Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 76

Morgunblaðið - 10.06.2021, Qupperneq 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 2021 16.995.- / St. 36-40 Vnr.: E-811813 14.995.- / St. 36-42 Vnr.: E-811803 ECCO EXOWRAP ÞÆGILEGIR SANDALAR PHORENE™ INNLEGGI 14.995.- / St. 36-41 Vnr.: E-811803 14.995.- / St. 36-42 Vnr.: E-811803 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS S K Ó V E R S L U N STEINAR WAAGE Ingibjörg Friðriksdóttir hljóðlista- kona hefur lítinn áhuga á að standa í stað og festa sig í einu verkefni. Gott dæmi um það er þegar hún smíðaði sitt eigið sjálfspilandi hljóðfæri úr gömlu píanói, ferðaðist með það út fyrir landsteinana og kveikti að því loknu í gripnum. Ingibjörg er gestur í nýjasta þætti Dagmála. Forvitni dreif hana áfram í því verkefni að búa til sitt eigið hljóðfæri, forvitni um það hvernig væri að búa til sitt eigið hljóðfæri og semja svo fyrir það. „Ég tók gamalt píanó, reif það allt í sundur. Ég reif í sundur part af hömrunum og á þá setti ég síðan litla mótora sem ég keyrði síðan gagna- upplýsingar í gegnum,“ segir Ingi- björg. Hún skapaði hljóðfærið skömmu fyrir eldgos í Bárðarbungu og voru gagnaupplýsingarnar sem hún keyrði í gegnum mótorana tengdar því. Hljóðfærið var þungt en samt sem áður ferðaðist það út fyrir landstein- ana, bæði með og án skapara síns. Þegar hljóðfærið var búið að ferðast víða og Ingibjörg var búin að inn- kalla alla mögulega greiða frá vinum sínum til þess að bera það ákvað hún að ferli hljóðfærisins væri lokið. „Þegar ég kom heim í jólafrí ákvað ég bara að taka það í sundur og kveikja í því, sem ég gerði vegna þess að mér finnst það líka fallegt. Mér finnst líka fallegt að hlutir geti bara átt stað í fortíðinni,“ segir Ingi- björg. „Það er líka hættulegt sem listamaður að festast í því að þá verði ég bara þetta hljóðfæri.“ Marglaga verk Ingibjörg, sem gengur undir lista- mannsnafninu Inki, er gestur í nýj- asta þætti Dagmála en hún gaf ný- verið út plötuna Quite the Situation, eða upp á íslenskuna Meira ástand- ið. Í þættinum ræðir hún um plötuna sem er í raun marglaga verk, inn- blásið af ástandsárunum á Íslandi. Verkið fjallar þó ekki um ástands- árin sem slík heldur fremur samtím- ann með hliðsjón af fortíðinni. Morgunblaðið/Hallur Már List „Mér finnst líka fallegt að hlutir geti bara átt stað í fortíðinni,“ segir Ingibjörg Friðriksdóttir hljóðlistakona eða Inki í nýjasta þætti Dagmála. Kveikti í heima- smíðuðu hljóðfæri - Fallegt að hlutir geti átt sér stað í for- tíðinni, segir Ingibjörg Friðriksdóttir Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Leikhópurinn Lakehouse auglýsti á sínum tíma eftir skúffuskáldum af landsbyggðinni sem ættu eitthvað í sínum fórum eða langaði að skrifa eitt- hvað sem þau teldu að tengdist við- fangsefninu, einangrun. Mikið barst af allskonar efni hvaðanæva af landinu en dramatúrgurinn Sigríður Lára Sigur- jónsdóttir á Egilsstöðum var fengin til að velja úr öllu því sem barst. Hún valdi verk ellefu ólíkra höfunda og setti saman úr þeim þetta samskotsverk þar sem raðað er saman ljóðum, örsög- um og stuttum leikþáttum,“ segir Guð- mundur Ingi Þorvaldsson en hann fer með eina hlutverkið í 30 mínútna verk- inu Einangrun, sem flutt verður á flug- völlum í fjórum landshlutum. Verkið er hluti af Listahátíð 2020 og inniheld- ur hugrenningar um einangrun í öllum sínum myndum. „Verkefnið okkar Árna Kristjáns- sonar leikstjóra var að finna heildstætt konsept í kringum þetta og búa til sýn- ingu sem gæti gengið út frá fyrirbær- inu landsbyggð, en undanfarin tvö ár hefur Listahátíð í Reykjavík verið til- einkuð landsbyggðinni. Við Árni bjuggum þá til þennan trúbador sem ég leik, en hann fer út á land til að halda tónleika og það kemur svo í ljós hvaða mann hann hefur að geyma, hvað hann er að hugsa og hvað er að angra hann,“ segir Guðmundur Ingi sem er liðtækur á gítarinn, enda bæði tónlistarmaður og leikari. Voru eins og sjóræningjar Í kynningu í verkinu segir að leik- hópurinn Lakehouse vilji „heiðra ís- lenska trúbadorinn og sögumanninn, eða shamaninn sem gæðir samveru- stundir þorpsbúanna lífi með tilfinn- ingaþrungnum frásögnum sínum, ádeilu, háði og kímni“. „Við erum að vinna með þessa gömlu hugmynd um tónlistarmenn sem flökkuðu um landið, komu og fóru svolítið eins og sjóræningjar. Þeir komu í bæina og héldu böll, fengu pen- inga, drukku brennivín og fóru svo í næsta bæ. Þetta er ákveðið rótleysi en líka fegurð, því þá langaði líka að syngja og segja sögur sem næðu til fólksins. Ef þú ert ekki að segja sögur eða syngja lög sem fólk vill heyra, þá mætir enginn á ballið eða giggið,“ seg- ir Guðmundur Ingi og bætir við að þegar unnið sé með safnverk ólíkra texta, þá þurfi að finna einhvern þráð í gegnum það sem þjóni textanum, það verði alltaf ofan á. „Við höfum verið með nokkrar prufusýningar fyrir minni hópa, því við höfum reynt að frumsýna verkið þrisvar, en þurft að fresta í öll skiptin vegna covid. Mér hefur fundist mjög áhugavert að heyra hvað fólki finnst um þetta, því þegar fólk veit að þetta er samtíningsverk þá áttar það sig á þessu, en þeir sem ekki vita það sjá eitthvað allt annað. Trúba- dorinn segir sögurnar eins og þær séu hluti af hans innra lífi.“ Allir að koma eða fara Þegar Guðmundur Ingi er spurður að því hvers vegna þeir Árni hafi valið flugvelli sem sýningarstaði, segir hann það hafa tónað vel við verkið. „Það sem kveikti í okkur með að nota flugvelli sem leikhús, var að þar eru allir að koma eða fara. Flugvellir eru iðandi af mannlífi en það vill eng- inn vera þar, allir eru að flýta sér að fara eitthvað annað. Ég er sjálfur utan af landi, kúabóndasonur úr Borgar- firði, og mér hefur oft fundist að fólk í höfuðborginni þyki vænt um lands- byggðina en vilji ekki búa þar. Því finnst gaman að koma en vill ekki vera. Borgarbúar hafa líka rosalega miklar skoðanir á öllu sem tengist lands- byggðinni, náttúruvernd, búskapar- háttum og öðru, en vita samt ekkert hvað það er að búa úti á landi og hvað þarf til að búa þar. Ég leik trúbador sem finnst rosa gaman að koma út á land og halda tónleika en hann er frið- laus að taka fyrstu vél í bæinn. Ég mæti í dag út á flugvöll í Reykjavík í búningi og karakter og flyt verkið þar, flýg svo út á land á þessa þrjá flugvelli, Egilsstaði, Akureyri og Ísafjörð, og flyt verkið líka þar. Ég losna ekkert úr karakter fyrr en ég verð aftur kominn í bíl í Reykjavík. Ég verð einmana kú- reki á flugvöllum fjóra daga í röð, sem mér finnst mjög áhugavert og ég hlakka til, því mér finnst gaman að gera eitthvað skrýtið.“ Ég verð einmana kúreki á flugvöllum um helgina - Guðmundur Ingi leikur trúbador í verkinu Einangrun Ljósmynd/Árni Kristjánsson Kúreki Guðmundur Ingi í hlutverki sínu á leið út á land með gítarinn. Sýningar: 10. júní: Reykjavíkur- flugvöllur kl. 17:00. 11. júní: Egils- staðaflugvöllur kl. 15:15 og kl. 18:45. 12. júní: Akureyrarflugvöllur kl. 13.00 og kl. 17.00. 13. júní: Ísa- fjarðarflugvöllur kl. 10:20 og kl. 17. Sinfóníuhljóm- sveit Íslands heldur loka- tónleika starfs- ársins í Hörpu í kvöld kl. 20 og flytur sinfóníu nr. 2. eftir J. Brahms auk þess sem nýr íslensk- ur fiðlukonsert eftir Þuríði Jóns- dóttur verður leikinn í fyrsta sinn. Um frumflutninginn sér Una Sveinbjarnardóttir og er þetta í fyrsta sinn sem íslenskur fiðlu- konsert eftir konu er á dagskrá hljómsveitarinnar, að því er fram kemur á vef SÍ. Þuríður samdi verkið fyrir Unu, þriðja konsert- meistara SÍ. Daníel Bjarnason heldur um tón- sprotann í kvöld og kynnir verður Árni Heimir Ingólfsson. Tónleik- arnir verða í beinni útsendingu á Rás 1. Una frumflytur fiðlukonsert Þuríðar Una Sveinbjarnardóttir Sýningin Grín fyrir Grensás (Kol- svart – Sex, Drugs and Rock&Roll) fer fram í Hannesarholti í kvöld kl. 20 og eru það Hannesarholt og á-rás sem standa fyrir henni. Á sýning- unni slær Valdimar Sverrisson ljós- myndari á „G-streng og aðra létta strengi um það að greinast með heilaæxli á stærð við sítrónu og missa sjónina í kjölfarið“, eins og segir í tilkynningu. Hann hafi vakn- að upp við vondan draum á Grensás- deild Landspítalans, áttað sig á því að hann hefði ekki látið gamlan draum rætast um að gerast uppi- standari. „Það var því ekki eftir neinu að bíða með að ganga í verkið og verður afraksturinn fluttur í Hannesarholti, bæði uppistand og grínmyndbönd þar sem fram koma Ari Eldjárn og Örn Árnason auk fjölda annarra úr stafrófinu frá A til Ö,“ segir um sýninguna og að það minnsta sem blindur maður geti gert sé að búa til myndband. Allur aðgangseyrir rennur til Grensáss. Grínast fyrir Grensásdeild Landspítala Uppistandari Valdimar Sverrisson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.