Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Framtíð íslensks sjávarútvegs og
fiskeldis: Tækifæri og áskoranir
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, boðar til ráðstefnu þriðjudaginn 22. júní kl. 13 um
framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis. Ráðstefnan fer fram í Kaldalóni í Hörpu og er öllum opin. Á ráðstefnunni
verður gerð grein fyrir nýlegri skýrslu um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi og rætt um þau
tækifæri og áskoranir sem blasa við.
Dagskrá:
• Opnun: Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
• Íslenskur sjávarútvegur og fiskeldi 2030
• Erindi: Sveinn Agnarsson, prófessor við viðskiptafræðideild HÍ
• Nýsköpun: Forsenda verðmætasköpunar til framtíðar
• Erindi: Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim
• Framtíðin: Tækifæri og áskoranir
• Erindi: Dr. Gunnar Haraldsson, hagfræðingur og ráðgjafi
• Pallborðsumræður:
• Agnes Guðmundsdóttir, markaðs- og sölustjóri Icelandic Asia og formaður félags kvenna í sjávarútvegi
• Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
• Bjarni Ármannsson, forstjóri Iceland Seafood
• Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi
• Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
Fundarstjórn:
• Bergur Ebbi Benediktsson
Stjórnarráð Íslands
Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytið
Nokkur tímamót urðu í Washington, höfuðborg Bandaríkj-
anna, í gær, þegar Smithsonian-náttúrugripasafnið í borginni
var opnað á ný fyrir gestum en safnið hafði þá verið lokað í
461 dag vegna kórónuveirufaraldursins. Talsverðar var-
úðarráðstafanir eru gerðar í safninu til að uppfylla sóttvarna-
kröfur. Þannig má aðeins um fjórðungur þeirra gesta, sem
safnið getur tekið á móti, vera inni í byggingunni í einu og í
takmarkaðan tíma. Gert er ráð fyrir að önnur söfn stofnunar-
innar verði opnuð síðar í sumar.
Náttúrugripasafn opnað á ný í Washington
AFP