Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 63

Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 63
MINNINGAR 63 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 ✝ Karlotta Birg- itta Aðalsteins- dóttir fæddist á Ytri-Másstöðum í Skíðadal, Svarf- aðardalshreppi, 11. ágúst 1949. Hún lést á Landspít- alanum Fossvogi 1. júní 2021. Foreldar hennar voru hjónin Aðal- steinn Sveinbjörn Óskarsson verslunarmaður á Dalvík, f. 16.8. 1916, d. 13.2. 1999, og Sigurlaug Jóhanns- dóttir, húsfreyja og saumakona, f. 3.6. 1918, d. 4.7. 1975. Systur Karlottu eru Ásta Ingimaría, f. 20.7. 1941, d. 12.5. 1994, og Snjólaug Ósk, f. 7.7. 1946. Uppeldissystir Karlottu er Eva Pétursdóttir, f. 5.11. 1934. Karlotta giftist Lárusi Pétri Ragnarssyni 3. júní 1972. For- eldrar hans voru hjónin Ragnar Jóhann Lárusson, verkstjóri hjá Kópavogsbæ, f. 5.7. 1924, d. 7.4. 2017, Ann-Sofie Egholm. Börn Ragnars af fyrra hjónabandi, Sander Ragnarsson, f. 2002, Tarjei Ragnarsson, f. 2004, Lár- us Ragnarsson, f. 2004. Barn Ann-Sofie er Ann-Cecilie Eg- holm. Karlotta lauk landsprófi frá Dalvíkurskóla 1965 og síðar stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1969. Kar- lotta var við nám og störf hjá Endurskoðunarskrifstofu N. Manscher og Co. í Reykjavík ár- in 1970-1975 og lauk löggilding- arprófi í endurskoðun 1976. Hún starfaði sjálfstætt á Akur- eyri 1976-1980 en síðar hjá End- urskoðunarskrifstofu Þorkels Skúlasonar í Kópavogi 1980- 1982 og endurskoðunarskrif- stofunni Hyggi sf. í Hafnarfirði frá 1982 til 1993. Karlotta sat jafnframt í stjórn Félags lög- giltra endurskoðenda árin 1990- 1992. Karlotta starfaði sem skrifstofustjóri hjá Lyfjadreif- ingu (síðar Parlogis) 1994-2003, sem skrifstofustjóri hjá Ljós- virki hf. 2004-2008 og sem lög- giltur endurskoðandi hjá Ríkis- endurskoðun 2009-2017. Útför Karlottu fer fram frá Digraneskirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 13. 2016, og Elín Jóns- dóttir húsfreyja, f. 28.3. 1926, d. 7.11. 2013. Systur hans eru Sigrún Karól- ína Ragnarsdóttir, f. 1.11. 1950, Hall- dóra Björg Ragn- arsdóttir, f. 13.11. 1954, og Ásdís Lilja Ragnarsdóttir, f. 28.1. 1963. Börn Karlottu og Lárusar eru: 1) Sigurbjörn Birk- ir Lárusson, f. 17.12. 1976, sam- býliskona Brynhildur Magn- úsdóttir, f. 27.9. 1978. Börn þeirra, Kristmann, f. 2015, Ón- arr, f. 2016, Sigarr, f. 2018. 2) Jón Bjartmar Lárusson, f. 6.12. 1984, maki (skildu) Ingibjörg Sunna Þrastardóttir, f. 29.5. 1986. Börn þeirra, Ingibjörg Andrea, f. 2006, og Karl Birgir, f. 2012. Barn Lárusar af fyrra hjóna- bandi er Ragnar Jóhann Lár- usson, f. 20.4. 1970, maki, f. 4.2. Það er erfitt að kveðja tengdamóður mína Karlottu, þessa góðu konu sem var alltaf boðin og búin að rétta fram hjálparhönd. Mig langar að deila nokkrum kærum minningum um hana. Stuttu eftir að við Sibbi kynntumst viðurkenndi ég fyrir henni að ég hefði ekki bakað pönnukökur síðan í matreiðslu- tímum í grunnskóla og að við Sibbi ættum ekki einu sinni pönnukökupönnu. Hún var fljót að kippa því í liðinn og færði okkur eina slíka og tók virkan þátt í að aðstoða við að baka hana til. Pönnukökuuppskriftin hennar Karlottu var hennar fjöl- skylduuppskrift og dreifðist fljótt um mína fjölskyldu sem besta pönnukökuuppskriftin. Hún naut þess að vera í góðum félagsskap og á tímabili bauð ég mjög oft á heimakynningar sem afsökun til að hafa almennilegt kökuboð. Það var því eiginlega alveg sama hvaða kynningu mér datt í hug að bjóða henni á, alltaf mætti hún, enda sammála því að þetta var hin besta afsökun til að hafa köku- og kaffiboð. Þá var mikið spjallað, hlegið, borðað og notið. Karlotta var fædd í Skíðadal og fórum við Sibbi eitt haust með henni í langa helgarferð þangað að tína ber. Þetta var yndisleg ferð á þessum fallega stað. Þegar við sátum þar og hlustuðum á frásagnir hennar af uppvaxtarárunum fann ég henn- ar djúpu tengsl við staðinn og Birkimel, bústaðinn sem pabbi hennar smíðaði. Við Sibbi mun- um segja strákunum okkar þess- ar sögur og minnast hennar þar með þeim. Sökum Covid varð minna um samgang við hana síðastliðið ár en annars hefði verið, enda drengirnir okkar Sibba allir á leikskólaaldri og vildum við ekki eiga það á hættu að þeir og/eða við gætum borið smit. Það var oftar en ekki að strákarnir báðu um að hringja í ömmu Karlottu á leiðinni heim úr leikskólanum. Það voru á tíðum óborganleg hópsamtöl á milli þeirra þegar allir vildu komast að til að segja ömmu frá helstu tíðindum og uppákomum dagsins. Eins kom það fyrir að iPadinn hvarf og síð- an heyrðist í Karlottu inni í her- bergi, þá höfðu Kristmann og/ eða Ónarr með Sigar í eftirdragi hringt í ömmu sína til að kvarta undan foreldrunum. Alltaf hlust- aði hún þolinmóð og náði til þeirra allra á sinn einstaka hátt. Tengdamóður minni, þessari yndislegu konu, þakka ég þær stundir sem við áttum saman og kveð hana með stöku frá lang- ömmu minni Guðrúnu Magnús- dóttur. Einn er sá, sem öllum gefur óskahvíld á hinztu stund. Líknarfaðmi veika vefur, veitir sæta hvíld og blund. (Guðrún Magnúsdóttir) Brynhildur Magnúsdóttir. Báru löngum litlar dætur ljúfa gleði í huga minn. Ó hve gott var oft um nætur unga að gefa bobbann sinn. Hjalað blítt og hendi tifað hlýtt var þá við móðurbarm. Þá var gott að geta lifað gleði að sofa við þinn arm. Þannig orti Sigurlaug Jó- hannsdóttir frá Brekkukoti í Hjaltadal til dætra sinna, Ástu, Snjólaugar og Karlottu, fyrir rúmri hálfri öld. Nú þegar við kveðjum yngstu dóttur hennar, Karlottu, sem lést 1. júní síðast- liðinn, kemur þessi vísa upp í hugann. Við, Snjólaug systir hennar og fjölskylda, eigum erf- itt með að koma orðum að sökn- uði okkar og sorg. Minningar frá Ytri-Másstöðum í Skíðadal, þar sem Karlotta fæddist 11. ágúst 1949, og úr Karlsrauðatorgi 10 á Dalvík, sem Aðalsteinn faðir hennar byggði, ylja. Samveru- stundirnar sunnan og norðan heiða eru okkur nú dýrmætari en fyrr og við erum þakklát fyrir sameiginleg ferðalög og allar yndisstundirnar í og við Birki- mel í landi Kóngsstaða í Skíða- dal í gegnum árin. Sólardagarnir í dalnum í fyrra hafa fengið á sig nýjan blæ. Sumarið 2020 er nú orðið að síð- ustu dvölinni hennar Karlottu á veröndinni við Birkimel, bústað fjölskyldunnar. Hvergi þótti henni betra að vera og hlakkaði hún til að koma norður fljótlega og dvelja í bústaðnum í sumar. Karlottu var það hjartans mál að minningu hjónanna, foreldra hennar, Aðalsteins Óskarssonar frá Kóngsstöðum í Skíðadal og Sigurlaugar Jóhannsdóttur, væri haldið á lofti í Birkimel. Hún unni dalnum og lagði sitt af mörkum til að vel væri gengið um landið og litla sumarbústaða- byggðin bæri foreldrum hennar og fjölskyldunni allri gott vitni. Karlotta átti sér þá ósk heitasta að um ókomna tíð yrði sumar- bústaðalandið í kringum Birki- mel samverustaður afkomenda Aðalsteins og Sigurlaugar. Þá ósk berum við einnig í brjósti, nú líka í hennar minningu. Kærleiksríkt fas hennar og vinalegt viðmót er okkur efst í huga, nú þegar komið er að kveðjustund. Því er erfitt að kyngja að það sé liðin tíð að Kar- lotta svari með sinni rólegu rödd í símann. Það var alltaf gott að tala við Karlottu, hún sagði alltaf allt gott og kvartaði ekki þótt á móti blési. Umræðuefnin voru ýmisleg og þótti okkur gott að heyra hvað Karlotta hafði til málanna að leggja, auk þess sem hún tók sér tíma til að hlusta á viðmælendur sína. Og það er örugg óskin mín að öll við komumst heim til þín þá yfirgefum ævisvið og annað tekur við. Við saman munum sitja þá, í sætleik vinum una hjá, Ó, dalur góði, gleymdu ei mér ég gleymi aldrei þér. (Aðalsteinn Óskarsson) Við vottum Lárusi, eftirlifandi eiginmanni hennar, og fjölskyld- unni allri okkar dýpstu samúð. Drottinn blessi minninguna um Karlottu. Snjólaug og Þorsteinn, Pétur og Regína, Að- alsteinn og Cornelía, Jó- hann og Hanna og fjölskyldur. Karlotta Birgitta Aðalsteinsdóttir - Fleiri minningargreinar um Karlottu Birgittu Aðal- steinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ágúst Magnús Waltersson fæddist í Reykjavík 9. mars 1950. Hann lést á Umdæmis- sjúkrahúsi Austur- lands 31. maí 2021. Foreldrar hans voru Anna Sigríður Albertsdóttir, f. 16.5. 1920, d. 22.11. 1997, og Walter Theódór Ágústs- son, f. 7.10. 1926, d. 6.2. 1952. Systkini Ágústs eru Jónína El- ísabet Waltersdóttir, f. 18.11. 1947, og Walter Tryggvason, f. 31.7. 1956. Eftirlifandi eiginkona Ágústs er Jóhanna Fjóla Kristjáns- dóttir. Þeirra börn eru: 1) Valdís Theódóra og sonur hennar er Vilmar Ágúst. 2) Ágúst Jóhann. Eldri dóttir Jóhönnu er Vera Kristborg Stefánsdóttir. Hennar sambýlismaður er Jón Atli Her- mannsson og eiga þau soninn Valtý Frey. Fyrri kona Ágústs er Lilja Þórarinsdóttir. Börn þeirra eru 1) Tryggvi Þór og sambýliskona hans er Vera Björk Ísaksdóttir. Sonur þeirra er Hólmar Kári. sinni fyrri konu í Skagafjörð þar sem hann keypti sína fyrstu traktorsgröfu og má segja að það hafi verið upphafið að löngum starfsferli hans í ýmiss konar véla- og verktakavinnu. Fljótlega eftir að norður var komið gekk hann til liðs við hér- aðslögregluna í Skagafirði og starfaði þar um árabil meðfram annarri vinnu. Á tímabili ráku þau hjónin ýmis fyrirtæki á Sauðárkróki, s.s. efnalaug og tískuverslunina Spörtu. En hug- urinn leitaði í sveitina og fjöl- skyldan flutti í Þúfur í Hofs- hreppi og stundaði þar búskap næstu árin. Um margra ára bil sá sendi- bílafyrirtæki Ágústs um alla flutninga fyrir Þvottahús rík- isspítalanna en síðar fluttist hann ásamt seinni konu sinni Jó- hönnu á hennar æskuslóðir, að Stóra-Sandfelli 2 í Skriðdal á Fljótsdalshéraði. Þar hafa þau hjónin ásamt börnum sínum byggt upp ferðaþjónustukjarna sem samanstendur af smáhýsa- gistingu, tjaldsvæði og hesta- leigu. Útför Ágústs fer fram frá Egilsstaðakirkju í dag, 10. júní 2021, klukkan 14 og verður at- höfninni streymt þaðan. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/4mt9kdtp/. Einnig má nálgast virkan hlekk á: https://www.mbl.is/andlat/. Fyrir átti Tryggvi dótturina Rakel Lilju og Vera dæt- urnar Rakel Maríu og Rebekku Ýri. Barnabörn Tryggva og Veru eru Barði Rafn, Bergur Kári og Birna María. 2) Anna María og sambýlismaður hennar er Vil- hjálmur Árni Ingibergsson. Dætur þeirra eru Helen María, Lilja María og Bryndís María. 3) Elísabet Ósk og hennar sam- býlismaður er Sigmundur Helgi Brink. Þeirra börn eru Eldey María og Hrafntýr Leó. Einnig á Ágúst soninn Óskar. Móðir hans er Birna Óskars- dóttir. Börn Óskars eru Einar Ingi og Birna María. Ágúst sinnti margvíslegum störfum á sinni lífsleið. Sem ungur drengur var hann t.d. að bera út blöð og moka hesthúsin í Fáki og síðar þegar bílprófið var komið í hús vann hann m.a. í nokkur ár sem sendi- og leigu- bílstjóri í Reykjavík. 24 ára gamall flutti hann ásamt Lilju Elsku pabbi minn, mikið er nú sárt að kveðja þig. Við vorum svo heppin að eignast hvort annað þegar ég var þriggja ára. Við grínuðumst oft með að við mamma hefðum farið á lög- reglustöðina í Reykjavík og „kaupt“ þig. Betri kaup hef ég aldrei gert og aldrei gerðir þú upp á milli mín og systkina minna. Málin fyrir okkur voru einföld, ég var dóttir þín og þú varst pabbi minn. Ég dáðist að þér hvernig þú settir okkur fjöl- skylduna alltaf í fyrsta sætið. Takk fyrir allar góðu stund- irnar okkar. Takk fyrir að hafa alltaf passað upp á að mér fynd- ist ég örugg og elskuð. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér, þú varst óþrjótandi visku- brunnur sem ég gat alltaf leitað í. Takk fyrir að trúa á mig og hvetja mig áfram. Takk fyrir að hafa valið að vera pabbi minn. Elska þig alltaf. Þín dóttir, Vera. Elsku hjartans pabbi minn. Það er svo súrealískt að skrifa þetta. Frá því ég var virkilega ung hefur það verið minn helsti ótti að missa foreldra mína, öryggið mitt, staðfestuna mína og klett- inn. Það er einmitt það sem pabbi var fyrir mér. Hjá honum var ég alltaf örugg og elskuð. Ég gat sagt pabba allt, ver- andi fullviss um að ég yrði ekki dæmd heldur fengi ég ráð eða, í versta falli, myndi hann gera óspart grín að mér þegar ég léti út úr mér einhverja vitleysu. Við höfðum okkar eigin húm- or og gátum hlegið endalaust saman. Pabbi var hins vegar líka manneskjan sem gat gert mig alveg vitlausa. Þannig var okkar samband að mörgu leyti, við hlógum og við rifumst. Sama hvernig á stóð, vissi ég samt alltaf hversu mikið hann elskaði mig og ég elskaði hann. Við fórum aldrei að sofa án þess að segja það og ég mun halda áfram að segja pabba að ég elski hann, áður en ég fer að sofa á hverju kvöldi, þar til við hittumst aftur. Ég er svo óendanlega þakklát fyrir hvern dag með pabba, þakklát fyrir að hann gat hitt og elskað son minn, nafna sinn og þakklát fyrir alla ástina. Pabbi, þú varst besti vinur minn, bjargið mitt og hjartað mitt. Ég mun sakna þín alla daga, þar til við verðum sam- einuð aftur. Ég og þú, í þessu lífi og næsta. Ég elska þig. Valdís Ágústsdóttir. Elsku Gústi. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja, en ég held að besta lausnin sé einfaldlega að segja takk. Takk fyrir alla væntumþykj- una, takk fyrir alla þekkinguna, allar sögurnar og samveru- stundirnar. Það er óraunveru- legt að hugsa til þess að þær verði ekki fleiri. Ég var bara smá skotta þegar við hittumst fyrst og ég ákvað að í Sandfell ætlaði ég að koma. Vorið eftir var ég mætt, og hef varla farið síðan. Í fyrsta skipti sem ég kom voru tamn- ingar í fullum gangi, og Jóka fékk eina flugferð af mörgum, þegar litli Jarpur ákvað að þetta væri komið gott og sendi hana út í móa. Þá lærði ég fyrstu regluna þegar kemur að tamn- ingum, alltaf að fara aftur á bak. Nú fyrst Jóka var úr leik þá fannst þér það augljóst að ég færi á bak. Ég man enn þá hvað ég var dauðhrædd, en þorði ekki fyrir mitt litla líf að segja frá því. Þetta var bara eitt af gríðarlega mörgu sem þið Jóka kennduð mér. Fyrir svona ofvirkt eintak eins og mig, að komast í sveitina til ykkar var alger draumur. Þar lærði ég ekki bara gríðar- lega margt, heldur eignaðist ég aðra fjölskyldu, enda kallaðir þú mig aldrei annað en dóttur þína eða fósturdóttur. Það er svo sannarlega ekki sjálfsagt og er eitthvað sem ég verð alltaf þakklát fyrir. Þið eigið stóran hlut í því hver ég er í dag. Ég hef til dæmis oft velt því fyrir mér hvernig ég endaði í lögregl- unni og aldrei fundið neina beina ástæðu. Ég held samt að þú hafir haft lúmsk áhrif á það, hvort sem ég hafi áttað mig á því eða ekki. Síðustu daga hef ég hugsað mikið um allar okkar samveru- stundir og fyrir þær er ég þakk- lát. Ég er þakklát fyrir að þú hafir kynnst Sveini Gunnari og Heiðari Helga. Um leið er ég sorgmædd að þú náir ekki að hitta strákana okkar Veru, sem eru væntanlegir á næstu vikum. Við töluðum um hvað strákarnir væru heppnir að eiga afa í sveit- inni og brosið þitt þegar þú viss- ir að ég væri ólétt, er eitthvað sem ég gleymi aldrei. Að öllum ólöstuðum var enginn spenntari en þú. En í staðinn fyrir afa í sveitinni eiga strákarnir okkar afa á himnum, sem ég veit að vakir yfir þeim alla daga og passar upp á þá eins og okkur hin. „Ég elska þig, guð passi þig,“ sagðirðu í hvert einasta skipti sem við kvöddumst, og ég geymi þau orð í hjartanu. Takk fyrir allt, fyrir mig og mína. Ég vona að ég geti gert þig stoltan áfram. Þín fósturdóttir, Guðbjörg. Elsku pabbi. Í dag kveðjum við þig með söknuð og þakklæti í hjarta. Margs er að minnast og síðustu dagar hafa minnt mann á hvað lífið getur verið hverfult: Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að Þú veist að tímans köldu fjötra eng- inn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Hvíl í friði. Þínar dætur, Anna María og Elísabet Ósk. Ágúst Magnús Waltersson Kæru ættingjar og vinir. Hjartans þakkir fyrir samúð, stuðning og hlýju við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, systur, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓNÍNU INGIMARSDÓTTUR, Flúðabakka 2, Blönduósi, sem lést 24. maí og var jarðsungin frá Blönduóskirkju laugardaginn 5. júní. Innilegar þakkir til alls starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Blönduósi fyrir hlýhug og góða þjónustu. Karlotta Sigr. Sigurðardóttir Sverrir Valgarðsson Ingimar Sigurðsson Svetlana Björg Kostic Jóhann Sigurðsson Edda Rún Sigurðardóttir Auðunn Steinn Sigurðsson Magdalena Berglind Björnsd. Steingerður Ingimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.