Morgunblaðið - 19.06.2021, Síða 37
eins og hún hafði nú beðið eftir að
eignast þessa einu stelpu sem
hún eignaðist. En ég skreið nú
heim í skjólið með frumburðinn
og þau fóstruðu hann með sóma
þegar þurfti við.
Sameiginlegt uppeldi Andra
gekk að mestu vel en ég var ekki
sérlega kát þegar ég komst að því
að þau keyrðu frá Hólmavík og
vestur á Snæfjallaströnd og
mamma sat undir drengnum í
framsætinu. Þá voru svo sem aðr-
ir tímar og mamma sagði að hann
hefði bara verið svo ómögulegur
annars. Eftir að við fluttum til
Hólmavíkur og hún fór á eftir-
laun passaði hún öll börnin okkar
þar til þau komust á leikskóla og
gott var að stinga sér inn hjá
ömmu og afa og fá eitthvert góð-
gæti.
Mamma var fjölhæf, listræn og
mjög tónelsk. Hún hefði eflaust
verið bassa- eða trommuleikari
hefði hún verið í hljómsveit, því
hún sló taktinn stöðugt með fæti,
fingrum og tönnum, jafnvel við
hljóðið í þvottavélinni. Hún hafði
mest gaman af dansi og skemmt-
unum af ýmsu tagi. Henni fannst
frekar dauft skemmtanalífið fyrir
vestan og vildi meira fjör. Undir
það síðasta þegar ég sat hjá henni
var hún viss um að hún væri á leið
á einhverja skemmtun og ég vona
að hún sé komin á gott harmón-
ikkuball hjá fólkinu sínu í sum-
arlandinu.
Elsku mamma, takk fyrir allt
og megi minningin þín lifa. Hjart-
ans kveðja,
Salbjörg, Sverrir
og fjölskylda.
Við Adda tengdamóðir mín
hittumst fyrst fyrir tæpum sex-
tán árum þegar við Óli fórum að
draga okkur saman. Þau Berti
bjuggu á Hólmavík og við í Kjós-
inni svo við hittumst nú ekki mjög
oft til að byrja með. Fljótlega eft-
ir að við Óli giftum okkur fóru
tengdaforeldrar mínir í það verk,
sem ég ímynda mér að fáir aðrir
um áttrætt myndu takast á hend-
ur, að byggja upp æskuheimili
Berta, Lyngholt á Snæfjalla-
strönd. Það var þá að hruni komið
og mér fannst að þetta myndi
vera ómögulegt verkefni. Þau
voru hins vegar ekki lengi að
þessu enda algjörir naglar bæði
tvö. Þau dvöldu svo á Lyngholti
yfir sumartímann næstu árin og
við oft hjá þeim í nokkra daga í
senn. Þá gafst loksins tími fyrir
gæðastundir hjá okkur Öddu og
með okkur þróaðist vinátta sem
mér þótti mjög vænt um. Það var
ómetanlegt að fá að heyra allar
sögurnar af búskapnum á Snæ-
fjallaströnd og um gleði og sorgir
sem fylgdu því að búa á þessari
harðbýlu en fallegu strönd. Adda
sagði mér eitt sinn að henni hefðu
nú alltaf þótt útiverkin skemmti-
legri en inniverkin. Verandi með
ábyrgðina á því að fæða og klæða
sjö öflug börn, þar af sex drengi,
hefur nú líklega lítill tími gefist
fyrir annað en eldhús- og inni-
verk. Adda setti þarfir fjölskyld-
unnar í forgang og sennilega hef-
ur hún sjaldan velt eigin
löngunum fyrir sér. Að rækta
listræna hæfileika var lúxus sem
fáum konum af kynslóð Öddu
gafst færi á. Sjálf hafði Adda litla
tiltrú á hæfileikum sínum en
gleðin var augljós þegar hún fékk
tækifæri til að syngja. Tónlistin
var í blóðinu og það veitti henni
mikla ánægju að fylgjast með af-
komendum sínum í tónlistarsköp-
un og flutningi við hin ýmsu til-
efni. Hún kunni alla texta, jafnvel
undir það síðasta þegar minnið
var farið að gefa sig. Við Dag-
bjartur, sonur okkar Óla, erum
þakklát fyrir allar góðu stundirn-
ar sem við áttum með ömmu
Öddu á Lyngholti og munum
sakna hennar mikið. Við munum
hugsa til ömmu Öddu þegar við
tínum blágresi í brekkunni við
Lyngholt og hlustum á sönginn í
Dalsánni. Elsku amma Adda, þú
verður áfram til í hjörtum okkar.
Þín tengdadóttir,
Gyða Sigríður Björnsdóttir.
Elsku Adda tengdamamma,
margs er að minnast og margt er
að þakka árin öll. Ég kom í fyrsta
skipti vestur að Tirðilmýri með
honum Ingvari mínum 17. júní
árið 1976. Þú sagðir mér seinna
að þér hefði hreint ekkert litist á
mig, svona granna og pjötlulega
og svo kófreykti ég líka í þokka-
bót. Þú sagðir mér líka að ég
hefði nú skánað með árunum.
Þú varst svo hrein og bein,
Adda mín, mér þykir svo vænt
um þessar einlægu lýsingar þínar
á mér og svo hlógum við bara að
öllu saman. Það var svo gaman að
hlæja með þér þegar gullkornin
hrukku af vörum þínum. Við töl-
uðum stundum um andstæðurn-
ar, norðlensku konurnar, sem þér
fundust ósköp veimiltítulegar, og
vestfirsku kjarnakonurnar. Þú
varst svo sannarlega ein af þeim,
elsku Adda. Það hefur þurft
mikla útsjónarsemi og og þraut-
seigju til að sjá öllum fyrir fæðu,
Berta þínum, strákunum sex og
Söbbu, þegar einu samgöngurnar
voru Djúpbáturinn sem kom
tvisvar í viku með vistir frá Ísa-
firði. Svo ekki sé minnst á þá sem
bar að garði hverju sinni.
Það var ævintýri að koma á
Snæfjallaströndina og upplifa
heimilisbraginn á Tirðilmýri.
Stofan oft full af fólki og þar var
sungið af lífi og sál, „Ljúft er að
láta sig dreyma liðna sælutíð…“
og Geiri, Halli og Grettir spiluðu
undir. Þið Berti voruð svo sam-
taka í að lifa lífinu lifandi og létuð
helst ekki mannfagnaði framhjá
ykkur fara.
Léttleikinn þinn, Adda mín,
hefur eflaust fleytt þér langt á
löngum vetrum. Þú elskaðir dans
og söng. Á meðan Berti þinn lagði
sig eftir matinn, þá söngst þú
með útvarpinu við uppþvottinn
og tókst nokkur dansspor um
leið. Þú varst svo dugleg og af-
kastamikil. Aldrei fórstu frá eld-
húsinu í óreiðu, þar var hver bolli
þveginn og allir hlutir á sínum
stað. Þannig var með heimilið
allt, samt varstu alltaf tilbúin að
skreppa af bæ með Berta þínum.
Við fjölskyldan fórum á hverju
sumri vestur í heimsókn til ykkar
Berta, fyrst að Tirðilmýri, svo á
Hólmavík og síðustu árin að
Lyngholti á Snæfjallaströnd. Við
eigum margar dýrmætar minn-
ingar frá þessum heimsóknum
okkar. Oftar en ekki kom þá stór-
fjölskyldan saman og þá var nú
glatt á hjalla og mikið sungið.
Það var svo gaman þegar þú
hélst upp á 80. ára afmælið þitt
hjá okkur Ingvari í Sólbakka,
elsku Adda. Þá komu öll börnin
þín saman í fyrsta skipti í mörg
ár. Þetta voru fjögurra daga
veisluhöld í allt og mikið var
spjallað, hlegið og sungið þessa
daga. Tvö ferðalög með ykkur
Berta sumarið 2010 eru mér mjög
minnisstæð. Þegar við heimsótt-
um Gretti, Stínu og syni í Upp-
sala og fórum m.a. í siglingu um
Skerjagarðinn í Stokkhólmi og
dagsferð í Dalina á heimaslóðir
Stínu. Við fórum einnig með ykk-
ur og fjölskyldu okkar Ingvars
um Vestfirðina. Þá fórum við m.a.
bæði á Rauðasand og í Selárdal.
Ógleymanlegar stundir.
Elsku Adda, þú varst ekki að
víla hlutina fyrir þér, heldur
vannstu verkin af ótrúlegri
þrautseigju og dugnaði. Við get-
um margt lært af þér, en umfram
allt að njóta lífsins, að grípa hvert
augnablik og gera úr því gleði-
stund.
Elsku Berti, missir þinn og
fjölskyldunnar er mikill, en dýr-
mætar minningar lifa.
Hulda Steingrímsdóttir.
Í dag kveðjum við elskulega
móðursystur okkar, hana Öddu
frænku, í hinsta sinn. Adda var
elst þriggja systkina, en sú síðasta
til að kveðja. Það var einungis ár á
milli hennar og mömmu okkar,
Halldóru, voru þær systur mjög
samrýmdar á uppvaxtarárunum á
Ísafirði og talaði mamma oft um
þann tíma þegar þær voru að alast
upp, þá var ekki hægt að leyfa sér
allt það sem nú er í boði, enda
mjög breyttir tímar. Einmitt þess
vegna er eftirtektarvert, þegar
gamlar myndir af þeim systrum
eru skoðaðar, að þó svo að efnin
hafi ekki verið mikil voru þær allt-
af svo glæsilegar og vel tilhafðar
eins og kvikmyndastjörnur, listina
að nýta það sem í boði var kunnu
þær svo sannarlega.
Tenging systkinanna við Upp-
sali og Eyri í Seyðisfirði var alltaf
sterk, en þar bjó föðurætt þeirra,
á Uppsölum fæddist Adda og bjó
fyrsta árið, en þá fluttu amma og
afi til Súðavíkur þar sem systkinin
Dóra og Haukur fæddust, fjöl-
skyldan settist síðan að á Ísafirði.
Örlögin höguðu því síðar þannig
að Adda nýútskrifuð hárgreiðslu-
dama flutti með eiginmanni sínum
á Snæfjallaströnd og gerðist
bóndakona, eins og hún nefnir í
einu viðtali sem tekið var við hana.
Við systur eigum margar góðar
minningar frá heimsóknum til
Öddu og Berta á Tirðilmýri, alltaf
var okkur tekið með hlýju og
væntumþykju og fannst okkur
þetta vera mikill ævintýraheimur,
þó eflaust hafi lífið þar ekki alltaf
verið auðvelt með stóran barna-
hóp, veturnir langir og harðir og
Tirðilmýri sannarlega síðasti
bærinn á Snæfjallaströndinni,
nokkuð afskekkt á þeim tíma. En
á heimilinu var mikil menning,
tónlist, kveðskapur og lestur.
Adda naut þess alltaf að hafa tón-
list í kringum sig, þó hún segðist
ekki hafa kunnað á hljóðfæri, bara
sungið með, en hún hafði fallega
söngrödd og kunni alla söngtexta.
Undanfarna mánuði höfum við
séð hvernig nálgaðist kveðju-
stund, sem betur fer gat Adda
verið heima hjá sér nánast fram á
það síðasta. Það var alltaf nota-
legt að koma til Öddu og heilsaði
hún alltaf með orðunum „sæl vin-
an“, faðmaði okkur og strauk um
kinnina. Það er mikill söknuður að
Öddu, en við hugsum með þakk-
læti til þess að hafa fengið að hafa
hana hjá okkur þetta lengi. Missir
fjölskyldunnar er mikill og sér-
staklega Berta sem nú sér á bak
lífsförunaut sínum, en þau náðu
að fagna 73 ára brúðkaupsafmæli
í vor.
Adda lést aðeins tveimur dög-
um fyrir 93 ára afmælið sitt, átti
hún því langa og góða ævi, það
breytir því þó ekki að alltaf er
erfitt að kveðja þá sem eru manni
kærir. Hún spurði okkur syst-
urnar í einni af síðustu heim-
sóknunum hvort við værum
nokkuð með hljóðfæri, hana
langaði svo að heyra tónlist.
Núna er hún eflaust að dansa og
syngja við harmonikkutónlist
ásamt þeim sem á undan fóru í
sumarlandið.
Takk fyrir allt, elsku Adda
frænka.
Soffía Helga, Gunnfríður
og Sigríður Rósa
Magnúsdætur.
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2021
Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Minningarkort á
hjartaheill.is
eða í síma 552 5744
Útför í kirkju
Kirkjan til staðar
fyrir þig þegar
á reynir
utforikirkju.is
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST •REYNSLA
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUÐJÓN JÓHANNSSON,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 15. júní.
Hann verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 23. júní klukkan 13.
Guðmundur Örn Guðjónsson
Hrafnhildur Una Guðjónsdóttir
Íris Ósk Guðjónsdóttir
Sigvarður Hans Ísleifsson
Ellen Kristjánsdóttir
Helga Guðjónsdóttir
Jóhann Kristinn Guðjónsson
Daníel Guðjónsson
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
GUNNAR INGI BIRGISSON,
Boðaþingi 12,
lést mánudaginn 14. júní á heimili sínu.
Útför hans fer fram frá Lindakirkju
fimmtudaginn 24. júní klukkan 13.
Vegna 300 manna samkomutakmarkana verður
útförinni streymt á slóðinni www.sonik.is/gunnar.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast Gunnars er bent á hjartadeild Landspítalans.
Vigdís Karlsdóttir
Brynhildur Gunnarsdóttir
Auðbjörg Agnes Gunnarsd. Björn Jakob Björnsson
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SVEINN JÓHANNESSON,
Flóðatanga,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
föstudaginn 11. júní.
Útförin fer fram frá Reykholtskirkju í Borgarfirði laugardaginn
26. júní klukkan 14.
Þorbjörg Valdimarsdóttir
Jóhann Gunnar Sveinsson
Ingibjörg Ásdís Sveinsdóttir
Lárus Hermannsson
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
JÓN Á. HJÖRLEIFSSON
rafvirki,
Garðatorgi 17, Garðabæ,
lést á Landspítalanum 10. júní.
Útförin fer fram frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðvikudaginn
23. júní klukkan 13.
Lilja Jónsdóttir
Halldóra Jónsdóttir
Hjörleifur Már Jónsson Þóra Hafsteinsdóttir
Jóna Margrét Jónsdóttir Viktor Sighvatsson
Guðbjartur Jónsson Erla Einarsdóttir
Kolbrún Jónsdóttir
Kristbjörg Lilja Jónsdóttir Helgi Harðarson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
AÐALHEIÐUR SIGVALDADÓTTIR
Mánatúni 9,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni
þriðjudaginn 8. júní. Útför verður gerð frá
Háteigskirkju þriðjudaginn 22. júní klukkan 13.
Gunnar Heiðar Guðjónsson
Anna Guðbjörg Gunnarsd. Daði Björnsson
Guðmundur Ingi Gunnarsson Patrizia Cipriani
Elín Heiður Gunnarsdóttir Davíð Jens Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og bróðir,
DIÐRIK JÓHANNSSON,
fyrrv. framkvæmdastjóri
Nautastöðvar BÍ,
Mýrarvegi 111, Akureyri,
sem lést 11. júní, verður jarðsunginn
mánudaginn 21. júní klukkan 13.00 frá Glerárkirkju. Streymt
verður frá athöfninni á facebooksíðunni
Jarðarfarir í Glerárkirkju.
Elsa Björg Diðriksdóttir Ralf Heese
Líney Snjólaug Diðriksdóttir Kristján Jónsson
afabörn
Gustav, Wilhelm og Hermann Kuhn