Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 74

Morgunblaðið - 10.06.2021, Side 74
74 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Hljóðbókaveitan Storytel gefur þann 15. júní næstkomandi út nýja bók eftir sænska metsölurithöfund- inn Camillu Läckberg og landa hennar og leikara Alexander Karim sem nefnist Glaciär eða Jökull á ís- lensku. Í íslensku útgáfunni flytja leikkonan Halldóra Geirharðsdóttir og leikarinn Hjörtur Jóhann Jóns- son söguna en í þeirri sænsku Kar- im og hin þekkta leikkona Lena Endre. Þau leika einnig í kvik- myndinni Glaciär sem sýnd er á streymisveitunni Viaplay og leik- stýrt var eftir handriti Läckberg. Svo óvenjulega vill nefnilega til að kvikmyndin kom á undan bókinni en oftast er það öfugt. Í Jökli segir af karli og konu sem dvelja á fínu hóteli í miðjum heims- faraldri sem dregið hefur hálft mannkynið til dauða. Faraldurinn er svo skæður að fólk má alls ekki snertast. Falli það í freistni er dauðinn á næsta leiti. Dvöl á hót- elinu kostar fúlgur fjár og konan vel stæður læknir en karlinn pre- dikari. Fyrir slysni liggja leiðir þessa fólks saman í eldhúsi hótels- ins og verður þá uppi fótur og fit. Eftir frekari samskipti í gegnum talstöðvar og farsíma verður þess- um tveimur manneskjum ljóst að ást hefur kviknað milli þeirra og von í brjóstum þeirra um leið. En eiga þau sér einhverja von þegar mannkynið virðist dauðadæmt? Fyrsta kvikmyndahandritið Läckberg er hin vinalegasta þeg- ar fundum hennar og blaðamanns ber saman að morgni mánudags í myndspjalli á netinu. Läckberg er einn vinsælasti krimmahöfundur Norðurlanda og með þekktari rit- höfundum heimalands síns og öðl- aðist upphaflega frægð fyrir Fjäll- backa-syrpuna sem segir af manndrápum í þorpinu Fjällbacka, hennar æskuslóðum. Hafa bæk- urnar verið gefnar út í yfir 60 lönd- um og gerðar eftir þeim kvikmynd- ir og sjónvarpsþættir. Läckberg hefur einnig skrifað barna- og matreiðslubækur og er með nýjan bókaþríleik í pípunum. En kvik- myndahandrit hafði hún aldrei skrifað þegar hún hófst handa við Jökul. Leikstjóri myndarinnar, Baker Karim, var henni innan handar við skrifin en Alexander bróðir hans er þekktur leikari í Sví- þjóð og hefur einnig skrifað skáld- sögu og barnabók. Läckberg er spurð að því hvers vegna kvikmyndin og bókin heiti þessu nafni, Glaciär. „Það er reynd- ar mjög táknrænt fyrir persónu- leika Önnu, hún er eins og jökull þegar hún hittir Erik í fyrsta sinn og hann bræðir hana hægt og ró- lega. Þaðan kom titillinn og ég kann vel að meta íslenska titilinn, Jökul. Ég á ættingja á Íslandi en þeir hafa ekki kennt mér íslensku svo ég ætla ekki að reyna að bera orðið fram,“ segir Läckberg glett- in. Bókin veitir meira frelsi – Þú skrifaðir handritið fyrst og síðan bókina en oftast er þetta nú öfugt? „Já, en mér finnst gaman að byrja á öfugum enda og prófa eitt- hvað nýtt. Hugmyndin að bókinni kom ekki fyrr en við vorum byrjuð að taka myndina. Við vorum með svo mikið efni að ég áttaði mig á því að það kæmist aldrei allt í myndina. Ef persónur eru vel skapaðar og vandaðar veit maður mikið um þær og þeirra forsögur en það er erfitt að koma því öllu fyrir í kvikmynd. Því stakk ég upp á því við Alexand- er og Baker að við myndum líka gera hljóðbók sem tengdist mynd- inni,“ svarar Läckberg. – Hvernig var fyrir þig að skrifa þitt fyrsta kvikmyndahandrit? Ég hef heyrt þig segja í viðtölum að skrif þín séu mjög sjónræn, að þú sjáir fyrir þér það sem þú skrifar. Var þér eðlilegt að skrifa handrit að kvikmynd? „Já og nei. Eins og þú segir eru skrif mín mjög sjónræn, ég á auð- velt með að sjá atriði fyrir mér en að því sögðu er ég vanari mun meira frelsi. Ég bar atriði undir Baker sem honum fannst frábært en sagði að myndi kosta 500 þúsund krónur að taka,“ segir Läckberg kímin og skal tekið fram að hér er átt við sænskar krónur. Í bókum geti hún látið hvað sem er gerast, skrifað um ógnarsprengingar og geimverur til dæmis en ekki í kvik- myndahandriti. „Það var áhugavert að læra þetta,“ segir Läckberg og að þeir Karim-bræður hafi að- stoðað hana við skrifin. Hún hafi því verið á hálfgerðu námskeiði í handritaskrifum og auk þess fengið að spreyta sig á starfi skriftu við tökur kvikmyndarinnar. Läckberg segist hafa farið með leikurum myndarinnar, þeim Lenu Endre og Alexander Karim, inn á hótelherbergi fyrir tökur á hverju atriði til að ræða við þau um það. „Við kölluðum það öryggisherbergi, það var fjarri tökuliðinu og við fór- um þar yfir næsta atriði og bjugg- um til samtöl. Eftir því sem leið á tökurnar og Alexander og Lenu fór að líða betur í hlutverkum Eriks og Önnu fór þetta að verða auðveld- ara,“ útskýrir Läckberg. Komin í æfingu – Þú hefur drepið mjög marga á ferli þínum en núna ertu búin að drepa hálft mannkynið! „Já, ég meina af hverju ætti mað- ur að drepa einn í einu þegar mað- ur getur þurrkað svona marga út?“ svarar Läckberg kímin. En var þörf á því í miðjum Covid 19- faraldri? Läckberg svarar því til að nú sé þörf fyrir von og ást, að minna fólk á mikilvægi nándar- innar og kærleikans. „Við vildum að myndin snerist um það, hún er í raun ekki um heimsfaraldur heldur um ást og er ástarsaga tveggja manneskja,“ útskýrir Läckberg. Hún skrifaði hljóðbókina með Alexander Karim, sem fyrr segir, og er spurð að því hvernig reynsla það hafi verið í ljósi þess að hún sé vön því að starfa ein. „Ég hef reyndar verið að æfa mig því ég er að skrifa þríleik með kollega mín- um, var búin að skrifa heila bók með Henrik Fexeus. Ég var því þegar búin að æfa mig,“ segir Läckberg og bætir við að bækurnar þrjár verði glæpasögur. Sú fyrsta kemur út í september í Svíþjóð. Jökull hefur hins vegar ekkert með glæpi að gera og er Läckberg spurð að því hvort hún hafi hug á því að skrifa fleiri verk án glæpa. Hún svarar því til að hún hafi þegar skrifað nokkur verk á ferli sínum sem ekki teljist til glæpasagna. Nefnir hún sem dæmi sápuóperuna Lyckoviken sem hún átti hugmynd- ina að og tók líka þátt í handrits- skrifunum. Blaðamaður kemur af fjöllum enda illa að sér í sænskum sápuóperum. Spurði spurninga um sjálfa sig Läckberg segist ástríðufull í eðli sínu og hrinda þeim hugmyndum í framkvæmd sem hún brenni fyrir hverju sinni. „Ef þú spyrð mig að því hvað ég verði að gera eftir fimm ár þá hef ég ekki hugmynd um það. Það fer allt eftir því hvert ástríðan leiðir mig,“ segir hún. En fyrst og fremst er hún þekkt sem norræna glæpadrottningin og verður það ef- laust enn um sinn og á æskuslóðum hennar í Fjällbacka er gert út á frægð hennar og þorpsins. Aðdáun- in er slík að boðið er upp á sérstak- ar Camillu Läckberg-skoðunar- ferðir í þorpinu. Blaðamaður nefnir þetta og Läckberg hlær þegar hún rifjar upp að hún hafi farið í slíka skoð- unarferð. Enginn þekkti hana í ferðinni enda höfundurinn frægur fyrir bækurnar fremur en útlitið. Undir lok ferðar greindi Läckberg svo frá því hver hún væri, aðdáend- um til mikillar furðu og gleði. „Ég spurði margra heimskulegra spurninga um Camillu Läckberg,“ segir hún kímin. Svörin voru sem betur fer rétt hjá leiðsögumann- inum sem hún segir hafa staðið sig vel. Läckberg hefur áður greint frá því að vegna áhuga hennar á hinum myrku hliðum mannskepnunnar hafi aðeins tvennt verið í boði, að gerast glæpasagnahöfundur eða raðmorðingi. Hún valdi sem betur fer hið fyrrnefnda. En væri hún raðmorðingi, hvers konar raðmorð- ingi væri hún þá? „Ég væri einn hinna skipulögðu. Þú veist að það eru tvær gerðir raðmorðingja, sú skipulagða og sú óskipulagða. Ég held að ég væri mjög skipulögð og undirbyggi mig vel,“ segir Läck- berg glettin. Ljósmynd/Magnus Ragnvid Samvinna Leikarinn Alexander Karim og rithöfundurinn og handritshöfundurinn Camilla Läckberg. Tvíeyki Halldóra Geirharðsdóttir og Hjörtur Jóhann Jónsson fara með hlut- verk Önnu og Eriks í íslenskri útgáfu hljóðbókarinnar Jökuls. Von og ást í miðjum faraldri - Camilla Läckberg skrifaði handrit kvikmyndarinnar Glaciär og í kjölfarið hljóðbók um sama efni fyrir Storytel - Segist hafa gaman af því að prófa eitthvað nýtt og láta ástríðuna ráða ferðinni Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík Opnunartími 8:00-16:30 Úrvals hamborgarar og grillkjöt Krydd, sósur og ýmsar grillvörur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.