Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 36

Morgunblaðið - 19.06.2021, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021 ✝ Kristín Ragn- hildur Daníels- dóttir var fædd 10. júní 1928 á Upp- sölum, Súðavík- urhreppi. Hún lést á Sjúkrahúsinu á Ísafirði 8. júní 2021. Foreldrar Krist- ínar voru Soffía Magdalena Helga- dóttir, f. 1910, d. 1986 og Daníel Rögnvaldsson, f. 1902, d. 1974. Systkini Kristínar voru Halldóra, f. 1929, d. 2010 og Haukur Sigurður, f. 1932, d. 2000. Þann 27. mars 1948 giftist Kristín, sem kölluð var Adda, Engilbert Sumarliða Ingvars- syni, bónda og bókbindara á Tir- ðilmýri, f. 28. apríl 1927. Börn þeirra eru: 1. Grettir, f. 1948, d. 2015. Eiginkona hans var Krist- ina Karlsson. Synir þeirra eru: a) Sæmundur Jóhann, b) Einar Snorri og c) Kolbeinn Ari. 2. Daníel, f. 1950. Synir hans eru: a) Valur Bjartmar, synir Vals eru Daníel Bjartmar og Alexander, b) Auðun, eiginkona Ruth Mar- grét Friðriksdóttir, c) Grímur. 3. Ingvar, f. 1952, kvæntur Sigrúnu Huldu Steingrímsdóttur. Börn þeirra eru: a) Halla, b) Engilbert, olai og Christopher Jóhann. Adda ólst upp í Súðavík og á Ísafirði. Að þeirrar tíðar hætti vann hún frá tíu ára aldri við að gæta barna og við ýmis bústörf. Adda lauk hárgreiðslunámi með meistararéttindi á Ísafirði 1947 og stundaði þar hárgreiðslu- störf. Árið 1953 fluttu þau Eng- ilbert á eyðijörðina Tirðilmýri og byggðu hana upp. Auk þess að sinna uppeldi sjö barna og vinna venjuleg húsmóðurstörf var Adda oft í útiverkum. Þau Engilbert bjuggu á Tirðilmýri til 1987 er þau fluttu til Hólma- víkur. Þar starfaði Adda hjá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar, var virk í kvenfélaginu Glæðum og söng í kirkjukórnum, en hún hafði yndi af tónlist. Á yngri ár- um söng hún með Sunnukórnum á Ísafirði og naut þá tilsagnar í söng. Á árunum 2007 til 2012 gerðu Adda og Engilbert upp bæinn Lyngholt á Snæfjalla- strönd þar sem foreldrar Eng- ilberts bjuggu og hafa dvalið þar á hverju sumri síðan. Adda og Engilbert fluttu til Ísafjarðar árið 2014, í eigin íbúð á Hlíf II. Minningarathöfn um Öddu verður í Ísafjarðarkirkju laug- ardaginn 19. júní 2021, kl. 15:30. Útför hennar fer fram frá Un- aðsdalskirkju sunnudaginn 20. júní 2021, kl. 14. Streymt verður frá útförinni. Stytt slóð á streymið: https://tinyurl.com/3dntnnrf/. Virkan hlekk á streymið má finna á: https://www.mbl.is/andlat/. eiginkona Aðalbjörg Rósa Sigurð- ardóttir, börn þeirra eru Sigrún María, Soffía Sunna, Krist- björg Hekla og Ingv- ar Emil, c) Adda Soffía, sambýlis- maður hennar er Heiðmar Guð- mundsson, dóttir þeirra er Viktoría Eva. 4. Jón Hallfreð, f. 1955, kvæntur Helgu Sigfríði Snorradóttur. Börn þeirra eru: a) Snorri Sigbjörn, sambýliskona hans, Heiðdís Lára Viktors- dóttir, b) Kristín Harpa. 5. Ólaf- ur Jóhann, f. 1960, kvæntur Gyðu Sigríði Björnsdóttur. Son- ur þeirra er Dagbjartur Sig- urður. Stjúpsonur Ólafs er Úlfur Kolka, sonur hans er Pétur Haf- steinn Kolka. 6. Atli Viðar, f. 1961. 7. Salbjörg, f. 1967. Eig- inmaður hennar er Sverrir Guð- brandsson. Börn þeirra eru: a) Jakob Ingi, b) Kristín Lilja, c) Júlíana Steinunn. Sonur Sal- bjargar er Andri Freyr Arnars- son. Hann var mikið hjá ömmu sinni og afa. Stjúpsonur Sal- bjargar er Guðbrandur Emil Sverrisson, eiginkona hans er Jennifer Isabell Land Pedersen og synir þeirra eru Sverrir Nick- Þegar maður kveður móður sína verður varla hjá því komist að líta til baka og minningarnar hrannast upp. Er ég fer yfir þann hluta ævi hennar sem ég upplifði með henni kemur fyrst upp í hug- ann hvílík ofurkona mamma hef- ur verið. Aðbúnaðurinn á Árbakka á Snæfjallaströnd þætti ekki boð- legur nú til dags. Óeinangrað hús úr timbri sem skalf og nötraði í verstu vetrarveðrum. Upphitað með einni kolavél sem einnig var eina tækið til eldunar. Einn krani með rennandi vatni, köldu, og auðvitað ekkert sem kallað er baðherbergi eða snyrting. Húsið var innan við þrjátíu fer- metrar, hvor hæð. Uppi, undir súð, svaf öll fjölskyldan í einu rými, mamma og pabbi og við bræðurnir, sem vorum orðnir sex þegar flutt var í stærra nýbyggt hús á Tirðilmýri. Allur þvottur var þveginn í höndum og það sem þurfti var soðið á kolavélinni. Til þess var notaður stór alúminíumpottur með smá gati neðarlega. Út úr þessu gati stóð eldspýta öll mín bernskuár svo vatnið læki ekki úr pottinum. Þvotturinn var svo skolaður í ánni þegar veður leyfði. Matarforðann þurfti að veru- legu leyti að vinna heima við á haustin, en annað þurfti að panta frá Ísafirði með nokkurra daga fyrirvara. Báturinn kom ekki nema tvisvar í viku. Mamma sá um að allir hefðu nóg að bíta og brenna og verulegur hluti af föt- unum var saumaður heima. Ég minnist þess ekki að mamma hafi nokkurn tíma haft á orði að hún hefði mikið að gera. Þegar vegur var lagður síðasta spölinn heim að Mýri og áin brú- uð tók hún því eins og sjálfsögð- um hlut að taka heilan vegavinnu- flokk í fæði í nokkrar vikur og hýsa þá flesta meðan á fram- kvæmdum stóð. Þetta var seint um haust. Það man ég nokkuð vel, því ég átti afmæli á meðan þeir voru og fékk frá þeim fyrstu peningaseðla sem ég eignaðist. Reyndar skánuðu aðstæður mömmu hægt þó flutt væri í nýja húsið. Þar var ekkert rafmagn frekar en á Árbakka. Þrátt fyrir þéttari veggi og betri kyndingu voru allir veggir, gólf og loft úr ómálaðri steinsteypu. Það er ekki auðvelt að skúra slík gólf, en það gerði hún án þess að kvarta. Þessi ósérhlífni og dugnaður ásamt endalausri þrautseigju getur ekki annað en vakið aðdáun þó seint sé að nefna það núna. Margar stundir áttum við mamma saman í eldhúsinu á Mýri á meðan hinir nýttu tómstundir í bóklestur sem ég lagði litla stund á. Segja má að ég hafi alist upp þar að mestu. Mamma, ég hef ekki komið til skila til þín nema broti af því þakklæti sem þú átt skilið frá mér. Ef allar konur skil- uðu sama ævistarfi og þú væri lít- il þörf fyrir okkur karlana. Það var notalegt að hitta þig núna um hvítasunnuna þó stutt væri. Núna ertu farin til sumar- landsins þar sem þú getur dansað og sungið eins og þér þykir svo gaman. Vertu sæl, mamma, og takk fyrir allt. Ég er stoltur af að vera sonur þinn. Ingvar Engilbertsson. Ég man ekki æsku mína öðru- vísi en að útvarpið hafi verið í gangi allan daginn og mamma syngjandi eða hummandi með öll- um lögum. Hún átti flottan gítar sem stóð bara úti í horni, en ég man ekki eftir að hún hafi nokk- urn tímann spilað á hann. Hann var löngu orðinn ónýtur þegar ég fór að fikta við eitthvað svoleiðis. Mamma kenndi okkur að lesa og líklega að skrifa og reikna eitt- hvað. Ég man eftir ótal lestraræf- ingum í Gagni og gamni og Litlu gulu hænunni. Svo voru óteljandi skiptin sem ég hafði ekkert að gera og leiddist í vondum veðr- um. Þá var alltaf sami söngurinn í mér: „Hvað á ég að gera?“ Þá lét mamma mig teikna og lita eða kubba með Lego eða trékubbum, svo átti ég líka dúkkur. Við bjuggum þröngt á Ár- bakka áður en við fluttum út á Mýri. Hjónarúmið var í einu horninu á loftinu og þrjú önnur rúm við hina veggina fyrir alla strákana. Svo var annað lítið her- bergi uppi, en það var óupphitað. Niðri var bara stofa og eldhús. Innangengt var svo í fjósið frá forstofunni framhjá kamrinum. Í kamrinum var fata sem var losuð í ána þegar hún var orðin full. Mamma hafði alltaf nóg að gera við matseld og þvotta auk heyskapar á sumrin. Ófá fötin saumaði hún á okkur og prjónaði, því ekki var hlaupið í búðir á þessum tíma. Svo var lesið á kvöldin við kertaljós eða lampa, því ekkert var rafmagnið fyrir en síðar á Mýri. Eilítið vænkaðist hagurinn eft- ir að við fluttum á Mýri. Þá fékk hún betri eldavél og eftir að raf- magnið kom var keypt þvottavél og önnur heimilistæki til hægðar- auka fyrir hana. Hún gekk í öll störf sem þurfti, einkum ef pabbi þurfti að bregða sér af bæ, sem var nokkuð oft að hennar mati. Þá þurfti að hugsa um skepnurnar og mjólka þegar við vorum með kýr og við krakkarnir í skólanum. Aldrei man ég eftir að hún hafi fengið frí frá húsmóðurhlutverk- inu né sóst eftir því. Hún var mjög nægjusöm og nýtin og vildi helst ekki bregða neitt út af vananum. Hún elskaði tónlist eins og minnst er á hér að framan og þótti af- skaplega gaman að dansa líka. Skemmtilegust fannst henni norsku harmonikulögin sem pabbi hennar spilaði í hennar æsku. Á seinni árum fór hún að hlusta á nýrra efni og hafði ákaf- lega gaman af Abba og Cree- dence Clearwater Revival til dæmis. Einnig var Alfreð Clausen í miklu uppáhaldi. Ég hafði ekki mikil samskipti við þau eftir að ég flutti að heiman og þangað til þau fluttu aftur hingað á Ísafjörð. Þau keyptu sér eldriborgaraíbúð á Hlíf, en komu heldur seint þang- að, því flestir sem þau þekktu frá fyrir tíð voru horfnir. Núna í vor fór ég, ásamt nokkrum konum í mínu lífi, upp á Hlíf og við héldum tónleika fyrir fólkið þar og feng- um góð viðbrögð. Mamma söng með allan tímann og mátti ekki vera að því að borða eða drekka á meðan. Þetta gaf henni og öllum öðrum þarna mikið en stuttu eftir þetta fór heilsunni hjá henni að hraka og við náðum ekki að endurtaka leikinn. Elsku mamma, ég vona að þú fáir að syngja og dansa eins og þig lystir þar sem þú ert nið- urkomin. Takk fyrir allt. Jón Hallfreð (Halli). Mamma söng oft með útvarp- inu á meðan hún sinnti störfum í eldhúsinu á Mýri. Við Atli bróðir vorum oft niðri í fjöru á sumrin og þegar Djúpið var spegilslétt barst söngur hennar til okkar og vakti með okkur gleði. Tónlistin var aldrei fjarri og hvert tækifæri gripið til að taka lagið og stundum kom Daníel afi í heimsókn með nikkuna. Ég man hvað mamma var ham- ingjusöm þegar hún eignaðist Söbbu systur. Hún ljómaði þegar hún kom heim frá Ísafirði með þessa einu dóttur sína, en ég var hissa á hvað hún var glöð, sjálf hárgreiðslukonan, að eignast svona sköllótt barn. Mamma setti stundum permanent eða carmen- rúllur í konurnar í sveitinni við eldhúsborðið og við systkinin fylgdumst með. Hún hlýddi okk- ur líka yfir heimalærdóminn, en við lærðum heima til tíu ára ald- urs. Mamma fylgdist með tísku- straumum þótt hún byggi við enda vegarins sem var eiginlega á heimsenda. Hún klippti okkur samkvæmt nýjustu tísku þegar hár var höfuðatriði og bjó til tískuflíkur úr þeim efnum sem hún átti tiltæk og gerði okkur þannig kleift að láta tískudraum- ana rætast. Mamma talaði stundum um það þegar hún var sem barn í Seyðisfirði á sumrin, hjá frænd- fólki sínu á Eyri og á Uppsölum hjá ömmu sinni og afa. Frá tíu ára aldri var hún að gæta barna og við ýmis bústörf á sumrin, fyrst á Hesteyri og síðar á Gelti og á Suðureyri í Súgandafirði, í Svein- húsum í Vatnsfjarðarsveit og á Grænagarði í Skutulsfirði. Þótt hún hafi ekki verið óvön sveita- störfum í einangruðum sveitum þá hef ég undrast að hún skyldi vera tilbúin að flytja á eyðijörð á Snæfjallaströnd þar sem hvorki var rafmagn, salerni né rennandi vatn, með þrjú ung börn, nýbúin með iðnnám og með meistara- réttindi í sinni grein. Akfær veg- ur kom ekki í sveitina fyrr en tólf árum eftir að ungu hjónin fluttu á Ströndina og rafmagn ári síðar. Þrátt fyrir einangrun var þar mikið félagslíf á sumrin og svo var saumaklúbbur kvenna í sveit- inni á veturna. Oft var lífið samt erfitt á Snæfjallaströnd og mamma stundum ein með kind- unum sem áttu það til að æða út Strönd í leit að æti í fjörunum þar í misjöfnum veðrum og iðulega var hún með vinnuflokka í mat sem voru að færa sveitina inn í nútímann. Pabbi var líka stund- um að heiman í erindum tengdum nútímavæðingunni og mamma ein á meðan. En það kom fyrir að hún fór suður að hitta pabba með flugi frá Bæjaflugvelli og þá var skroppið á ball. Ósérhlífni og innri styrkur eru hugtök sem mér finnst lýsa henni. Hún vílaði held- ur ekki fyrir sér að vinna hörðum höndum að því að gera með pabba upp gamla bæ tengdafor- eldra sinna í Lyngholti, komin um áttrætt. Dagbjartur sonur okkar Gyðu hefur notið þess sér- staklega að heimsækja ömmu sína og afa þar. Það var ómetanlegt að fá tæki- færi til að kveðja mömmu þegar ljóst var orðið að hverju stefndi. Hún var sjálfri sér lík í stutta stund og þakkaði fyrir allt gott í gegnum tíðina. Þakka þér fyrir allt, mamma mín, þú varst blíð og góð eins og segir í kvæðinu sem þú söngst svo oft: Og þú sem varst svo barnslega blíð og góð, bernskuárum gleymi ég aldrei þeim. (Jenni Jóns) Ólafur Jóhann. Í minningum mínum um mömmu finnst mér að hún hafi alltaf verið að brasa eitthvað, snögg í hreyfingum og hraðvirk. Hún eldaði og bakaði, bólstraði stóla og yfirdekkti, saumaði það sem þurfti og svo voru stórþrif tvisvar á ári a.m.k. Hún var mikill snyrtipinni og þoldi ekki óreiðu, sem mér fannst nú kannski held- ur mikill óþarfi. Hún vildi ekkert tilstand eða prjál og vildi ekki láta á sér bera. Mamma var einstakur karakt- er. Hún var hrein og bein og sagði sína skoðun afdráttarlaust og notaði orðatiltæki sem fáir þekktu nema við og okkar að halda á lífi. Við mamma vorum ekki alltaf sammála um hvaða leið væri farsælust í lífinu og ég var ekki alltaf hlýðin og góð dóttir, Kristín Ragnhildur Daníelsdóttir ✝ Ásta Svanhvít Þórðardóttir fæddist í Hvammi í Arnarnes-hreppi 28. júlí 1936. Hún lést á Öldrunar- heimilinu Hlíð, Ak- ureyri, 8. maí sl. Foreldrar hennar voru Þórður Sig- urvin Sigurjónsson, bóndi og bók- bindari, f. 27. ágúst 1886 í Dagverðartungu , Bæg- isársókn, Eyjafirði, d. 23. des. 1944 og Magðalena Sigurgeirs- dóttir, húsfreyja í Hvammi, f. 8. okt. 1896 á Vöglum á Þelamörk í Eyjafirði, d. 25. feb. 1981.Syst- kini Ástu voru: Þórður Guð- mundur, f. 11. júlí 1930, d. 25. maí 2011, og Halldór Hlöðver, f. 19. mars 1935, d. 21. des. 2013, og sam-mæðra systur Ástu voru: Ólöf Sig-urrós, f. 24. apríl 1916, d. 6. okt. 1971 og Magðalena Soffía, f. 16. apríl 1921, d. 18. júní 2003.Ásta flutti til Reykjavíkur nítján ára gömul og átti lengst heima þar, bjó einnig í Hafnar- firði og síðar á Akureyri frá árinu 2012.Ásta eignaðist fyrsta barn sitt í Hvammi í Arnarnes- hreppi, Þórð Magna Eyfjörð, f. 12. apríl 1955, býr í Þýska- landi.Fyrri eigin- maður Ástu var Gísli Angantýr Magnússon, f. 16. mars 1927, d. 25. okt. 2003, dætur þeirra eru: Björg Guðrún, f. 2. okt. 1956 og Kolbrún, f. 14. ágúst 1960, og barnsfaðir Ástu var Svavar Ágústs-son, f. 8. okt. 1941, d. 27. júlí 2016, dóttir þeirra er Sif, f. 3. sept. 1961.Ásta giftist Einari Vig- fússyni sjó-manni 15. nóv. 1962, f. 5. maí 1938 í Reykjavík en hann lést 23. des. 2017. Dætur þeirra eru Katrín Guð-munda, f 20. feb. 1963 og Magða-lena Ósk, f. 15. júlí 1966.Afkomendur Ástu eru 47 og 5 stjúp- langömmubör- n.Ásta vann hin ýmsu störf á ævi sinni, t.d. gangastúlka á Borgar- spítalanum, afgreiðslukona hjá sparimarkaði SS í Austurveri og síðar í blómabúð í Eddufelli, sem átti afar vel við hana.Útför Ástu fer fram í dag, 19. júní 2021, frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal klukkan 14. Við móðurmissi slitnar nafla- strengurinn endanlega. Þannig leið mér þegar mamma gaf frá sér síðasta andardráttinn, skyndilegt rof og mamma flogin á brott úr líkama sem sjúkdómurinn alz- heimer hafði herjað á í fjórtán ár. Mamma var auðvitað löngu lögð af stað í ferðalag gleymsku og óráðs en vegna persónuleika síns faldi hún einkenni sjúkdómsins eins vel og hún hafði mátt til. Hún viðurkenndi aldrei meðan hún lifði þá greiningu sem læknirinn gaf henni fyrir fjórtán árum. Mamma var einstaklega stolt kona og lét aldrei deigan síga þótt á móti blési. Hún stóð hnarreist í gegnum storma lífs síns og sagði oft: „Ég mun aldrei gefast upp þótt ég bogni og það skal engum takast að brjóta mig niður.“ Þetta viðhorf einkenndi mömmu því hún var þrjóskari en andskotinn og lét illa að stjórn. En mamma var líka glaðvær og hafði húmor fyrir sjálfri sér og lífinu. Hún kenndi mér kurteisi, fallega borð- siði og sagði alltaf: „Komdu fram við aðra eins og þú vilt að sé komið fram við þig.“ Ég elskaði hana alltaf. Líf mömmu hafði afgerandi áhrif á líf mitt og mínar ákvarð- anir í lífinu og gerði mig að þeirri manneskju sem ég er í dag og er ég þakklát fyrir það. Þú stoppaðir á veginum og hvarfst inn í þig án þess að kveðja mamma þú starandi augum horfðir í gegnum mig og mig langaði svo að kveðja þig mamma En um leið og lífsbönd þín bresta og þú flýgur á brott til himins í blárri birtu þá munu að lokum augu þín grænu brosa á ný í frelsi og nýjum heimum. Svo mun ég í eilífðinni vekja þig með blaktandi vængjaslætti og þá tökum við okkur sæti í mosanum og segjum sögur af baráttu litla blóms- ins sem ávallt teygði sig upp til himins. (Björg Guðrún Gísladóttir) Hvíl í friði, elsku mamma, og takk fyrir allt og allt. Þín dóttir, Björg. Ásta Svanhvít Þórðardóttir Minningarvefur á mbl.is Minningar og andlát Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.