Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 28

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 Faxabraut 34c, 230 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is OPIÐ HÚS Mánudag 21. júní kl. 17:15 - 18:00 Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Mjög vel staðsett 3 herbergja íbúð með sérinngangi á neðstu hæð í fjölbýli. Birt stærð eignar er 72,1m2. ATH: eigandi skoðar skipti. Í umræðu um notkun málfræðilegs kyns í íslensku takast á tvö sjón- armið og má kalla fulltrúa þeirra breytingasinna og íhald. Íhaldið er ánægt með íslenskuna með sínum þremur málfræðikynjum þar sem karlkynið er kynhlutlaust (Allir velkomnir) auk þess sem það vísar til karlkyns lífvera (hrútur) og nafnorða (stóll). Breytingasinnar telja að kyn- hlutlaust karlkyn útiloki stóra hópa fólks, konur og einstaklinga sem sam- sama sig ekki lífræðilegu karlkyni (þess vegna: Öll velkomin). Hvernig gætu breytingar á málfræðikyni í íslensku orðið? Skoðum tvo möguleika: leið 1 (bylting) og leið 2 (takmarkaðar breytingar). Í hinni bylt- ingarkenndu leið 1 yrði stefnt að útrýmingu málfræðikyns í íslensku. Stóll yrði ekki lengur karlkyns, tölva ekki kvenkyns og borð ekki hvorugkyns. Málfræðikyn er samtvinnað beygingu og því yrði um að ræða byltingu í beygingakerfinu. Útkoman yrði allt öðruvísi íslenska. Þó er óþarfi að fjölyrða um þennan möguleika. Ekki er hávær krafa um að afnema alfarið málfræðilegt kyn heldur er venjulega átt við breytingar á málfræðikyni sem vísar í lífverur. Flestir breytingasinnar vilja þannig bara stíga skrefið til hálfs (leið 2, tak- markaðar breytingar). Starfsheiti sem sýna kynferði eru talin óæskileg (hjúkrunarkona og fóstra víkja fyrir hjúkrunarfræðingi og leikskólakenn- ara); annars skal vísað til einstaklingsins sem gegnir starfinu eftir kyni (For- sætisráðherra kom á fundinn. Hún sagði..). Þessar breytingar virðast í raun þegar hafa verið samþykktar af mjög mörgum íslenskum málhöfum. Ýmsir breytingasinnar vilja nota hvorugkyn sem kynhlutlaust málfræðikyn um lif- andi verur, segja t.d. fólk í stað menn. Sum ganga lengra og nota þau í stað þeir í kynhlutlausri merkingu o.fl. slíkt. En jafnvel þau hafa tæpast áhuga á að útrýma málfræðilegu kyni í íslensku algerlega. Þetta „hálfvolga“ sjónar- mið virðist áþekkt því að vilja sneiða hjá tökuorðum – en málið er þó ekki al- veg svo einfalt. Einn vandi við hálfvelgjuna er að ekki er ljóst hve víðtækar breytingarnar eiga að verða? Á að segja Það er ekkert heima í stað Það er enginn heima? Á að hætta að telja einn, tveir, þrír, fjórir og segja frekar eitt, tvö, þrjú, fjögur? Hér er stórt spurt en fátt um svör en í bakgrunni er almennari spurning: Er hægt að handstýra málbreytingum? Svarið er: já, enda hefur það verið gert – en raunar með misjöfnum árangri. T.d. virðist útrýming þágufallshneigðar hafa mistekist; kannanir sýna verulega útbreiðslu á henni langar á kostnað hana langar. Samt er grundvallarmunur á hefðbundinni málstýringu og stýr- ingu á notkun málfræðikyns. Í hefðbundinni málstýringu er stefnt að útrým- ingu nýjunga (t.d. þágufallshneigð) en breytingar á málfræðikyni felast í innleiðingu á nýjung (kynhlutlausu hvorugkyni). Það er miklu flóknari að- gerð en breytingasinnar virðast almennt gera sér grein fyrir. Kynleg sjónarmið Tungutak Þórhallur Eyþórsson tolli@hi.is F yrir u.þ.b. viku samþykkti Alþingi nokkur frumvörp sem tengjast því barnaverkefni sem Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra setti af stað í upphafi ráðherraferils síns fyrir tæpum fjórum árum. Verk- efni næstu ára er að hrinda þeim lögum í framkvæmd. Og þar með að koma í framkvæmd mestu umbótum í velferðarmálum á Íslandi frá því á fjórða áratug síð- ustu aldar. Það hefur verið fróðlegt að fylgjast með þessu máli frá upphafi. Greinarhöfundur kynntist Ásmundi Ein- ari, sem þá var þingmaður VG, fyrir rúmum áratug á heimili Ragnars Arnalds, fyrrverandi formanns Al- þýðubandalagsins. Við þrír vorum að stilla saman strengi okkar í þeirri baráttu sem þá var fram undan um aðild Íslands að ESB. Nokkrum árum síðar kom út bók mín Ómunatíð - saga um geðveiki. Þar er m.a. fjallað um stöðu barna sem eiga foreldri sem þjáist af geðveiki. Skömmu eftir útkomu hennar gaf Ásmundur Einar mér til kynna að hann vissi hvað ég væri að tala um en fór varlega í það. Smátt og smátt áttaði ég mig á að hann var eitt af þessum börn- um sem fjallað var um í bókinni. Enn liðu nokkur ár en dag einn fyrir tæpum fjórum árum hringdi Ásmundur Einar og sagði: „Ég er að koma út af þingflokksfundi, ég verð ráðherra og ég ætla að gera þetta,“ og dró upp í stórum dráttum mynd af því barnaverkefni sem nú er að verða að veruleika. Hann var hins vegar ekki þá tilbúinn til að segja frá því hver væri ráðandi þáttur í því en upplýsti það hins vegar í samtali við Morgunblaðið seint á síðasta ári, sem vakti þjóðarathygli. Lífsreynsla ungs manns á barns- og unglingsárum liggur að baki þeirri víðtæku umbótalöggjöf sem nú er orðin að veruleika. Það eru sennilega ekki mörg mál á Alþingi sem eiga sér slíka forsögu. Athygli vakti fyrir nokkru, þegar síðasta könnun um vinsældir ráðherra var birt, að Ásmundur Einar skipaði næstefsta sætið á þeim lista, næstur á eftir Katrínu Jakobsdóttur. Ekki er ólíklegt að barnaverk- efni hans komi við sögu í mati þeirra sem spurðir voru. Auðvitað gerir fólk sér grein fyrir hve stórt mál er hér á ferð. Hin víðtækari pólitísk áhrif þessa máls geta svo orðið þau að Framsóknarflokkurinn nái því í fyrsta sinn að festa sig í sessi sem þéttbýlisflokkur. Efnivið- urinn er til staðar en það er spurning hvort flokkurinn kann að notfæra sér tækifærið. Fyrsta skrefið hefur þegar verið stigið, sem var að fá Ásmund Einar til að skipta um kjördæmi og bjóða sig fram í Reykjavík. Víðtæk pólitísk samstaða hefur verið á Alþingi um barnaverkefni Ásmundar Einars og ekki ástæða til að ætla að nokkur breyting verði á því. Önnur tíðindi úr Framsóknarflokknum eru svo þau að Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, tal- aði á flokksfundi fyrir skömmu á jákvæðum nótum um framhald núverandi stjórnarsamstarfs. Það er at- hyglisvert í ljósi þess að vísbendingar komu fram fyr- ir allmörgum mánuðum um að Framsókn væri farin að líta til vinstri. Vel má vera að þeir hafi ekki haft erindi sem erfiði en hvað sem því líður er hin op- inbera staða nú sú að það byggist á Katrínu Jak- obsdóttur og VG hvort framhald verður á stjórn- arsamstarfinu að kosningum loknum. Það er augljóslega pólitískt erfitt fyrir Katrínu á vinstri kantinum að halda þessu samstarfi áfram en það bætti ekki stöðuna að hálendisfrumvarpið náði ekki fram að ganga. Vinstriflokkarnir hafa engan einkarétt á náttúru- vernd. Sjálfstæðisflokkurinn hefur í sextíu ár getað gert tilkall til for- ystu í þeim málum vegna forystu Birgis Kjarans í þeim málaflokki en ekki kunnað að notfæra sér það. Nú getur óskiljanleg þröngsýni vegna hálend- isfrumvarpsins orðið til þess að það verði mynduð ríkisstjórn á vinstri kantinum eftir kosningar. Og enn er verið að tala um vegagerð yfir hálendið. Þeim mál- um fjölgar sem geta kallað fram pólitíska uppreisn í landinu. Ein setning heyrist æ oftar: „Þetta er ekki flokk- urinn sem ég gekk í.“ Þetta er hættuleg setning og getur haft víðtækar afleiðingar. Svo er afstaða sem getur verið varasöm og hún er á þessa leið: „Hvaða bull er þetta í þér. Auðvitað heldur VG áfram. Þetta er langbezti kosturinn fyrir þá.“ Þannig tala þeir sem þjást af tilætlunarsemi. Þeim sem hafa lengi verið við völd er hættara en öðr- um við að verða fórnarlömb eigin tilætlunarsemi. Þetta á bæði við um flokka og ættarveldi. En kannski er það tákn um breytta tíma að fjósa- maður úr Dölum verði ráðherra og hafi forystu um einhverjar mestu þjóðfélagsumbætur á Íslandi í ára- tugi vegna erfiðrar lífsreynslu hans í æsku. Og kannski byggjum við í betra samfélagi ef fleiri ráðherrar – og þeir eru fleiri í gegnum tíðina – hefðu ákveðið að gera það sama. Jafnframt er ástæða til að óska barnamálaráðherr- anum til hamingju með þennan áfanga. Sigur er ekki unninn, þótt áfanga sé náð, og óneitanlega væri skemmtilegt og bezt ef ráðherrann fengi tækifæri til að fylgja málinu eftir. Tíminn leiðir það í ljós. En nú er að vaxa úr grasi ný kynslóð barna sem sér fram á betri framtíð en ella hefði orðið. Mestu umbætur í velferðarmálum í áratugi Nýjar kynslóðir barna sjá fram á betri framtíð. Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is Iðulega skilja fallnir óvinir frelsisinseftir sig stórhýsi, sem sjálfsagt er að nýta. Eftir fall kommúnismans í Póllandi var kauphöll hýst í fyrrver- andi bækistöðvum kommúnista- flokksins. Ég býð stundum til útgáfu- hófa í Rúblunni á Laugavegi 18. Og nú á dögunum kenndi ég á sum- arskóla tveggja evrópskra frjáls- hyggjustofnana, sem haldinn var í Escorial-höll nálægt Madrid. Filippus II. lauk við smíði hallarinnar 1584, sama ár og Guðbrandur biskup gaf út biblíu sína. Hún er ekki aðeins kon- ungshöll og raunar stærsta hús heims á sinni tíð, heldur líka klaustur, bóka- safn, kirkja og grafhýsi. Segja má, að ein rótin að þjóðlegri, borgaralegri frjálshyggju í Evrópu liggi í uppreisninni, sem íbúar Nið- urlanda hófu 1566 gegn ofríki Filipp- usar hallarsmiðs, en norðurhluti Nið- urlanda (sem við nefnum oftast eftir einu héraðinu, Hollandi) öðlaðist loks viðurkenningu sem sjálfstætt ríki 1648. Spánn hélt um skeið eftir suður- hlutanum, þar sem nú eru Belgía og Lúxemborg. Í erindi mínu 14. júní kvað ég frjálshyggjumenn og íhaldsmenn eiga margt sameiginlegt, en tvennt skildi: Frjálshyggjumenn tryðu því, að framfarir væru mögulegar (til dæmis bætt lífskjör, hreinna umhverfi, greiðari samgöngur, minni barna- dauði, fátíðari sjúkdómar, auknar lífs- líkur). Enn fremur tryðu þeir því, að frelsið gæti að lokum orðið sameign allra jarðarbúa, þótt vissulega yrði hin nauðsynlega gagnkvæma aðlögun borgaranna til í langri sögulegri þró- un. Hreinir íhaldsmenn væru hins vegar iðulega hræddir við breytingar og vildu reisa múra milli þjóða. Í erindi mínu 18. júní sagði ég stuttlega frá nýútkominni bók minni um tuttugu og fjóra stjórnmálahugs- uði, allt frá Snorra Sturlusyni og heil- ögum Tómasi af Akvínas til Miltons Friedmans og Roberts Nozicks. Ég tók boðskap frjálslyndra íhaldsmanna eins og mín saman í þremur orðum: viðskiptafrelsi, einkaeignarrétti og valddreifingu. Skemmtilegt var að heyra þessi orð hljóma um sal- arkynnin í Escorial. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Í Escorial-höll Atvinna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.