Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 68

Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 68
MITT SJÓNARHORN Philipp Lahm @philipplahm Stundum er sagt að landslið séu tímaskekkja og sagan segir okkur vissulega að hugtakið þjóð hafi ekki alltaf verið á hreinu innan Evrópu. En með því að nota það rétt og af ábyrgð getur það styrkt sjálfsvitund þjóða án þess að valda tjóni. Og keppni milli þjóða, Evrópumeist- aramót, getur styrkt ímynd álfunnar með aðstoð leikgleðinnar í fótbolt- anum. Saga Evrópukeppninnar sýnir að íþróttin getur á breiðum grundvelli brúað bilið á milli þjóða. Austrið og Vestrið kynntust betur. Fyrsta mót- ið sem var haldið árið 1960, á dögum kalda stríðsins, unnu Sovétmenn. Lev Jashin, „svarti pardusinn“ frá Moskvu er enn þekkt nafn í fótbolta- heiminum. Fyrirmyndin að hinum spilandi markverði og hann var eini markvörðurinn sem var kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu. Árið 1976 varð Tékkóslóvakía Evrópumeistari í Belgrad. Í því móti vann liðið sigra á Englandi, Portú- gal og báðum úrslitaliðum síðasta heimsmeistaramóts, Þýskalandi og Hollandi. Antonín Panenka varð frægur þegar hann gabbaði Sepp Maier með því að vippa boltanum í mitt markið í vítaspyrnukeppninni. Slíkar vítaspyrnur hafa síðan verið nefndar eftir þessum frumherja frá Prag. Evrópumótið 1996 var haldið á Englandi eftir að aðildarþjóðum Evrópu hafði fjölgað í kjölfar falls járntjaldsins og þangað mættu Kró- atar og Tékkar, nýjar þjóðir með lið full sjálfstrausts. Á miðjum fyrsta áratug aldarinnar fylgdi UEFA í kjölfar stækkunar Evrópu- bandalagsins til austurs og lét Pól- land og Úkraínu fá EM 2012. Sagan í Glasgow og Búdapest Í ár verður lokakeppni EM í fyrsta skipti leikin í ellefu löndum og þar á meðal á stöðum þar sem saga fótboltans var skrifuð. Glasgow var ein af fæðingarborgum fótboltans á 19. öldinni og er eina borg í heimi með þrjá knattspyrnuleikvanga sem rúma minnst 50 þúsund áhorfendur. Hampden Park er sá elsti í heimi. Búdapest var ásamt Vínarborg heimavöllur hins skemmtilega Dón- ár-fótbolta. Leikvangurinn þar er nefndur eftir Ferenc Puskás sem franska íþróttadagblaðið L’Équipe heiðraði sem knattspyrnumann ald- arinnar í Evrópu. Eins mótsagnakennt og það kann að vera, þá eru töfrar Evrópumóts og heimsmeistarakeppni fólgnir í því að leikskipulagið er ekki eins gott og í félagsliðafótboltanum. Einfaldlega vegna þess að landsliðsþjálfarar vinna ekki eins mikið með leikmenn- ina og geta ekki mótað þá eins mik- ið. Svona er þetta líka í körfubolta og handbolta. Auk þess er ekki hægt að styrkja liðin með leikmanna- kaupum og þau eru skipuð ólíkum leikmönnum. Í sumar stöður þarf að fylla með mönnum sem ekki spila þær vanalega. Til dæmis urðum við Þjóðverjar heimsmeistarar árið 2014 með Benedikt Höwedes sem vinstri bakvörð, jafnvel þó hann sé miðvörður og réttfættur að auki. Þú verður að vinna úr því sem er í boði í viðkomandi landi. Liðsandi, agi og ástríða Þetta gerir keppnina opnari. Tíu mismunandi þjóðir hafa unnið Evr- ópumótin fimmtán. Þar sem ekki er leikið heima og heiman eiga litlu lið- in meiri möguleika. Í lokakeppni eru ákveðin gildi mikilvægust, til dæmis liðsandi, agi og ástríða. Ef lið smell- ur saman á þessum stutta tíma get- ur það náð langt. Árið 1988 varð Holland Evrópu- meistari. Skiljanlega urðu fagnaðar- lætin hjá okkar fámennu nágranna- þjóð, sem þjáðist undir hernámi Þýskalands í síðari heimsstyrjöld- inni, lituð af sögulegum og pólitísk- um bakgrunni. Árið 1992 var það Danska dýnamítið, léttlyndu sólar- landafararnir frá Danmörku, sem vann mótið. Enn óvæntari var sigur Grikkja árið 2004 en þeir léku sigur- stranglegu þjóðirnar grátt undir stjórn Otto Rehhagel, sem var fyrir vikið kallaður Rehakles. Árið 2016 krækti Portúgal í bikarinn, þjóð sem hefur átt marga góða fótboltamenn og þjálfara en vinnur sjaldan titla vegna fámennis. Öll þessi lið unnu saman sem ein heild. Eyþjóðin sem heillaði alla 2016 Í Evrópukeppninni 2016 í Frakk- landi kom fram á sjónarsviðið lítil eyja með 350 þúsund íbúum og heill- aði alla upp úr skónum. Íslenska lið- ið var byggt á leiftrandi liðsanda sem smitaði út frá sér. Stuðnings- mennirnir klæddust eins og víkingar og tröll og studdu liðið með „Húh“ baráttuöskrinu og tugir þúsunda tóku undir með þeim og klöppuðu með útrétta handleggi. Með allt samfélagið á bak við sig gusu ís- lensku leikmennirnir eins og eldfjöll. Svona eru íþróttir í sinni tærustu mynd. Flestir Íslendingar muna þetta sumar um ókomin ár. Íslend- ingar komust líka að hjartarótum annarra þjóða og fengu marga til að hugsa: Ég ætla að skoða þetta land, allavega á netinu. Króatía komst í úrslitaleik heims- meistaramótsins 2018. Það er ríki sem endurfæddist sem sjálfstæð þjóð fyrir örfáum áratugum og margir Króatar búa erlendis. Frammistaða landsliðsins gefur inn- sýn í hvernig Króatía vill koma fram sem þjóð. Keppni milli þjóða sem fylgst er með um allan heim er besta sviðið til að sýna það. Þetta á líka við um Evrópsku söngvakeppnina, tón- listarkeppni þar sem m.a. er fjallað um hverjir tilheyri Evrópu. Minnir á Ástrík og Steinrík Evrópukeppnin minnir að sumu leyti á bækurnar um Ástrík og Steinrík þar sem gert er grín að þjóðareinkennum Breta, Svisslend- inga og Gota. Stundum verður sam- staðan of mikil og þróast út í for- dóma gagnvart öðrum. Samt er það fjölbreytileiki fólksins sem hefur áhuga á fótbolta sem gerir Evrópu- keppnina svona sérstaka. Og fegurð fótboltans er fólgin í því að enginn þarf að fórna því sem hann hefur al- ist upp við í sínu umhverfi. Það er viðurkennt að þú mátt vera öðruvísi, líka vegna þess að sömu reglur gilda fyrir alla. Landslið endurspegla jafnvel menningu viðkomandi lands. Við sjáum aftur og aftur hvernig ákveð- in landslið leika í anda sinnar þjóðar. Lið Spánverja og Ítala endurspegla best allra fótboltamenninguna í sínu landi og sinni deild. Englendingar eru eins og vanalega með marga spennandi leikmenn. En þar sem stjörnur ensku úrvalsdeildarinnar koma frá öðrum löndum skortir enska landsliðið oft lykilmenn. Stjörnur í stórum hlutverkum Eitt af því sem líka heillar við svona mót er að sjá stærstu stjörn- Frjáls og friðsöm sam- keppni Evrópuþjóðanna - Fótboltinn á EM getur brúað bil á milli þjóða - Töfrar fólgnir í lakara leik- skipulagi landsliða en félagsliða - Eyjan sem heillaði alla sumarið 2016 68 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 3. deild karla Einherji – Dalvík/Reynir......................... 2:1 Staðan: Höttur/Huginn 5 4 1 0 9:5 13 Augnablik 5 3 2 0 15:3 11 Elliði 5 3 0 2 14:9 9 Ægir 5 2 3 0 7:5 9 Dalvík/Reynir 6 2 2 2 11:9 8 Víðir 5 2 2 1 8:7 8 KFG 4 2 1 1 5:2 7 Sindri 5 2 0 3 8:10 6 Einherji 6 2 0 4 9:15 6 KFS 5 1 0 4 5:15 3 ÍH 5 0 2 3 5:11 2 Tindastóll 4 0 1 3 3:8 1 Ítalía C-deild, umspil, undanúrslit, seinni leikur: Avellino – Padova.................................... 0:1 - Emil Hallfreðsson lék allan leikinn með Padova. _ Padova áfram, 2:1 samanlagt, og leikur til úrslita við Alessandria um sæti í B-deild. Undankeppni HM karla Suður-Ameríka: Kólumbía – Argentína.............................. 2:2 Paragvæ – Brasilía................................... 0:2 Venesúela – Úrúgvæ................................ 0:0 Ekvador – Perú ........................................ 1:2 Síle – Bólivía ............................................. 1:1 _ Brasilía 18, Argentína 12, Ekvador 9, Úrúgvæ 8, Kólumbía 8, Paragvæ 7, Síle 6, Bólivía 5, Venesúela 4, Perú 4. Sex umferð- ir af átján eru búnar. Fjögur efstu liðin komast á HM 2022 í Katar og fimmta liðið fer í umspil. Vináttulandsleikur karla Portúgal – Ísrael ...................................... 4:0 >;(//24)3;( Þýskaland Stuttgart – Flensburg......................... 30:32 - Viggó Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Stuttgart. - Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Flensburg. _ Efstu lið: Flensburg 62, Kiel 59, Magde- burg 46, RN Löwen 43, Füchse Berlín 42, Melsungen 38, Göppingen 38, Leipzig 37, Wetzlar 36, Lemgo 33. Fimm umferðum er ólokið. B-deild: Hamm – Bietigheim ............................ 28:28 - Aron Rafn Eðvarðsson varði tvö skot í marki Bietigheim. _ Efstu lið: Hamburg 54, N-Lübbecke 52, Gummersbach 49, Elbflorenz 36, Bietig- heim 36, Aue 35, Dormagen 34, Grosswall- stadt 32. Þremur umferðum er ólokið. Frakkland Aix – Créteil ......................................... 33:22 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir Aix sem endaði í 4. sæti á eftir París SG, Montpellier og Nantes. E(;R&:=/D Úrslitakeppni karla Undanúrslit, fjórði leikur: Stjarnan – Þór Þ. ............................... (36:35) _ Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun. Sjá mbl.is/sport/korfubolti. Umspil kvenna Fjórði úrslitaleikur: Grindavík – Njarðvík ........................... 67:64 _ Staðan í einvíginu er 2:2. Liðin mætast í oddaleik á laugardag. Spánn Umspil, undanúrslit, oddaleikur: Granada – Leyma Coruna.................. 72:68 - Sigtryggur Arnar Björnsson er leikmað- ur Leyma Coruna. _ Granada sigraði 2:1 og leikur í A-deild- inni á næsta tímabili. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Philadelphia – Atlanta ..................... 118:102 _ Staðan er 1:1. Vesturdeild, undanúrslit: Utah – LA Clippers.......................... 112:109 _ Staðan er 1:0 fyrir Utah. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Würth-völlur: Fylkir – Tindastóll ............ 18 1. deild karla, Lengjudeildin: Domusnovav.: Kórdrengir – Grótta.... 19.15 Extra-völlur: Fjölnir – Víkingur Ó ..... 19.15 Jáverkvöllur: Selfoss – Fram .............. 19.15 Eimskipsv.: Þróttur R. – Grindavík.... 19.15 2. deild karla: Grenivíkurvöllur: Magni – KF ............ 19.15 Rafholtsvöllur: Njarðvík – ÍR ............. 19.15 Vogaídýfuv.: Þróttur V. – Reynir S .... 19.15 KR-völlur: KV – Haukar...................... 19.15 3. deild karla: Samsung-völlur: KFG – Elliði.................. 20 Í KVÖLD! Stjarnan og Þór Þ. mættust í fjórða sinn í gærkvöld í undanúrslitum Ís- landsmóts karla í körfubolta í Garðabænum. Þórsarar gátu með sigri tryggt sér sæti í úrslitunum en Stjarnan freistaði þess að ná í odda- leik á útivelli. Leiknum var ekki lokið þegar blaðið fór í prentun en ítarlega er fjallað um hann á mbl.is/sport/korfubolti. Morgunblaðið/Unnur Karen Umkringdur Þórsarar umkringja Hlyn Bæringsson í gærkvöldi. Hart barist í Garðabæ „Þessir tveir leikir leggjast mjög vel í mig,“ sagði Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, á Teams-blaðamannafundi íslenska liðsins í gær. Ísland mætir Írlandi í tveimur vináttuleikjum, á morgun annars vegar og svo 15. júní hins vegar, en báðir leikirnir fara fram á Laug- ardalsvelli. „Við erum ekki búnar að spila jafn marga leiki á þessu ári og und- anfarin ár. Það hefur gengið á ýmsu og það er þess vegna virki- lega gaman að koma aðeins heim á þessum tímapunkti. Ég á von á erfiðum leikjum gegn öflugu liði sem er mjög líkamlega sterkt og ég held að þetta sé mjög góður undirbúningur fyrir und- ankeppni HM sem hefst í sept- ember,“ sagði Hallbera sem á að baki 118 A-landsleiki og er fjórða leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi. Ísland hefur leik í C-riðli und- ankeppni HM í september þegar liðið fær Evrópumeistara Hollands í heimsókn en íslenska liðið er með Hvíta-Rússlandi, Kýpur, Tékklandi og Hollandi í riðli. „Við fáum enga leiki fram að undankeppninni og það er því gríð- arlega mikilvægt fyrir okkur sem lið að slípa okkur vel saman í þess- um tveimur leikjum. Gæðin á æf- ingum eru meiri núna en oft áður, bæði þegar kemur að spili, send- ingum og öðrum þáttum leiksins. Ég held að það sé að gera öllum leikmönnum gott að hafa tekið skrefið og farið í aðeins meira krefjandi umhverfi og þetta skilar sér klárlega inn í landsliðið.“ bjarnih@mbl.is Gæðin í hópnum meiri en oft áður Morgunblaðið/Eggert 118 Hallbera er leikjahæst í íslenska landsliðshópnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.