Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 46
46 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Búumyfir 20 ára reynslu í húðmeðferðum -Þitt útlit.Okkar þekking.
HÚÐÞÉTTING
• Lyftir og þéttir slappa húð
• Vinnur á appelsínuhúð
• Öflug lausn við húðslitum
• Örvar sogæðaflæði
• Gefur unglegra og ferskara útlit
FITUEYÐING
• Eyðir fitu á erfiðum svæðum
• Er sársaukalausmeðferð
• Er byggð á nýjustu tækni til að eyða fitu
• Er áhrifaríkmeðferð
• Er öruggmeðferð
Frábær
TILBOÐ hjá
TILBO
Ð
30%
afsláttur
Mikil umfjöllun hef-
ur verið um hækkun
á fasteignamati
undanfarin ár og nú
fyrir árið 2022 sem
þýðir að óbreyttu
verulega hækkun
fasteignagjalda fyrir
eigendur íbúða- og at-
vinnuhúsnæðis. Það á
ekki við um Kópavog.
Af þessu tilefni
langar mig að árétta
að í Kópavogi hefur um árabil ver-
ið rekin sú stefna að lækka álagn-
ingarhlutfall fasteignagjalda með
það að sjónarmiði að sporna við
þessari þróun og halda sköttum og
gjöldum hóflegum. Viðmiðið hefur
verið að tekjur bæjarins af fast-
eignagjöldum hækki að meðaltali í
samræmi við aðrar hækkanir í
samfélaginu, þ.e. neysluverðs-
vísitölu.
Raunin er sú að frá árinu 2013
höfum við í Kópavogi lækkað
álagningarhlutfallið ár hvert og
stefnum að því að svo verði áfram
við gerð næstu fjárhagsáætlunar.
Jafnframt hefur vatnsgjald og frá-
veitugjald verið lækkað með
markvissum hætti en þau gjöld
koma líka til lækkunar á atvinnu-
húsnæði.
Þessi stefna kemur eigendum
fasteigna til góða og
er án efa ein ástæða
þess að bærinn er eft-
irsóttur til búsetu og
atvinnustarfsemi.
Það er stefna bæj-
aryfirvalda í Kópavogi
að rekstur sveitarfé-
lagsins standi undir
sér en skattar og
gjöld séu hófleg. Við
vitum að það kemur
íbúum best, hvort sem
þeir eru fasteignaeig-
endur eða ekki þar
sem hækkun fast-
eignagjalda getur skilað sér í
hærri leigu eins og bent hefur
verið á undanfarið.
Fasteignamat hefur hækkað
gríðarlega undanfarin ár og því
mikilvægt hagsmunamál að lækka
álagningu á móti, það höfum við
gert ár hvert í Kópavogi frá árinu
2013 eins og áður segir.
Eftir Ármann Kr.
Ólafsson
» Frá árinu 2013 höf-
um við í Kópavogi
lækkað álagningarhlut-
fall fasteignagjalda ár
hvert og stefnum að því
að svo verði áfram.
Ármann Kr.
Ólafsson
Höfundur er bæjarstjóri Kópavogs.
armann@kopavogur.is
Álagning fasteigna-
gjalda í Kópavogi
lækkar þegar fast-
eignamat hækkar
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Mikið úrval af HVÍLDARST
með og án rafmagns lyftibú
Komið og
skoðið úrvalið
ÓLUM
naði
Við sjálfstæðis-
menn erum fjórð-
ungur þjóðarinnar.
Formaður smáflokks
sem telur um 10% Ís-
lendinga telur sér
sæmandi að leggja til
að við sem erum
þannig miklu fleiri en
meðlimir Samfylk-
ingar séum útilokuð
frá ákvörðunartöku
án tillits til þess sem náðst gæti
samstaða um við okkur. Þetta er
nú skilningur Loga Einarssonar á
lýðræði, málefnalegri samræðu og
réttindum annarra. Er það ekki
undarlegt að maður sem jafnan
segist meta mannréttindi öðru of-
ar láti þvílíkt og annað eins frá
sér fara? – Nú eða kannski bara
alls ekki. Uppstillingar á listum
Samfylkingar fyrir kosningarnar í
haust segja nefnilega sömu sögu
ef að er gáð. Nema hvað að innan
Samfylkingar er bannorðið ekki
sjálfstæðismaður,
heldur sósíal-
demókrati. Sá sem er
sósíaldemókrati er
nefnilega sjálfkrafa
bannfærður innan
Samfylkingarinnar.
Við hafa tekið menn
sem aðhyllast það sem
nefnt er á ensku
„woke“-skoðanir sem
er meir í ætt við
trúarbrögð en stjórn-
mál. En útskúfun er
einmitt eitt af mörgu
vondu sem einkennir þessi nýju
guðlausu trúarbrögð.
Hvað segja fyrri
leiðtogar Samfylkingar
og Alþýðuflokks
Æskuvinkona mín og bekkj-
arsystir heitir Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir. Við hana voru sam-
ræðustjórnmálin kennd. Marga
fleiri vini og kunningja á ég innan
þessa flokks. Hvað segja þeir um
þessa útilokunarstefnu? Verða
þeir (ég nota íslenska málfræði, en
ekki nýja kynlausa málið) ekki að
tjá sig? Hinn rauði litur komm-
únismans var, eðli málsins sam-
kvæmt, einkennandi á þingi
flokksins liðna helgi. Það var við
hæfi. Samfylkingin er nefnilega
ekki lengur sósíaldemókratískur
flokkur. Þessi smáflokkur er í ætt
við aðra öfgaflokka til vinstri ann-
ars staðar í Evrópu. Eða þá
breska Verkamannaflokkinn eftir
að klíkan í kringum Corbyn hafði
rænt þar völdum til ævarandi
tjóns fyrir þann annars ágæta
flokk. Aðalstefnumál Samfylking-
arinnar, afnám stjórnarskrár sem
á rætur að rekja til sambærilegra
plagga í Evrópu og innlimun ESB
á Íslandi og íslenskum auðlindum,
segja allt sem segja þarf. Það fólk
er fákunnandi um sögu Evrópu
sem heldur að stjórnarskrá Ís-
lands sé að uppruna eitthvert sér-
danskt fyrirbæri.
Kæri Logi
Kæri Logi, við sjálfstæðismenn
viljum hvorki útiloka þig né þinn
flokk. Þvert á móti teljum við að
þú eigir að hafa áhrif í samræmi
við fylgi. En við vonum, þjóð-
arinnar vegna, að það haldist í
réttu horfi. Á því eru reyndar all-
ar líkur sem betur fer. En ég virði
við þig að þú talar hreint út. Það
þarf enginn að velkjast í vafa um
að þú aðhyllist öfgafullar vinstri-
sinnaðar skoðanir sem ekki falla í
kramið hjá mörgum. Gangi þér
annars allt í haginn nema at-
kvæðasöfnunin. Af því má aldrei
verða að auðlindir Íslands verði
færðar Evrópusambandinu að
gjöf.
Kæri Logi
Eftir Einar
Hálfdánarson
Einar S. Hálfdánarson
» Sjálfstæðismenn eru
fjórðungur þjóð-
arinnar. Formaður
flokks um 10% Íslend-
inga telur sér sæma að
leggja til að fjórðungur
þjóðarinnar sé útilok-
aður frá þátttöku í lýð-
ræðislegri ákvörð-
unartöku.
Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VANTAR ÞIG
PÍPARA?