Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 2

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Einari Á. Sæmundsen, þjóðgarðs- verði á Þingvöllum, brá í brún þegar hann kom til vinnu í vikunni. Aug- ljóst var að tilraun hafði verið gerð til innbrots. Við nánari athugun virt- ist málið þó hið einkennilegasta. „Rúðan á hurðinni var brotin og hurðarhúnninn, rammgerður úr stáli, var kengboginn út í loftið,“ seg- ir Einar. Þá var ekki búið að stela neinum munum úr húsinu. Nokkru síðar stóð Einar ásamt samstarfs- manni sínum í anddyri gestastof- unnar og þá lét þrjóturinn sjá sig. Um var að ræða hrút sem gengið hafði laus um svæðið í nokkurn tíma. Sturlaðist út í sjálfan sig „Þeir fóru þrír og gerðu sig líklega til þess að reka hrútinn á brott. Brást þá hrúturinn ókvæða við og ætlaði að hjóla í þá,“ segir Einar er hann lýsir atburðarásinni. Á end- anum snerist hann um hæl, horfði á sjálfan sig speglast í rúðunni á gestastofunni og sturlaðist. Hrút- urinn óð af öllu afli í spegilmyndina af sjálfum sér, í þrígang, og tókst að splundra rúðunni og skemma aðra í leiðinni. Hrúturinn stakk þá af eftir átökin við sjálfan sig. Hann fannst svo nokkrum dögum síðar, en með hon- um var annar yngri hrútur. „Sá yngri bar þó ekki ábyrgð á skemmdarverkunum eða inn- brotstilrauninni, en hann hefur ef- laust lært ýmislegt af þeim eldri síð- ustu dagana,“ segir Einar. Fæddir og uppaldir í þjóðgarðinum Við nánari skoðun á hrútunum kom í ljós að þeir voru ómarkaðir og því í raun eigandalausir. Höfðu báðir fæðst og lifað í þjóðgarðinum. Þrátt fyrir að lausafé sé alla jafnan rekið skipulega út úr þjóðgarðinum þá verður stundum nokkuð fé eftir og gjarnt á að fela sig í runnum og skógum í Þingvallaþjóðgarði. „Svo grænkar fyrst grasið á tjaldsvæð- unum og þá kemur féð út úr skóg- inum til þess að gæða sér á grasinu,“ segir Einar. Færist ofar á forgangslistann „Þjóðgarðurinn er afgirtur allan hringinn.Við höfum verið duglegir við að viðhalda vesturhluta girðing- arinnar, en vitum af nokkrum glopp- um á girðingunni á austurhliðinni,“ segir Einar. Vegna stöðugs straums ferðamanna undanfarin ár hefur við- hald á girðingum ekki verið efst á forgangslistanum en mögulega verð- ur breyting þar á. Enda ljóst að lausafé getur valdið meiri skaða en bara á grasi tjaldsvæða Þingvalla. „Tjónið af þessu reiðikasti hrútsins er sennilega um ein milljón króna.“ Hrútur gekk berserksgang - Tilraun til innbrots og skemmdarverk vegna reiðikasts hrúts - Tjón upp á 1 milljón króna - Ómarkaður og frjáls Ljósmyndir/Einar Á. Sæmundsen Í ham Hrúturinn Hreinn undirbýr atlögu sína að rúðunni á gestastofunni. Smali Með hrút á herðum sér. www.kofaroghus.is - sími 553 1545 369.750 kr . Tilboðsverð 697.500 kr . Tilboðsverð 449.400 kr . Tilboðsverð 34mm 34mm44mm Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik má finna á vef okkar Afar einfalt er að reisa húsin okkar Uppsetning te kur aðeins ein n dag BREKKA 34 - 9 fm STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm 25% afsláttur 25% afsláttur 30% afsláttur TILBOÐ Á GARÐHÚSUM! TIL Á LAGER VANTAR ÞIGPLÁSS? Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tuttugu og níu flugvélar koma til Keflavíkurflugvallar í dag, samkvæmt áætlun flugfélaganna, og jafn margar fljúga brott af landinu. Ekki hafa fleiri vélar komið til landsins á einum degi frá því að kórónuveirufaraldurinn lam- aði ferðaþjónustuna. Enn er þó langt í að flugið komist á þann stað sem var fyrir faraldurinn. Helgin er stór á Keflavíkurflugvelli, ef miðað er við starfsemina eins og hún hefur verið frá því að kórónuveiru- faraldurinn skall á. 57 komur eru á áætlun og 56 brottfarir, samtals um helgina. Meiri umsvif en í fyrrasumar Fyrsta júní fóru 3.162 farþegar í gegnum flugstöðina og þá er átt við komufarþega, brottfararfarþega og skiptifarþega. Laugardaginn fyrir viku komu 23 vélar og jafn margar fóru. Með þeim voru 5.245 farþegar. Isavia hefur ekki upplýsingar um farþega- fjöldann í vélunum sem koma og fara um helgina. Ef tekið er mið af stærð og nýtingu vélanna um síðustu helgi má reikna með að yfir sjö þúsund farþegar verði með vélunum í dag. Stærsti dagurinn í flugstöðinni í fyrrasumar, þegar flugið tók aðeins við sér í hléi sem varð á faraldrinum, var 8. ágúst. Þá voru 26 komur og 25 brott- farir. Er fjöldi fluga því orðinn meiri en mest varð síðasta sumar. Aftur á móti voru mun fleiri flug og farþegar áður en kórónaveiran fór að herja á íbúa heimsins. Þannig voru samtals 154 komur og brottfarir að meðaltali á Keflavíkurflugvelli í júní 2019. Tilbúin að taka við fjölgun Guðmundur Daði Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri viðskipta og þróunar hjá Isavia, segir að félagið sé vel í stakk búið til að þjónusta aukinn fjölda far- þega. „Aukningin hefur verið hæg en stöðug á Keflavíkurflugvelli. Umsvifin hafa verið að aukast eins og við gerðum ráð fyrir. Við erum tilbúin að taka við þeim flugvélum sem boðað hafa komu sína enda flugvöllurinn vel í stakk bú- inn fyrir aukningu. Við sjáum vonandi innan fárra mánaða enn meiri umsvif og starfsfólk Isavia er búið undir það,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson. Afar stór dagur í flugstöðinni í dag - 58 komur og brottfarir flugvéla á Keflavíkurflugvelli í dag - Búast má við að yfir sjö þúsund farþegar fari um flugstöðina - Stærri en stærsti dagurinn í fyrrasumar - Starfsfólk í stakk búið fyrir meiri fjölda Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Síðustu daga hefur erlendum ferðamönnum fjölgað smám saman í miðborg Reykjavíkur. Þessir spókuðu sig við Hallgrímskirkju í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.