Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 22

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 22
Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Áskrifendur að íþróttastöðinni Stöð 2 Sport hafa aldrei verið jafn margir og nú. Evrópumeist- aramótið í fótbolta karla hófst á dögun- um og hefur áskrif- endum stöðvarinn- ar fjölgað mikið síðan þá. Hægt er að fá aðgang að EM-stöðinni með tvenn- um hætti, með kaupum á Sportpakk- anum eða EM-pakkanum. „Fyrir sölu á EM höfðu aldrei í sögu Stöð 2 Sport verið fleiri áskrifendur að stöðinni. Svo bættist við mikill fjöldi áskrifenda strax þegar Evrópumeistaramótið hófst og á hverjum degi bætast fjöl- margir nýir áskrifendur í þann hóp,“ segir Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýnar, í samtali við Morgunblaðið. Áskrifendum Stöðvar 2 fjölgar Hann bætir við að áskrifendur að Stöð 2 hafi ekki verið fleiri í tæp tíu ár. „Það kom talsverð aukning eftir að við breyttum stöðinni í hreina áskrift- arstöð og við sjáum frekari fjölgun út árið, ef að líkum lætur. Sömu sögu er að segja um efnisveituna Stöð 2+ en þar hefur áskrifendum fjölgað gríð- arlega mikið og hefur hún aldrei verið stærri.“ logis@mbl.is EM eykur áskriftir - Aldrei jafn margir með Stöð 2 Sport Áhorf Margir horfa á EM. 22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is TENGISTYKKIN DVERGARNIR R Skoð ið nýj u heima síðun a island shus.i s FÁST Í BYGGINGA-VÖRUVERSLUNUM Sérsmíðuð tengistykki á dvergana léttir vinnuna – margar tegundir 19. júní 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.22 Sterlingspund 171.25 Kanadadalur 99.58 Dönsk króna 19.763 Norsk króna 14.519 Sænsk króna 14.51 Svissn. franki 134.89 Japanskt jen 1.1034 SDR 174.57 Evra 146.97 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 176.7866 Hrávöruverð Gull 1806.75 ($/únsa) Ál 2427.5 ($/tonn) LME Hráolía 73.8 ($/fatið) Brent « Hlutur ferða- þjónustu í lands- framleiðslu nam 3,9% árið 2020 samkvæmt bráða- birgðaniðurstöðum ferðaþjónustu- reikninga, sam- anborið við 8% ár- ið 2019. Þetta kemur fram á heimasíðu Hag- stofu Íslands. Þar segir einnig að heildarútgjöld ferðamanna á Íslandi, íslenskra og erlendra, hafi numið 220 milljörðum króna árið 2020, og drógust saman um 58% borið saman við árið 2019. Komum erlendra ferðamanna hingað til lands fækkaði um 81% á sama tímabili. Heildarútgjöld íslenskra ferða- manna námu 122 milljörðum króna og drógust saman um 14% frá árinu 2019. Heildarútgjöld íslenskra ferðamanna námu um 56% af heildarútgjöldum ferðamanna á Íslandi árið 2020, sam- anborið við aðeins 27% af heildar- útgjöldum ferðamanna árið 2019. Heildarútgjöld erlendra ferðamanna námu 98 milljörðum króna árið 2020 og drógust saman um 75% samanborið við árið 2019. Ferðaþjónustan 3,9% af landsframleiðslu 2020 Frí heildarútgjöld ferðamanna á Ís- landi námu 220 milljörðum króna á síðasta ári. STUTT BAKSVIÐ Logi Sigurðarson logis@mbl.is Uppsetning rafhleðslustöðva í fjöl- býlishúsum hækkar fasteignaverð, að mati Bjarna Gnýs Hjarðar, sér- fræðings á byggingasviði hjá Eigna- umsjón. „Gott rafhleðslukerfi eykur virði fasteigna og er kostur en ekki vand- ræði. Því fyrr sem það er gert því betra. Þetta er tækifæri til að gera húsið verð- mætara og auð- seljanlegra,“ seg- ir Bjarni. Hann segir að gríðarlegur fjöldi fyrirspurna hafa borist Eignaum- sjón vegna ráð- gjafar til fjölbýlshúsa um uppsetn- ingu hleðslustöðva. „Við erum að sjá verulega aukningu í fyrirspurnum. Í apríl voru ein til tvær fyrirspurnir á viku en nú eru þær ein til tvær á dag. Húsfélagi hvers húss ber skylda samkvæmt lögum til að hafa framkvæmdaáætlun sem snýr að uppbyggingu kerfis til hleðslu raf- bíla,“ segir Bjarni og vísar í nýleg lög sem segja til um það að ef einn íbúi fjölbýlis óskar eftir aðstöðu fyr- ir rafhleðslustöð þurfi húsfélagið að búa til framkvæmdaáætlun og síðan koma upp aðstöðu fyrir rafhleðslu- stöð ekki seinna en tveimur árum eftir gerð framkvæmdaráætlunar. „Ef þetta er húsfélaginu ofviða er hægt að fresta framkvæmdinni í allt að tvö ár en það á ekki við nema í undantekningartilfellum.“ Bjarna finnst sérstakt að þótt þessi lög séu til staðar, þá sé að- staða fyrir rafhleðslustöð ekki tekin inn í fasteignamat. „Þetta er svolítið sérstakt. Þetta er komið inn í lög en ekki fasteignamatið. Það er algjör- lega augljóst að þetta eykur verð- mæti á markaði. Kaupendur hafa áhuga á þessu og fasteignasalar munu tilgreina þetta sem kost.“ Ómögulegt til lengri tíma Bjarni segir að í meira en helm- ingi tilfella sé nauðsynlegt fyrir fjöl- býli að uppfæra heimtaug. „Í yfir helmingi tilfella er viðeigandi að ná sér í nýja heimtaug sem fyrst því það er ekki rafmagn aflögu en það getur líka verið hagkvæmara. Við höfum dæmi um að það geti verið hagkvæmara að fá nýja heimtaug en að deila út rafmagni frá eldri heim- taugum, þó það sé nóg rafmagn. Það er kannski hægt að fæða eitthvað af rafbílum með eldri heimtaug en til lengri tíma er það ómögulegt því heimtaugarnar duga oft ekki til þeg- ar yfir helmingur af bílaeigninni er rafbílar.“ Bjarni segir að kostnaður við uppsetningu á nýrri heimtaug fari mjög eftir aðstæðum en þó að öll pappírsvinnan sé tiltölulega ódýr er það framkvæmdin sem er dýrari. Bjarni bætir við að það að skipta um heimtaug sé sameiginlegt verkefni allra íbúa fjölbýlis og segir það nán- ast alltaf hagkvæmt að koma upp aðstöðu fyrir hleðslustöðvar þó að ekki eigi allir íbúar rafmagnsbíl eða tengiltvinnbíl. Flóðbylgja á leiðinni „Þú leggur kannski út 100 þúsund krónur og færð varla minna en milljón til baka sem fasteignaeig- andi, alveg sama hvort þú átt raf- magnsbíl eða ekki.“ Bjarni telur líklegt að eftir þrjú ár verði öll fjölbýli á höfuðborgar- svæðinu komin með aðstöðu fyrir uppsetningu rafhleðslustöðva. „Þannig að það er flóðbylgja á leið- inni.“ Rafhleðslustöðvar hafi já- kvæð áhrif á fasteignaverð Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar Fasteignir Húsfélagi ber skylda til að hafa framkvæmdaáætlun sem snýr að uppbyggingu hleðslustöðva. - Eignaumsjón fær eina til tvær fyrirspurnir á dag - Kostur en ekki vandræði Bjarni Gnýr Hjarðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.