Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 27

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Starfsemi Framkvæmdir standa yfir við byggingu höfuðstöðva Landsbankans í miðbænum. Eggert Nú þegar hillir und- ir lok kjörtímabilsins er ekki úr vegi að staldra aðeins við og líta um öxl áður en við höldum inn í sumarið og kosningabaráttu í framhaldinu. Ríkis- stjórnarsamstarfið þótti frá upphafi óvenjulegt langt út fyrir landsteinana enda ekki á hverjum degi sem flokkar þvert á hið pólitíka litróf taka höndum saman. Ástæðan var einföld; endurteknar óvæntar kosn- ingar 2016 og 2017 kölluðu á að stjórnmálamenn hugsuðu í lausnum og væru reiðubúnir að leggja tölu- vert á sig til að mynda ríkisstjórn sem gæti tekist á við þau krefjandi uppbyggingarverkefni sem þurfti að ráðast í fyrir samfélagið. Að sjálfsögðu kallar slík breið stjórn á annars konar nálgun en ríkisstjórn flokka sem standa nærri hver öðrum hugmyndafræðilega. Hins vegar er það aldrei einfalt verkefni að sitja í ríkisstjórn og mestu skiptir að þar ráði traust og heilindi för. Fyrir okkur Vinstri-græn var þetta ekki sjálfgefin ákvörðun en yfirgnæfandi meirihluti félaga sam- þykkti stjórnarsamstarfið vegna þess málefnalega árangurs sem við töldum það geta skilað fyrir sam- félag okkar. Enda einkenndist kjör- tímabilið af stórum framfaramálum. Þar má nefna réttlátara tekju- skattskerfi, aðgerðaáætlun í lofts- lagsmálum, lækkun á kostnaði sjúk- linga við heilbrigðisþjónustu, uppbyggingu heilsugæslunnar, ný upplýsingalög og lög um vernd uppljóstrara, hækkun barnabóta og atvinnuleysisbóta, 18 friðlýst landsvæði, dregið var úr skerð- ingum í örorkukerfinu og hækkað frítekju- mark atvinnutekna aldraðra. Fæðingar- orlof var lengt úr níu mánuðum í tólf og um- gjörð þjónustu við börn var umbylt til hins betra. Almanna- heillafélög búa nú við mun hagstæð- ara skattaumhverfi og aukinn var stuðningur við uppbyggingu á fé- lagslegu húsnæði. Mikilvæg mann- réttindamál voru samþykkt, þar á meðal lög um kynrænt sjálfræði og ný lög um þungunarrof sem styrkja ákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Stjórnvöld gegndu lykilhlut- verki þegar lífskjarasamningarnir náðust en þeir hafa tryggt áfram- haldandi kaupmáttaraukningu og stöðugleika á vinnumarkaði. Allt eru þetta framfaramál fyrir samfélag okkar, mál sem miða að því að auka velsæld okkar allra og gera líf okkar allra sem hér búum betra. Hugmyndafræði velsældar- hagkerfa hefur verið okkar leiðar- ljós þar sem við getum ekki mælt árangur samfélagsins úr frá einföld- um efnahagslegum mælikvörðum heldur horfum á samfélagið í víðara samhengi þar sem við metum fé- lagslega, umhverfislega og efna- hagslega þætti í samhengi. Í fjár- málaáætlun höfum við lagt áherslu á umbætur í tilteknum málaflokk- um – til dæmis geðheilbrigðis- málum þar sem við höfum aukið framlög um rúman milljarð á kjör- tímabilinu. Þar er hins vegar enn mikið verk óunnið og því verða þau áfram áherslumál. Annað verkefni er aukið jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þar munar mest um stytt- ingu vinnuvikunnar sem er mikið umbótamál, ekki síst fyrir vakta- vinnufólk. Stytting vinnuvikunnar er þannig mikilvægt skref til að bæta stöðu stórra kvennastétta sem eru meirihluti vaktavinnufólks. En kjörtímabilið snerist ekki ein- göngu um áherslumál þessarar ríkisstjórnar. Á miðju kjör- tímabilinu skall á heimsfaraldur kórónuveiru. Hann yfirskyggði öll önnur verkefni þar sem bæði þurfti að bregðast við með sóttvarna- ráðstöfunum og síðar bólusetningu en einnig með markvissum efna- hagslegum og félagslegum aðgerð- um til að draga úr áhrifum farald- ursins. Frá upphafi setti ríkis- stjórnin sér skýr markmið. Að vernda líf og heilsu fólks, lágmarka samfélagsleg og efnahagsleg áhrif faraldursins og leggja grunn að tækifærum til framtíðar. Stjórnvöld hafa í þessum efnum notið þess að vinna með ómetanlegu fagfólki og frábærum vísindamönn- um. Allar ákvarðanir byggðust á bestu þekkingu og gögnum en um leið þeirri staðreynd að ekki var hægt að vita allt um veiruna sem hafði sett tilveru okkar allra á hlið- ina. Árangur okkar Íslendinga á þessu sviði er hins vegar fyrst og fremst að þakka almenningi í land- inu sem kynnti sér málin og tók upplýstar og skynsamlegar ákvarð- anir. Segja má að allir hafi þurft að laga sig hratt að nýjum aðstæðum og það gerðu allir; almannaþjón- ustan og atvinnulífið umbyltu starfsháttum og allir lögðu mikið á sig til að ná þessum árangri. Stjórnvöld ákváðu einnig frá upp- hafi að beita fullum krafti ríkisfjár- málanna til að lágmarka hin sam- félagslegu og efnahagslegu áhrif. Of langt mál væri að telja hér upp all- ar aðgerðir ríkisstjórnarinnar en allar snerust þær um að styðja við almenning og atvinnulíf, tryggja af- komu fólks og gera fyrirtækjum það kleift að geta spyrnt hratt við þegar faraldrinum linnti. Þá var ráðist í aukna opinbera fjárfestingu sem jókst um 19% á fyrsta fjórð- ungi þessa árs og þess gætt að tryggja fjölbreytni með því að leggja aukna fjármuni í rannsóknir og nýsköpun, grænar lausnir og skapandi greinar auk þess að fjár- festa í hefðbundnari innviðum; byggingum og samgöngu- mannvirkjum. Allt voru þetta þarf- ar fjárfestingar sem munu skila aukinni verðmætasköpun og fjöl- breytni til lengri tíma og hjálpa okkur að ná árangri í loftslags- málum. Þessar fjárfestingar byggð- ust á undirbúningi á fyrri hluta kjörtímabilsins þannig að unnt var að ganga hratt og örugglega til verka. Ekki leikur neinn vafi á því að aðgerðir stjórnvalda hafa mildað áhrif efnahagsáfallsins verulega. Framundan er það verkefni að fjölga störfum á ný svo draga megi hratt og örugglega úr atvinnuleysi en ríkisstjórnin hefur ráðist í um- fangsmestu vinnumarkaðsaðgerðir í seinni tíð með hlutabótaleiðinni, menntunartækifærum og síðan ráðningarstyrkjum. Alls hafa ríf- lega 3.200 manns fengið vinnu í gegnum átakið Hefjum störf og at- vinnuleysi hefur minnkað jafnt og þétt á árinu, var 12,8% í janúar en var komið í 10% í maí og allt bendir til þess að það fari áfram minnk- andi. Framundan blasa við stór verk- efni og mikil tækifæri. Öllu mun skipta hvernig við byggjum upp að loknum heimsfaraldri. Þar höfum við Vinstri-græn þá skýru sýn að byggja áfram á þeim árangri sem hefur náðst í uppbyggingu heil- brigðis- og velferðarkerfis og menntakerfis. Að halda áfram að fjárfesta í fjölbreyttri atvinnusköp- un sem mun skila samfélaginu okk- ar auknum verðmætum og velsæld. Við eigum að fjárfesta í grænum lausnum og leggja okkar af mörk- um í baráttunni við loftslagsvána. Við eigum að tryggja réttlæti og sjálfbærni í öllum þeim verkefnum sem eru framundan. Þegar litið er um öxl hefur kjör- tímabilið verið álagspróf á íslenskt samfélag og ber vitni um styrkleika þess. Ríkisstjórnin hefur haft hags- muni íslensks samfélags að leiðar- ljósi og náð miklum árangri, hvort sem litið er til þeirra verkefna sem sett voru á dagskrá í upphafi kjör- tímabils eða þeirra verkefna sem skullu á okkur af fullum þunga með heimsfaraldrinum. Ný verkefni blasa nú við og ný tækifæri en eftir erfiða tíma geta komið mikil fram- faraskeið. Þá skiptir máli að hafa stjórnmálafólk sem er reiðubúið að leggja mikið á sig fyrir hag sam- félagsins alls. Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Þegar litið er um öxl hefur kjörtímabilið verið álagspróf á ís- lenskt samfélag og ber vitni um styrkleika þess. Katrín Jakobsdóttir Höfundur er forsætisráðherra. Fyrir samfélagið allt Þegar hilla fór undir þinglok blasti við flestum að frumvarp umhverfisráðherra um stofnun þjóðgarðs á hálendi Íslands myndi daga uppi. Málið var illa unnið í ósátt við sveitarfélögin og átti ekki annað eftir en ein- faldlega deyja. Á síðustu stundu bárust þó þær fregnir frá stjórnarflokk- unum þremur á þingi að málinu yrði haldið á lífi og nýtt frum- varp lagt fram á næsta kjör- tímabili. Hálendisþjóðgarðurinn eins og um- hverfisráðherra sá hann fyrir sér yrði að veruleika, bara á næsta kjörtímabili. Til að friða einhverjar sálir innan veggja ríkisstjórnarinnar var nokkrum setningum skeytt inn í nefndarálit meirihlutans í um- hverfis- og samgöngunefnd um að eitt og annað skyldi skoðað í millitíðinni. Þegar bet- ur var að gáð er ljóst að það eru allt álitamál sem umhverfisráðherra hefur þegar skoðað og tekið afstöðu til. Þessi nýja skoðun á sömu atriðum er því aðeins til málamynda. Skilaboð Sjálfstæðisflokks og Framsókn- arflokks til kjósenda sinna við þinglok eru því þessi: Við ætlum að hjálpa umhverfis- ráðherra Guðmundi Inga Guðbrandssyni og Vinstri-grænum að stofnanavæða hálendið og koma á þessum þjóðgarði. Okkur þykir bara betra að gera það eftir kosningar því við nennum ekki að útskýra fyrir kjósendum okkar að við höfum raunverulega keypt ráð- herrastólana þessu verði. Það verður hreinlega ekki um villst hver vilji sjálfstæðismanna og framsóknarmanna er í þessum efnum því í nefndaráliti segja þessir flokkar, í félagi við Vinstri-græna: „… leggur meirihlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar og umhverfis- og auð- lindaráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um málið.“ Orðrétt. Ef einhver velktist þó áfram í vafa um fyr- irætlan Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri-grænna í þessum efnum þá þarf ekki að horfa lengra en til orða umhverfis- ráðherra í umræðu um atkvæðagreiðsluna þegar málinu var vísað til ríkis- stjórnarinnar á lokadögum þingsins: „En niðurstaðan, sem vísunin er, til ríkisstjórnar, að í henni felast samt sem áður skýr skilaboð Alþingis til ríkis- stjórnar og ráðherra um að vinna að málinu áfram og leggja fram frumvarp um hálendis- þjóðgarð að nýju og þetta eru mikilvæg skilaboð Alþingis til framkvæmdavaldsins. Núna er verkefnið að sameinast um að ná meiri sátt um málið, koma hálendisþjóðgarði á koppinn á næsta kjör- tímabili.“ Þar kom það. Það er því endanlega ljóst við hverju fólk má búast ef Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og Vinstri-grænir halda ríkisstjórnarsam- starfi sínu áfram: Stofnanavæðingu hálend- isins; hálendisþjóðgarði í þeirri mynd sem umhverfisráðherra hefur teiknað svo skýrt upp. Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur hafa því gefið upp boltann – þeir munu ekki verða fyrirstaða í þeirri vegferð Vinstri- grænna að leggja þriðjung landsins alls und- ir þjóðgarð. Það er auðvitað leitt að sjá að þessir tveir öldungar í íslenskum stjórnmálum, Sjálf- stæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, standi ekki traustari fótum en raun ber vitni þegar kemur að stórum áhrifaríkum ákvörð- unum sem varða hag lands og þjóðar um ókomna tíð. Eftir Bergþór Ólason » „… leggur meirihlutinn til að málinu verði vísað til rík- isstjórnarinnar og umhverfis- ráðherra verði falið að leggja fram nýtt frumvarp um mál- ið.“ Höfundur er þingmaður Miðflokksins. bergthorola@althingi.is Hálendisþjóðgarður Sjálf- stæðisflokks og Framsóknar Bergþór Ólason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.