Morgunblaðið - 19.06.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Fyrsta nýja sjónvarpsstöðin íBretlandi í nær aldarfjórð-
ung, GB News, fór í loftið á dög-
unum. Hún hefur vakið töluverða
athygli þar í landi og hefur einnig
orðið Sigurði Má
Jónssyni blaða-
manni tilefni pistla-
skrifa á mbl.is. Þar
bendir hann á að
stöðin eigi meðal
annars að vinna
gegn útilok-
unarmenningunni
og styðja við tján-
ingarfrelsið. Ekki kemur á óvart
að vinstri menn telji sig þurfa að
ráðast á stöðina og að nokkur
fyrirtæki hafi ákveðið að auglýsa
ekki þar af ótta við ofsa útilok-
unarsinna á vinstri kantinum.
- - -
Í pistli um þetta víkur SigurðurMár að BBC og bendir á að þar
hafi hvert hneykslið rekið annað,
„og miklar efasemdir verið meðal
Breta um að það sé rétt að halda
úti starfsemi stöðvarinnar í núver-
andi mynd. Stjórnendur hafa kom-
ið og farið, rannsóknarskýrslur
skrifaðar og reglur og þá sér-
staklega siðareglur endurskoð-
aðar. Óhætt er að segja að vin-
sældir og áhrif BBC hafi minnkað
verulega undanfarin ár.
- - -
Í kjölfar fjármálakreppunnarfyrir 12 árum var upplýst að á
meðal æðstu stjórnenda BBC ríkti
mikill lúxuslifnaður og þeir hikuðu
ekki við að leigja einkaþotur og
gista á glæsihótelum og gáfu hver
öðrum gjafir, allt á kostnað rík-
isins. Óhófið var afhjúpað í gögn-
um sem lekið var til fjölmiðla en
þar kom fram að flestir af 50 hæst-
settu stjórnendum BBC höfðu
margföld laun þingmanna. Fyrir
og eftir þetta hefur hvert hneyksl-
ið á fætur öðru dunið yfir fólk, nú
síðast í kjölfar heimildarmynd-
arinnar Diana: The Truth Behind
the Interview sem var sýnd á
Channel 4 síðasta haust.“
Sigurður Már
Jónsson
Umbrot í
bresku sjónvarpi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Mér finnst einhvern veginn ekkert
toppa Reykjavík þegar sólin skín
og það er djass. Þá bragðast mat-
urinn og bjórinn betur og allir eru
bara glaðari, þetta eru einhverjir
töfrar,“ segir Jakob Einar Jakobs-
son, eigandi veitingastaðarins
Jómfrúarinnar, léttur í bragði þar
sem Jómfrúin keyrir í dag af stað
sinn sívinsæla sumardjass sem fer
fram á hverju sumri, núna í 27.
skiptið.
Faraldurinn setti strik í reikn-
inginn seinasta sumar og var ekki
hægt að halda sumardjass í ágúst-
mánuði en þó gátu Reykvíkingar
vel við unað og notið sumardjassins
á Jómfrúartoginu í júní og júlí.
Tónleikarnir fara fram á sama stað
frá klukkan þrjú til fimm í dag þar
sem Einar Scheving hefur leika
með Afro-Cuban kvintett.
„Núna mega 300 manns koma
saman og við teljum að það dugi til
þess að hafa einhverskonar brag á
sumardjassinum sem er alltaf ákaf-
lega vel sóttur,“ segir hann.
Veðrið hefur ekki verið með besta
móti að undanförnu en Jakob og fé-
lagar láta það ekki á sig fá:
„Við höfum alltaf miðað við það að
ef hljóðfæraleikararnir fá ekki raf-
lost af hljóðfærunum þá viljum við
og þeir keyra prógrammið áfram.“
Töfrar í lofti þegar djassinn dunar
- Sumardjass hefur göngu sína á ný
á Jómfrúartorgi í 27. skipti í dag
Morgunblaðið/Hari
Sumardjass Á sumardjassi Jómfrú-
arinnar er gleðin ávallt við völd.
Steinar Ingi Kolbeins
steinar@mbl.is
Hugverkastofa hefur hafnað kröfu
LEX lögmannsstofu fyrir hönd Hót-
el Keflavík ehf. um að skráning
vörumerkisins BB Hotel – Keflavik
Airport yrði felld úr gildi. Krafan
byggði á því að til staðar væri hætta
á ruglingi milli merkisins og merkis
þess sem sendi inn kröfuna, sem er
HÓTEL KEFLAVÍK.
Í niðurstöðu Hugverkastofu segir
að það sé mat Hugverkastofu að
sameiginlegur hluti merkjanna sé
veikur og í eðli sínu lýsandi fyrir um-
rædda þjónustu og staðsetningu
hennar og aðrir þættir í merki eig-
anda voru taldir aðgreinanlegir frá
merki Hótel Keflavíkur. Niðurstaða
Hugverkastofu var því sú að heild-
armynd merkjanna væri ekki það lík
að ruglingi gæti valdið.
Fram kemur í ákvörðun Hug-
verkastofu að sameiginlegur hluti
merkjanna þ.e. orðin „Hótel“ og
„Keflavík“ séu í eðli sínu lýsandi fyr-
ir þá þjónustu sem um ræðir og hvar
hún er veitt. Um sé að ræða hótel,
sem staðsett séu í Keflavík. Sameig-
inlega hluta merkjanna skorti því
sérkenni. Þrátt fyrir það sé það mat
stofnunarinnar að merki eiganda
vísi í raun til annarrar staðsetningar
en merki beiðanda, þ.e. til Keflavík-
urflugvallar en ekki Keflavíkur.
Lögum um vörumerki var breytt
þann 1. september 2020 og þann
sama dag tók ný reglugerð um um-
sóknir og skráningu vörumerkja
gildi. Í ljósi þess að krafan um nið-
urfellingu merkisins barst áður en
ný löggjöf tók gildi, þá byggði form-
leg yfirferð málsins og efnisleg
ákvörðun á eldri laga- og reglugerð-
arákvæðum.
Kröfu Hótel
Keflavíkur hafnað
- Merki ekki talin
það lík að það gæti
valdið ruglingi
Hugverkastofan Hugverkastofan hef-
ur aðsetur við Engjateig í Reykjvík.