Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þjóðmála-umræðan er ástundum sér- kennileg og hefur á ákveðinn hátt færst til verri vegar á ný- liðnum árum. Þar er að líklega að stórum hluta, en ekki alfarið, um að kenna áhrifum samfélagsmiðla sem leitast við það annars vegar að halda einungis að fólki því efni sem það hefur sérstakan áhuga á og er sammála og búa þannig til svokallaða bergmálshella þar sem fólk sér og heyrir ekkert annað en eigin skoðanir og um leið fordæmingar á skoðunum annarra, að svo miklu leyti sem þær eru nefndar. Hins vegar hafa þessir miðlar stundað það að hampa ákveðnum sjónarmiðum og útiloka önnur, jafnvel með því að banna þau á miðlum sínum þó að þeir eigi að heita opinn vett- vangur fyrir skoðanaskipti og miðlun upplýsinga. Allt á þetta líklega stóran þátt í því að víða um heim, líka hér á landi, hefur sprottið upp útilok- unarmenning (e. cancel culture) – eða öllu heldur ómenning – þar sem reynt er að útiloka þá sem hafa „rangar“ skoðanir frá þátt- töku í umræðum eða stjórn- málum. Þessi útilokunarstefna hefur líka náð til þess að útiloka ákveðna hluta sögunnar. Þeim sem uppfylla ekki ströng skilyrði útilokaranna, sem byggjast á við- horfum nútímans og jafnvel að- eins hluta þeirra sem nú eru uppi, er velt af stalli – í bókstaflegri merkingu. Þannig hafa styttur margra þeirra sem sett hafa mark sitt á söguna sætt árásum útilokaranna svo ömurlegt er að sjá. En það eru ekki aðins styttur af löngu látnum mönnum sem verða fyrir þessu. The Telegraph sagði frá því í gær að í einum af skólum Oxford-háskóla, Magda- len College, hefðu nemendur greitt því atkvæði að fjarlægja mynd af Elísabetu drottningu úr skólanum þar sem hún væri tákn- mynd nýlendustefnunnar en það rými sem myndin var í ætti að vera „hlutlaust“. Þar ætti öllum að „finnast þeir velkomnir“. Nema, bersýnilega, drottning- unni, sem heimsótti skólann árið 1948 og tók þar við heiðursdokt- orsgráðu og svo aftur sextíu ár- um síðar, á 550 ára afmæli skól- ans. Það er ömurlegt að sjá svo gamla og virðulega stofnun verða útilokunarómenningunni að bráð, en það er fleira í opinberri um- ræðu en þessi útilokunarárátta sem veldur áhyggjum. Eitt af því er sú tilhneiging að reyna að þagga niður í þeim sem ekki uppfylla tiltekin skilyrði, til að mynda prófgráður. Oft heyrist að fólk vilji ekki lýsa skoðun á hinu eða þessu, eða eigi ekki að tjá sig um eitt eða annað, því að það sé ekki með þá menntun sem nauðsynleg sé. Vissulega er menntun mikilvæg og þekking ekki síður, en það má aldrei ganga svo langt að einungis „sér- fræðingar“ megi hafa skoðanir á hlut- unum. Og þegar stjórnmálamenn beita þessu fyrir sig er það afleitt, því að þeim ber að setja sig nægilega inn í mál til að hafa á þeim skoðanir. Þeir geta vitaskuld ekki vitað allt um alla hluti, en það réttlætir ekki að vísa öllu frá sér og fela það sér- fræðingum. Stjórnmálamenn verða að kynna sér ólík sjón- armið, þar með talin sjónarmið sérfræðinga, en þeir geta ekki skákað í skjóli skoðanaleysis. Hið sama á við um ýmsa aðra, með mismunandi afbrigðum. Ný- lega gerðist það til að mynda að BSRB sendi frá sér tilkynningu um könnun sem stéttarfélagið hafði látið gera og var hluti af baráttu þess fyrir auknum opin- berum rekstri í heilbrigðisþjón- ustunni. Í tilkynningu BSRB var fullyrt að „yfirgnæfandi meiri- hluti landsmanna [væri] andvígur auknum einkarekstri í heil- brigðiskerfinu“ og var vísað í könnun sem prófessor í félags- fræði hefði gert fyrir félagið. Þórarinn Guðnason, formaður Læknafélags Reykjavíkur, benti á að fullyrðingin stæðist ekki og BSRB hefði rangtúlkað könn- unina. Undir þetta tók Morgun- blaðið og benti á að verkalýðs- félagið hefði gerst sekt um sérhagsmunabaráttu í rangtúlk- un sinni á niðurstöðunum. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, for- maður BSRB, andmælti þessu og reyndi að nota heimsfaraldurinn til að rökstyðja aukna áherslu á opinberan rekstur í heilbrigðis- kerfinu, auk þess að rangtúlka áfram afstöðu almennings eins og hún birtist í skoðanakönnuninni sem gerð var fyrir BSRB. Þá veifaði hún því að ekki væri fallist á túlkun BSRB og prófessorsins, sjónarmiða sérfræðings sem eng- inn mætti efast um. Nú hefur stigið fram annar og ekki minni sérfræðingur í túlkun tölfræðilegra gagna, Thor Aspe- lund prófessor í tölfræði við læknadeild Háskóla Íslands, og tjáð sig um könnunina. Thor segir í færslu á facebooksíðu sinni (sem er dæmi um að Facebook getur verið til gagns þó að miðillinn hafi stóra galla) að dreifing svara á milli ólíkra spurninga sé of mikil til að hægt sé að álykta eins og BSRB hafi gert. Þá bendir hann á fleiri galla við framsetningu BSRB og jafnframt að það sé engin frétt að mikill meirihluti vilji að ríkið reki sjúkrahús. Svör- in að öðru leyti hallist „frekar að blönduðu eða einkareknu kerfi en þó ekki tölfræðilega marktækt“. „Niðurstaðan er,“ segir Thor, „að Íslendingar virðast hálft í hálft fylgjandi opinberum og blönd- uðum rekstri“ en afstaðan sé mjög mismunandi eftir því um hvaða þætti heilbrigðisþjónust- unnar sé að ræða. Þar sem BSRB notaði eigin sérfræðing aðeins sem skálka- skjól fyrir túlkun sinni eru ekki miklar líkur á að hún verði endur- skoðuð í ljósi nýs sérfræðiálits. Heilbrigðismál eru of mikilvæg til að verða rangtúlkun að bráð} Öfgar og umræða R íkisstjórnin vill halda áfram heild- arendurskoðun stjórnarskrár- innar í þverpólitísku samstarfi með aðkomu þjóðarinnar.“ Píratar taka hjartanlega undir þessi markmið ríkisstjórnarsáttmálans og hafa unnið ötullega að því allt þetta kjörtímabil að minna ríkisstjórnina á hvað stendur í sáttmál- anum þeirra. Þegar allt kom til alls, hins vegar, þá var lagt fram frumvarp til breytinga á stjórnarskrá í 23 greinum sem eru langt frá því að teljast vera heildarendurskoðun. Ríkisstjórninni mistókst að ná heildarend- urskoðun – er ekki hægt að gera eitthvað gott úr því sem þó er komið fram? Jú, auðvitað. Vandinn er hins vegar sá að frumvarpið er ekki vel unnið og frávik frá frumvarpi stjórnlag- aráðs eru illa rökstudd. Ekkert sem er ekki hægt að laga með því að færa ákvæði aftur til samræmis við frumvarp stjórnlagaráðs. Píratar styðja góðar breytingar á stjórnarskrá Íslands, breytingar sem gagnast öllum og eru í samræmi við þjóð- arviljann. Þannig vonumst við til þess að hægt verði að halda stutt þing í haust þar sem þingið getur fjallað um og tekið afstöðu til þeirra tillagna sem liggja fyrir – það er jú tilgangur þingsins, að fjalla um mál og tillögur sem gagnast öllum landsmönnum. Ein mikilvægasta tillagan, að mínu mati, sem Píratar leggja áherslu á er ákvæði um náttúruauðlindir. Þar leggja Píratar til breytingu á því frumvarpi sem forsætis- ráðherra hefur lagt fram. Í grundvallaratriðum er tillaga forsætisráðherra ágæt en á henni er samt sá galli að nýting auðlinda er ekki tímabundin, bara uppsegjanleg. Einnig er ekki tryggt að markaðsgjald fáist fyrir nýtingu sameig- inlegra auðlinda í ábataskyni. Helsta breyting- artillaga Pírata snýst um að markaðsverð skuli innheimt ef ákveðið er að nýta auðlind í ábata- skyni. Þetta leysir hnútinn sem hefur verið í málinu í áratug um hvort tilgreina eigi fullt gjald eða eðlilegt gjald í auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar. Ef nýtingin er í ábata- skyni skal það vera fullt gjald (markaðsgjald), annars er það háð aðstæðum (eðlilegt gjald miðað við aðstæður). Því miður þarf að breyta stjórnarskránni á þann hátt að rjúfa þarf þing og boða til kosn- inga þegar breytingar eru samþykktar. Það þýðir að þingið er fast í þeim vítahring að vinna stjórnarskrárbreytingar í þinglokum þegar stressið er sem mest og alls konar rifrildi í gangi. Það var því já- kvætt að heyra forsætisráðherra fjalla um það vandamál með breytingarákvæði stjórnarskrárinnar í ræðustól þingsins á þriðjudag. Jákvætt af því að hvernig sem fer með frumvarp forsætisráðherra í haust þá væri kannski hægt að laga þennan galla stjórnarskrárinnar. Þannig má leggja til breytingar á stjórnarskrá þannig að það þurfi ekki almennar alþingiskosningar til þess að breyta stjórn- arskránni. bjornlevi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Kjörtímabilið og stjórnarskráin Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is F araldur kórónuveirunnar hefur haft mikil áhrif á geðheilbrigði þjóða um allan heim og hefur geð- rænn heilsuvandi aukist verulega, sérstaklega meðal ungs fólks, at- vinnulausra og þeirra sem búa við fjárhagslega erfiðleika. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Efnahags- og framfara- stofnunarinnar OECD um stöðu geðheilbrigðismála og geðheilbrigð- isþjónustu í aðildarlöndum OECD. Mjög brýnt er að þjóðir grípi til frekari aðgerða, auki framlög og veiti þeim sem glíma við andlega erf- iðleika meiri stuðning og auki gæði umönnunar og þjónustu m.a. til að draga úr þeim samfélagslega og efnahagslega kostnaði sem hlýst af versnandi geðheilsu fólks að því er fram kemur í skýrslunni. Áður en faraldurinn skall á er talið að um helmingur íbúa aðild- arþjóðanna hafi upplifað andlega erfiðleika og vanlíðan einhvern tíma á lífsleiðinni og einn af hverjum fimm þurft að glíma við geðræn vandamál af einhverju tagi. „Frá því að Covid-19-kreppan skall á hefur andleg vanlíðan færst verulega í aukana, sérstaklega meðal ungs fólks, og algengi kvíða og þunglynd- is jafnvel tvöfaldast í sumum lönd- um,“ segir þar ennfremur. Vitnað er í kannanir í nokkrum löndum í fyrstu bylgju faraldursins sem leiddu m.a. í ljós að í Ástralíu sögðu 78% svarenda að geðheilsa þeirra hefði versnað á tímum farald- ursins, 43,5% svarenda í Austurríki sögðu faraldurinn hafa haft nokkur eða alvarleg áhrif á andlega heilsu sína og um 41% Bandaríkjamanna sagðist skv. könnunum eiga við verra heilsufar að stríða. Fram kemur í umfjöllun um hversu margir bjuggu við geðrask- anir fyrir faraldurinn og eftir að hann reið yfir að í flestöllum lönd- unum hefur þeim fjölgað mikið sem glíma við kvíða eða þunglyndi. Í Frakklandi sögðust 13,5% hafa glímt við kvíða eða kvíðaröskun fyrir faraldurinn en hlutfall þeirra hækk- aði í 26,7% í faraldrinum. Í Svíþjóð er talið að tæp 11 prósent íbúa hafi átt við þunglyndi að stríða fyrir far- aldurinn en hlutfall þeirra hækkaði í 30% eftir að faraldurinn skall á svo dæmi séu tekin. Niðurstöður rann- sókna á andlegri líðan Íslendinga eru ekki með í þessum samanburði en staða geðheilbrigðismála hér á landi er tekin með í samanburði OECD. Þar kemur m.a. fram að út- gjöld til geðheilbrigðisþjónustu á Ís- landi eru sögð vera 5,7% af heildar- útgjöldum hins opinbera til heilbrigðismála. Þetta er nokkuð undir meðaltalinu í löndum OECD þar sem útgjöld til geðheilbrigðis- þjónustu eru 6,7% af heildar- útgjöldum til heilbrigðismála. Í Finnlandi er hlutfallið 5,6%, 15% í Frakklandi, 11,3% í Þýskalandi, 6% á Írlandi og 13,5% í Noregi. Kostnaður samfélaga er veru- legur vegna geðraskana að því er segir í skýrslu OECD, sem byggir þær upplýsingar raunar á nokkurra ára gömlum tölum aðildarþjóðanna. Að meðaltali er kostnaður talinn jafngilda um 4,2% af vergri lands- framleiðslu, bæði beinn kostnaður við heilbrigðisþjónustu vegna geð- heilbrigðismála og óbeinn kostnaður sem birtist í auknu atvinnuleysi og minni framleiðni í atvinnulífinu. Hér á landi er kostnaður vegna geðræns heilsuvanda talinn vera um 4,9% af landsframleiðslu. OECD leggur áherslu á að efla þurfi geðrækt og forvarnir meðal ungs fólks og kemur Ísland vel út í þeim samanburði þar sem öll börn á Íslandi eru sögð hafa fengið fræðslu um geðheilsu í skólakerfinu áður en þau náðu 15 ára aldri. Geðheilsa versnaði til muna í faraldrinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvissa Á tímum faraldursins hefur andleg vanlíðan aukist, einkum meðal ungs fólks, og algengi kvíða og þunglyndis tvöfaldast í sumum löndum. Þótt Ísland komi oft vel út í samanburði OECD á ýmsa mælikvarða geð- heilbrigðisþjónustu í aðildarlöndunum kemur einnig í ljós að margir sem glíma við geðræn vandamál segjast ekki hafa eins greiðan aðgang að nauðsynlegri geðheilbrigðisþjónustu og að almennri læknaþjónustu. Eru Danmörk, Portúgal og Ísland sérstaklega nefnd sem dæmi um lönd þar sem margir einstaklingar segjast ekki hafa efni á nauðsynlegri geðheil- brigðisþjónustu. Er hlutfallið 33,1% á Íslandi en til samanburðar segja 8,1% hér á landi kostnað standa í vegi fyrir því að þeir fái aðra læknis- þjónustu skv. OECD. Í skýrslunni kemur einnig fram að eftir að farald- urinn reið yfir hafi geðheilbrigðisþjónusta verið skert í miklum meirihluta landa um allan heim og mun torveldara en áður að fá tilvísanir á nauð- synlega þjónustu eða meðferð. Hafa ekki efni á þjónustu SAMANBURÐUR OECD
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.