Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 38
38 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355
Vefverslun selena.is
Vefverslun selena.is
Verðlauna sporthaldari
frá Panache*
D-H skálar
Verð 11.200 kr.
* Minnkar hreyfingu
brjósta um 83%
Joe Biden Bandaríkjaforseti lagði í
gær af stað í fyrstu utanlandsferð
sína frá því að hann tók við forseta-
embættinu. Biden hyggst funda með
leiðtogum aðildarríkja G7, auk
bandamanna sinna í ríkjum Evrópu
og Atlantshafsbandalagsins.
Fyrirhugað er að Biden fundi svo
augliti til auglitis með Vladimír Pút-
ín Rússlandsforseta í Genf hinn 16.
júní næstkomandi og verður það í
fyrsta sinn sem forsetarnir tveir
hittast frá embættistöku Bidens. Að
sögn heimildarmanns AFP hafði for-
setinn orð á því að fundirnir myndu
gera bæði Pútín og Kína ljóst að
Evrópa og Bandaríkin stæðu þétt
saman. Fyrsti viðkomustaður ferðar
forsetans er Bretland, þar sem leið-
togafundur aðildarríkja G7 fer fram.
Biden mun þar heimsækja Elísabetu
2. Bretadrottningu í Windsor-kast-
ala. Þaðan heldur hann til Brussel á
leiðtogafund með Atlantshafsbanda-
laginu og Evrópusambandinu áður
en förinni er heitið til fundarins við
Pútín í Genf.
Ferð Bidens var sögð marka um-
skipti í utanríkismálum Bandaríkj-
anna eftir valdatíð Donalds Trumps,
fyrirrennara hans í embætti, sem
reyndi nokkuð á samskipti Banda-
ríkjamanna við sína helstu banda-
menn í Evrópu.
Valdis Dombrovskis, viðskipta-
fulltrúi Evrópusambandsins, sagði
við AFP-fréttastofuna að Bandarík-
in væru að ganga til viðræðna til að
leysa langvarandi viðskiptadeilur frá
Trump-tímanum. Þá sagði Jake Sul-
livan þjóðaröryggisráðgjafi Banda-
ríkjanna að Biden héldi til fundar við
Pútín „með vindinn í bakið“, þar sem
Biden teldi sig hafa góðan meðbyr.
AFP
Washington Biden var glaðbeittur
við upphaf ferðar sinnar í gær.
Biden heldur af
stað til Evrópu
- Fundar með leið-
togum aðildarríkja
G7, Nató og ESB
Aftur var leyfilegt að njóta þess að
borða inni á veitingastöðum og
kaffihúsum í Frakklandi í fyrsta
skipti í marga mánuði, í kjölfar þess
að tilslakanir á aðgerðum vegna
heimsfaraldsins tóku gildi þar í
landi og í Belgíu á miðvikudag. Á
myndinni má sjá forsætisráðherra
ásamt fjármálaráðherra Frakk-
lands heilsa gestum á veitingahúsi.
Margar þjóðir eru enn að berjast
við að koma í veg fyrir kórónu-
veirusmit með áframhaldandi tak-
mörkunum víðsvegar um allan
heim, en hröð útbreiðsla bóluefnis í
ríkari heimshlutum, þar á meðal
Evrópu, gerir ýmsum þjóðum kleift
að opna á starfsemi á ný sem ekki
taldist hugsanlegt fyrir örfáum
mánuðum. Næstum helmingur allra
fullorðinna í aðildarríkjum Evrópu-
sambandsins hefur hlotið að
minnsta kosti aðra sprautu bólu-
efnis og 26% eru fullbólusett, sam-
kvæmt opinberum gögnum.
Frakkland
Frakkar
njóta frekari
afléttinga
AFP
Tíu manns sem störfuðu fyrir Halo
Trust-námuvinnslusamtökin í norð-
urhluta Afganistans féllu þegar
grímuklæddir og vopnaðir árásar-
menn réðust á vinnustað þeirra í
fyrrinótt. Hafa stjórnvöld í Afganist-
an sakað talíbana um árásina.
Árásarmennirnir brutu sér leið
inn í námuvinnsluna eftir að vinnu-
mennirnir höfðu klárað langan
vinnudag. Talsmaður innanríkis-
ráðuneytisins, Tareq Arian, sagði
við heimildarmann AFP að talíbanar
hefðu farið inn í námuvinnsluna og
„farið að skjóta alla“. Talíbanar
sendu hins vegar frá sér skjóta neit-
un á twittersíðu sinni. „Við fordæm-
um árásir á varnarlausa og lítum á
það sem grimmd,“ tísti talsmaður
þeirra, Zabihullah Mujahid. „Við
höfum eðlileg samskipti við frjáls fé-
lagasamtök, við munum aldrei fram-
kvæma svo grimmilegar árásir.“
Ofbeldisalda hefur riðið yfir land-
ið allt frá því bandaríski herinn hóf
brottför sína hinn 1. maí síðastliðinn
til að liðka fyrir friðarviðræðum milli
afganskra stjórnvalda og talíbana. Í
Baghlan-héraði hafa verið harðar
orrustur á undanförnum vikum, þar
sem nær dagleg átök eiga sér stað
milli talíbana og stjórnarhersins.
Einn af þeim sem lifðu árásina af
sagði við AFP-fréttastofuna að fimm
til sex vopnaðir menn hefðu brotist
inn og safnað öllum vinnumönnun-
um saman til að spyrja hvort ein-
hverjir af þeim væru Hasarar, þjóð-
flokkur sjía-múslima í Afganistan,
sem lengi hafa verið undirokaðir þar
í landi. Er hægt að rekja ofsóknir á
hendur þeim marga áratugi aftur í
tímann.
Þá sagði maðurinn að þegar eng-
inn hefði svarað árásarmönnunum
hefðu þeir fyrst drepið leiðtoga
námumannanna og svo hafið skot-
hríð á vinnumennina. „Við reyndum
allir að flýja, sumir voru drepnir og
aðrir slösuðust eins og ég,“ sagði
hann.
10 látnir eftir vopnaða
árás á námuvinnslu
AFP
Afganistan Hlúa þurfti að hinum slösuðu á sjúkrahúsi eftir árásina.
- Talíbanar neita sök og segja árásina of grimmilega fyrir sig