Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 62
62 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 ✝ Carl Jóhann Lilliendahl klæðskerameistari fæddist á Siglufirði 5. október 1946. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar á hjartadeild Land- spítala – háskóla- sjúkrahúss við Hringbraut, 30. maí 2021. Carl var sonur hjónanna Al- freðs Lilliendahl, loftskeyta- manns og ritsímavarðstjóra, f. á Vopnafirði 1909, d. 1969, og Ingunnar Katrínar Steingríms- dóttur húsfreyju, f. á Ísafirði 1914, d. 1961. Carl kvæntist Sigrúnu Árna- dóttur og eignuðust þau þrjá syni: Alfreð Örn, f. 1967, Árna Halldór, f. 1968, og Karl Rúnar, f. 1972. Carl og Sigrún skildu. Alfreð er kvænt- ur Evu Björk Karls- dóttur, f. 1967. Syn- ir þeirra eru Sindri Snær, f. 1995, og Aron Máni, f. 1999. Árni Halldór er í sambúð með Bel- indu Kristins- dóttur, f. 1974. Börn Árna frá fyrra hjónabandi eru Elva Rut, f. 1992, Sara Eir, f. 1994, og Eiður Smári, f. 1998. Karl Rúnar er kvæntur Eddu Jónsdóttur, f. 1975. Saman eiga þau Lúkas, f. 2006, og Leu Car- olinu, f. 2012. Eftirlifandi eiginkona Carls er Íris Lilliendahl, f. 1953. Carl verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 13. Tengdafaðir minn Carl Jóhann hefur kvatt þessa jarðvist á 75. aldursári eftir langvinn veikindi. Hann var einstakur persónuleiki sem var margt til lista lagt þrátt fyrir að vera bæði hæglátur og hógvær. Ég kunni vel við hann frá fyrstu kynnum. Hann tók fólki eins og það var og sýndi mér ávallt nærgætni í samskiptum. Þrátt fyrir að hann væri gjarnan fámáll hafði ég gaman af því að ná honum á gott spjall. Þá gátu samtölin orðið bæði löng og djúp. Hann var fróðleiksfús og forvit- inn um lífið. Einstaklega listrænn og nákvæmur með eindæmum. Ég minnist hans með þakklæti fyrir góða samfylgd. Minningin um góðan mann lifir áfram í hjörtum okkar fjölskyldunnar. Edda Jónsdóttir. Carl Jóhann Lilliendahl ✝ Marías Haf- steinn Guð- mundsson fæddist í Hafnarfirði 7. ágúst 1958. Hann lést í Reykjavík 31. maí 2021. Hann var sonur hjónanna Guðrúnar Axels- dóttur, fædd 27.1. 1931, dáin 5.1. 2017 og Guðmundar Maríassonar, fædd- ur 24.3. 1935, dáinn 17.4. 1972. Systkini Maríasar eru: Marta Sigríður Kristjánsdóttir, Salóme Berglind Guðmundsdóttir, Axel Guðmundsson og Ólöf Guð- mundsdóttir. ur Ása Maríasdóttir, fædd 19.10. 1994, sambýlismaður hennar er Ingvar Birgisson, fæddur 27.4. 1994. Þeirra börn eru: Ýmir Rafn, fæddur 2.8. 2019 og Björgvin Mói, fæddur 15.5. 2021. Marías lauk grunnskólanámi og síðan námi í Stýrimanna- skóla Íslands, þaðan sem hann lauk skipstjórnarprófi 1979. Sveinspróf í málaraiðn 1989 og meistararéttindi í sömu grein 2004. Hann var stýrimaður frá 1981 til 1985. Vann hjá Múr og mál 1987-1994. Viðhaldsdeild Landspítalans 1994-2000. Rak fyrirtækið Málar ehf. ásamt Baldvin Má Frederiksen frá 2000-2006. Þá hóf hann störf hjá Byggingafélagi námsmanna og var þar umsjónarmaður fast- eigna til dauðadags. Útför Maríasar fer fram frá Neskirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 13. Eiginkona hans er Halla Magnús- dóttir, fædd 10.2. 1959. Börn þeirra eru: Marta Marías- dóttir, fædd 18.6. 1981, dáin 6.9. 1982. Jakob Marí- asson, fæddur 3.10. 1984, sambýliskona hans er Arléne Lu- cianaz, fædd 23.12. 1990. Guðrún Ósk Maríasdóttir, fædd 12.3. 1989, hennar maki er Árni Björn Kristjánsson, fæddur 1.12. 1987. Þeirra börn eru Halldóra María, fædd 29.5. 2013 og Arnaldur Smári, fæddur 30.7. 2020. Auð- Látinn er í Reykjavík Marías Hafsteinn Guðmundsson, elsku- legur mágur, vinur og þúsund- þjalasmiður. Engin orð fá betur lýst þeim harmi, sem að systur minni og fjölskyldu steðjar, en ljóð W.H. Auden í þýðingu Þorsteins Gylfasonar: Stoppi hver klukka! Klippið símavír! Og kastið beini í seppa. Hann er hávært dýr. Píanó þagni! Deyfðan trumdyn! Sjá hér er kistan. Syrgið látinn vin. Lát flugvélar emja yfir land og sjó. Skrifa á loftin skýjastöfum að hann dó. Klæð hvítar dúfur svörtu af harmi eftir hann. Svarta hanska látið á hvern lögreglu- mann. Norður, suður, austur, vestur var hann mér. Mín vinnuvika, sunnudagur hver. Mín nótt, minn dagur með líf með leik. Ég leit á ást sem væri hún eilíf. Ég óð reyk. Já hver þarf nú stjörnur? Lát myrkvast himins hjól, pakkið saman tunglinu, hlutið sundur sól. Sturtið niður sjónum og sópið trjám burt. Um svona hluti verður aldrei framar spurt. Við kölluðum hann Massa, hann var Massi mágur eða Massi málari. Hann var líka eiginmaður, faðir og afi. Hann var kletturinn okkar, sá sem fyrstur bauð sig fram þegar við þurftum á hjálp að halda. Massi átti ekki auðvelda æsku og snemma tók hann ábyrgð á sér og systkinum sínum. Hann fór ungur til sjós. Leigði sér herbergi úti í bæ og sá um sig sjálfur. Massi og systir mín kynntust í sveitinni börn að aldri, urðu trúnaðarvinir, síðar hjón. Þau áttu að baki far- sælt hjónaband í 41 ár. Massa féll sjaldan verk úr hendi. Heimili hans og Höllu ber handbragði hans fagurt vitni. Þar naut hann sín best enda mikill fjöl- skyldumaður og gestgjafi. Gjaf- mildi hans og greiðasemi var ein- stök og oft vildi hann gauka að manni nesti þegar heim var haldið úr góðri veislu. Massi undi sér vel utan dyra og kunni að nýta sér það, sem landið hefur upp á að bjóða. Hann naut þess að veiða og að fara í göngur og útilegur. Það var alltaf mikill léttir að hafa Höllu og Massa með í för þegar farið var í fjölskyldu- ferðir. Þau voru alltaf með allt til alls og meira til! Oftast var veiði- stöngin meðferðis og rennt fyrir silung, og hvað smakkast betur í íslenskri náttúru en nýveiddur sil- ungur? Í Vogi á Mýrum eiga íslenskir iðnaðarmenn sér unaðsreit og þangað fór fjölskyldan oft á haust- in og aflaði fanga til vetrarins. Massi var mikill berjakarl og tíndi ber sem hann sultaði og saftaði. Krækiberjasaft taldi hann allra meina bót og fékk sér gjarnan sopa af saftinni í morgunsárið. Hann aflaði sér fróðleiks um ís- lenskar jurtir, safnaði þeim og þurrkaði og sauð af te. Hann átti sérstaka blöndu af orkute sem hann skenkti fólkinu sínu ef krankleikar herjuðu á það. Massi gaf sér ávallt tíma fyrir börnin í fjölskyldunni, byggði með þeim sandkastala, hnýtti töfra- hnúta og tók þau í kleinu. Nú kveð ég þig, elsku Massi, takk fyrir allt. Hjálp við að flytja, mála, gera og græja, pítsukvöldin og veislurnar. Þú varst einstakur maður sem frábært var að eiga að. Elsku Halla og fjölskylda, mín- ar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Halldóra Magnúsdóttir. Þegar ég fékk þau válegu og döpru tíðindi að frændi minn, Marías, væri dáinn ætlaði ég ekki að meðtaka það. Að endingu skildi ég það óumflýjanlega að Massi væri látinn, svo skyndilega. Í huga mínum birtust myndir af honum frænda mínum í leik og starfi en við vorum systrasynir og töluverð samskipti á milli fjölskyldnanna. Hann fullorðnaðist fljótt en hann varð stoð og stytta mömmu sinnar sem var sjómannskona og var pabbi hans oft víðsfjarri heimilinu, en hann lést um aldur fram þegar Massi var ungur drengur. Massi var elstur fjögurra alsystkina. Við þekktum hann sem ábyrgðafullan og góðan mann. Hann var mikill útilífsmaður, náttúruunnandi, veiðimaður og „sjóari“, en hann átti bátinn Hornið sem hann fór til fiskjar á og margir vinir og ætt- ingjar voru sjálfskipaðir hásetar hjá honum. Massi var alla tíð mjög iðinn, duglegur, nákvæmur og skipulagður og má segja ham- hleypa til vinnu. En umfram allt var hann mikill fjölskyldumaður. Hann var hamingjusamlega kvæntur henni Höllu sinni og áttu þau þrjú mannvænleg börn og þrjú barnabörn og tvö á leiðinni. Með miklum söknuði kveðjum við fjölskyldan góðan dreng og góðan frænda og sendum Höllu, börnum þeirra og fjölskyldunni allri samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Maríasar Hafsteins Guðmundssonar. Axel Eiríksson og Stefanía V. Sigurjónsdóttir. Kveðja frá samstarfsfólki Þegar ég var ráðinn árið 2009 til að stýra Byggingafélagi náms- manna höfðu mikil mannaskipti átt sér stað mánuðina þar á undan og aðeins örfáir starfsmenn voru eftir sem einhverja reynslu höfðu af starfsemi félagsins. Marías Hafsteinn Guðmundsson var einn þeirra reynslumiklu en hann hafði komið til starfa hjá Bygginga- félaginu sem launamaður á árinu 2006 en hafði nokkur ár þar á und- an unnið fyrir félagið sem sjálf- stætt starfandi málaraverktaki. Strax á fyrstu dögum kom í ljós að Marías hafði góða yfirsýn yfir verkefni félagsins, hafði sterkar skoðanir á verklagi og vinnu- brögðum og vildi leggja sitt af mörkum til að gera starfsemina skilvirka og áhrifaríka. Hann var góður samherji og gaf mér sem nýjum starfsmanni og stjórnanda ráð og lagði fram tillögur sem gott var að leita í. Marías var vinnusamur, kapp- samur og dugmikill í öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Ávallt fyrstur til að bregðast við og bauð fram aðstoð og stuðning í hverju því sem við samstarfsmenn hans stóðum frammi fyrir. Hann réðst á hvert það verkefni sem fyrir lá, óhikað og skilaði því fullkláruðu, oft löngu áður en aðrir sáu fyrir að þörf væri á viðbrögðum. Stundum hafði hann gengið með snjóblás- arann yfir alla göngustíga á lóðum félagsins þrátt fyrir að snjómagn í borginni gæfi vart tilefni til slíkra viðbragða. Hann vildi bara tryggja að allir kæmust ferða sinna og öruggt væri að íbúar væru ekki ósáttir við þjónustu fé- lagsins. Marías var alþýðumaður, áhugasamur um samfélagsmál og vildi hag launþega sem mestan. Hann hafði til margra ára barist fyrir kjaramálum launamanna og hagsmunamálum málarastéttar- innar. Þegar hann rak sitt eigið fyrirtæki hafði hann oft og tíðum hag og hagsmuni starfsmanna sinna fremur í huga en hagsmuni fyrirtækisins og sína eigin. Hann var náttúrusinni, hafði gaman af veiðum og vildi að aðrir upplifðu og nytu þess frelsis sem fólst í að sigla út á sjó til að renna fyrir fisk eða skjóta fugl. Hann var vinstri maður af gamla skólanum, vildi tryggja öllum vinnu og skildi vel samhengi á milli velgengni vinnu- veitenda og launþega. Samfélagsleg ábyrgð var Mar- íasi ofarlega í huga og vildi hann að þau gildi kæmu fram bæði hjá fyrirtækinu sem og okkur öllum sem einstaklingum. Hann var blóðgjafi og hafði farið oftar en 150 sinnum þeirra erinda til Blóð- bankans eða reglulega í yfir 35 ár. Hann lagði enn fremur þær áherslur á okkur samstarfsmenn sína og hvatti okkur fram á síðasta dag til þess að leggja okkar af mörkum. Í lok dags kveðjum við góðan samstarfsmann og vin sem var framar okkur flestum af krafti og dugnaði, hjálpsamur, greiðvikinn og viljugur. Fyrir hönd samstarfs- manna hans hjá Byggingafélagi námsmanna færi ég honum þakk- ir fyrir gott samstarf og góðar stundir. Höllu, börnum hans og barnabörnum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur og biðjum góðan Guð að styrkja þau í sorg sinni. F.h. samstarfsmanna, Böðvar Jónsson. Marías Hafsteinn Guðmundsson - Fleiri minningargreinar um Marías Hafstein Guð- mundsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástvinir þakka auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, HARÐAR AGNARS KRISTJÁNSSONAR húsasmíðameistara. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahjúkrunar í Kópavogi, deildar 7b á Landspítalanum í Fossvogi og líknardeildar Landspítalans í Kópavogi fyrir einstaklega góða þjónustu og hlýhug. Sigríður Birna Lárusdóttir Bjarni Lárus Harðarson Nína Vilborg Hauksdóttir Kristján Þór Harðarson Geirlaug B. Geirlaugsdóttir og barnabörn Óli Pétur Útfararstjóri s. 892 8947 Hinrik Valsson Útfararstjóri s. 760 2300 Dalsbyggð 15, Garðabæ Sími 551 3485 osvaldutfor@gmail.com Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA SIGJÓNSDÓTTIR, lést laugardaginn 5. júní á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði, Hornafirði. Hún verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 12. júní klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunaheimilið Skjólgarð. Guðni Karlsson Hrefna H. Guðnadóttir Heimir Þór Gíslason Karl Ágúst Guðnason Kristín Gyða Ármannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og jarðarfarar ÓLAFS ARNAR ARNARSONAR læknis. Einnig bestu þakkir til starfsfólks LSH, Vífilsstaða og Sóltúns fyrir góða umönnun. Guðrún K. Ólafsdóttir Sverrir Ólafsson Ingibjörg Hauksdóttir Katrín Ólafsdóttir Ole Aaboe Jörgensen barnabörn og barnabarnabörn Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför JÓNÍNU K. MICHAELSDÓTTUR, rithöfundar og blaðamanns. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Landakots. Sigþór J. Sigurðsson börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, GÍSLI BJÖRGVINSSON, Fljótaseli 14, lést á Landspítala Hringbraut fimmtudaginn 3. júní. Útförin fer fram frá Seljakirkju mánudaginn 14. júní klukkan 13. Erna Martinsdóttir Jón Pétur Gíslason Ólöf Erna Gísladóttir Sindri Sigurður Jónsson Okkar elsku besti Soffi, KRISTINN SOFFANÍAS RÚNARSSON, er látinn. Útför verður auglýst síðar. Kristín Soffaníasdóttir Rúnar Sigtryggur Magnússon Rut Rúnarsdóttir Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson Leon Logi Hafsteinsson Hulda Vilmundardóttir Aimée Zeinab Diallo
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.