Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Marta María mm@mbl.is „Það var vorið 2020, þegar heims- faraldur hafði nánast lamað allt samfélagið, að leiðir okkar fjór- menninganna lágu saman á Vinnu- stofu Kjarvals. Auk mín standa Hálfdán Steinþórsson einn eigenda Vinnustofu Kjarvals, Jón Gunnar Geirdal hugmyndasmiður og Svan- hildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir að verkefninu. Á Vinnustofu Kjar- vals blasti Dómkirkjan og Alþing- ishúsið við og upp spratt umræða um hlutverk þingsins, réttindabar- áttu okkar sem þjóðar og hvort við gætum sinnt betur okkar sam- félagslegu skyldum. Úr varð stofn- un velgjörðarfélags, sem hefur það hlutverk að styðja og hvetja til góðra verka og velferðar. Við trú- um staðfastlega á styrk heildar- innar og að samfélög séu sterkari þegar hæfileikar allra eru nýttir. Hugmyndin að Gefðu fimmu hrey- fiáskorun kviknaði þegar við sáum Covid-spálíkanið hans Thor Aspel- und myndrænt. Það sýndi svo skýrt hvernig óheftur veldisvöxtur getur breytt fljótt úr sér og kvikn- aði hugmyndin að nýta þennan sama veldisvöxt í jákvæðara sam- hengi og nýta virkni hans til að safna. Við lifðum við mjög þröngar fjöldatakmarkanir sem breyttust stöðugt og mikla óvissu um fram- tíðina en Gefðu fimmu er fram- kvæmanleg hvort sem 5 eða 500 mega hittast,“ segir Helga og segir að stefnan sé að veggfóðra sam- félagsmiðla með áskorunum, stemningu og keppni milli ein- staklinga og fyrirtækja. Gefðu fimmu er fyrsta söfnun 1881 velgjörðarfélags og hefst formlega í dag. „Með styrk og stuðningi bak- hjarla sem greiða fyrir fram- kvæmdina er tryggt að hver ein- asta króna sem safnast fer óskert í Fjársjóð barna. Sjóðnum er ætlað að styrkja verkefni sem stuðla að aukinni velsæld, velferð og ham- ingju barna og hlaut hann heitið Fjársjóður barna vegna þeirrar augljósu staðreyndar að aukinni farsæld barna fylgir jafnframt gríð- arlegur fjárhagslegur ávinningur fyrir okkur sem samfélag,“ segir Helga. Hvernig fer átakið fram? „Allar upplýsingar um fyrir- komulagið er að finna á heimasíð- unni gefdufimmu.is, þar sem þú lof- ar sjálfum þér að hreyfa þig, ýmist labba, hlaupa eða hjóla, hversu langt þú ætlar og tilgreinir styrkt- arupphæðina. Síðan sendir þú áskorun á samfélagsmiðlum á fimm vini þína um að gera slíkt hið sama. Fyrir þátttökuna færð þú einnig viðurkenningu til að deila á sam- félagsmiðlum og góða samvisku, fyrir að leggja góðu máli lið,“ segir hún. Hvað ætlar þú sjálf að gera til að gefa fimmu? „Góð spurning! Ég er löngu búin að ákveða hverjir fá áskorun frá mér en ég var ekki búin að ákveða hvaða hreyfingu ég vel fyrir sjálfa mig. Eigum við ekki að ákveða hér og nú að ég hlaupi 5 km og gefi 50.000 kr.“ Heldur þú að veiran hafi haft meiri áhrif á fólk en við sem sam- félag gerum okkur grein fyrir? „Ég er ekki í neinum vafa um að kórónuveirutímabilið hafi haft mikil áhrif á líf allra. UNICEF á Íslandi gaf út skýrslu fyrir stuttu þar sem sérstaklega er fjallað um skort barna á Íslandi á tómstundastarfi miðað við önnur Evrópuríki. Börn og ungmenni eru fjársjóðurinn okk- ar og framtíðin, það er okkar allra að styrkja stoðir samfélagsins til að stuðla að auknum jöfnuði og tæki- færum fyrir börn.“ Hvað er markmiðið að safna miklum peningum? „Okkar markmið er að safna góðri átta stafa tölu fyrir Rjóðrið og ég hvet að sjálfsögðu alla til að taka þátt. Rjóðrið gegnir gríðar- lega mikilvægu hlutverki í lífi fjöl- skyldna langveikra barna. Kórónu- veiran hefur haft mikil áhrif á starfsemi Rjóðursins sem hefur þurft að loka allri starfsemi á tíma- bili. Þrátt fyrir erfiða mánuði ríkir mikil jákvæðni og dugur hjá starfs- fólki og börnunum sem þar dvelja og okkar von er að geta veitt þeim veglegan fjárhagslegan stuðning. Markmið Fjársjóðs barna er einnig að styrkja fleiri verkefni í framtíð- inni og er það trú okkar og von að landsmenn taki vel í framtakið og geri þátttökuna að léttum og skemmtilegum leik í leiðinni.“ Ætla að vegg- fóðra sam- félagsmiðla með velgjörðum Gefðu fimmu er skemmtilegt hreyfi- og fjáröflunar- átak þar sem þátttakendur geta gert sjálfum sér og öðrum gott, gefið til góðs málefnis og skorað á vini, fjölskyldu og samstarfsfélaga að gera slíkt hið sama. 1881 velgjörðarfélag stendur fyrir átakinu en framkvæmdastjóri þess er Helga Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gefðu fimmu Helga Ólafsdóttir framkvæmdastjóri 1881 býst við að safna miklum peningum. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.