.
Íbúar fluttir inn
Búið er að selja nær allar íbúðir
á Kirkjusandi og íbúar eru fluttir
inn í mikinn meirihluta þeirra, að
sögn Jónasar. Unnið er að úrbót-
um á þeim atriðum sem þarf að
laga, en um er að ræða tvö íbúðar-
hús. Inni í framkvæmdinni er
einnig skrifstofubygging.
Samið við heilsugæsluna
Jónas segir að búið sé að gera
leigusamning við Heilsugæsluna í
Lágmúla og mun hún flytja í skrif-
stofuhúsnæðið. Þá sé búið að leigja
út tvær stærstu hæðirnar í bygg-
ingunni en enn séu laus rými á efri
hæðum hússins.
105 Miðborg vill að allar
eigur ÍAV verði kyrrsettar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Byggð Búið er að selja nær allar íbúðir á Kirkjusandi og íbúar eru fluttir inn í mikinn meirihluta þeirra.
Verktaka
» ÍAV hf. er alfarið í eigu Marti
Holding AG frá Sviss sem var
stofnað 1922. Marti Holding á
um 80 fyrirtæki víðsvegar um
heim sem eru öll rekin sem
sjálfstæðar einingar.
» 105 Miðborg slhf. er m.a. í
eigu Íslandsbanka, lífeyrissjóð-
anna Lífsverks, Festu, Brúar og
Lífeyrissjóðs verslunarmanna
og fagfjárfesta eins og Brim-
garða og Eldhrímnis ásamt
tryggingafélaginu Sjóvá.
- ÍAV hafði áður óskað eftir kyrrsetningu á eignum 105 Miðborgar slhf.
Tryggingafélagið TM hefur tekið í
notkun sjálfvirkt kerfi fyrir áhættu-
mat líf- og heilsutrygginga. Umsókn-
arferli sem áður gat tekið nokkrar
vikur tekur nú nokkrar mínútur.
Hjálmar Sigurþórsson, fram-
kvæmdastjóri trygginga hjá TM, seg-
ir í samtali við Morgunblaðið að um
sannkallaða byltingu sé að ræða. Nú
sé það fyrirkomulag að fylla út eyðu-
blöð fyrir bí og ferlið hafi verið ein-
faldað til mikilla muna. „Þetta er kerfi
sem er í eigu Swiss RE, stærsta end-
urtryggingafélags í heimi. Þeir hafa
verið að innleiða lausnina með sam-
starfsaðilum sínum um víða veröld,“
segir Hjálmar. SwissRe er endur-
tryggingaraðili TM og hafa félögin átt
náið samstarf í um 20 ár.
Hjálmar segir að prufukeyrslur
kerfisins hafi staðið undanfarnar vik-
ur og nú þegar hafi töluvert selst af
tryggingum í gegnum kerfið. „Tutt-
ugu mínútum eftir að kerfið fór í loftið
var fyrsta salan farin í gegn. Þetta
virkar feikilega vel.“
Gæti komið í appið
TM er stöðugt að þróa aðgengi að
vöruúrvali sínu með stafrænum leið-
um til að einfalda málin fyrir við-
skiptavini sína eins og Hjálmar út-
skýrir og eru vefsala TM og
TM-appið gott dæmi um það. Nýja
kerfið er aðgengilegt í gegnum
heimasíðu TM en í fyllingu tímans
gæti lausnin einnig orðið aðgengileg í
appi fyrirtækisins. Viðskiptavinir
skrá sig inn með rafrænum skilríkj-
um og svara heilsufarsspurningunum
rafrænt og fá niðurstöður strax.
Hjálmar segir að kerfið meti trygg-
ingarhæfi fyrir líf- og heilsutrygging-
ar út frá upplýsingum sem umsækj-
andi veitir. „Ef umsóknin er án
athugasemda þá er tryggingin gefin
út sjálfvirkt, annars fer umsóknin í
nánari skoðun hjá áhættumati TM.“
tobj@mbl.is
Einföldun Hjálmar Sigurþórsson
segir nýja kerfið virka feikilega vel.
Bylting í sölu líf-
og heilsutrygginga
- Fyrsta salan 20
mínútum eftir að
kerfið fór í loftið