Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 45
UMRÆÐAN
45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Það er verðugt við-
fangsefni að gegna
embætti formanns í fé-
lagsskap sem leggur
sig fram í verkefnum
sem hafa þann tilgang
að gera landið okkar
og jörðina að betri
stað. Stuðningur um
6.000 félaga hefur gert
Landvernd að stærstu
og öflugustu náttúru-
verndarsamtökum landsins. And-
spyrna sérhagsmuna og ein-
staklinga, samtaka og fyrirtækja
sem hafa aðrar hugmyndir um nátt-
úruvernd en Landvernd getur verið
óvægin og orðljót. Við látum það
ekki slá okkur út af laginu og spilla
vinnugleðinni, til þess er verkefnið
of mikilvægt.
Stríð við náttúruna er
tortíming mannkyns
Nýlega gaf Umhverfisstofnun
Sameinuðu þjóðanna út skýrslu um
ástand jarðar undir fyrirsögninni
„Semjum frið við náttúruna“. Þar
skrifar aðalritari Sameinuðu þjóð-
anna: „Mannkynið er í stríði við
náttúruna. Það er heimskulegt og
má líkja við sjálfsvíg. Afleiðingar
kæruleysis okkar eru þegar aug-
ljósar; í þjáningum manna, gífurlegu
efnahagslegu tjóni og sívaxandi
eyðileggingu á grundvelli lífs á jörð-
inni.“
Skýrslan dregur upp dökka mynd
af heilsufari jarðar. Hvorki skortur á
þekkingu né á lausnum er ástæðan.
Meginskaðvaldurinn er afstaðan til
náttúrunnar. Til að leysa vandann
þarf að breyta sambandi okkar
manna við náttúruna − að semja við
hana frið.
Virkjum kærleikann
til náttúrunnar
Lykillinn að því að lækna sjúk-
dóma er væntumþykja, þekking og
vilji. Með því að rækta kærleikann
til náttúrunnar breytist viðhorfið til
hennar. Samfélagið hættir að líta á
náttúruna sem þjón mannsins og
hún fær sitt eigið tilvistargildi −
sem vistkerfi, þar sem maðurinn er
bæði hluti af náttúrunni og lifir af
henni. Með breyttu gildismati fá
aðrir þættir en efnahagslegur ávinn-
ingur og skammtímagróði meira
vægi. Ákvarðanir sem varða heilsu-
far lífríkis jarðar verða teknar á öðr-
um forsendum. Fjármunum úr sam-
eiginlegum sjóðum verður ráðstafað
með hliðsjón af umhverfisáhrifum.
Atferli sem veldur tjóni á náttúrunni
er skattlagt í samræmi við meng-
unarbótaregluna eða bannað. Sér-
hagsmunir og kæruleysi víkja.
Opnum augun
Starf Landverndar snýst um að
veita aðhald og vera vettvangur um-
ræðu. Árlega senda samtökin hátt í
hundrað erindi, umsagnir og at-
hugasemdir til stjórnvalda með það
að markmiði að styrkja stöðu um-
hverfisverndar. Annað mikilvægt
viðfangsefni samtakanna er að opna
augu fólks fyrir dásemdum jarðar −
og að rækta hið nauðsynlega sam-
band á milli manns og náttúru.
Verkefni eins og Grænfáninn, Vist-
heimt með skólum, Ungt umhverf-
isfréttafólk, Loftslagsvernd í verki,
ferðir til að skoða land í hættu og nú
síðast enduropnun Náttúruskólans
að Alviðru, eru framlag Land-
verndar til þeirrar nauðsynlegu við-
leitni að bæta samskiptin á milli
manna og náttúru; draga úr kæru-
leysi, auka þekkingu og vilja til úr-
bóta.
Garður þjóðarinnar
Hálendi Íslands er ein verðmæt-
asta auðlind Íslands. Þeim verðmæt-
um er ógnað af margvíslegum
áformum um m.a. orkumannvirki,
uppbyggða vegi, háspennulínur, of
miklu beitarálagi á viðkvæmum
svæðum o.fl.
Þjóðgarðar hafa þann tilgang að
stuðla að mannbætandi upplifun í
náttúrunni en jafn-
framt að stýra um-
gengni og nýtingu með
þeim hætti að nátt-
úrugæðum verði ekki
spillt. Að mati stjórnar
Landverndar hefur
„þjóðgarðsleiðin“ sann-
að sig bæði á Íslandi og
víða erlendis sem skil-
virk og góð náttúru-
vernd. Til að vernda
hálendið er því affara-
sælast að fara þá leið.
Um þetta er nú deilt.
Ánægjulega segja flestir sem taka
til máls í þeirri umræðu að vernda
beri hálendið. Það er gott veganesti
að farsælli lausn.
Ef vel er að verki staðið getur
ávinningur aðgerða til að vernda
loftslagið verið umtalsverður og m.a.
stuðlað að auknum jöfnuði í sam-
félaginu. Slíkar aðgerðir munu þó
óhjákvæmilega draga úr arði þeirra
sem byggja efnahag sinn á rányrkju.
Það þarf, eins og Andri Snær sagði í
bókinni Um tímann og vatnið, „nán-
ast að endurhanna 20. öldina eins og
hún leggur sig“. Lausnirnar eru
margar og þær vinna ekki bara á
loftslagsvandanum, heldur munu
þær einnig stuðla að sjálfbærri hag-
sæld og gera heiminn að stað þar
sem mannlífið fær að dafna í betri
sátt við náttúruna. Það sem vantar
er öflugri pólitískur vilji, víðtækari
stuðningur almennings og skilvirk-
ara alþjóðlegt samstarf. Skilningur á
því fer vaxandi þó enn sé talsvert um
svokallaðan grænþvott. Landvernd
lagði fyrst fram heildstæðar tillögur
um loftslagsaðgerðir árið 2005 og er
enn að. Loftslagshópur Land-
verndar er mikilvægur vettvangur
til að vekja vitund og móta hug-
myndir um lausnir og Vefskóli
Landverndar býður námskeiðið
Loftslagsvernd í verki til að draga
úr eigin kolefnisspori.
Velkomin á aðalfund
Landvernd boðar til aðalfundar
laugardaginn 12. júní nk. Margar til-
lögur að ályktunum verða til umfjöll-
unar og kjósa á 4 í stjórn og formann
til næstu tveggja ára. Við bjóðum
nýja sem gamla félaga velkomna á
fundinn. Frekari upplýsingar um
fundinn og skráning á hann er á
www.landvernd.is. Ég hef lýst mig
reiðbúinn að gegna áfram embætti
formanns Landverndar.
Landvernd í þágu náttúrunnar
Eftir Tryggva
Felixson »Landvernd veitir
stjórnvöldum aðhald,
vill auka þekkingu og
opna augu fólks fyrir lífs-
nauðsynlegu sambandi
manns og náttúru.
Tryggvi Felixson
Höfundur er formaður Landverndar,
landgræðslu- og umhverfisverndar-
samtaka Íslands.
tryggvi@landvernd.is