Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
Marta María
mm@mbl.is
„Það var vorið 2020, þegar heims-
faraldur hafði nánast lamað allt
samfélagið, að leiðir okkar fjór-
menninganna lágu saman á Vinnu-
stofu Kjarvals. Auk mín standa
Hálfdán Steinþórsson einn eigenda
Vinnustofu Kjarvals, Jón Gunnar
Geirdal hugmyndasmiður og Svan-
hildur Nanna Vigfúsdóttir fjárfestir
að verkefninu. Á Vinnustofu Kjar-
vals blasti Dómkirkjan og Alþing-
ishúsið við og upp spratt umræða
um hlutverk þingsins, réttindabar-
áttu okkar sem þjóðar og hvort við
gætum sinnt betur okkar sam-
félagslegu skyldum. Úr varð stofn-
un velgjörðarfélags, sem hefur það
hlutverk að styðja og hvetja til
góðra verka og velferðar. Við trú-
um staðfastlega á styrk heildar-
innar og að samfélög séu sterkari
þegar hæfileikar allra eru nýttir.
Hugmyndin að Gefðu fimmu hrey-
fiáskorun kviknaði þegar við sáum
Covid-spálíkanið hans Thor Aspel-
und myndrænt. Það sýndi svo
skýrt hvernig óheftur veldisvöxtur
getur breytt fljótt úr sér og kvikn-
aði hugmyndin að nýta þennan
sama veldisvöxt í jákvæðara sam-
hengi og nýta virkni hans til að
safna. Við lifðum við mjög þröngar
fjöldatakmarkanir sem breyttust
stöðugt og mikla óvissu um fram-
tíðina en Gefðu fimmu er fram-
kvæmanleg hvort sem 5 eða 500
mega hittast,“ segir Helga og segir
að stefnan sé að veggfóðra sam-
félagsmiðla með áskorunum,
stemningu og keppni milli ein-
staklinga og fyrirtækja.
Gefðu fimmu er fyrsta söfnun
1881 velgjörðarfélags og hefst
formlega í dag.
„Með styrk og stuðningi bak-
hjarla sem greiða fyrir fram-
kvæmdina er tryggt að hver ein-
asta króna sem safnast fer óskert í
Fjársjóð barna. Sjóðnum er ætlað
að styrkja verkefni sem stuðla að
aukinni velsæld, velferð og ham-
ingju barna og hlaut hann heitið
Fjársjóður barna vegna þeirrar
augljósu staðreyndar að aukinni
farsæld barna fylgir jafnframt gríð-
arlegur fjárhagslegur ávinningur
fyrir okkur sem samfélag,“ segir
Helga.
Hvernig fer átakið fram?
„Allar upplýsingar um fyrir-
komulagið er að finna á heimasíð-
unni gefdufimmu.is, þar sem þú lof-
ar sjálfum þér að hreyfa þig, ýmist
labba, hlaupa eða hjóla, hversu
langt þú ætlar og tilgreinir styrkt-
arupphæðina. Síðan sendir þú
áskorun á samfélagsmiðlum á fimm
vini þína um að gera slíkt hið sama.
Fyrir þátttökuna færð þú einnig
viðurkenningu til að deila á sam-
félagsmiðlum og góða samvisku,
fyrir að leggja góðu máli lið,“ segir
hún.
Hvað ætlar þú sjálf að gera til að
gefa fimmu?
„Góð spurning! Ég er löngu búin
að ákveða hverjir fá áskorun frá
mér en ég var ekki búin að ákveða
hvaða hreyfingu ég vel fyrir sjálfa
mig. Eigum við ekki að ákveða hér
og nú að ég hlaupi 5 km og gefi
50.000 kr.“
Heldur þú að veiran hafi haft
meiri áhrif á fólk en við sem sam-
félag gerum okkur grein fyrir?
„Ég er ekki í neinum vafa um að
kórónuveirutímabilið hafi haft mikil
áhrif á líf allra. UNICEF á Íslandi
gaf út skýrslu fyrir stuttu þar sem
sérstaklega er fjallað um skort
barna á Íslandi á tómstundastarfi
miðað við önnur Evrópuríki. Börn
og ungmenni eru fjársjóðurinn okk-
ar og framtíðin, það er okkar allra
að styrkja stoðir samfélagsins til að
stuðla að auknum jöfnuði og tæki-
færum fyrir börn.“
Hvað er markmiðið að safna
miklum peningum?
„Okkar markmið er að safna
góðri átta stafa tölu fyrir Rjóðrið
og ég hvet að sjálfsögðu alla til að
taka þátt. Rjóðrið gegnir gríðar-
lega mikilvægu hlutverki í lífi fjöl-
skyldna langveikra barna. Kórónu-
veiran hefur haft mikil áhrif á
starfsemi Rjóðursins sem hefur
þurft að loka allri starfsemi á tíma-
bili. Þrátt fyrir erfiða mánuði ríkir
mikil jákvæðni og dugur hjá starfs-
fólki og börnunum sem þar dvelja
og okkar von er að geta veitt þeim
veglegan fjárhagslegan stuðning.
Markmið Fjársjóðs barna er einnig
að styrkja fleiri verkefni í framtíð-
inni og er það trú okkar og von að
landsmenn taki vel í framtakið og
geri þátttökuna að léttum og
skemmtilegum leik í leiðinni.“
Ætla að vegg-
fóðra sam-
félagsmiðla
með velgjörðum
Gefðu fimmu er skemmtilegt hreyfi- og fjáröflunar-
átak þar sem þátttakendur geta gert sjálfum sér og
öðrum gott, gefið til góðs málefnis og skorað á vini,
fjölskyldu og samstarfsfélaga að gera slíkt hið
sama. 1881 velgjörðarfélag stendur fyrir átakinu en
framkvæmdastjóri þess er Helga Ólafsdóttir.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gefðu fimmu Helga Ólafsdóttir
framkvæmdastjóri 1881 býst við að
safna miklum peningum.
Atvinna