Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Þessa dagana fara fram
prófkjör Sjálfstæðisflokksins í
öllum kjördæmum landsins.
Tugir frambjóðenda gefa kost
á sér á framboðslista flokksins
fyrir alþingiskosningarnar í
haust og um 20 þúsund stuðn-
ingsmenn Sjálfstæðisflokksins
um land allt taka þátt í að
velja þá frambjóðendur sem
þeim líst best á og þar sem
pólitískar áherslur frambjóð-
enda og kjósenda falla saman.
Við sjálfstæðismenn í Suðvesturkjördæmi
höldum prófkjör 10. til 12. júní. Ég hvet alla
stuðningsmenn flokksins til að taka þátt í
því. Ég gef kost á mér í 2. sætið á fram-
boðslistanum og óska ég eftir stuðningi í
það sæti.
Í minni stjórnmálaþátttöku hef ég lagt
áherslu á atvinnuuppbyggingu og aukna
verðmætasköpun í atvinnulífinu til þess að
bæta kjör almennings, skapa ný og vel
launuð störf og reisa fleiri stoðir undir
efnahagslífið. Samgöngumálin
eru gríðarlega mikilvægur
málaflokkur og þar þarf að
hugsa stærra, gera meira og
gera betur. Velferðarmál, þar
sem gæta verður þess að öllum
séu tryggð mannsæmandi rétt-
indi, og náttúruvernd eru mjög
mikilvægir málaflokkar og ekki
síst það vandasama samspil
verndunar og nýtingar sem oft
er tekist á um.
Í samanburði við Sjálfstæð-
isflokkinn og þátttöku stuðn-
ingsmanna flokksins í mótun
stefnunnar og vali á frambjóð-
endum eru aðrir stjórnmálaflokkar hér á
landi beinlínis hlægilegir. Við sjálfstæð-
ismenn höldum reglulega Landsfund þar
sem saman koma á annað þúsund flokks-
systkin til að móta stefnu flokksins til
næstu framtíðar og velja flokknum forystu.
Í prófkjörunum sem fram fara þessa dag-
ana er líklegt að fjöldi kjósenda slagi upp í
20 þúsund manns.
Um síðustu helgi lauk prófkjöri okkar í
Reykjavík. Þar greiddu 7.493 atkvæði,
meira en tvöfalt fleiri en síðast, og fjöldi
fólks gekk til liðs við flokkinn. Í lok maí fór
fram glæsilegt prófkjör okkar í Suður-
kjördæmi. Þar kusu 4.647 og Guðrún Haf-
steinsdóttir, sigurvegari prófkjörsins, hlaut
2.183 atkvæði í 1. sætið. Til samanburðar
má nefna prófkjör Pírata í kjördæminu. Þar
kusu 138 rafrænt og hlaut sigurvegarinn
121 atkvæði. Það er nú allur áhuginn á
þeim, sem tala mikið um lýðræðisást sína.
Framsóknarflokkurinn gerði betur í próf-
kjöri í Suðvesturkjördæmi. Sigurvegarinn
hlaut 308 atkvæði. Samanburður við Sjálf-
stæðisflokkinn í þessu efni er algerlega
óraunhæfur.
Uppstilling á framboðslista án atbeina al-
mennra flokksmanna leiddi Viðreisn í
ógöngur. Flokkurinn treysti sér ekki í próf-
kjör þrátt fyrir áeggjan fyrrverandi for-
manns og stofnanda. Honum var boðið
neðsta sætið á lista á höfuðborgarsvæðinu –
í þakklætisskyni fyrir vel unnin störf vænt-
anlega – sem hann ekki þáði, en síðan ber
honum og núverandi formanni ekki saman
um hvað gerðist næst. En Viðreisn sparkaði
fyrrverandi formanni sínum út fyrir dyr.
Illvígar geta deilurnar orðið í fámenninu.
Það kemst enginn stjórnmálaflokkur á Ís-
landi með tærnar þar sem Sjálfstæðisflokk-
urinn hefur hælana í lýðræðislegu vali
frambjóðenda og stefnumótun. Sjálfstæð-
isflokkurinn er fjöldahreyfing sem er opin
fyrir alla og sérhver sem áhuga hefur getur
tekið þátt í prófkjörum flokksins og þannig
staðið að vali frambjóðenda. Enginn annar
stjórnmálaflokkur býður upp á þátttöku
með þessum hætti. Sjálfstæðisflokkurinn er
stærsta lýðræðishreyfingin í stjórnmálum á
Íslandi.
Eftir Jón
Gunnarsson » Það kemst enginn stjórn-
málaflokkur á Íslandi með
tærnar þar sem Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur hælana í lýð-
ræðislegu vali frambjóðenda
og stefnumótun.
Jón
Gunnarsson
Höfundur er þingmaður fyrir Suðvestur-
kjördæmi og ritari Sjálfstæðisflokksins.
jong@althingi.is
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsta lýðræðishreyfingin
Nái ég kjöri í öruggt sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í SV-kjördæmi mun ég á
Alþingi beita mér fyrir að
flokkurinn sýni í öllu starfi sínu
að honum er ljóst mikilvægi
allra stétta þjóðfélagsins. Vilji
vinna að sátt og samstarfi
þeirra í milli, enda er fátt mik-
ilvægara fyrir farsæld þjóð-
arinnar.
Sjálfstæðisfólk þarf í viðleitni
sinni til að efla hag þjóðarinnar
að standa með grundvallarstefnumálum sín-
um, verja traustar undirstöður sígildrar
frjálslyndrar íhaldsstefnu sem kristallast í
upprunalegum gildum Sjálfstæðisflokksins.
Þau eiga jafn vel við í dag sem áður. Besta
leiðin til þess er að efla sjálfstæða, siðræna
og gagnrýna hugsun, sem því miður hefur
mætt vaxandi mótbyr hér á landi og víðar
um heim.
Traust menntun styrkir
tjáningarfrelsið
Ég mun leggja áherslu á menntamál nái
ég kjöri. Sá málaflokkur hefur sjálfsagt
aldrei verið mikilvægari en nú. Leggja þarf
aukna áherslu á menntun uppvaxandi kyn-
slóðar, einkum grunnfögin lestur, reikning
og skrift, um leið og sækja þarf í fræðslunni
styrk í hinn trausta menningararf þjóð-
arinnar með því að tryggja staðgóða þekk-
ingu á honum, landi og sögu. Verknám fái
aukið vægi í skólakerfinu, sem einnig ber að
laga jafnóðum að hinni hröðu framþróun í
hverskonar tækni og vísindum.
Vinna ber markvisst að því að
hver og einn geti notið sem
best hæfileika sinna, látið til
sín taka í þjóðfélaginu á þann
hátt sem hugur hans og geta
helst standa til.
Styrkja ber tjáningarfrelsið
með öllum ráðum og tryggja að
stofnanir sem reknar eru fyrir
almannafé (fjölmiðlar, háskólar
o.fl.) gæti hlutleysis. Ósýnilegu
valdi (stofnanavaldi / peninga-
valdi / klíkuvaldi) sé ekki beitt
til að hræða fólk til undirgefni
og þagnar. Engin stofnun má verða ríki í
ríkinu. Vald þeirra þarf að tempra þannig
að jafnvægis sé gætt í starfseminni og valdi
ekki misbeitt.
Kerfin þjóni fólki – ekki öfugt
Einfalda þarf skipurit ríkisstofnana svo
almenningi sé auðveldað að reka erindi sín
við þær og staðinn sé vörður um frelsi ein-
staklingins gegn kerfisflækjum. Unnið verði
áfram og ákveðið á braut stafrænna sam-
skipta milli borgaranna og kerfisins við af-
greiðslu erinda þeirra. Kerfin eiga að þjóna
einstaklingunum og fyrirtækjum en ekki öf-
ugt. Draga ber úr stofnanamáli og segja
hlutina skýrt þannig að allir geti skilið.
Stjórnendaábyrgð verður að vera skýr og
raunveruleg, ríkisstarfsmenn þurfa að bera
ábyrgð eins og aðrir. Fyrirtæki og fólk þarf
einfaldara regluverk og skera þarf mark-
visst niður reglufargan og sníða það til svo
það vísi veg virkrar stjórnsýslu.
Alþingi sem samkvæmt stjórnarskrá okk-
ar fer með löggjafarvald í landinu, verður
sjálft að axla ábyrgð á þessu lykilhlutverki
sínu og sjá til þess að lögin samræmist ís-
lenskum veruleika. Draga verður stórlega
úr vægi reglna sem eiga sér ekki lýðræð-
islega rót og miðaðar eru við milljónaþjóðir
sem búa á meginlandi Evrópu við allt önnur
skilyrði en ríkja hér á okkar fámenna ey-
landi. Íslendingar hætti því að taka við lög-
um í pósti utan frá þegar slíkt er í ósam-
ræmi við veruleika okkar, stærð og
uppbyggingu okkar samfélags og beiti
ákvæðum um neitunarvald samkvæmt EES-
samningnum þegar það á við og viðhafi
virka hagsmunagæslu.
Tryggja verður að nýting landsgæða
verði ákveðin af þjóðinni sjálfri og rétt-
kjörnum fulltrúum hennar en lúti ekki
regluverki frá öðrum. Það gafst ekki vel
fyrr á tíð að landinu væri stjórnað að utan –
og vísbendingarnar eru skýrar um að svo er
ekki heldur nú.
Á Alþingi verði rætt markvisst um aðal-
atriði (alvörupólitík), ekki einblínt á auka-
atriði (gervipólitík). Kjörnum fulltrúum á Al-
þingi og annars staðar ber að standa dyggir
og trúir á verði um hag þjóðarinnar. Hlut-
verk embættismanna er að liðsinna kjörnum
fulltrúum við framkvæmd verkefna. Ókjörn-
um embættismönnum leyfist ekki að taka
pólitíska stefnumörkun í sínar hendur.
Kreddulausa heilbrigðisþjónustu
Þegar horft er til þeirrar velsældar sem
gæði okkar góða lands geta verið grunnur
að, ef rétt er að málum staðið, er mér efst í
huga að við tökum höndum saman um að
tryggja að þar fái allir að njóta – enginn
verði út undan. Því er m.a. brýn nauðsyn nú
að losa heilbrigðiskerfið við kreddur sem
hamla læknisþjónustu, gera öryrkjum kleift
að njóta eins eðlilegs lífs og hugsanlegt er –
og greiða eldri borgurum enn frekar leiðina
til að bæta hag sinn með eigin vinnu eins
lengi og vilji og heilsa leyfa.
Standa ber áfram vörð um fjölbreytt
menningar- og listalíf þjóðarinnar sem á
margan hátt er lykill að lífshamingju henn-
ar.
Í prófkjörinu 10.-12. júní leita ég eftir
stuðningi ykkar í 2.-3. sæti og heiti því að
vinna af heilum hug að framgangi hinna
góðu gilda sem Sjálfstæðisflokkurinn er
byggður á. Ég hvet sjálfstæðisfólk til að
mæta á kjörstað og nýta sér lýðræðislegan
rétt sinn til að velja sigurstranglegan fram-
boðslista Sjálfstæðisflokksins við alþing-
iskosningarnar sem fram fara 25. sept-
ember nk.
Eftir Arnar Þór Jónsson » Þegar horft er til þeirrar
velsældar sem gæði okkar
góða lands geta verið grunnur
að, ef rétt er að málum staðið,
er mér efst í huga að við tökum
höndum saman um að tryggja
að þar fái allir að njóta – eng-
inn verði útundan.
Arnar Þór Jónsson
Höfundur sækist eftir 2.-3. sæti í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í SV-kjördæmi 10.-12. júní nk.
Enginn verði út undan
Það er bjart yfir í samfélag-
inu og fram undan björtustu
dagar ársins. Náttúran sýnir
sínar fallegustu hliðar og
mannlífið færist skref fyrir
skref í eðlilegt horf að nýju.
Bólusetningar ganga vel, at-
vinnuleysi dregst saman og
aukin bjartsýni einkennir um-
ræðuna. Því er nú spáð að at-
vinnuástandið verði sambæri-
legt við það sem var fyrir
heimsfaraldur á næsta eða þar-
næsta ári. Á traustum grunni
tókst okkur að bregðast hratt og vel við
heimsfaraldrinum. Við héldum alvarlegum
veikindum í lágmarki og vel gekk að standa
vörð um efnahagslífið.
Skattar hafa lækkað
Á kjörtímabilinu hafa skattar lækkað,
þjónusta aukist og ráðstöfunartekjur heim-
ilanna haldið áfram að vaxa. Í haust stönd-
um við reikningsskil á okkar verkum í
alþingiskosningum. Þar höfum við góða
sögu að segja.
Í opinberri umræðu er áber-
andi að reynt sé að skilgreina
Sjálfstæðisflokkinn fyrir lands-
mönnum. Þannig birtast reglu-
lega í þingræðum, greinaskrifum og viðtals-
þáttum skrautlegar fullyrðingar um
flokkinn okkar og fyrir hvað hann stendur.
Í gegnum tíðina hafa heilu framboðin verið
stofnuð nánast eingöngu í þessum tilgangi.
Óbreytt stefna frá upphafi
Sjálfstæðisfólk lætur slíka umræðu ekki á
sig fá. Við mótum okkar stefnu, sem í
grunninn hefur staðið óhreyfð frá upphafi.
Verkin tala sínu máli. Flokkurinn hverfist
um trúna á einstaklinginn og framtakssem-
ina úti í samfélaginu. Þjóðleg umbótastefna
var sagt í upphafi og gildir enn.
Jafnt og þétt hefur með stefnufestu og
virðingu við grunngildin tekist að tryggja
framfarir og íslenskri þjóð batnandi lífskjör.
Reglulega mælist Ísland í fyrsta sæti meðal
þjóða þegar leitast er við að leggja mæli-
stiku á lífskjör almennings.
Fjölbreyttur hópur frambjóðenda
Nú stendur yfir vinna, með þátttöku allra
flokksmanna, við að setja saman sig-
urstranglega framboðslista.
Þremur prófkjörum er lokið og mynd að
komast á listana í fjórum kjördæmum.
Frambjóðendur flokksins eru fjölbreyttur
hópur fólks á öllum aldri, með ólíkan bak-
grunn og reynslu. Ánægjulegt er að sjá að
konur eru í mikilli sókn í flokknum okkar,
en ég hef lengi talað fyrir því að auka hlut
þeirra á þingi.
Aðdragandi kosninga og val á lista er um
margt mikilvæg áminning. Áminning um að
þrátt fyrir ráðherrastörf, formennsku í
Sjálfstæðisflokknum og aðra titla, byrjar
allt og endar með þingmennskunni. Mér
hefur hlotnast sá heiður að vera þingmaður
Suðvesturkjördæmis í á annan áratug og
óska eftir áframhaldandi umboði til að leiða
listann í prófkjöri næstu daga.
Í prófkjörinu í Suðvesturkjördæmi gefa á
annan tug frambjóðenda kost á sér. Þar er
hópurinn jafn fjölbreyttur og öflugur og
annars staðar á landinu. Þrátt fyrir breidd-
ina á listum flokksins eiga frambjóðendur
þó allir eitt sammerkt: Viljann til að vinna
áfram að framgangi sjálfstæðisstefnunnar.
Stefnu frelsis og framfara, sem er mikil-
vægara en nokkru sinni fyrr að ráði för á
nýju kjörtímabili.
Í orði og á borði
Það er sammerkt með öllum kjördæmum
að við sjálfstæðisfólk setjum lýðræðið á
oddinn og veljum á lista í prófkjörum. Ferl-
ið er opið, gagnsætt og skýrt og vilji kjós-
enda ræður för. Þar er sérstaða okkar skýr,
samanborið við flokka sem verður tíðrætt
um lýðræði, en stilla svo upp bak við luktar
dyr.
Víða birtast stórar fullyrðingar um lýð-
ræði, framfarir og lífskjarabætur í orði.
Við höfum ávallt viljað láta verkin tala.
Lýðræðið
Eftir Bjarna Benediktsson » Jafnt og þétt hefur
með stefnufestu
og virðingu við grunn-
gildin tekist að
tryggja framfarir og
íslenskri þjóð batn-
andi lífskjör.
Bjarni
Benediktsson
Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins.