Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 10.06.2021, Blaðsíða 71
MENNING 71 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ THE WASHINGTON POST ROGEREBERT.COM TOTAL FILM USA TODAY THE SEATTLE TIMES THE GUARDIAN GEGGJAÐ FRAMHALD AF EINUM ÓVÆNTASTA SPENNUÞRILLER SÍÐUSTU ÁRA HROLLVEKJANDI SPENNUMYND THE WRAP FILM SÝNDMEÐ ÍSLENSKUTALI 97% SAN FRANCISCO CHRONICLE INDIE WIRE bresti í ljós – frjór jarðvegur fyrir grín og harmleik. Ræturnar liggja í farsaforminu og á sér auðvitað fjölmargar birtingarmyndir í ís- lensku bíói, Stellu í orlofi t.a.m. Í Saumaklúbbnum er formúlan enn þá nægilega fersk og er það ekki síst leikkonum að þakka. Hlut kvenna og kvenlegrar reynslu hef- ur verið ábótavant lengi vel í ís- lenskri kvikmyndagerð og ávallt fengur að fá kvennasögur, sagðar og fluttar af konum, á hvíta tjald- ið. Persónusafn myndarinnar er lit- ríkt, skipað konum í kringum fimmtugt sem mætti lýsa sem erkitýpum úr íslensku samfélagi. Íris, leikin af Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur, er drifkrafturinn bak við saumaklúbbinn. Hún er eig- andi húsgagna- og lífsstílsversl- unar, eins konar áhrifavaldur á samfélagsmiðlum (fjöldi fylgjenda er óljós en hún er að minnsta kosti iðin við kolann) – týpa sem gerir og lætur vaða. Edda Björg S aumaklúbburinn eftir Göggu Jónsdóttur er sum- armynd með meira lagi. Fjórar vinkonur úr menntaskóla ásamt einum fylgi- fiski skella sér í sumarbústað til að sletta rækilega úr klafunum, tilbiðja Bakkus og gleyma dagsins amstri um stund. Persónurnar, sem og aðstæðurnar, ættu að vera mörgum áhorfendum kunnuglegar og í því felst styrkur myndarinnar ásamt feikigóðu leikaraliði. Saumaklúbburinn er fram- leiddur af Þorkatli Harðarsyni og Marinó Arnarssyni en þeir voru höfundar stórsmells síðasta ís- lenska bíóárs, Síðustu veiðiferð- arinnar. Saumaklúbburinn fylgir formúlu veiðiferðinnar samvisku- samlega eftir – eins konar kvenleg hlið af sama peningi – og fer á engan hátt leynt með það, heldur eru hliðstæð atriði í myndunum sem blikka til hvort annars. Upp- skriftin er nokkuð einföld og ætl- uð til þess að trekkja sem flest fólk í kvikmyndahús – hópur góðra leikara er fenginn til að leika fyllerí og því fylgja fyndin uppátæki, skandalar og nægilegt drama. Með einfaldri sögu- hugmynd er hægt að halda fram- leiðslukostnaði niðri þar sem flétt- an einskorðast við takmarkaðan fjölda tökustaða – í tilfelli Sauma- klúbbsins við sumarbústaðinn og tjaldsvæðið þar um kring. Aðdráttaraflið er einfalt og klass- ískt – karnivalið sem snýr hlutum á hvolf og lætur ýmsa mannlegi Eyjólfsdóttir leikur Ellu, bókhald- ara sem lifir á fornri frægð sem bakraddasöngkona og á sér þó nokkuð eldri eiginmann. Arndís Hrönn Egilsdóttur fer með hlut- verk Steingerðar, leikskólastjóra sem hefur ekki gaman af börnum og er örlítið bugaður nagli með hrjúft yfirborð. Eydís, túlkuð af Elmu Lísu Gunnarsdóttur, starfar í tískubransanum og hefur dvalið löngum á Ítalíu og þykir allt við íslenskt samfélag frumstætt og menningarsnautt. Fjórmenning- arnir kynntust í Menntaskólanum við Sund – en eru í dag frekar sundurleitur hópur. Allar hafa sinn djöful að draga og eru ekki beinlíns að horfast ekki í augu við vandamál sín, heldur er þeim sóp- að undir teppið. Sameiningarafl þeirra er helst áfengið. Helga Braga Jónsdóttur leikur svo Sif, fimmta félagann, andlegan gúru og nýaldarkuklara sem starfar með Írisi í lífsstílsbransanum. Íris fær Sif með í ferðina til þess að leiðbeina hópnum (en hún er einn- ig að nýta ferðina sem átyllu til þess að auglýsa vörur sínar á sam- félagsmiðlum) í andlegum mál- efnum. Minnið um óþekkta aflið sem lætur hjól frásagnarinnar snúast er gömul saga og ný – Sif sendir stöllurnar í ýmsar óvæntar aðstæður, oftast með spaugilegum árangri. Hún er þó líkari hinum gallagripunum en heilög velmegunarhippaásyndin gefur fyrst til kynna. Framan af eru persónurnar kynntar í uppstilltum viðtölum í bland við leikin atriði. Heimild- arháð (e. mockumentary) sem þetta hófst m.a. í gríni This is Spinal Tap (1984) og festi sig í sessi með Office-þáttunum um aldamótin og er orðin viðtekin venja í grínþáttaröðum, ekki síst vegna áhrifa raunveruleikasjón- varps undanfarinna áratuga- .Viðtölin hverfa smátt og smátt þegar hlutunum vindur fram, sem er ögn lýsandi fyrir ósamræmi myndarinnar. Margir hlutir eru prófaðir, sem er eðlilegt í frum- raun leikstjóra, og flest gengur ágætlega upp. Á köflum eru myndrænir eiginleikar skemmti- legir, líkt og í senu þar sem Helga Braga stýrir móðurlífsjóga, og myndavél tekur sér fyndnar stöð- ur. Skynvilluferðalag persónanna er sett fram á skilvirkan hátt með notkun á myndrænni bjögun sem er því miður ekki haldið út atriðið. Heilt yfir er myndin skemmtileg og fyndin – og má hrósa Göggu Jónsdóttur fyrir gott samstarf sitt við leikkonur sínar. Leikkonurnar fimm eru stórskemmtilegar og eiginlega er ómögulegt að gera upp á milli þeirra. Mörg smáatriði myndarinnar, sér í lagi þegar snýr að samfélagsmiðlum, lífsstíls- bransanum og neyslumenningu, spegla samtíma sinn á lunkinn máta. Handritið er ekki hnökra- laust en Saumaklúbbinum tekst þó meginmarkmið sitt – að skemmta og skapa trúverðugar persónur. Psilocybin fólksins Skemmtileg „Heilt yfir er myndin skemmtileg og fyndin og má hrósa Göggu Jónsdóttur fyrir gott samstarf sitt við leikkonur sínar,“ skrifar rýnir. Borgarbíó Akureyri, Háskólabíó og Laugarásbíó Saumaklúbburinn bbbnn Leikstjórn: Gagga Jónsdóttir. Handrit: Gagga Jónsdóttir og Snjólaug Lúðvíks- dóttir. Kvikmyndataka: Tómas Örn Tóm- asson. Klipping: Sigvaldi J. Kárason. Aðalleikarar: Arndís Hrönn Egilsdóttir, Edda Björg Eyjólfsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Helga Braga Jónsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnardóttir. Ísland, 2021. 80 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.