Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN
47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Nú þegar við erum
að stíga upp úr heims-
faraldrinum og farin
að njóta lífsins í meira
mæli er ekki úr vegi
að skoða hvað það er
sem skiptir máli og
hvað það er sem við
höfum lært undan-
farna mánuði. Ein af
grunnstoðum sterkra
samfélaga er öflug og
góð heilsugæsla. Með öflugri heilsu-
gæslu má draga úr heildarkostnaði í
heilbrigðiskerfinu, minnka álag á
sjúkrahús landsins og síðast en ekki
síst stuðla að almennu heilbrigði
meðal landsmanna. Heilsugæslan er
og á að vera fyrsti viðkomustaður
þegar grunur er um veikindi. Því
þarf að tryggja gott aðgengi um
land allt að fjölbreyttu fagfólki, s.s.
heilsugæslulæknum, sálfræðingum
sem og öðrum sérfræðingum. Að
öðrum kosti erum við að auka álagið
á sjúkrahús landsins sem eiga fullt í
fangi með að viðhalda þjónustu
þeirra sem veikari eru. Markmiðið
hlýtur einnig alltaf að vera að lækna
og leiðbeina skjólstæðingum áður
en þeir verða of veikir og þar með
dýrari fyrir samfélagið.
Fjölga þarf heilsugæslum
um land allt
Á landinu öllu starfa um 200
heimilislæknar sem segir okkur að
hver og einn þarf að meðaltali að
sinna 2.000 skjólstæðingum. Í þeim
löndum sem við kjósum að bera
okkur saman við er hver heim-
ilislæknir með mun færri skjólstæð-
inga og ná þeir því að sinna hverj-
um og einum betur.
Í grein Jörundar
Kristinssonar heim-
ilislæknis sem birt var í
Læknablaðinu í vetur
segir hann að mikið
álag sé á heilsugæslu-
stöðvum og heim-
ilislæknum og bendir á
að aðgengisvandi vegna
aukinna verkefna sem
heilsugæslunni er gert
að sinna sé mikill. Ekki
aðeins vegna fjölgunar
íbúa og öldrunar þjóð-
arinnar heldur vegna yfirfærslu
verkefna frá sjúkrahúsum yfir á
heilsugæsluna sem hvorki fylgir
mannafli, fjármagn né aukin að-
staða. Nýlegt dæmi um slík verk-
efni er yfirfærsla á leghálsskimun.
Hann bendir einnig á að fjölgun
heilsugæslustöðva hefur ekki verið í
neinu samræmi við fjölgun íbúa.
Í dag rekur hið opinbera 15
heilsugæslustöðvar á höfuðborg-
arsvæðinu en til viðbótar við þær
eru fjórar einkareknar stöðvar. Í
dag eru um 60.000 íbúar án fasts
heimilislæknis sem gerir álagið enn
meira á hverja stöð og hvern lækni
og er sú staða afar slæm. Í dag eru í
sérnámi heimilislækna um 70
manns og því ljóst að áhugi á grein-
inni er mikill en þeir komast ekki
fyrir á yfirfullum stöðvum og því
ljóst að fjölga þarf heilsugæslu-
stöðvum, ekki aðeins á höfuðborg-
arsvæðinu.
Hið opinbera eða
einkarekstur? – bæði betra
Umræðan í þjóðfélaginu hefur
oftar en ekki snúist um það hvort á
að sinna heilbrigðisþjónustu á land-
inu, hið opinbera eða einkaaðilar.
Okkur ætti öllum að vera orðið
ljóst að hið opinbera þarf á einka-
reknum úrræðum að halda og öf-
ugt. Samkvæmt nýlegri könnun
sem gerð var kom í ljós að í fimm
efstu sætum um gæði heilsugæslu-
stöðva á höfuðborgarsvæðinu voru
þrjár einkareknar í efstu fimm, það
eitt og sér segir okkur að mikil-
vægt er að veita fólki val um þjón-
ustuaðila og að hægt er að treysta
einkageiranum fyrir þessari tegund
þjónustu, svo ekki sé talað um val-
frelsi heimilislækna til að starfa hjá
hinu opinbera eða í einkageiranum.
Nýlegt dæmi um lokun Domus Me-
dica mun leiða af sér enn frekari
skort að aðgengi að sérfræðingum
sem mun væntanlega leiða til þess
að álag á heilsugæslur landsins
mun aukast.
Hættum að rífast um ágæti
einkarekinnar eða opinberrar heil-
brigðisþjónustu, notum tímann í að
byggja upp öflugt og gott heilbrigð-
iskerfi um land allt þar sem nýttar
eru og samþykktar báðar leiðir, það
hlýtur að vera heilbrigðasta lausnin.
Fjárfestum í heilsu
Eftir Kristínu
Thoroddsen
Kristín Thoroddsen
»Hættum að rífast um
ágæti einkarekinnar
eða opinberrar heil-
brigðisþjónustu, notum
tímann í að byggja upp
öflugt og gott heilbrigð-
iskerfi um land allt.
Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í Hafnarfirði og býður sig
fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Suðvesturkjördæmi sem
fram fer 10.-12. júní.
Um næstu helgi fer
fram prófkjör Sjálf-
stæðisflokksins í Suð-
vesturkjördæmi. Við,
kjósendur flokksins,
búum svo vel að eiga
kost á að kjósa milli
óvenjuöflugra ein-
staklinga sem boðið
hafa fram krafta sína.
Meðal þeirra er Sig-
þrúður Ármann lög-
fræðingur sem býður
sig nú í fyrsta sinn fram til setu á Al-
þingi. Ég hef þekkt til Sigþrúðar í
nokkur ár og tel mikinn feng aÐ því
að jafnhæfur einstaklingur og hún
skuli hafa ákveðið að bjóða sig fram.
Leiðir okkar hafa meðal annars legið
saman á umræðuvettvangi sem hún
stofnaði til fyrir nokkrum árum þar
sem stór hópur kvenna víða að úr
samfélaginu, á ólíkum aldri, úr flest-
um atvinnugreinum og öllum flokk-
um, hittist reglulega og ræðir mál
sem á hópnum brenna. Í þeim hópi
er Sigþrúður sannarlega á heima-
velli. Hún er óvenjusterkur persónu-
leiki, hefur ákveðnar skoðanir, skýra
framtíðarsýn, á auðvelt með að setja
sig inn í ólíka málaflokka og greina
kjarnann frá hisminu.
Mikilvægt er að þeir sem sitja á
Alþingi eigi auðvelt með að vinna
með öðrum, byggi á sterkum grunni
en séu jafnframt tilbúnir að feta nýj-
ar slóðir og takast á við áskoranir
nýrra tíma. Sigþrúður býr yfir þess-
um eiginleikum í ríkum mæli og ég
treysti henni vel til þess
að setja sig inn í ólíka
málaflokka og vinna að
ýmsum löngu tímabær-
um breytingum, t.d.
varðandi málefni aldr-
aðra sem Alþingi hefur
í áratugi vanrækt að
sinna sem skyldi. Hún
mun ekki sitja aðgerða-
laus heldur láta verkin
tala. Sigþrúður hefur
menntun, þekkingu og
reynslu sem mun skila
sér þegar kemur að
störfum á Alþingi. Hún hefur vilja til
þess að leggja sitt af mörkum til að
bæta samfélagið fái hún tækfæri til
þess og er líkleg til að vinna að fram-
gangi þeirra fjölmörgu mála sem
hún brennur fyrir.
Ég skora á kjósendur í Suðvestur-
kjördæmi að tryggja Sigþrúði Ár-
mann öruggt sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins til alþingiskosninganna í
haust. Það gerum við með því að
taka þátt í prófkjörinu sem fram fer
11., 12. og 13. júní næstkomandi og
kjósa hana í öruggt sæti.
Nýir tímar –
breyttar áskoranir
Eftir Gullveigu
Sæmundsdóttur
Gullveig
Sæmundsdóttir
»Ég skora á kjós-
endur í Suðvest-
urkjördæmi að tryggja
Sigþrúði Ármann
öruggt sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins.
Höfundur er fyrrverandi ritstjóri.