Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Mikilvægt er að hafist verði handa
sem fyrst um miklar samgöngubætur
á Suðurlandi, að mati sveitarstjórnar-
manna þar, sem funduðu í vikunni með
samgöngu- og sveitarstjórnarráð-
herra vegna vinnu sem nú stendur yfir
vegna hugsanlegrar sameiningar
sveitarfélaga milli Þjórsár og Skeiðar-
ársands. „Sameinuð erum við miklu
sterkari en í samkeppni,“ segir Anton
Kári Halldórsson, oddviti Rangár-
þings eystra og formaður verkefnisins
Sveitarfélagsins Suðurlands.
Kosið verður um
sameiningu 25. september
Fimm sveitarfélög eru nú í samein-
ingarviðræðum: það er Ásahreppur,
Rangárþing ytra, Rangárþing eystra,
Mýrdalshreppur og Skaftárhreppur.
Kosið verður um sameiningu 25. sept-
ember nk., samhliða alþingiskosning-
um.
Á svæðinu, sem hugsanlega gæti
orðið eitt sveitarfélag, eru héraðs- og
tengivegir, samtals um 1.300 kílómetr-
ar. Af þeim eru um 500 km malarvegir
eða 38%. Ef miðað er við áætlanir
verða þeir ekki allir lagðir slitlagi fyrr
en eftir hálfa öld. Anton Kári Þor-
steinsson segir mikla hagsmuni felast í
því að bæta úr stöðunni. Um helming-
ur grunnskólanemenda á svæðinu býr
í dreifbýli og ferðast með skólaakstri
daglega, mörg langa leið um erfiða
vegi. Þar eru flestir af fjölsóttustu
ferðamannastöðum landsins en kallað
hefur verið mjög eftir uppbyggingu í
kringum ferðaþjónustuna. Auk þess er
mikill landbúnaður á svæðinu sem
reiðir sig á allir flutningar á aðföngum
og afurðum gangi greitt fyrir sig.
Samstarf lækki kostnað
Sveitarfélögin hafa skorað sameig-
inlega á Alþingi og ríkisstjórn að bæta
samgöngur innan svæðisins. Samstarf
sveitarfélaganna veiti mikil tækifæri
til að hraða uppbyggingunni og nýta
fjármuni betur. Sé byggt á stöðlum og
kostnaðarmati Vegagerðarinnar er
áætlaður kostnaður við að byggja upp
alla héraðs- og tengivegi á svæðinu 20-
25 milljarðar króna, eða sem nemur
einum jarðgöngum.
Anton Kári segir góð fordæmi fyrir
því að Alþingi og samgönguyfirvöld
hafi veitt sameinuðum sveitarfélögum
sérstaka fyrirgreiðslu til að mæta
brýnum samgöngubótum í landstórum
sveitarfélögum. Verði af sameiningu
sveitarfélaganna fimm sé það vilji
heimamanna að veitt verði sérstök
fjárveiting til uppbyggingar héraðs-
og tengivega. Sveitarfélagið Suður-
land sé reiðubúið að taka þátt í til-
raunaverkefni þar sem sveitarstjórn
tekur þátt í að forgangsraða verkefn-
um og leita leiða til að draga úr kostn-
aði við framkvæmdirnar. Ef samstarf
sveitarfélags og Vegagerðar skilar
15% betri nýtingu fjármuna skapast
tækifæri til að spara tæpa 4 milljarða,
eða leggja um 100 km af bundnu slit-
lagi. Verkefnið getur því orðið góð
fyrirmynd.
Sameining virki kraft
„Ég hef í mínum störfum lagt mikla
áherslu á að styrkja sveitarstjórnar-
stigið,“ segir Sigurður Ingi Jóhanns-
son, ráðherra samgöngu- og sveitar-
stjórnarmála. Hann segir einn hluta af
eflingu sveitarstjórna þann að þau
verði stærri og sterkari og þannig
tækifæri til að mæta auknum kröfum
íbúa. „Sameining er ekki til að breyta
samfélögum heldur til að virkja á
markvissari hátt þann kraft sem þau
búa yfir. Þannig verða til aukin at-
vinnutækifæri og meiri lífsgæði.“
Vegabætur fylgi sameiningunni
- Sveitarfélög milli Þjórsár og Skeiðarársands í viðræðum - Vegina þarf að bæta - Bið eftir slitlagi
gæti tekið hálfa öld - Uppbygging gæti kostað 25 ma. kr. - Ráðherra vill styrkja sveitarstjórnarstigið
Ljósmynd/Jón Hrói Finnsson
Viðræður Sveitarstjórnarmenn á Suðurlandi fóru yfir stóru myndina og
vegamál með tilliti til sameiningar sveitarfélaga með samgönguráðherra.
„Þetta er elsti og áhrifamesti sölu-
listi Bretlands og allir höfundar vilja
komast inn á hann. Það ætti að segja
allt sem segja þarf um það hvílíkur
árangur þetta er hjá Ragnari Jón-
assyni og full ástæða til að óska hon-
um til hamingju,“ segir Pétur Már
Ólafsson, bókaútgefandi í Bjarti/
Veröld.
Glæpasagan Þorpið eftir Ragnar
Jónasson fer rakleitt í fyrstu viku í
tíunda sæti metsölulista Sunday
Times í Bretlandi yfir innbundin
skáldverk en listinn er birtur nú um
helgina. Pétur kveðst telja að Ragn-
ar sé fyrsti íslenski höfundurinn sem
komi bók inn á topp tíu á metsölu-
lista Sunday Times.
Á toppi listans trónir ný spennu-
saga sem Bill Clinton og James
Patterson skrifa í sameiningu og
kom út í vikunni. Ragnar er ekki
ókunnur met-
sölulistum heima
og erlendis og er
þess skemmst að
minnast að í fyrra
átti hann um tíma
þrjár af mest
seldu kiljum
Þýskalands,
Dimmu, Drunga
og Mistur, auk
þess sem Dimma var þriðja mest
selda kilja ársins 2020 þar í landi.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu hefur Ragnar og Þorpið
verið áberandi á síðum The Times
og Sunday Times að undanförnu en
Þorpið er glæpasaga júnímánaðar í
blaðinu. Gagnrýnandi The Times
sagði á dögunum að þessi „tíðar-
andatryllir“ væri „hrikalega gríp-
andi“, Ragnar Jónasson væri skáld
hins „dimma og hráslagalega“, skáld
„myrkurs, kulda og rigningar“ og að
óttatilfinningin sem aðalpersónan
gefur sig smám saman á vald í sög-
unni væri hryllilega smitandi.
Á dögunum birtist ítarlegt viðtal
við Ragnar í The Times þar sem
blaðamaðurinn sagði að Ísland væri
miklu öflugra á sviði glæpasagna en
fólksfjöldinn segði til um. Arnaldur
Indriðason og Yrsa Sigurðardóttir
væru í hópi fremstu glæpasagnahöf-
unda heims og nú hefði Ragnar Jón-
asson bæst í hópinn. Með nýjustu
bók sinni, Þorpinu, væri Ragnar orð-
inn ein mikilvægasta röddin í heimi
alþjóðlegra glæpasagna.
Sunday Times valdi glæpasögu
Ragnars, Dimmu, eina af hundrað
bestu glæpasögum sem skrifaðar
hafa verið frá stríðslokum.
hdm@mbl.is
Ragnar rauk inn á topp tíu
- Fyrstur íslenskra höfunda á topp tíu hjá Sunday Times
Ragnar Jónasson
Reykjavíkurmeistaramótinu í hestaíþróttum sem fram
fer á félagssvæði Fáks í Víðidal lýkur á morgun, sunnu-
dag. Um helgina verða riðin úrslit í flestum greinum en
úrslit í nokkrum greinum fóru fram í gær.
Mótið hófst síðastliðinn mánudag. Umfang þess eykst
stöðugt og mótið stækkar ört frá ári til árs. Þannig
voru alls 888 pör skráð til leiks í ár, en skráningarnar
hafa aldrei verið fleiri.
Mótinu lýkur á morgun með A-úrslitum í fjórgangi,
fimmgangi og tölti. Allra síðasta greinin er A-úrslit í
tölti T1 í meistaraflokki og er gert ráð fyrir að þau
hefjist klukkan 20.15 um kvöldið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Keppt til úrslita um helgina
Reykjavíkurmeistaramótinu í hestaíþróttum lýkur á morgun
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 100.000 kr.
1263
1766
2959
4276
4945
4966
5191
6393
6431
7105
7968
10527
11375
11755
12833
12866
14166
14372
15033
15398
15915
16106
17686
18017
18376
19342
19422
20505
21353
22088
23668
24508
25554
25764
27117
27894
31764
32608
32907
33103
33458
33654
34014
35085
35540
37477
38302
40945
41188
41880
42355
45385
45823
46349
46470
47772
47840
48638
49605
49638
50389
50735
53322
54116
56169
57182
57525
59395
60597
61737
61791
63983
64460
65947
68510
69058
71882
72622
72848
74172
78195
80899
81281
81412
82084
82381
83137
84619
85003
85123
85291
85333
87908
89249
90349
94241
94633
99427
100140
100665
101661
101851
101916
102126
102414
102793
104823
105253
109262
109968
110196
112039
112757
115399
115598
116391
116688
117275
117399
117905
118793
119016
119753
122140
122654
123126
124870
125667
126000
126760
126972
128299
130084
130111
130661
131178
131454
133636
133708
136529
136732
138227
138288
138679
138811
140056
140409
142010
142021
143008
143987
144078
144086
144527
144681
145340
145761
147063
148052
148896
152604
154121
155982
156993
157186
158262
159274
B
ir
t
án
áb
yr
g›
ar
Úttekt hjá ferðaskrifstofu eða verslun að verðmæti 200.000 kr.
1785
2656
2677
2810
3701
5024
5452
6244
6981
8396
9261
10180
10625
11255
11260
11345
13097
13732
15597
15783
16578
18545
21773
24650
24968
27076
31987
32302
33898
33910
33946
33947
34179
34265
35323
35622
36654
37291
40187
40787
41001
41279
41478
41693
41743
42146
42230
42281
43391
43534
45398
48114
48939
49980
50162
50676
54689
54733
55817
56246
56945
59011
59616
60614
60716
61421
62045
62191
64430
65674
67152
68411
70355
73021
73890
74645
76232
76555
77840
77917
79833
82001
82166
83989
86613
88494
88815
89008
91371
92551
93456
95126
97215
99550
99692
101238
101750
104281
105665
105881
109399
110054
111762
112772
113197
114707
116872
117914
119086
119252
120985
121403
121521
122062
122376
125118
126161
128021
129136
134033
134835
137487
138819
139364
140586
141412
141774
142716
143348
145158
145572
146382
148879
149017
150227
150416
151711
154742
155243
159844
Sumarhappdrætti
Krabbameinsfélagsins
Kia XCeed Plug-in Hybrid 4.790.777 kr.
15610
Greiðsla upp í bifreið eða íbúð að verðmæti 1.000.000 kr.
2283 34326 143119 158018
VINNINGAR
útdráttur 17. júní 2021
Krabbameinsfélagi› þakkar landsmönnum
veittan stu›ning.
Handhafar vinningsmi›a framvísi þeim á skrifstofu
Krabbameinsfélagsins a› Skógarhlí› 8, sími 540 1900.
Byrja› ver›ur a› grei›a út vinninga þann 5. júlí nk.