Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 80

Morgunblaðið - 10.06.2021, Síða 80
25% af allri sumarvöru Lýkurámánudag Svefnherbergisdögum ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is DORIA Rúmgafl. Bleikt velúr áklæði. L192 cm. 64.900 kr. Nú 51.920 kr. ARIES Kommóða. 2 skúffur og 1 hurð. Gráolíuborin eik. Skúffur með ljúflokum. 108x45x75 cm. 129.900 kr. Nú 103.920 kr. PORTIO Garðstóll. Grár. 12.900 kr. Nú 9.675 kr. SEAFORD Náttborð með 2 hillum. Svart. 42x35x63 cm. 14.900 kr. Nú 11.920 kr. 20% 20% 20% FIMMTUDAGUR 10. JÚNÍ 161. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Evrópukeppni karla í fótbolta hefst annað kvöld með viðureign Ítala og Tyrkja í Róm. Philipp Lahm, fyrirliði heimsmeistaraliðs Þýskalands árið 2014, skrifar pistil á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag þar sem hann fjallar um keppnina í víðu samhengi. Hvernig Evrópu- keppnin hafi stuðlað að betri tengslum þjóða í austri og vestri, óvænta sigurvegara, hvernig lið Íslands sló í gegn árið 2016 og við hverju megi búast í þessari loka- keppni. »68-69 Philipp Lahm skrifar um EM ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í bænum Homer við Alaskaströnd, um 350 km suðvestur af Anchor- age, býr Lily Colman, um tvítug stúlka, og les og lærir forn- íslensku í frístundum. Hún hefur hvorki komið til Íslands né Íslend- ingabyggða í Vesturheimi, aldrei hitt Íslendinga eða fólk af íslensk- um ættum, en skrifast á við ís- lenska vinkonu. Hún skilur ís- lensku og les málið sér til fræðslu og skemmtunar. „Ég hef samt helst numið forníslensku og nor- rænu,“ segir hún, en íslenska hennar í skrifuðu máli og tali ber keim af því. Menning og trúarbrögð í Evr- ópu til forna heilluðu Lily snemma og hún segist alltaf hafa haft áhuga á tungumálum, ekki síst fá- gætum og fornum. Víkingaímynd- in um rænandi og ruplandi menn sé yfirborðsleg og hafi ekki fallið í kramið hjá sér. Því hafi hún ein- sett sér að lesa sér til um nor- ræna menningu í fornöld og á landnámstíð. Refilgerð helsta áhugamálið Bayeux-refillinn, sem sýnir orr- ustuna við Hastings 1066, er eitt af því sem hefur heillað Lily og að áeggjan fjölskyldunnar gerði hún refil, sem sýnir sameiningu Nor- egs og landnám Íslands. „Ég kynnti mér málið vel, setti mig í spor konu á 12. og 13. öld og beitti sömu aðferðum og hún hefði beitt.“ Hún leggur áherslu á að refilgerð sé nú helsta áhugamálið. Áhugi á Íslandi og íslensku kviknaði við að fletta bók frá 1993 um íslenskan prjónaskap, Ice- landic Patterns in Needlepoint: Over 40 Easy-to-Stitch Designs from the Land of Ice and Fire eft- ir Jónu Sparey. „Ég var 11 ára og féll algerlega fyrir samsetningu ís- lensku orðanna og ákvað að læra málið.“ Þegar hún var 12 ára gaf mamma hennar henni íslenskar málfræðibækur í afmælisgjöf. „Nam ég aðallega úr þessum kennslubókum og forníslenskri orðabók, og auðvitað bætti ég mikið við lestur, las helst forn- og söguleg rit og Íslendingasögur.“ Hún hafi tekið íslenskukúrs á net- inu hjá Háskóla Íslands þegar hún var 16 ára en síðan hafi hún ein- beitt sér að forníslensku og eddu- kvæðum. „Ég elska kvæðin, Egla er uppáhaldssagan mín og síðan kemur Gíslasaga.“ Lily heldur sig við íslensku fornritin en er líka sjálfmenntuð í norsku og hefur lesið mikið eftir rithöfundinn Sigrid Undset, sem hlaut Bókmenntaverðlaun Nóbels 1928. „Annars brúka ég ekki mál þetta oft. Núna les ég Skáldskap- armál og nýt þess ákaflega.“ Bætir við að hún semji ljóð til að halda sér í æfingu og lesi oft ýmsar fornsögur og kvæði fyrir systur sína, þýði efnið þá jafn- óðum á ensku. „Okkur finnst mikið gaman að því, fjölskyldu minni líst vel á áhugamál mitt og systur minni finnst það áhuga- vert.“ Langvinn veikindi hafa komið í veg fyrir mikla ástundun við ís- lenskuna að undanförnu. „Upp- haflega var ég vön að æfa mig í málinu í frítíma mínum, venjulega á hverjum degi eða þar um bil. Síðan ég veiktist hef ég hætt því að mestu leyti, en nú reyni ég að halda námi mínu áfram með því að lesa orðabækur og fleira sem ég hef áður lesið, rifja upp.“ Hún leggur áherslu á að hún vilji lesa íslenskar bækur og sé að safna íslenskum fornritum. „Mér mis- líkar að lesa á tölvunni.“ Íslenska í Alaska og Egla í uppáhaldi - Lily hefur aldrei hitt Íslending en les og talar málið Refill Sameining Noregs og landnám Íslands með augum Lilyar. Fróðleiksfús Lily Colman kann íslensku og safnar fornritum. Krummi Björgvinsson hefur tónleikaröðina Á vegum úti á Græna hattinum á Akureyri í kvöld kl. 21. Bjarni M. Sigurðarson og Daníel Hjálmtýsson koma fram með honum. Næstu tónleikar verða svo haldnir annað kvöld á Fosshóteli á Húsavík, á laugardag í Bláu kirkjunni á Seyðisfirði og Tehúsinu á Egilsstöðum og þeir síðustu á sunnudag í Beituskúrnum í Neskaupstað. Krummi hef- ur verið í hljómsveitunum Mínus, Legend, Esju og Dap- urri og hefur hin síðustu ár unnið að sinni fyrstu sóló- plötu og þokast nær þjóðlagatónlist og kántríi. Krummi og félagar í tónleikaferð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.