Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 36
36 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
AirMini kæfisvefnsvélin
Sú allra minnsta og hljóðlátasta á
markaðnum í dag.
Trönuhrauni 8, Hafnarfirði, stod.is
Ertu með kæfisvefn?
uðvelt að taka með í:
ústaðinn • Veiðina • Golfferðina • Fríið
fa liðið einkennilega var ég greindur með kæfisvefn.
lger bylting í lífimínu eftir að ég fékk kæfisvefnsvél.
g ferðast mikið hefur ferðasvefnvélin frá STOÐ
bjargað mér. Vélin er svo lítil að það fer ekki mikið
henni en farsíma.
staklega meðfærileg og ég ferðast einfaldlega ekki
hennar.
gnar Hilmarsson
A
B
Eftir að ha
Það varð a
Þar sem é
algjörlega
meira fyrir
Hún er ein
án
Ra
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Lénsmaðurinn á Karmøy, eyju úti
fyrir bænum Haugesund í Noregi, og
fámennt lögreglulið hans hafa nú
fengið endanlegt svar við ráðgátu
sem hófst með voveiflegu líkfund-
armáli síðdegis á nýársdag, þegar
jarðneskar leifar ungs barns fundust
í samfestingi, sem rak að landi
skammt frá bænum Skudeneshavn á
eyjunni, með áföstu björgunarvesti.
Ljóst var að barnið hefði legið lengi
í sjónum og þóttu vörumerki samfest-
ingsins og björgunarvestisins benda
til þess að það væri erlent, auk þess
sem engra norskra barna var saknað
sem líkamsleifarnar við Skudenes-
havn gætu mögulega átt við.
Eins og mbl.is greindi frá í apríl
beindist athygli norsku lögreglunnar
fljótlega að slysi sem varð skammt
frá frönsku hafnarborginni Dun-
kerque 27. október í fyrra. Var þar á
ferð fimm manna fjölskylda íranskra
Kúrda á flótta.
Hjónin Rasoul Iran-Nejad og
Shiva Mohammad Panahi, bæði hálf-
fertug, höfðu greitt smyglurum, sem
tóku að sér smygl á fólki, fyrir að
koma þeim frá Íran síðsumars, gegn-
um Tyrkland og Ítalíu þar til þau að
lokum komu með vörubíl í flótta-
mannabúðir í Dunkerque með börn
sín þrjú, Anitu, níu ára, Armin, sex
ára, og Artin, 15 mánaða gamlan.
Komust ekki langt
Stóð ásetningur fjölskyldunnar til
þess að komast yfir til Englands og
freista þess að skapa sér þar betra líf
en það sem hjónin ungu þekktu frá
fósturjörðinni. Sjaldan verður ósinn
þó eins og uppsprettuna dreymir og
skömmu eftir að um 20 flóttamenn
ásamt „skipstjóra“ úr hópi smygl-
aranna ýttu rúmlega fimm metra
langri bátkænu, sem gerð var fyrir
átta manns, út á úfið Dover-sundið
hvolfdi bátnum.
Skipverjar skammt frá urðu vitni
að atburðinum og hófust björgunar-
aðgerðir þegar í stað. Talið er að 15
manns hafi verið bjargað úr sjónum,
en hjónin írönsku og tvö eldri börnin
drukknuðu. Af Artin litla fannst hins
vegar hvorki tangur né tetur.
Ein margra spurninga í þeirri
rannsókn, sem norsk lögregluyfirvöld
tókust á hendur snemma í janúar, var
hvort lík gæti rekið rúmlega eitt þús-
und kílómetra leið frá Frakklands-
ströndum að eyju við vesturströnd
Noregs á 67 sólarhringum. Henni
tókst Knut-Frode Dagestad, rann-
sakanda við hafveðurfræðideild
norsku veðurstofunnar, að svara með
aðstoð stafræns hafstraumalíkans.
Fjöldi til Noregs
Dagestad setti tímabilið frá slysinu
á Dover-sundi fram til líkfundarins
inn í líkanið og gaf því nokkur þúsund
ímynduð reköld, sem komu fram sem
punktar á tölvuskjá, og reiknaði lík-
anið svo staðsetningu hvers og eins á
15 mínútna fresti yfir 67 sólarhringa.
Punktarnir dreifðu sér yfir alla aust-
urströnd Bretlands, margir fóru til
Danmerkur og fjöldi til Noregs, allt
upp til Ålesund, sem er um 360 kíló-
metrum norðar en Karmøy. Artin
litla hefði getað rekið til fundarstað-
arins.
Málið vandast enn
Þær upplýsingar höfðu þó enga úr-
slitaþýðingu í málinu. Það var Inge
Morild, meinafræðingur við Gades-
stofnunina í Bergen, sem stóð frammi
fyrir hinni raunverulegu áskorun, að
bera kennsl á líkið með erfðaefn-
issamanburði. Þrátt fyrir að Morild
ætti yfir tíu þúsund krufningar að
baki rak hann ekki minni til þess að
hafa áður haft ungbarn á borði sínu,
sem ekkert væri vitað um.
Auk þess að snúið getur reynst að
ná nothæfu DNA-sýni úr líki, sem
hefur legið lengi í vatni, urðu aðrir
þættir til að torvelda kennslavinnuna.
Kennileiti á borð við húðflúr og ör eru
sjaldnast í boði þegar börn eiga í hlut
og fátt um tannlæknaskýrslur enda
ekkert vitað um uppeldisstöðvar
barnsins er þarna var komið sögu.
Drengur, innan við tveggja ára gam-
all, var allt sem Morild gat slegið
föstu. Hann tók sýni úr lærlegg áður
en líkinu óþekkta var komið fyrir í
kæligeymslu. Nú þurfti samanburð-
arsýni úr ættingja, það átti eftir að
reynast tímafrekt.
„Ég fékk áfall“
Í fjalllendi í Sardasht í Íran beið
heil stórfjölskylda milli vonar og ótta,
vitandi af slysinu í október auk þess
sem óljósar fregnir höfðu borist af
barnslíki í Noregi. Enginn hlutaðeig-
andi hafði þó áttað sig á því að í Nor-
egi, rétt utan við Ósló, bjó ættingi
fjölskyldunnar. Nehayat Nian er
frænka Shiva Mohammad Panahi
heitinnar, móðurinnar sem drukkn-
aði.
Nian hafði heyrt af slysinu í Frakk-
landi í október og í janúar las hún
fréttir í símanum sínum og fékk þá
vitneskju um líkfundinn á Karmøy.
„Ég fékk áfall,“ segir hún við norska
ríkisútvarpið NRK, „en um leið fann
ég von. Var þetta hann, Artin, sem
var fundinn?“
Á meðan hafði norska rannsókn-
arlögreglan Kripos staðið í ströngu,
en vinna hennar hófst með því að
senda út fyrirspurn sem kallast
„black notice“ gegnum Interpol. Þar
er á ferð eins konar gagnhverf eft-
irlýsing, í stað þess að lýsa eftir
manneskju með nafni og mynd er
spurt: „Hjá okkur er manneskja [eða
lík] sem lítur svona út. Er einhvers
saknað ykkar megin sem lýsingin á
við?“
Bið og lengri bið
Kripos kemur með einum eða öðr-
um hætti að því að bera kennsl á 150
lík ár hvert, í innlendum málum og
sem aðstoð við erlenda lögreglu. Í
Noregi eru 40 lík í geymslum, sem
ekki hefur tekist að bera kennsl á,
elsta málið er frá 1966. Vikurnar liðu.
DNA-sýni úr barninu hafði verið sent
til Frakklands til samanburðar við
sýni úr líkum fjölskyldunnar drukkn-
uðu, en eitthvað hökti skrifræðið þar
suður frá.
NRK sendi frönskum lögreglu-
yfirvöldum fjölda fyrirspurna til að
forvitnast um stöðuna. „Við erum að
vinna í rannsókninni,“ svaraði Seb-
astian Pieve hjá saksóknaraembætt-
inu í Dunkerque. Í lok apríl brá
norska lögreglan því á það ráð að
taka lífsýni úr Nian, frænkunni í Ósló,
sem þá hafði gefið sig fram.
Enn liðu vikurnar á meðan unnið
var að greiningu og samanburði, en
það var svo á mánudaginn, 7. júní, að
óyggjandi svar barst að lokum. Barn-
ið sem fannst við Karmøy á nýársdag
var Artin Irannezhad, íranskur
drengur sem var aðeins 15 mánaða
gamall þegar hann mætti örlögum
sínum á Dover-sundinu 27. október í
fyrra.
„Það er svo mikilvægt að Artin
hafi fundist og kennsl verið borin á
hann. Þar með lýkur biðinni, fölsk-
um vonum og sögusögnum. Nú er
okkur unnt að syrgja,“ segir frænk-
an Nian. „Örlög hans eru áminning
um að saklaus börn deyja vegna þess
að fólk er neytt til að flýja ættjarðir
sínar.“
Voveiflegu líkfundarmáli lokað
- Barnslík við Karmøy í Noregi ráðgáta í tæpt hálft ár - Snemma tengt við sjávarháska á Dover-
sundi í fyrra - Hvorki gekk né rak að fá DNA-svör frá Frakklandi - Frænka í Noregi réð úrslitum
Ljósmynd/Norska lögreglan
Fundurinn Litli samfestingurinn sem fannst skammt frá Skudeneshavn síðdegis á nýársdag. Í honum reyndust jarð-
neskar leifar barns, kveikjan að langvinnri lögreglurannsókn milli ríkja sem lauk fyrir atbeina frænkunnar.
Joe Biden Bandaríkjaforseti aft-
urkallaði í dag tilskipanir Don-
alds Trumps um að banna kín-
versku farsímaforritin TikTok og
WeChat þar í landi.
Í yfirlýsingu frá Hvíta húsinu
sagði að í stað þess að banna
þessi vinsælu forrit myndi ríkis-
stjórn Bidens fara fram á „for-
sendubundna og stranga grein-
ingu byggða á sönnunargögnum“,
til að bera kennsl á þá áhættu
sem gæti stafað af netforritum
stjórnað af erlendum einka-
fyrirtækjum.
Trump fullyrti í forsetatíð sinni
að af forritunum stafaði þjóðar-
öryggisleg ógn og sótti það hart
að þröngva í gegn sölu á TikTok
til bandarískra fjárfestra, en
fyrirtækið er nú í eigu Byte-
Dance sem hefur aðsetur í Kína.
TikTok hefur undanfarin ár
verið eitt af vinsælustu sam-
félagsmiðlaforritum heims.
ari@mbl.is
AFP
TikTok Biden hefur snúið við fyrirmælum fyrirrennara síns um TikTok.
Biden afturkallar
TikTok-bann