Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 66
66 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021
60 ÁRA Kristján Matthíasson er
Reykvíkingur, ólst upp í Sól-
heimum og Fossvogshverfi og býr á
Álagranda. Hann lauk fiðlukenn-
araprófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík árið 1985 og stundaði
framhaldsnám við Brabants Con-
servatorium í Tilburg í Hollandi og
lauk þaðan prófi árið 1991. Hann
hefur kennt við Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar og hefur
verið fiðluleikari í Sinfóníu-
hljómsveit Íslands frá 1996. Síðustu
tónleikar starfsárs Sinfóníunnar
eru einmitt í kvöld.
Kristján hefur leikið með Kamm-
ersveit Reykjavíkur, Hljómsveit Ís-
lensku óperunnar og fleirum og er
meðlimur í Sardas-strengjakvart-
ettinum. Þrátt fyrir Covid-ástandið
var Kristján iðinn við að spila
kammertónlist með félögum sínum
úr Sinfóníunni, enda voru engar reglur um fjöldatakmarkanir brotnar með
því. „Við erum að leggja á ráðin með tónleikahald en það er best að vera ekki
of yfirlýsingaglaður með það.“
Kristján hefur stundað götuhlaup og á fjögur maraþon að baki og rúmlega
tuttugu hálfmaraþon.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Kristjáns er Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, f.
1963, barna- og unglingageðlæknir og yfirlæknir á BUGL. Börn Kristjáns:
Stefán Kristjánsson, f. 1982, d. 2018, stórmeistari í skák; Ingunn Erla, f.
1994, mastersnemi í sellóleik í Rotterdam, og Matthías Már, f. 1997, ensku-
og heimspekinemi í HÍ. Börn Guðrúnar eru Sigrún Elfa, meistaranemi í
kennslufræðum, og Brynjólfur Gauti, doktorsnemi í líftölfræði, Jónsbörn.
Sonur Stefáns er Kristján og börn Sigrúnar Elfu eru Skarphéðinn Gauti og
Hekla Bryndís. Foreldrar Kristjáns voru Matthías Kristjánsson, f. 1931, d.
2017, rafvirki, og Hjördís Magnúsdóttir, f. 1931, d. 2019, starfsmaður í apó-
teki.
Kristján Matthíasson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þótt þér finnist þér ekki verða mikið
úr verki standa aðrir á öndinni yfir afköstum
þínum. Forgangsraðaðu hlutunum og sýndu
sveigjanleika.
20. apríl - 20. maí +
Naut Með þínum náttúrlegu hæfileikum í
samræðum geturðu fengið fólk á þitt band.
Mundu að þú gegnir mikilvægu hlutverki í
veröldinni.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þeir eru margir sem vilja ná fundi
þínum til skrafs og ráðagerða. Viðræður við
rétta aðila geta leyst erfið mál í eitt skipti
fyrir öll.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Ótti kennir manni að koma skikki á
líf sitt. Ef þú þarft að vera í miklum sam-
skiptum við fólk er hætt við að þú bregðist
óþarflega harkalega við hlutunum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er oft gagnlegt að leita á vit sög-
unnar þegar leysa þarf vandamál nútímans.
Eyddu tíma með félaga í eitthvað sem er
ykkur báðum alveg nýtt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú hefur úr mörgu að velja í við-
skiptum og þarft að vera vel vakandi svo
ekkert fari úrskeiðis. Frumkvæðið sem þú
tekur gerir þig að aðlaðandi félaga.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Láttu það ekki hvarfla að þér að láta
aðra um að leysa þín mál. Ekki verða fyrir
vonbrigðum þótt vinir þínir hafa ekki sömu
hugmyndir um skemmtun og þú.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Láttu þér ekki bregða þótt
gömul mál dúkki upp og þú þurfir að eyða
tíma í að koma þeim á hreint. Fólk stendur
fast á sínu og vill ekki hlusta á þig.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er áskorun að eiga við fólk
sem sér hlutina með allt öðrum augum en
þú. Mál eru oft flóknari en virðist í fljótu
bragði.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Vertu fyrst og fremst sannur í
samskiptum þínum við aðra og gættu þess
að lofa ekki upp í ermina á þér. Einbeittu þér
að málum heimilisins.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er þess virði að taka áhættu
ef maður teflir djarft í þágu hins dularfulla
og undursamlega.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú veist hvað þú vilt, svo það er
heimskulegt að biðja um eitthvað annað eða
minna. Misjafnar skoðanir takast á í dag!
frambjóðandi. Sumarið 1964 vann
hann hjá Almannavörnum við
skýrslugerð. Haustið 1964 fór
Sveinn til Danmerkur og í seinni
hluta verkfræðináms. „Þar hitti ég
þá stúlku er varð lífsförunautur
minn, Svövu Kristínu Jónsdóttur.
Hún vann sem flugfreyja hjá Flug-
félagi Íslands og bar af öllum öðrum
stúlkum.“ Þau giftu sig í mars 1966.
Er Sveinn hafði lokið námi vorið
1967 fóru þau hjónin í langt ferðalag
til Bandaríkjanna og Mexíkó. „Eru
mér minnisstæðust kynni af afa-
bróður Svövu Kristínar, Gunnari
Matthíassyni, og konu hans Guð-
nýju, en Gunnar var sonur Matthías-
ar Jochumssonar.“
Að ferðalaginu loknu fékk Sveinn
starf sem verkfræðingur hjá amer-
íska hernum í Keflavík og var þar í
tæpt ár. Sveini bauðst svo að taka
við rekstri Steypustöðvarinnar hf.
ásamt frænda sínum Halldóri Jón-
syni verkfræðingi. Ráku þeir ásamt
Jóni Ólafssyni fjármálastjóra fyrir-
tækið í áratugi en Sveinn hætti þar
störfum 2002 þegar fyrirtækið var
selt. Steypustöðin ehf. var frum-
svörtum toppum sem urðu geysilega
vinsæl og má sjá enn framleidd af
öðrum.“
Að loknu stúdentsprófi fór Sveinn
í verkfræði í Háskóla Íslands og lauk
þaðan námi í fyrri hluta verkfræði
vorið 1964. Árið 1964 var Sveinn kos-
inn í Stúdentaráð sem ópólitískur
S
veinn Valfells fæddist 10.
júní 1941 á Landspít-
alanum í Reykjavík.
Hann ólst upp í Reykja-
vík fyrir utan árin 1944-
1947 þegar fjölskyldan bjó í New
York. Sveinn gekk í Barnaskóla
Austurbæjar, Gagnfræðaskóla
Austurbæjar og varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1961.
Faðir Sveins stofnaði og rak
Vinnufatagerð Íslands og var sagt að
þá hefði íslensk alþýða fengið fyrst
skjólgóðan og góðan fatnað. „Þekkt-
ust var gæruskinnsúlpan af þeim
fatnaði og fékk hann t.d. þakkarbréf
frá mönnum sem töldu að hún hefði
bjargað þeim frá því að verða úti. Ég
fór snemma að fara með föður mín-
um í vinnuna á sumrin og fékk ýms-
an starfa eins og að raða skyrtum í
kassa og fékk laun fyrir.“ Má segja
að Sveinn hafi byrjað að vinna fyrir
kaupi sjö ára gamall.
Eftir landspróf fór Sveinn að
vinna hjá Skógræktarfélagi Reykja-
víkur. Það sumar byggðu foreldrar
hans sumarbústað við Þingvallavatn
og eyddi Sveinn ásamt öðrum nokkr-
um tíma að planta í þann reit. „Bú-
staðurinn er nú í eigu fjölskyldunnar
og eru þar há tré er áður voru móar.
Ég stunda veiði í Þingvallavatni og
hef þar reykhús þar sem ég reyki sil-
ung, hangikjöt og beikon með
tengdasyni mínum, Árna Georgs-
syni.“
Sumarið eftir þriðja bekk í MR fór
Sveinn til Englands í nokkrar vikur.
Fékk hann þá vinnu við að vera
þjónn. Þrjú sumur vann Sveinn svo
hjá Indriða Níelssyni bygginga-
meistara og fékk þá stöðu sem var
kallað að vera reddari. „Meðal ann-
ars kom ég að byggingu Kjörgarðs
sem að hluta var í eigu föður míns.
Sá ég svo áratugum seinna um end-
urnýjun hússins og er það nú sem
nýtt.“
Sumarið sem Sveinn var nítján
ára vann hann í sútunarverksmiðju
sem faðir hans rak og þar sem skinn-
in í úlpurnar voru sútuð. „Fór ég það
sumar til Þýskalands og gerði til-
raunir með litun á gæruskinnum. Úr
því urðu til lituð loðin skinn með
kvöðull í skipulögðu eftirliti með
steypugæðum. Fór Sveinn á marga
fundi hjá Evrópubandalaginu vegna
staðlagerðar fyrir steypu. Sveinn
gerði hlé á starfi sínu 1969-1971 og
fór til náms í Carnegie Mellon Uni-
versity, Pittsburgh, Pennsylvaníu.
Hefur komið víða við
Í gegnum árin hefur Sveinn komið
að ýmsum framkvæmdum utan
Steypustöðvarinnar ehf. Faðir
Sveins stofnaði ásamt öðrum bygg-
ingafélagið Iðngarðar í Skeifunni.
„Varð þá Skeifan 15 byggð sem Hag-
kaup tók á leigu og kallast nú Hag-
kaupshúsið. Þegar verslunarhæðin
var tvöfölduð höfðum við Halldór
Jónsson svo umsjón með fram-
kvæmdum. Síðar komum við Halldór
að byggingu Faxafens 8.“ Það hús-
næði er nú í eigu Vesturgarðs ehf. og
sat Sveinn þar lengi í stjórn.
Sveinn sat í stjórnum hinna ýmsu
fyrirtækja, félaga og stofnana. Þar
má helst nefna Félag íslenskra iðn-
rekenda, Iðnaðarbanka Íslands, Ís-
landsbanka, en Sveinn átti veru-
legan hlut í stofnun þess banka
ásamt öðrum. Sat Sveinn á tímabili í
skólanefnd Tækniskóla Íslands,
stjórn Iðntæknistofnunar og Rann-
sóknaráði Íslands. Einnig sat Sveinn
í stjórnum Hraðfrystihúss Tálkna-
fjarðar og Hellissands og kynntist
þar rekstri og rekstrarskilyrðum út-
gerðar og frystihúsa. Hann sat í
stjórn Sporðs ehf. sem hafði Þverá
og Kjarrá á leigu í mörg ár.
Sveinn tók verulegan þátt í bygg-
ingu Smáralindar, sat þar í stjórn og
átti þátt í að sækja þangað erlendar
verslunarkeðjur. „Hugsunin á bak
við Smáralindina var sú að flytja
verslunina til landsins en þá voru tíð-
ar verslunarferðir Íslendinga til út-
landa. Má segja að það hafi tekist.“
Einnig hefur Sveinn tekið þátt í fjár-
mögnun ýmissa sprotafyrirtækja og
nýsköpunar.
„Eftir að ég varð sjötugur og
hættur í fastri vinnu ákváðum við
Svava, sem hætt var störfum sem
hjúkrunarfræðingur á Landspít-
alanum, að reyna eitthvað nýtt og
fluttum við fyrst til London árið 2012
og Mónakó 2016 þar sem við erum
Sveinn Valfells, fyrrverandi forstjóri – 80 ára
Í Flórída Sveinn og Svava ásamt hluta af fjölskyldunni árið 2014.
Langur lífsferill í atvinnulífinu
Hjónin Svava og Sveinn á
Suðurskautslandinu árið 2012.
Til hamingju með daginn